Morgunblaðið - 28.02.1968, Blaðsíða 1
28
SIÐLR
50. tbl. 55. árg. MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Eiliðaárnar skaðræðisfljót
Verið að hjarga Sveini Kristj ánssyni úr vatnsflaumntun við Elliðaár í gær. Sjá frásögn og myndir á bls. g.
Myndirnar tók Ól.K.M.
StórfelKdar um-
ferðartruflanir
— Skemmdir á
mannvirkfum
— Lá við slysum
á mönnum
og dýrum
í FYRRADAG og fyrrakvöld
var skollin á hér á Suðvest-
urlandi sunnan og suðaustan
átt með hlýviðri og mikilli
rigningu af og til. Hvasst var
og hávaðarok með köflum. I
fyrrinótt herti veðrið enn og
gekk vítt yfir Suður- og
Vesturland. Rok var þá mik-
ið hér í Reykjavík, en veð-
urlýsingar frá öðrum stöðum
á landinu eru í sérstakri
frétt.
Veður þetta olli miklum
vatnsflaumi víða og urðu
skemmdir í húsum, og hér í
nágrenni borgarinnar voru
hús umflotin vatni og bæði
menn og skepnur í hættu
stödd. Vegaskemmdir urðu
miklar. Orsökuðu þær um-
ferðarstöðvun á Suður- og
Vesturlandi og var um skeið
nær ófært að og frá höfuð-
borginni, bæði um Suður-
landsveg og Vesturlandsveg.
Stórir bílar komust þó leiðar
sinnar og vegagerðin var til
aðstoðar eftir föngum.
Mestar hamfarir urðu hér í
nágrenni borgarinnar og í
borginni sjálfri við Elliða-
árnar. Þar lá við skemmd-
um á brúm yfir árnar og
stíflur hennar, svo og á öðr-
um mannvirkjum, sem við
árnar eru. Menn lentu í
hrakningum er þeir fóru að
reyna að bjarga hestum sín-
um, sem eru í mörgum hús-
um víðsvegar upp með Elliða
ám. Einn maður var þar
hætt kominn og var bjarg-
að frá drukknun á síðustu
stundu, eins og nánar er
skýrt frá á öðrum stað hér í
blaðinu. Bílar voru víða fast-
ir, eða umflotnir. Var ekki
ljóst í gærkvöldi hve miklar
eða víðtækar skemmdir
höfðu orðið af þessum miklu
flóðum og vatnsflaumi og í
gærkvöldi jafnvel talin hætta
á að Árbæjarstíflan brysti
og vafasamt hvort Elliðaár-
brýrnar stæðust vatnsflaum-
inn. Ein helzta ástæða flóð-
anna er að mikill klaki er í
jörð og leitar vatnið útrásar
þar sem hægast er.
I gærkvöldi um kl. 8 flæddi
vatnið yfir Elliðaárbrýrnar
og bar með sér íshröngl. Var
umferð um brýrnar þá stöðv-
uð alveg og lögregla gætti
þess, að engir færu yfir. Safn
aðist mikill fjöldi manna
saman sitt hvoru megin við
brúarendana, og voru það
ýmist þeir sem áttu heima
upp í Árbæ, eða þeir sem
voru á leið í borgina. Einnig
var töluvert af fólki. sem var
að fylgjast með náttúruham-
förunum. Laust eftir kl. 9
var fólki leyft að fara í smá
hópum yfir brýrnar, en þá
hafði vatnsyfirborðið lækk-
að það mikið, en rétt jaðraði
við að vatnið flæddi yfir. —
KI. 9,30 var umferð aftur
leyfð fyrir bifreiðar, og var
umferðinni stjórnað af lög-
reglunni. Hjálparsveit skáta
var við Elliðaárnar og ætlaði
hún ásamt lögreglunni að
halda vörð við Elliðaárnar í
nótt.
Klukkan tæplega tíu í gær-
morgun lögðu fréttamenn Morg-
unblaðsins upp er þeir höfðu
haft spurnir af flóðunum á
Austurvegi. Við Elliðaár var þá
skaplegt yfirferðar, en þó kom-
ið skarð í veginn vestan vfð
vestari brúna.
Haldið var áfram, því vitað
var, að uppi í Lækjarbotnum
var vegurinm nærfellt ófær.
Skörð voru víða í veginn upp
fyrir Geitháls og við Hólmsá
keyrði um þverbak. Austan
Hólmsár var að sjá nærfellt sam
felldur vatnsflaumur, er féll suð
ur yfir veginn. Flutningabílar
og jeppar voru þar að koma
að austan og gekk hægt og síg-
andi, án óhappa.
Er þeir voru komnir yfir
héldu fréttamenn áfram og allt
upp undir Gunnarshólma. Var
túnið þar að mestu undir vatni
og flaut árstraumur beggja
vegna bæjarhúsanna.
Fyrir ofan bæinn féll straum-
ur nodður yfir veginn og þar
var numið staðar. Blasti þá veg-
urinn um Lækjarbotna við og
var hann til að sjá sem beijandi
va'tnsfall. Þar fóru þá enn stór-
ir flutningabílar og jeppar yfir.
Einnig voru stórir bílar frá vega
gerðinni þar á ferð.
Þessu næst var haldið vestur
veginn hjá Gunnarshólma á ný
og hafði flóðið þá enn aukizit
og mátti heita að vegurinn
væri allur undir vatni, frá því
á móts við bæjarhús og niður að
Hólmsárbrú. Bílar fóru þó enn
um, nema hinir smærri, sem
komu frá Reykj’vik snéru all-
ir aftur við Hólmsá.
Næst var haldið nfður í Ár-
bæjarhverfi og þar yfir að
Vatnsveitubrúnni á Elliðaám.
Nokkru fyrir ofan brúna, norð-
an megin, féll k'v'ís'l úr ánum
austur með klakhúsinu, sem þar
stendur. Var þar vatnsflaumur
mikill og féll vestur með brekk
unum og yfir veginn austan ár-
innar og var sýnilegt að hún
myndi skola veginum burtu.
Næst var haldið suður yfir
Vatnsveitubrú og var þá vatns-
strengurinn byrjaður að skella
á brúnni sjálfri. Eftir að hafa séð
a'ð engin hætta var við hesthúsin
sunnan árinnar, nokkru ofan
brúarinnar, var haldið til baka.
Sást einnig að ekki myndi hús-
unum hætt austan árinnar
nokkru ofan við klakhúsin, en
húsunum, sem standa skammt
neðan við Elliðavatnsstífluna
virtist hætta búin, enda um-
flotin að mestu.
Ákváðu fréttamenn nú að
halda niður Blesugróf og upp
Breiðlholtsveg upp á Rjúpnalhæð
og að Elliðaárstíflu, enda illfært
yfir árnar neðan hennar þegar
flóð eru.
Fram'h. á bls. 2
Þessi mynd er tekin upp eftir veginum norðan EHiðaáa neðst við klakhúsið ofan Vatns-
veitubrúar.