Morgunblaðið - 28.02.1968, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.02.1968, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1908 Hvoð segjn þnu um skolnkerfið? SKÓLAKERFIÐ íslenzka hefur mjög verið undir smásjánni í um ræðum fólks að undanfömu. Sumir hafa verið ósparir á gagn rýnina og heimtað róttækar hreytingar, en aðrir viljað fara * hægar í sakimar. Einn merk- ur skólamaður sagði, að hann teldi ekki að það væri löggjöfin sjálf, sem þyrfti fyrst og fremst að endurbæta, heldur mætti ráða hót á því, sem mest fer aflaga í skólunum, með því að fram- kvæma fyllilega þá löggjöf, sem við búum vi?, ekki aðeins eftir bókstafnum, heldur umfram allt eftir anda hennar. Þannig sýnist sitt hverjum í þessu máli, sem öðrum ,Mbl. sneri sér til tólf menntaskóla- nemenda og bað þá að láta uppi álit sitt á íslenzka Skólakerfinu. Fara sex svör hér á eftir, en hin verða birt síðar. Úreltar kennsluaðferðir. ÞAð skólakerfi sem við búum * við í dag, er að vísu komið til ára sinna. Þrátt fyrir árin og harða gagnrýni, stendur það ennþá næstum án áhrifa breyttra tíma. Engum blandast því hugur um, að einhverra breytinga sé þörf. En hverju skal breyta og hvað skal standa er öllu erfiðara að segja til um. Ég hygg, að mestu meinsemd- ina í skólakerfinu sé að finna í þeim kennsluaðferðum, sem nú tíðkast. Það getur ekki talizt heppilegt að láta nemanda sitja undir yfirheyrslu sex tíma á dag. Þann tíma sem í slíkt fer, mætti nota á miklu nytsamari hátt. Sigmundur Stefánsson Menntaskólanum Akureyri. Með þessu á ég ekki við að -■ leggja beri niður kennslu, því að hún er mjög nauðsyn leg, heldur verður að breyta kennslustundinni í það form, að taka upp á því að kenna, en hætta yfirheyrslum. Mestra úrbóta þörf í barnaskól- unum. Að mínum dómi er mestra úr- bóta þörf í barnaskólunum, en þá mætti að skaðlausu stytta um eitt ár að óbreyttri námsskrá. Hins vegar væri allt eins hægt að þyngja barnaskólanámið, t.d. með tungumálakennslu og eða viðameiri lesgreinum. Eins og nú er ástatt, eru viðbrigðin að koma í unglingsskóla úr barna- skóla allt of mikil. Ég held, að flestum barna- prófsnemendum sé það ekki ljóst, að lærdómur er vinna, enda verður yfirleitt mikill mun ur á glæstum einkunnum 12 ára bekkjar og 1. bekkjar í unglinga skóla. Æskilegt væri og að nem- endur 13 eða 14 ára fengju ofur lítið valfrelsi, sem síðan ykist smám saman eftir því, sem nem- endur þroskuðust. Hvað hið margumrædda lands próf snertir, kem ég ekki auga á neitt fyrirkomulag sem tæki því fram. Hitt er svo aftur ann- að mál, að landsprófið hefur ver ið heldur fast í skorðum - sams konar próf ár eftir ár - enda skilst mér að í mörgum greinum hafi sömu mennirnir samið landsprófin um árabil. Hugsanlegt væri að stytta menntaskólanámið, t.d. með því að lengja skólaárið, en burt séð frá því, hvaða breytingar yrðu Sigríður Guðmundsdóttir Menntaskólanum við Hamrahlíð hagkvæmastar tel ég augljóst, að við gætum og þyrftum að verða stúdentar a.m.k. einu ári fyrr. Mótfallinn afnámi Iandsprófsins að svo stöddu. MENNTAMÁL hafa verið ofar- lega á baugi undanfarið. Marg- ur ætlar að við reisum okkur hurðarás um öxl og að víða sé pottur brotinn. Bekkjaskipting í barnaskóla ætti fremur að markast af þroska stigi og gáfnafari nemenda, en aldri þeirra. Á þann hátt fengju þeir miður gefnu og seinþrosk- uðu sérstaka umönnum 1 stað þess að paufast áfram með hin- um og komast aldrei á traustan grunn í námsefninu. Skólaákylda ætti að byrja fyrr og enskukennsla ætti að hefjast strax í barnaskóla. Móð- urmálskennslu er víða ábótavant svo sem stafsetningu og upp- byggingu ritgerða. Valgreinar í menntaskóla er sjálfsagt fyrir- bæri. Með því fyrirkomulagi gefst nemandanum kostur á að auka þekkingu sína í þeim grein um, sem hann hefur áhuga á, og álítur sér gagnlegar fyrir áframhaldandi nám. Kennslu í sumum greinum má vissulega ekki skerða, svo sem í stærð- fræði, efnafræði og eðlisfræði í stærðfræðideild. Á hinn bóginn held ég að Gísli Pálsson t.d. frönskukunnátta flestra stú- denta sé skammgóður vermir. Mér virðist starf menntaskól- anna einkennast of mikið af því að gefa nemendum innsýn í sem flestar greinar, án þess að þeir komist til botns í þeim. Ég hygg, að heppilegra sé, að gefa nem- endum kost á að velja og hafna strax í menntaskóla. Að vísu er valið fljótlega á milli mála- og stærðfræðideildar, en sú skipting er svo gróf, að nem- endur í báðum deildum eru til- neyddir að þvælast með greinar, sem liggja fyrir utan áhugasvið þeirra og þeir hafa þess vegna mjög takmarkað gagn af. Tíma- skyldu í greinum svo sem sögu og íslenzkum fræðum á að af- nema strax, þegar nemendur eru orðnir nógu þroskaðir fyrir hið akademíska frelsi. Það álít ég að nemendur séu þegar í seinni hluta menntaskóla. Breytingar, sem þessar er vissulega mjög erfitt að fram- kvæma. Þær krefjast aukins kennarafjölda, en kennaraskort ur er tilfinnanlegur eins og er. Þar við bætist að hér er um að ræða breytingu á rótgrónu skipulagi og allt sem einu sinni er rótgróið er erfitt að uppræta. Landsprófið er eitt umdeild- asta þrepið í menntastiganum. Enda þótt það sé mörgum efni- legum nemandanum þrándur í götu er ég mótfallinn afnámi þess að svo stöddu. Landsprófið jafn aði mjög á sínu mtíma aðstöðu landsmanna til framhaldsnáms. Hvað kæmi í stað landsprófs? Á hvern hátt yrðu menn valdir til framhalds-náms? Líklegt er að menntaskólar fengju það hlut verk í hendur, en þar með versn ar mjög aðstaða dreifbýlismanna hvað snerti fjárhag vegna landfræðilegrar legu mennta- skólanna. Gagnfræðaskólar hlytu því að halda þessu hlut- verki. Það sem kæmi í staðinn, væri því aðeins landspróf með breyttum kennsluháttum og ef til vill breyttu nafni. En eng- um fær dulizt að breytinga er þörf á námsefni og kennsluhátt- u mþessa menntunarstigs. Móðurmálskennslunni í mörgu ábótavant. ÍSLEN4KA skólakerfinu er í mörgu ábótavant, eins og löngum Guðbjörg Hólm Menntaskólanum að Laugar- vatni. hefur verið um rætt. Á síðustu Menntaskólanum Laugarvatni. tímum hefur úr mærgu verið bætt og stefna þessara breytinga er í átt að hinum rétta þrönga vegi, en ekkert er svo gott að ekki megi úr bæta. Ef smásjánni er beint að ís- lenzkukennslunni, kemur að mínu áliti í ljós að mörgu megi breyta til batnaðar. Málfræðistagl gengur sem rauð- ur þráður gegnum alla íslenzku- kennslu í gagnfræðaskólum. Er margt af því óþarfa staðhæfing- ar sem ekki eru notaðar í ís- lenzku máli. Mætti þess í stað auka kennslu í íslenzkum bókmenntum. í menntaskóla er lestur bók- mennta aukinn, einkum fornbók mennta. Það er að mörgu leyti gott því að hin ævagömlu rit okkar eru gulls í gildi. En mætti ekki að öllu skaðalausu auka víð sýni nemenda í nútímabókmennt um sem eru í mjög litlu mæli kenndar. Þótt þjóðin hafi átt marga frá bæra ritsnillinga á þjóðveldis- öld er ennþá margt skrifað af kunnáttu og fegurð. Einnig ætti að kenna rétt íslenzkt talmál og framsögn. Flestir þurfa einhverntíma á lífsleiðinni að segja sitt álit og eiga þá rnargir í erfiðleikum með að tjá sig á einfaldan og rögg- saman hátt. Þannig mætti lengi upp telja, en það bezta er ekki alltaf auð- fengið, sérhver menntun er betri en engin. Því til er gull og gnægð af perlum, en hið dýrmætasta þing eru vitkar varir. Úrelt einkunnarkerfi. Ég vil láta leggja niður ein- kunnakerfi í sinni núverandi mynd og taka upp þess í stað bókstafaeinkunnir. Hið svokall- aða „tíukerfi" sem nú er notað í nær öllum menntastotfnunum í landinu er vægast sagt mjög ófullnægjandi, þungt í vöfum og Kristinn Björnsson Menntaskólanum í Reykjavík. gefur engan veginn rétta mynd af kunnáttu nemandans. Hver er t.d. munurinn á stærðfræðikunn áttu manna með einkunnirnar 7,2 og 7,8? Ef bókstafafyrirgjöf væri notuð, og þá fimm stafa kerfið, þ.e. a,b,c,d,e, myndu þess ir tveir menn að öllum líkindum hljóta sömu einkunn og þá lík- lega b. Enda hlýtur það að fara oft eftir persónulegu mati kenn arans á nemandanum, hvort kennarinn gefur 7,2 eða 7,8. Nemendur Menntaskólans í Reykjavík fá ætíð, áður en þeir halda í upplestrarfrí á vorin, árseinkun. Sú einkunn gildir að hálfu á móti prófseinkunn, og sé það meðaltal undir lág- marki telst nemandinn fallinn. Árseinkunn er lítið annað, en, eins og einhver hinna ágætu lærifeðra sagði, ágizkun kennara á árangur nemenda um vorið. Árseinkunn er ætíð mjög tíð- rædd meðal okkar nemendanna, og yfirleitt skiptast menn í tvo hópa, þá sem ekki mega heyra á hana minnzt, og svo aftur hina, sem mæla henni bót, en sá hópur er öllu minni. Mín skoðun er sú, að árseinkunn skuli gefin, en hún sé ekki látin gilda, eins og hún nú gerir, hálfan á móti prófs einkunn heldur skuli hún gilda einn þriðja eða jafnvel ekki nema einn fjórða á móti prófs- einkunninni. Lág árseinkunn nemanda getur orðið honum dýrt spaug, og getur hún dregið all- an baráttuvilja úr honum rétt, er orrahríðin er að hefjast Þá er ég fylgjandi þeirri stefnu, sem upp hefur verið tek in í M.A. og M.H. þ.e., aðfjölga deildum. í M.A. hefur verið sett á laggirnar náttúrufræðideild, en í M.H. nýmáladeild. Er mér kunnugt um marga menn innan veggja M.R., sem myndu hafa kosið náttúrufræðideildina frek ar en mála- og stærðfræðideild, og sjálfur hefði ég ekki hikað við að fara í nýmáladeildina, frekar en latínumáladeild. Og ekki get ég í fljótu bragði séð að afnám latínu úr íslenzkum skólum gæti e.t.v. máð okkur að loknum af landakortinu sem sjálfstæða menningarþjóð, eins og sumir vilja halda fram. En um slíkt þyrfti ekki að hugsa, ef komið yrði á valfrelsi í menntakkólunum. Höfð yrðu nokkur skyldufög, (íslenzka og fl.) Deildaskipting yrði þá óþörf nemendur veldu sér sín fög og sæktu tíma í þeim og skyldu- fögunum, hafður yrði einhver ákveðinn lágmarksfjöldi faga undir stúdentspróf, en enginn hámarksfjöldi, svo allir fengju nóg. Hagnýt kennsla látin sitja á liakanum. Tilgangur allrar skólasetu hlýtur að vera sá, að standaað henni lokinni betur að vígi en ella í lífsbaráttunni. Til að svo verði, þarf að leggja á það ríka áherzlu að kenna nemendum að læra, svo að þeir geti haldið áfram að afla sér menntunar á sínum athafna- og áhugasviðum, þegar skólasetu lýkur. Þarna hygg ég, að ís- lenzka skólakerfið bregðist að nokkru leyti. ítroðsluaðferðin undir próf er allt of oft höfð að leiðarljósi, kennsla til hag- nýtingar viðkomandi greina lát- in sitja á hakanum. Annars ætla ég ekki að ræða um einstakar Þorvaldur Jónsson MenntaSkólanum við Hamrahlíð námsgreinar sj*áiltfur er ég hlynnt ur valfrelsi námsgriena að vissu marki. Það hefur verið sagt, að ís- lenzkir stúdentar séu vel mennt- aðir að flestu leyti, þeir kynnu bara hvorki að lesa né skrifa. Þótt þarna sé fullsterkt að orði kveðið, held ég, að nokkur sann leikur liggi að baki þessari stað- hæfingu. Stúdentum hafa verið kennd heil býsn í t.d. sögu, landafræði, svo og íslenzku, en kunna þó hvorki að koma fyrir sig orði né setja staf á prent án þess að verða sér til skammar. Ég held þetta endur spegli nokkuð orð mín hér að framan Fyrst ég minnist á stúdenta, er ekki úr vdgi að minnast á brautskráningaraldur þeirra. ég lít svo á, að kennsla til stúd- entsprófs sé aðeins undirbún- ur undir háskólanám, en þá fyrst fari menna að nema þá grein, sem þeir ætli að leggja fyrir sig. Ég held, að þennan undirbúning mætti draga saman og stytta um a.m.k. eitt ár. f beinu framhaldi af þessu mætti svo minnast á lengd barnskól- anna. Þar held ég, að verið sé að Framlhald á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.