Morgunblaðið - 01.02.1968, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1968
21
Átök við Siíezskurð milli
Israela og Egypta
— Urðu síðan við tilmœlum SÞ.
um að hœtta hríðinni
Yfirlýsing Kosygins og Indiru
Tel Aviv, Kario,
30. jan. AP—NTB,
ÁTÖK urðu milli ísraelskra og
egypskria hermanna við Súez-
skurðinn í gær. Hófust þau, er
Egyptar reyndu að láta mael-
ingaskip eitt sigla leiðar sinnar,
en Israelar héldu því fram, að
þeim væri óheimilt að láta skip
ið fara þessa leið. Skipið
sfeemmdist talsvert, en ekki fylg
ir fréttinni, hvort manntjón hafi
orðið. Skothriðin stóð í fjórar
klukkustundir.
Stjörnuhíó:
KARDÍNÁLINN.
Framleiðandi og leikstjóri:
Otto Preminger.
Meðal leikenda:
Tom Troyon,
Romy Schneider,
Carol Liniey,
John Huston.
Mynd þessi er auglýst sem stór-
mynd, og finnst mér ekki ástæða
til að reyna að hafa það nafn af
henni. Hún fjallar um togstreitu
tilfinninga, já, togstreitu lífsvið-
horfa. Um þá sígildu spurningu,
hvort framar beri að hlýða Guði
en mönnum. í allmörgum þjóð-
félögum mun nú svo komið —
og víst fyrir nokkuð löngu —;
að þau lög og reglur, sem menn-
irnir hafa sjálfir sett sér, hafa
forgang fram yfir Guðslög, ef
þau greinir á, enda eru menn-
irnir æði mikilvirkir löggjafar,
þótt þeim sé gjarnt að brjóta
einnig sín eigin lög.
Sem betur fer eru mörg lög
mannanna leidd beint af lögmál-
um Guðs og önnur hafa skyld-
leika við þau Réttarvitund al-
mennings í kristnu þjóðfélagi
stendur í rauninni í nánum tengsl
um við kristin trúaráhrif, svo
færa má að því líkur, að allflest
þau lög, sem samrýmast réttar-
vitund manna, séu orðin til fyrir
kristin áhrif.
Eigi veit ég, hvernig lúterskir
prestar hefðu snúizt við því
vandamáli, sem kaþólski prest-
urinn Stefán Fermoyle (Tom Tro
yon), á við að glíma í þessari
mynd, þegar hann á úr því að
skera, hvort lífi systur hans skuli
bjargað með því að mola höfuð
barns þess, sem hún var að því
komin að fæða. Nema Stefán
vitnar í Guðs lög, þar sem bann-
að er að tortíma mannslífi. ,,Deyi
systir mín, vegna þess, að barn
hennar er ekki drepið, þá deyr
hún eðlilegum dauðdaga“ segir
hann. Og systir hans deyr, en
bamið lifir.
Nú er einnig bannað sam-
kvæmt veraldlegum lögum að
taka líf annars manns, svo
Stefán hefði enn getað styrk rök-
semdafærslu sína, með því að
vitna í þau lög, en kaþólskum
presti nægja lög Guðs.
Alla myndina í gegn virðast
efasemdir þó sækja á Stefán, en
ávallt á samt hin heita Guðstrú
siterkust ítök í honum og það
mikilvæga hlutverk, sem hann
telur að Guð hafj ætlað sér. —
Tom Troyon er sérstæður leikari
og er gjarnan settur í hlutverk
hálfgerða dýrlinga, sem þó eiga
tíðum í innri baráttu. Andlit
hans og svipur hæfir vel í helgi-
hlutverk, hann hefur heiðan og
fallegan svip. Hins vegar er hann
ekki mikill svipbreyitingameist-
ari, tilfinningatogstreita hans
kemur fremur fram í orðum en
snöggum svpbreytingum.
Egyptar halda því fram., að
Israelar hafi byrjað sikothríð-
ina sinemma í gærmongun og
hafi þeir fijótlega farið að beita
falibyssum. Egypskir hermenn
hinum miegin skurðarins svör-
uðu samistundis sfeothríðinni.
Skothríðin byrjaði snemma
um monguninn, en fjórum stund
um síðar urðu deiluað'ilar við
tilmælum Odd Bul'l, formanns
eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóð
anna á þessum slóðum, um að
hætta henni.
í þessari löngu mynd — sýning
hennar tekur um 3 klukkustund-
ir — er víða við komið, enda nær
hún yfir tuttugu og eins árs
tímabil, frá 1917—1938. Þar er
til dæmis dregin upp mynd af
kynþáftavandamálinu í Banda-
ríkjunum og aðfarir Ku Klux
Klan manna sýndar á hrollvekj-
andi hátt. En einnig í hópi Ku
Klux Klan manna er hvítur mað
ur, sem getur ekki sofið vegna
efasemda um réttmæti verknað-
ar síns. Og hann kemur Stefáni
til líknar á erfiðri stundu.
Einn er þó sá maður, sem
kynntur er undir lok myndarinn-
ar, er virðist ekki ala með sér
neinar efasemdir um róttmæti
kenninga sinna. Það er Adolf
Hitler. Sýndar eru svipmyndir af
hertöku Austurríkis 1938, og
hvernig nasistar agnga þar á gef-
in loforð og hefja fljóitlega of-
sóknir gegn kaþólsku kirkjunni
þar í landi. í Austurríki kynnist
Stefán ungri stúlku, sem -hann
verður mjög hrifinn af, og hefði
það samrýmzt anda myndarinn-
ar, þá hefði verið ansi skemmiti-
legt, að þau hefðu náð saman.
En hér er einnig búið til
drama. Drottinn stendur á milli
þeirra. Kaþólskur prestur mó
ekki giftast. Og þegar við sjáum
stúlkuna síðast, hefur annar guð
búið henni aðra vist en hún
eygði löngum í draumum símum.
Þessi kvikmynd segir fyrst og
fremsit sögu, án sýnilegra til-
rauna til frumlegra tæknibragða.
Sú saga er löng og á köflum á-
hrifamikil. Hún mun verða, að
dæmast tragisk frá öðrum sjónar
miðum en srtangtrúarlegum.
Sumir landar mínir m,un telja,
að efnið sé ekki sérlega „aktúelt"
mörg mannleg vandamál hefði
fremur mátt taka til meðferðar
en tilfinningavandamál kaþólsks
kennimanns. Það virðhorf er
kannski ekki óeðlilegt — í öllu
falli ekkj óskiljanlegt — í landi
þar sem trúrækni hefur verið
talin á allmiklu undanhaldi á síð-
ari áratugum, auk þess sem
flestir landsmenn játa lúterska
trú. —
Mér fyrir mitt leyt; finnst
þetta góð tilbreyting frá ýmsum
alvörulitlum myndum, sem mjög
hafa verið áberandi í kvikmynda
húsum hér upp á síðkastið. —
Fjarri fer því, að ég sé sammála
séra Stefáni um allar ákvarðanir
hans í þessari mynd. Skoðanir
manna munu skiptar um þær
margar. Myndin vekur menn til
umhugsunar um efni, sem veldur
almenningi ekki heilabrotum
hversdagslega. Hún hvetur menn
til að hefja hug sinn um stund
yfir brauðstrit, efnisleg verð-
mæti eða smásmugulega hags-
muna- og valdabaráttu. Mundi
ekki hollt að hvíla hug sinn frá
þeim áhyggjuefnum eina kvöld-
stund?
Samkvæmt tilkynningu frá
egypska hernum segir að báttu--
inn hafi tekið þátt í að hreinsa
slkur'ðiinn, svo og þau 15 skip,
sem þar hafa verið innikróuð
síðan í júní-istríðinu gætu kom-
iz't leiðar sinnar.
Egyptar hófu könnun sína á
skurðinum á laugardaginn og
samkvæm't fréttum þeirra hafa
þeir nú rannsakað 80 km. af
honurn milli Ismailia og Port
Tawfik. Næsti liður rannsókinar
innar er að kanna svæðdð í
nyrðri hlu-ta skurðarins. þ.e. frá
Timsah vatninu til Port Said.
Israielar hafa lýst yfir því við
SÞ. að þeir séu ekfei mótfallnir
því, að skurðurinn verði rudd-
ur, svo að skipin 15 komist leið
ar sinmar.
Opiniberar heimilidir í Tel
Aviv sögðu í samtoaindi við átöfe
in hjó Súez í gær, að ísrael hafi
sa-mþykkt að Egyptar annist
ruðningsvinnu í skurðinum til
að losa skipin, en ísrael mu-ni
ekki leyfa Egyptum . að nota
skurðiinn nokkurs staðar fyrir
norðan Tu'msah vatnið.
fsraelar haldi því fram. að
Egyptar hafi sent skipið norð-
ur frá' Timasto vatninu og segja,
að þeir hafi þar með brotið lof-
orð er báðir hafi gefið Odd Bull
um að senda engin skip um
skurðinn án samþykkis beggja
aðila.
Þá er s-agt, að varðmenn ísra-
elskir hafi fengiö skipinu bend-
ingu urn að snúa við, en fjór-
um tímum seinna hafi önnur
tvö egypsk skip reynt að sigla
norður og skeyttu engu um við-
vöru'marköll ísraela. Hafi þeir
þá skotið nokkrum lauisum skot
um og egypskir herfloikkar sam
stundis svarað í sömu mynt og
síðar hafi báðir notað fallbys-s-
ur.
f fréttum frá Tel Aviv segir
ennf-remur, að ísraelskir og jór
da-nskir herflok'kar hafi skipzt
á skotum við ána Jórd'an um
hálfa mílu fyrir s-unnan Gene-
sairetsvatnið á mánu'dagskvöld
Brússel, 30. jan. — NTB
UTANRÍKISRAÐHERRA
Stóra-Bretlands, George Brown,
kvaðst í dag styðja heilshugar
Benelux-áætlunina um efna-
hagslega, pólitíska og tæknilega
samvinnu á breiðari grundvelli
milli Efnahagsbandalagsland-
anna og þeirra fjögurra landa,
sem sótt hafa um aðild að EBE.
Brown sagði á ráðherrafundi
Evrópubandalagsins, að ríkis-
stjórn sín mundi styðja tillögu
Belgíu, Hollands og Luxem-
borgar. Utanríkisráðherra Belgíu
Pierre Harmel, sagði á blaða-
mannafundi eftir ráðherrafund-
Gamolt pólskt í
handrit finnst 1
t Varsjá, 31. janúar NTB t
i GAMALT pólskt handrit frá /
/ 11. öld, sem hefur verið tal- 1
1 ið týnt, er fundið í Banda- i
( ríkjunum og hefur verið af- i
l hent pólskum yfirvöldum. /
/ Að sögn pólskra blaða er 1
1 hér um að ræða daga'tal 1
1 marzmán-aðair. skrifað á svo- t
L kalliaðri „kirkju-S'lavne-sku“ ?
/ Það er 151 blaðs-íða og hefur l
1 að geyma helgr-a manna sög \
1 ur og nokkrar prédikanir. t
í Daigatal þetta er elzta rit- /
/ verkið sem vitað er til að 1
1 skrifað haff verið á pólsku, 1
t Á stríðsárunum stálu naz- i
i istar þvá úr landstoókasafn- /
/ inu í Varsjá.
Nýju Delhi, 31. jan. AP. |
FORSÆTISRÁÐHERRA Sovét-
ríkjanna, Alexei Kosygin, lauk
í dag sex daga opinberri heim-
sókn sinni í Indlandi og fór flug-
leiðis til Afghanistan, þar sem
hann mun ræða við Mohammed !
Zahir konung í Kabúl.
Við brottförina friá Indiandi
gáfu stjórnir Sovétríkjanna og
Indlan-ds út sameiginlega yfir-
lýsingu, þa-r sem hvatt var til
þess, að Bandaríkjastjórn stöðv-
aði loftárásir á N-Vi-etnam og
ísraeismenn kölluðu heim her-
menn sína frá herteknu svæð-
unum.
í yfirlýsingunnj sagði, að við-
komandi stjórnir álitu að skil-
yrðislaus stöðvum loftárása á
N-Vietna-m mundi skapa traust-
an samningsigrunidvöl'l. Þar sagði
einnig, að stjórnirnar styddu
hlutleysi Kambodíu og skærur
Móloliðar
í Biafra
Umuahia, 30. jan., NTB.
LEIÐTOGI aðskilnaðarríkisins
Biafra, Ojukwu herhöfðingi,
viðurkenndi í dag fyrir erlend-
um blaðamönnum í borginni
Umuahia í Biafra, að brezkir
og franskir málaliðar tækju þátt
í bardögum með herflokkum
Biafra.
Ojukwu upplýsti, að stjóm
Biafra hefði samið við Mi-ke
Hoare, majór, leiðtoga en-sku-
mælandi málaliða í Kongó, en
rnenn hefðu ekki enn orðið sam-
mála um kaup Hoares.
Ojukwu skýrði frá þessu á
fumdi 25 erléndra blaðamanna,
sem á sun-nudag komu flugleið-
is til smáborgarinn-ar Umuahia
miðsvæðis í Biafra. Herslhöfð-
in-ginn sagði, að e-kki væri hægt
að bera saman þann litla fjölda
málaliða, sem berðuist með Bia-
framönnum og hina skipu-lögðu
fl'ok.ka erléndra hermanna, sem
berðust fyrir Samtoandsríki
Nigeríu.
inn, að allir meðlimir Evrópu-
bandalagsins óskuðu eftir að
styrkja samvinnuna milli Efna-
hagsbandalagsins og landa
þeirra, sem sótt hafa um aðild
að því, þ.e. Stóra-Bretlands,
Noregs, Danmerkur og Irlands.
Bretar eiga aðild áð Evrópu-
bandalaginu auk EBE-landanna.
Harmel sagði, að enn væri
ekki tímabært að segja um að
hve miklu leyti hin þrjú aðild-
arlönd EBE mundi fallast á
Benelux-áætlunina, en þau eru
Italía, V-Þýzkaland og Frakk-
land.
LSD-morö
í Höfn?
Ka-upmannahöfn, 31. janúar NTB
22 ÁRA gamall stúdent við
Kaupniannahafnarháskóla, Lars
Jacoby, myrti í nótt 23 ára gamla
eiginkonu sína. Grunur leikur á
að hann hafi framið morðið und-
ir áhrifum LSD eða annarra
nautnalyfja.
Lík konunnar fannst í ítoúð
þeirra og lá í baðkeri. Nokkr-
um stundum áður en orðið var
framið, hafði Lars Jacotoy horft
á bandarísku kvikmyndina „The
Trip“, siem lýsir áhrifum a-f n-otk-
un LSD. Vinir Jacotoys segja, að
hann hafi mikinn áhuga á áhrif-
um þeiim sem neyala hasjisj og
LSD hefur.
milli annarra ríkja innan landa-
mæra Kambodíu væru óréttlæt-
anlega. Þá sagði í yfirlýsingunni,
að brýn þörf væri fyrir samn-
ingi um bann við útlbreiðslu
kjarnorkuivopna. Loks sagði í
yfirlýsingunni, að evrópskt
varnarkerfi, sem allar þjóðir
Evrópu m-undu taka þátt í,
mundi verða mikilvægt spor í
átt til þess að stuðla að friði í
heiminum.
- ERLENT YFIRLIT
Framh. af bls. 15
myndi nýja stjórn undir forsæti
Hilmars Baungaards.
Strax eftir kosningarnar lagði
Krag til, að hann myndaði meiri
hlutastjórn. Vinstri flokkurinh
og íhaldsflokkurinn ilögðu til, að
mynduð yrði stjórn toorgaraflokk
anna. Róttæki flokkurinn lagði
til að m-ynduð yrði stjórn á sem
breiðustum grundvelli og Sósíal-
istíski þjóðarflokkurinn vildi
ganga til stjórnarsam-vinnu með
sósíaildemókrötum og róttækum
undir forystu Krags.
Að loknum fundum í þing-
flokkum flokkanna á fimmitu-
dag, lögðu íhaldsmenn til að
mynduð yrði stjórn undir for-
sæti Baunsgaards, og skömsnu
síðar tók Vinstri •flokkurinn í
sama streng. Þegar Róttæki
flokkurinn lagði einnig til að
Baunsgaard tæki að sér að kanna
möguleika á myndun nýrrar
stjórnar, fól Friðrik konungur
honum stjórnarmyndun. Síðan
hefur Baunsgaard kannað hina
ýmsu möguileika, en eins og búizt
var við í upphafi, hneig allt í þá
átt að bongaraflokkarnir þrír
mynduðu stjórn.
Baunsgaard kannaði fyrst
möguleika á því, að sósíaldemó-
kratar, íihaldsmenn, vinstri og
róttækir gengju til stjórnarsam-
vinnu, en úrslitakostir Krags
þess efnis, að hann yr-ði forsætis-
náðherra slíkrar stjórnar, voru
óaðgengilegir að dómi borgara-
fio-kkanna allra á þeirri forsen-du,
að brotið væri gegn vilja kjós-
enda, ef sósíaldemókrati yrði
forsætisráðherra. Krag lagði þá
til, að sósíaldemókratar og rót-
tækir mynduðu stjórn, en því
boði var um.svifalaust toafnað.
Vinstri flokkurinn vildi heldur
ekki vera með sósíaldemókrötum
og róttækum í stjórn, og því síð-
ur viildu íhaldsmenn stjórnar-
samvinnu með sósíaldemókrötum
og róttækum.
Þessir möguleikar voru raunar
úr sögunni vegna úrslitakosta
Krags og línurnar voru farnar að
skýrast. Einu m-öguleikarnir, sem
voru eftir, voru: stjórn vinstri og
íhaldsmanna með stuðningi rót-
tækra, stjórn íhaldsmanna og rót
tækra mieð stuðningi vinstri,
hrein minnihlutastjórn róttækra
eða samsteypustjórn allra þess-
ara þriggja borgaraflokka, en sá
möguleiki hefur verið langsenni-
legastur frá upplhafi.
Viðræðurnar um myndun
slíkrar stjórnar hafa dregizt á
langinn vegna þess, að þurfti hef-
ur að ganga fhá stafnuskrá hinn-
ar nýju stjórnar og ákveða skip-
an manna í ráðherrastöður.
íhaldmenn, " Vinstriflokkurinn
og Róttæki flokkurinn hafa ör-
uggan þingmeirilhluta að baki
og samsteypustjórn þeirra ætti
því að vera n-ógu traust í sessi til
að geta leyst 'hina alvarlegu erf-
iðleika, sem Danir eiga við að
stríða í efnahagsmáluim. Á hinn
bóginn er vafasamt hvort Rót-
tæka flokknum takist að halda
þeirri fylgisaukningu, er flokkur
inn fékk í kosningunum, því að
uppla-usnin í vin-stri flokkunum.
virðist hafa valdið því, að all-
stór hópur kjósenda þeirra hafi
stutt Róttæka flokkinn vegna
þess að hann hefur fylgt friðar-
stefnu af gamailH he-fð. Þetta
fyligi kann að reynast ótraust, og
mUn flokknum veitast erfi.tt að
halda því í næstu kosningum.
Fylgisaukning róttækra sýnir, að
pendúllinn í dönskum stjórnmál-
um hefur ekki gveiflazt til hægri
i heldur inn á mið.juna.
SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM:
KVIKMYNDIR
Brown styður
Benelux-áætlunina