Morgunblaðið - 14.01.1968, Qupperneq 8
8
8!)C'i KAtmAi m auoAauwitJg aioAjanuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JANUAR 196«
F erðaskrif stof ustarf
Ferðaskrifstofa í Reykjavík óskar eftir að ráða
starfsmann, karl eða konu, helzt með einhverja
reynslu í ferðamálum. Umsóknir, sem tilgreini
menntun, aldur og fyrri störf sendist blaðinu fyrir
25. janúar, merktar: „2917“.
Breiðfirðmgar
Fyrsta skemmtikvöld félagsins verður í Breiðfirð-
ingabúð fimmtudaginn 18. janúar kl. 9 stundvís-
lega.
Félagsvist og dans.
Heildarverðlaun, farseðlar til Kaupmannahafnar
báðar leiðir.
FYRIRTÆKI
Fyrirtæki óskast keypt. Margs konar rekstur kemur til greina. Tilboð sendist
Morgunblaðinu fyrir 22. janúar, merkt: „Fyrirtæki nr 2883“.
Farið verður með tilboð þau sem kunna að berast sem algjört trúnaðarmál.
Bútasala
á enskum gólfteppum.
Motfur, dreglar, bílmottur.
Notið tækifærið
og gerið góð kaup
SPORTVAL
Laugavegi 116.
Skjalaskápar — Skjalaskápar
Shannon skjalaskápar
tvær gerðir fyrirliggjatndi
Sliannon möppur I skrifborð
og flestar gerðir skjalaskápa
Ólafur Gíslason & Co. hf.
Ingólfsstræti 1 A. — Sími 18370.
Samkomuhús - veitingahús
Verðið er ekki aðalatriðið, heldur endingin.
Leitið tilboða. Gólfteppi frá Álafoss, umboð
um allt land.
ÁLAFOSS.
Sjúkrasokkor
þunnir og fallegir.
BÍ kr. 290. Litir coctail og
caresse.
Hudson kr. 295. Litur Bronce.
Sdholls kr. 429.
Skóverzlunin
í Domus Medica
Póstsendum.
VESTRE'S
orgel- og pianofabrik
Haramsöy, IMoregi
vekur athygli á eftirfarandi:
HEIIUILIÐ
Hinar öru breytingar, er orðið hafa um víða veröld
síðustu áratugi á flestum sviðum, hafa m.a. leitt til
þess, að enn meiri áherzla hefur verið lögð á hlut-
verk heimiianna, en áður var, við að skapa fólki —
og þá eigi sízt börnum og unglingum — þá aðstöðu
heima hjá sér, sem verða má því til ánægju og auk-
innar menntunar. Þetta er ýmsum erfiðleikum
bundið, en þó munu flestir viðurkenna, að góð
hljóðfæri, t.d. harmóníum eða orgel, geta fært birtu
yl og ánægju og samstöðu inn á heimilin. Og þá er
vel.
SKÓLIIMIXI
Það er mjög mikilvægt fyrir skólanemendur, að
fá notið tilsagnar í hljómlist, bæði 1 hljóðfæraleik
og söng. Miklu máli skiptir, að hljóðfærin séu góð.
Um langan aldur hefur orgelharmóníið skipað þýð-
ingarmikinn sess í skólastofum almennt og söng-
kennslustofum og er svo enn.
KIRKJAIM
Hvort sem kirkja er stór eða
lítil, gömul eða ný, þá skiptir
miklu máli fyrir áhrif guðs-
þjónustunnar og aðrar hátíð-
arstundir í kirkjunni, að þar
sé fyrir hendi hljóðfæri, sem
hentar stærð og gerð kirkj-
unnar.
Sjálfsagt er að hafa pípu-
orgel í sem flestum kirkjum, og fari stærð þess og
gerð eftir kirkjunni. í litlum kirkjum hentar e.t.v.
betur að hafa orgel-harmóníum, sem sérstaklega
eru gerð fyrir þær.
Vörumerki V E S T R E-verksmiðjunnar er
trygging fyrir því, að þau hljóðfæri, sem bera það,
eru góð, svara kröfum tímans í útliti og hljómfeg-
urð, Verksmiðjan hefur starfað í 80 ár og auk þess
sem hún byggir framleiðslu sína á eigin reynslu, þá
fyigist hún með því, sem gerist annars staðar. Har-
amsöy er við vesturströnd Noregs, þar sem loftslag
er ekki ósvipað og á íslandi. Þeir, sem kaupa hljóð-
færi frá V E S T E ’s-verksmijðunni til notk-
unar á íslandi geta treyst því að fá ágætis hljóð-
ígeri, er hentar loftslaginu þar.
Reynið viðskiptin.
VESTRÉ’S
Orgel- & pianofabrik
Haramsöy — IMoregi
Umboðsmaður verksmiðjunnar á íslandi er
GISSIJR ELÍASSOIM
Laufásvegi 18, Reykjavík. — Sími 14155.