Morgunblaðið - 20.03.1968, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 196«
Get bætt við mig
nemendum • ökukennslu.
ÞÓRIR
HERSVEINSSON
Sími 19893.
ÍV1AGNÚSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftir lotcun limi 40381 —
lOsiM' 1-44-44
mfíif/Ð/ff
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagrstætt leigugjald
Sím/14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Signrður Jónsson.
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
f/ ’B/UK IFfKAM
l££\/uy7/&p
RAUOABARSTlG 31 SÍMI 22022
Sérhæfing skapar
betri vöru og betra verð.
Svefnbekkjaiðjan
Laufásvegi 4, sími 13492.
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar
púströr o. fl. varahlutir
í margar gerðir bifreiða
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168 - Sími 24180
GÚSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Laufásvegi 8 - Sími 11171
Jón Finnsson
hæstaréttarlögmaður
Sölvhólsgötu 4, 3. hæð
(Sambandshúsið).
Málflutriingur - lögfræðistörf
Súnar: 23338 og 12343.
★ Varðveitum
gömlu húsin
H .G. Schmidt skrifar:
Kæri Velvakandi.
Það er ánægjulegt að lesa
bréf það er. „Ungutr borgarbúi“
skrifaði þér og þú birtir í dálk-
um þínum þann 16. febrúar sl.
Sjálfur hef ég brennandi
áhuga á gömlu Reykjavík og
hef því mjög gaman af að lesa
bækur Árna Óla, en því miður
stendur of mörgum á sama um
slíka hluti sem þessa, og þá
sérstaklega borgaryfirvöldun-
um sem láta rífa hvern ein-
asta hlut sem er, í þeirra aug-
um, „gamaldags".
f mörgum tilfellum er ekki
hjá því komizt að rífa gömul
hús þegar þau standa í vegi
fyrir nauðsynlegum fram-
kvæmdr í. En alltof oft eru
hinir ýmsu hlutir eða hús fjar-
lægð vegna þess að þau eru
ekki úr harðviði og gleri. Þar
má sem dæmi nefna Skóla-
vörðuna. Ekki var hún til traf-
ala þar sem hún stóð á Skóla-
vörðuholtinu! Nei, hún var
bara ljót í aiugum þeirra er
ráku smiðshöggið í þær ákvarð
anir. Ekki skipti máli hvort að
hún ætti einhverja sögu á bak
við sig. Hún bara varð að fara.
Sama máli gegnir úm litlu gas-
ljóskerin sem lengi stóðu við
salernin í Bankastræti. Þau
minntu á gamla umhverfið og
hefði án mikils tilkostnaðair
mátt breyta þeim og leiða í
þau rafmagn likt og gert hefur
verið í gömlu hverfunum í
London.
Það verður stundum að
hugsa um hvernig húsin og
hiutirnir sem í kring eru líta
út. f því sambandi má nefna
gamla ísiandsbanka, Útvegs-
bankann. Ekki er beinlinis
hægt að segja að hann geti
fengið verðlaun fyrir útlit sitt
eins og honum hefur nú verið
breytt!
Ég tek undir þá lögeggjan
Árna Óla er birt var í Lesbók
Morgunblaðsins þann 18. febrú
ar sl. Borgaryfirvöld og Al-
þingi: Takið tillit til gamalla
húsa er tilheyra fortíðinni.
Verði þeir eyddir mun ekki
hægt að afla þeiira aftur; eftir
líkingar eru aldrei neitt nema
eftirlíkingar. Þjóðemiskennd
okkar íslendinga á ekki ein-
göngu að vera skorðuð við það
að vera hreykin af forfeðrum
okkar og sögum þeirra, heldur
einnig að vavðveita þá hluti er
þeir byggðu og minna okkur
á horfna tíð.
Að vísu var stigið stórt spor
í rétta átt er komið var upp
minjasafni að Árbæ. En það er
ekki nóg. Það þarf að vernda
gamla bæinn í heild og byggja
alúmíníum- og glerkofana i
nýju hverfunum. Þar eiga þeir
heima innan um „arkítektÚT"
nútímans.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
G. H. Schmidt.
ic Utanríkis-
þjónustan
Næsta bréf fjallar um
utan rikisþ jónustuna:
— í hvert skipti, sem fitjað
er upp á sparnaði (milli þess
sem peningum er sóað á alla
vegu), er byrjað að amast við
utanrikisþjónustunni. Auðvit-
að kostar okkur peninga að
vera sjálfstæð. En svo er Agn-
ari Kl. Jónssyni fyrir að þakka,
að utanríkisráðuneytið hefÍT
verið rekið með meiri hagsýni
en nokkurt annað ráðuneyti.
í mjög fráðlegu erindi í Þjóð
leikhúskjallaranum skýrði Pét-
ur Thorsteinsson, ambassador í
Washington, frá því nýlega, að
kostnaður við utanrikisþjón-
ustuna hér á landi væru um
1% af þjóðartekjunum, og e:r
varnarmálanefnd þá meðtalin.
Flest önnur iönd eyða í utan-
ríkis- og varnarmál 20—30% af
þjóðartekjunum. Ættum við
því að hefja spamaðinn þar,
sem þess er meiri þörf.
Það er mála sannast, að efla
þarf utanrík:sþjónustu okkar.
Er okkur það lífsnauðsyn.
Alltof mikið starf er nú lagt
á fáa sendiherra. Okkuir vant-
ar fulltrúa í fjölmörgum lönd-
um Asíu, Afríku og bæði Norð-
ur- og Suður-Ameríku. Þeilrra
verkefni er að fylgjast með
nýjungum á sviði tækni og
menningar, sem og að tryggja
markaði fyrir afurðir okkar,
svo að við séum ekki of háðir
gömlu Evrópu. Evrópulönd að
Rússlandi meðtöldu verða
brátt sjálfum sér nóg um fram-
leiðslu fiskjair og fiskafurða.
Munum við innan tíðar dragast
aftur úr öðrum þjóðum og
hætta að geta selt afurðir Okk-
ar, nema e.t.v. með afaTkost-
um í EBE, ef við höfum ebki
djarfa og dugmikla erindreka
hvarvetna í heiminum. Hitt er
rétt, að ekki þarf alltaf am-
bassadora, heldur sendifulltrúa
og viðskiptafulltrúa ,sem ekki
eru dýjir í rekstri.
G.
Vinna komi í stað
refsingar
H.Ó.V. skrifar:
Þökk sé „annarri móður“
fyrir uppástungu hennar, sem
þér birtuð 14. febrúar, að
vinna komi í stað refsinga við
afbrotum. Eyðileggingarfýsn
sumra unglinga er hvimleið,
þótt hér sé oftast um galsa að
ræða. En vissulega ætti að gera
unglingum, sem brenna og
skemma sumarbústaði, skylt
að byggja þá að fullu upp
aftur og þá helzt undir eftir-
liti löggæzlúmanns eða eig-
anda bústaðar.
Yfirleitt ætti þegar að kenna
ungbörnum, að við séum ábyrg
ir gerða okkar og að það sé
því siálfsögð skylda, að bæta
tjón, sem valdið er — bæði
viljandi og óviljandi. Refsinig-
ar eru einskonar hefnd hins
opinbera og neikvæðaT og
kosta borgarana auk þess
milljónafé árlega. Að setja
menn í fangelsi getur orðið
til þess að ala hatur, sem leiðir
oft til nýrri og enn alvarlegri
afbrota. Ef það væri að breyta
hugarfari alls almennings með
því að kenna mönnum, að bera
ábyrgð á verknaði sínuim og að
bæta fyrir tjón, mundi allt sam
líftið verða ánægjulegra.
Með þökk-um íyrir birting-
una.
H.Ó.V.
★ Gengið upp
Bankastræti
Síðasta bréfið í dag er
frá Steindóri Björnssyni frá
Gröf og er á þessa leið:
Síðastliðinn sunnudag (3.
m-arz 1968) g-ekk ég neðst í
Bankastræti fram á konu, sem
leiddi mjög lítið bam, en ann-
að stálpaðra gekk til hægri.
Ég ha-fði orð á því að þetta
væri lítill göngumaður úti í
krapa-slabbinu. Þá leit litla
telpu-ögnin upp á mig og rétti
mér litlu höndina sína, sem ég
tók í og leiddi svo, m-eð móður
hennar, upp alla „Bakarabrekk
una“ upp um Ingólfsisstiræti.
Konan þuldi mér töluvert af
tilvit-nunum úr Biblíu-nni um
Jesúm Krist, tilvitnanir, sem
ég kannaðist. við flestallar. Og
svo stakk hún í vasa mdnn smá
riti, er heitir: „Sannleikurinn
um Jesúrn".
Þessa konu bið ég um að
hringja til mín (sími 13687) —
eða senda mé-r miða með nafni
sínu og heimilisfangi ,svo ég
geti sent henni rifLing minn,
er hann kemur út, líklega um
sumarmál.
Steindór Björnsson frá Gröf
Söivhólsgötu 10, Reykjavík.
Hríseyingamót
Laugardaginn 23. marz verður haldið Hríseyinga-
mót í Félagsheimili Kópavogs. Mótið hefst kl. 7 e.h.
Þátttakendur tilkynni strax þátttöku sína í síma
12504 og 40656.
Skemmtinefndin.
íbúð óskast N auðun i»aruppboð
5 herbergja íbúð óskast til leigu, helzt í Vesturborg- Að kröfu Iðnaðarbanka íslands verður 2. og síðasta
inni eða í Hlíðunum. uppboð á Veitingahúsinu Ferstiklu í Hvalfirði,
Leigutími í allt að 1 ár. Góð umgengni. haldið á eigninni sjálfri laugardaginn 23. þessa
Tilboð ásamt nánari upplýsingum sendist afgr. mánaðar og hefst kl. 15.
Morgunbl. fyrir næstkomandi föstudagskvöld, Á sama stað verður einnig boðinn upp stór ísskápur,
merkt: „íbúð til leigu 2962“. eign uppboðsþola. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
// J .( Til leigu
^SSonur citnucjió Til leigu er allt að 150 ferm. húsnæði á horni
Nóatúns og Laugavegs. Húsnæðið er tilvalið fyrir
ANDLITSBÖÐ — TYRKNESK BÖÐ skrifstofur og kemur einnig til greina fyrir verzl-
PARTANUDD — MEGRUN ARNUDD. unarrekstur.
ÁSTA BALDVINSDÓTTIR. Upplýsingar í simum 19150 og 21065 á skrifstofu-
Sími 40609. tíma og í 36987 eftir kl. 5.