Morgunblaðið - 14.01.1968, Page 15

Morgunblaðið - 14.01.1968, Page 15
ICrOKGUNB'LAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14; JANÚAR 19Q8 15 \ iðurkeniiing úr óvæntri átt Yfir öllum þeim, sem fást við fitstörf að staðaldri, vofir sú hætta, að skrif þeirra verði of einhæf. Þess vegna er ánægju- legt að lesa það, er ungur Fram- sóknarma'ður segir í Tímanum sl. fimmtudag um „efni“ Reykjavík- urbréfa, sem hann segir vera hin „ólíklegustu": „Verk ungskálda, erjur menntaskólastráka, trúmáladeil- ur, ævisögur, málverkasýningar, útgerð og aflabrögð, vexti og lánastefnu, ferðalög fyrirmanna, styrjaldir og byltingar tvist og bast um veröldina, verðbólgu og vísitöluuppbætur, skepnuhátt og ósvífni andstæðinganna, „kölk- un“ Einars Olgeirssonar, „holl- ustu“ Hannibals og urmul af öðru, nánast flest milli himins og jarðar.“ Úr gildi þessarar viðurkenn- ingar dregur ekki það, þófct hinn ungi Framsóknarmaður skilji ekki tilgang Reykjavíkurbréfa og hann fari hnjóðsyrðum um þann, er hann hyggur vera höf- und bréfanna, sem hann segir þó hafa „alsjáandi auga“, og „ekkert mannlegt sé honum óviðkomandi“! Jafnvel höf- undur bréfanna hafði ekki gert sér grein fyrir, áð hann kæmi svo víða við í rabbi sínu, að réfct- lætti slíka viðurkenningu. Nefnir ekki Evstein i j Hinn ungi Framsóknarmaður nefnir hins vegar ekki Eystein Jónsson. En engum, sem hlustaði á útvarpsþátt Björgvins Guð- mundssonar sl. mánudagskvöld, dylst hvern hinn ungi Framsókn armaður hefur í huga, þegar hann skrifar: „Óðapólitíkin endurspeglast í ófrjóum stjórnmálaumræðum, þar sem klippingar úr gömlum ræðum andstæðinganna og ófor- skammaðir útúrsnúningar eru taldir helztu kostir, og sá er mestur, sem oftast grefur upp úr rykföllnum Alþingistíðindum að fyrir ævalöngu sagði einhver eitthváð sem er öðru vísi en sami eða aðrir segja nú. Eðli sjálfra vandamálanna, mat á gögnum og hlutlægar upplýsing- ar, röksemdir með eða móti og ákveðnar ítarlegar tillögur eru eitur í beinum boðbera óðapóli- fcíkurinnar, valdhafanna í land- inu.“ Síðustu þremur orðunum hef- ur verið bætt inn í því skyni að greinin fengi rúm í Tíman- um. Að öðru leyti er þessi máls- grein nákvæm lýsing á frammi- stöðu Eysteins Jónssonar í þess- um útvarpsþætti. Og er raunar ekki furða, þótt hinum unga manni ofbjóði það, sem hann kallar hið „alsjáandi auga“ and- stæðings síns miðað við þröng- sýni síns eigin formanns. I út- varpsþættinum reyndi Eysteinn Jónsson að villa um fyrir mönn- um, með því að vitna í ummæli andstæðinga sinna, tekin úr réttu samhengi, og vék sér und- an að skýra afstöðu sína til þess málefnis, er til umræðu var. Um sumt fór Eysteinn með bein ó- sannindi eins og varðandi yfir- lýsinguna, sem Tíminn gaf á kjör dag 1956. Hann sagði, að i Tim- anum hefði verið sagt, að Fram- sókn og Alþýðuflokkur þyrfti að fá nógu mörg þingsæti, svo að komizt yrði hjá samvinnu við Alþýðubandalagið. Yfirlýsingin hljóðaði hins vegar svo: „Ekkert samstarf verður haft við þetta bandalag kommúnist- anna um stjórn, af því að þeir eru ekki hóti samstarfshæfari en áður, þótt þeir hafi skipt um nafn.“ „Fyrirgreiðslató Framsóknar Oft áður hefur verið vakin athygli á því í Reykjavíkur- I klifurgrind (Ljósm. Mbl.: Ol. K. M.) stæðismanna átti lengi örðugt j uppdráttar. Meðan reynslan hafði ekki skorið úr, héldu ýms- ir, að það hlyti að verða verka- mönnum til hags að „breyta þjóð skipulaginu.“ Þess vegna væri það éðlilegur tilgangur hreyfing- ar þeirra að berjast fyrir nýju þjóðskipulagi, þ.e. sósíalistísku og rétt er að hafa það í huga að þegar hér er talað um að „breyta þjóðskipulaginu“, þá er ekki um að ræða umbætur, held- ur gerbreytingu, byltingu, eins og kommúnistar segja, þegar j þeir vilja ekki villa um fyrir mönnum. Nú -hefur reynslan skorið úr um það, að verkamönn um líður sízt betur í þeim þjóð- j félögum, þar sem þvílík bylting ; hefur orðið. Enginn efi er t.d. á því, að afkoma verkalýðs er mun betri í Bandaríkjunum en Sov- ét-Rússlandi. Eins er það, að hin- ir socíaldemókratísku flokkar í Evrópu hafa flestir kastað fyrir borð hinum gömlu kenningum um allsherjar þjóðnýtingu. Svo hefur t.d. berum orðum verið gert í Y.-Þýzkalandi og í fram- kvæmd að verulegu leyti á Norð- urlöndum og í Bretlandi. í lýð- ræðislöndum læra flokkarnir mikið hver af öðrum, þannig hefur raunin orðið um alla vest- anverða Evrópu og einnig hér á landi. Á síðasta Alþýðusambands- þingi vildi Hannibal Valdimars- REYKJAVÍKURBRÉF bréfum, áð Framsóknarmenn reyna iðulega að fela eigin at- hafnir með því móti að ásaka andstæðinga sína um það, sem þeir sjálfir hafa gert, eru að gera eða hafa í undirbúningi. Það er þess vegna eftir öðru, ef Fram- sóknarmenn ætla nú að hefja áróður fyrir því, að ekki megi blanda stjórnmálum, pólitík, í alla hluti. Á íslandi hafa eng- ir, jafnvel ekki kommúnistar, gengið lengra í því en Fram- sóknarmenn að blanda stjórn- málum í fjarskyldustu efni. I saklausasta formi birtist þessi viðleitni í hinni svokölluðu „fyr- irgreiðslu." Framsóknarmenn hafa löngum haft þann hátt á að bjóða einstökum kjósendum „fyr irgreiðslu" sína um lausn hinna ólíklegustu málefna. Nú getur slíkt verið óhjákvæmilegt og m.a. s. lofsvert í ýmsum tilfellum. Hins vegar eru sagðar óteljandi sögur af því, að ef einhver stofn- un hefur afgreitt mál, á hag- stæðan hátt fyrir mann úfci á landi, þá hafi hann fengið skila- boð, upphringingu, bréf, eða jafn vel símskeyti frá Framsóknar- þingmanni, þar sem skýrt er frá afgreiðslu málsins, þó að hann hafi hvergi nærri komið. Með þessu á að telja mönnum trú um, að lausnin hafi einungis fengizt vegna „fyrirgreiðslu" Framsóknarmannsins. Stöðug við leitni Framsóknar til að efla vald hinna og þessara nefnda og ráða á einnig að nokkru leyti skýr- ingu sína í því, að þessar stofn- anir höguðu afgreiðslum sínum allt of oft eftir áhrifum frá þess- um „fyrirgreiðslumönnum." Með þessu móti var flokksvélinni fenginn möguleiki, ekki einung- is að láta eins og einstökum mönnum væri gerður greiði, held ur einnig að gera þeim greiða að vissu marki. Það fer og ekki fram hjá neinum, að fylgisaukn- ing Framsóknar í þéttbýlinu stendur í nánum tengslum við aukin umsvif SÍS og fyrirtækja þess í ýmiss konar atvinnu- rekstri, við stofnun Samvinnu- trygginga og Samvinnubanka. Eftir að þessar stofnanir kom- ust upp, hafa áróðursmenn Fram sóknar Seinlínis sófct á ýmsa kjós endur í Reykjavík og nágrenni og spurt hvort þeir þyrftu ekki ,,fyrirgreiðslu“ um lán til bíla- kaupa eða einhvers ámóta. Þetta er á allra vitorði og ágætt að fcækifæri gefst til að ræða um það opinberlega. Laugardagur 13. jan. Átökin innan verkalýðshreyf- ingarinnar Innan verkalýðshreyfingarinn- ar hafa allir flokkar látið til sín taka, en tilgangur þeirra hefur verið býsna ólíkur, eins og Magn- ús Kjartansson réttilega drepur á í grein, sem hann skrifar í Þjóðviljann sl. miðvikudag, þar sem hann m.a. segir: „Vakin er athygli á þessum sjónarmiðum Hannibals Valdi- marssonar og Frjálsrar þjóðar vegna þess að í þeim birtist eink- ar greinilega sú stefna að skilja á milli verkalýðsbaráttu annars vegar og stjórnmálabaráttu hins vegar, en þar er um að ræða mjög skýr áhrif frá hinni borg- arlegu verkalýðshreyfingu í ýms- um löndum umhverfis okkur, t.d. í Bandaríkjunum. Hin borg- aralega verkalýðshreyfing sníð- ur athöfnum sínum þann stakk að starfa innan ríkjandi þjóð- skipulags og vera eins konar hluti af ríkisvaldinu hverju sinni, taka m.a. að sér a’ð vinna að ýmiss konar framkvæmda- atriðum sem vissulega geta ver- ið býsna mikilvæg stundum. Sós- íalistísk verkalýðshreyfing setur sér hins vegar stærri markmið, tilgangur hennar er sá, að breyta þjóðskipulaginu, og þess vegna eru verkalýðsmál og stjórnmál ævinlega samofin í afchöfnum hennar.“ Framsókn og kommai vilja mis- notknn verkalýðs- arinnar Það hefur verið höfuðmark- mið Sjálfstæðismanna innan verkalýðshreyfingarinnar frá upphafi, að skilja á milli verka- lýðsbaráttu annars vegar og stjórnmálabaráttu hins vegar. Þetta er nauðsynlegt þegar af því, að í verkalýðshreyfingunni eru menn úr öllum stjórnmála- flokkunum. Þessi skoðun Sjálf- son koma á „þjóðstjórn” það er að segja raunverulegri þátttöku allra flokka í miðstjórn Alþýðu- sambandsins. Þetta komst á í orði kveðnu, þó að samvinna á jafn- réttisgrundvelli væri hindruð. Framsóknarmenn studdu línu kommúnista eindregið í því að reyna að halda stjórnarstu'ðnings mönnum, Alþýðuflokksmönnum og þá einkum Sjálfstæðismönn- um, utan við miðstjórn Alþýðu- sambandsins. Og er raunar of vægt til orða tekið að segja, að Framsókn hafi stutt línu- kommúnista í þessu, því að Fram sókn var þarna mun harðari og ögraði línukommum til að láta ekki undan síga. Ösranir Fram- sóknar Þessar ögranir Framsóknar eru ekkert eindæmi. Á Alþingi hefur máfct heyra stöðugar brýningar frá formanni flokksins og rit- stjóra Tímans til verkalýðsfor- ingjanna, um, a'ð þeir hafi verið of linir í kröfum. Á hinu sama hefur svo verið síhamrað í Tím- anum og Kristján Thorlacius gat ekki stillt sig um að ráðast með beinum illyrðum að forustumönn um Alþýðusambandsins fyrir að leggja ekki út í stórverkfall hinn 1. des. sl. Samtímis fjargviðrast svo þessir sömu menn yfir verð- hækkunum og verðbólgu í land- inu! Engu að síður blasir við öll- um, sem hið sanna vilja vifca, a'ð hækkandi verðlag hér á fyrst og fremst rætur sínar að rekja til hækkaðs kaupgjalds og þar af leiðandi hækkaðs verðs á inn- lendri framleiðslu. Orsakasam- hengið er svo augljóst, að Fram- sóknarherrarnir reyna ekki að rökræða það, heldur kaldhamra stöðugt á sömu fjarstæðunum í þeirri fullvissu, að einhverjir ver’ði til þess að trúa því að ómögulegt sé, að ábyrgir menn haldi slíkum málstað fram ár eftir ár gegn betri vitund í al- geru blygðunarleysi. Af liverjii koma vamlræðin? Það kann að láta vel í eyr- um ókunnugra að halda því fram, að ótrúlegt sé, að mikil vandræði gætl nú verið á fer'ðum, því ár:ð 1967 sé fjórða mesta aflaár í íslandssögu og afurðaverð hafi þó ekki lækk að meira en niður í meðaltal síðustu 5 ára, eða sem svarar því er var á árinu 1964. Nú er það að vísu svo, að orsakir vandans eru engan veginn taldar allar með þessu. T.d. er ekki minnzt á það, hversu miklu kostnaðar meira varð vegna ógæfta og fjar- lægra miða að afla sama magns nú en áður. Þá er því einnig sleppt, að í landinu liggur skreið fyrir eitthvað nærri 300 millj- ónir króna, sem me'ð öllu hefur reynzt óseljanleg. Sú staðreynd ein hlýtur að hafa í för með sér ekki einungis tekjurýrnun á ár- inu 1967, heldur og, að ekki þýð- ir að fiska í skreið á árinu 1968 með öllum þeim breytingum í veiðiaðferðum, sem slíku er sam fara. Augljóst er einnig, að hvert einstakt atriði út af fyrir sig mundi valda miklu minni erfið- leikum, en þegar þau koma öll saman á einu ári. Það er ein- mitfc þessi samtvinning vanda- málanna, sem gerir þau óvenju- lega erfið viðureignar nú, og ekki erfiðari en svo, að ef menn vilja um sinn laga lífshætti sína, eftir því, sem var fyrir 2—3 ár- um, þá er öllu borgið, þ.e.a.s. eftir því, sem fjárhagsráðstafan- ir duga. Málið er hins vegar margþættara eins og lýsir sér í því, að óhjákvæmilegt er að breyta til um veiðiaðferð- ir. Fróðir menn telja, að netaveiðar hljóti að miklu leyti að falla niður úr því, að skreiðarverkun er úr sög- unni á þessu ári. Til þess að vega þar á móti, er eina ráðið að heim ila botnvörpuveiðar innan fisk- veiðilögsögunnar. Vísindamenn hafa í mörg ár ráðlagt, að svo skyldi gert, en fordómar og hér- aðarígur hefur hindrað það. Nú verða menn að hefja sig upp yfir þvílíka þröngsýni, ekki til þess að ónýta friðun fiskimið- anna, heldur í því skyni að hag- nýta þau í samræmi við tillög- ur hinna hæfustu manna. Of einhæfir at- vinnuvegir Á sl. ári lögðust óteljandi or- sakir á eitt að skapa örðugleika fyrir okkar einhæfu afcvinnu- vegi. Engir hafa oftar né stað- fastlegar varað við þvílíkum hættum en Sjálfstæðismenn. Nú láta hinir, sem minnst úr hætt- unum hafa viljað gera, eins og þeir hafi verið hrópandans rödd! Hvað sem slíkum deilum líður, þá getur það, sem aðra skiptir sáralitlu, ráðið úrslitum hjá okk ur. í International Herald Trib- une, hinn 8. jan. er t.d. birt lítil frétt frá Boston, dags. hinn 7. jan. Fyrri hluti fregnarinnar hljóðar svo: „Niðurfelling banns rómversk- kaþólsku kirkjunnar gegn því að borða kjöt á föstudögum hefur lækkað fiskverð í Nýja Englandi um 12,5% að sögn Federal Res- erve Bank of Boston.“ í Bandaríkjunum er nánast sagt frá þessu sem skrítnum hlut undir gamansamri fyrir- sögn, um „svartan föstudag“ fyrir fiskimenn. Hér á Islandi varðar þetta raunverulega hag hvers einasta mannsbarns, þeg- ar margt annað okkur öndvert bætist við. Fiskveiðar hafa hlut- fallslega mun meirri þýðingu fyrir Norðmenn en Bandarikja- menn. Engu að síður skipta fisk- veiðar þjóðarbúið norska ekki ýkja miklu máli. Samt sem áður finna þeir nú til verðfallsins eins og sést af því að heildarafli Norð manna á árinu 1967 er talinn hafa aukizt um 14%, en engu að síður hefur útflutningsandvirð- ið minnkað um 14%, samanbor- ið við 1966! Við hverju er þá að búast hjá okkur sem höfum orð- ið að sæta ver'ðfallinu ofan á 27—28% minni afla, að viðbætt- um stórauknum kostnaði vegna illviðra og fjarlægra miða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.