Morgunblaðið - 20.03.1968, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.03.1968, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 106« Var sólarhring að komast bæjarleið — reikaði um illa klœddur í stórhríð r tuttugu klukkustundir 1 Þessir brunaverðir í Slökkvi- Miði Reykjavíkur eiga 25 ára \ starfsafmæli í dag. — Þeir minnast í löngu starfi ýmissa hinna stærstu húsbruna sem orðið hafa hér í Reykjavík, en þeir eru: sitjandi talið frá vinstri Sveinn Ólafsson, Finnur Richter, Sigurgeir Benediktsson, Kristinn Óla- son og Gústaf Guðjónsson. — f aftari röð frá v.: Leo Sveins- ______ Upphaflega _________ hópnum sem brunavarðastörf hófu þennan dag fyrir 25 ár- um 11 menn. Er einn þeirra látinn Sigurbjörn Mariusson og hættir eru störfum Guð- mundur Karisson og Jóhann Hannesson. Málverkin á reggnum að baki þeirra eru if látnum slökkviliðsstjórum Pétri Ingimundarsyni (hægri) »g Jóni Sigurðssyni. (Ljósm. Sveinn Þorm.) Loðnubátar fengu mjög góðan afla á mánudag BRÆLA var á miðuntum í gær og engin veiði hjá loðniubátum. Nokkrir þeirra vojfu þá enln að landa aflanum frá deginutn áður en þá veiddisrt mjög vel. Hæst vai> líklega Eldborgin með 530 tonn. Afli neta- og línubáta var slakur. í Reykjavik landaði GSisli Árni 305 lestum, Þorsteinn 233, Sigurvon 211, Haifrún 191, Bnett- ingiur 3H3, Þórður Jónaisision 266 og Ólalfur Magnúlsision 190. f H'afnarfirði landaði Eltííborg 539 les'tuim, Fifill 314, Héð'fein 040, Faxi 90. Þrár netalbátar lögðu þar .uipp, imeðai þeirra Æskan sem var með ein 12 tonn. í Keifla'vtílk landaði Gá'gja um 340 bonnum, Örninn rúmium 300, Harpa 100 og Seley um 160. Kona í barnsnauð sótt með skíðaflugvél til Húsavíkur - fvœr flugvélar og varðskip voru til taks SKÍÐAVÉL frá Flugfélagi fs- lands sótti konu í bailnsnauð til Húsavíkur á mánudag. Bjöm Pálsson hafði verið beðinn að sækja hana, an Vorið bilað, pvo að hann komst ekki. Varðskip vair þá beðið aðstoðar og hélt það þegai' á vettvang, hlaðið þykku ísilagi því /að mikið frost var fyrir norðaustuiflanidi. Þá bárulst fregnir om að flúg- véil sú siem Flu'gtfélagið notar til Graen 1 and'siflugs væri <til sitaðar í R'eyfejaviílk með sflrfði undfe og var leitað til Flugfélaglsinis. Þar var brugðið við Skjót't og vélin isent norður. Kcm hún með kon- una tifl Fteykja'VÍ'ku'r klufldkan 10 ,um tavölidið. Barnið var tekið með k'eisarasfeurði, það er ihrauis'bur sitráfeur og iheils'asit Wáð- um vel. Fleiri og fleiri nota Johns- Manville glerullareinangrun- ina með álpappírnum Enda eitt bezta einangrunar- efnið og jafnframt það langódýrasta. Þér greiðið álíka fyrir 4” J-M glerull og 2%” frauð- plasteinangrun og fáið auk þess álpappír með! Sendum um land allt — Jafnvel flugfragt borgar sig. Jón Loftsson hf. Hringbraut 121. - Sími 10600. Akureyri: Glerárgötu 26. Sími 21344. Innbrot og shemmdorverk NORÐFIRDI, 18. marz. — Á lauF ardagsmorgun tilkynnti eigand- inn í verzluninni Betty, að brot- izt hefði verið inn í verzlunina og horfinn væri peningakassi. Lögreglan fór strax á staðinn. Hafði verið farið inn bakdyra- megin um miðstöðvarklefa inn í lagerinn og þaðan í verzlun- ina. Fljótlega féll grunur á sjó- mann, er var hér staddur. Var hann tekinn og yfirheyrður. Neitaði hann, en var settur í gæzluvarðhald. í dag játaði hann stuldinn og fannst kass- inn brotinn upp og stórskemmd- ur. Er það dýr kassi, um 40 þús. kr. virði, en í honum voru ekki nema 300—400 kr. í skiptimytn. Einnig var stolið rakspíra og fl. Mun maðurinn hafa ætlað að brjótast inn í apótekið, sem er í húsnæði við hlið þessarar verzl unar. Maður þessi er frá Vest- mannaeyjum og var þessa nótt staddur á báti hér. Kom í ljos að hann var gamall kunningi lögreglu fyrir sunnan. — Ásgeir. Á Akranesi landaði Óskar Halid'óriss'on 302 lesstuim, Bjarni n. 240 og Egil‘1 Skia 11 agriílmssoin 190. Aflli l'íruuibáta var þar tregur í gær og var hæisti fcjátiurinn með u'm 7 1-estir. Sand'gerðisblátar ö'fluðu sára- liitið í net í gær„ 'Voru mieð frá 8 npp í 21 lest og var það gam- all tfiskur. Afili Jí n.uíbát'a vair nclkkuð sæm'i'legur, 10-12 lestir að jafnaði. Á Tniánúdag feicmu á land 540 leatir alf loðmu úr tveiim bátoim. Hvammstanga 19. marz. ÞORGEIR Magnússon, vetrar- maður á Finnmörk í V-Húna- vatnssýslu, lenti í miklum hrakningum laugardaginn 16. þessa mánaðar, þegar hann villtist í stórhríð og reikaði um í tæpan sólarhring. Þor- geir hafði farið að Bjargi í Miðfirði til að sækja eitthvað og lagði af stað heim aftur klukkan 16.30. Leiðin milli bæja er venju- lega gengin á röskum klukku- tíma og er yfir lágan háls að fara. Tíu til fimmtán mínút- um eftir að Þorgeir lagði af stað skall ú blindbylur. Var þá strax haft símasamband við Finnmörk, en þá var enn bezta veður þar. Þegar Þor- \ geir kom svo ekki heim á skaplegum tíma var svipazt eftir honum um kvöldið og nóttina, en þá var versta í Hufnurfirði S j álfis tæð isf élög i n í Hafnar- firði halda sameiginlegt spila- kvöld fimmtudaginn 21. marz kl. 8:30 í SjiáMstæðislhúisinU'. Spil uð verður félagsvist og góð kvöldverðlaun veitt. Framreidd- ar verða kafifiveitingar og er Sjiálfstæðisfólk hvatt til að fjöj- menna stundrvíslega. veður, stormur og snjókoma. Á sunnudagsmorgun birti svo nokkuð til og var þá safnað saman mönnum til leitar úr Miðfirði, Víðidal og Hvamms tanga, ásamt fimm mönnum úr flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík, en þeir höfðu gist á Hvammstanga nóttina áður. Ekki voru allir byrjaðir leit um hádegisbilið á sunnudag þegar Þorgeir sást frá bæn- um Urriðaá í Miðfirði. Hann hafði þá verið á rjátli alla nóttina. Þorgeir er nokkuð kal inn, en þó furðu lítið miðað við, að hann var fremur illa búinn til þess að vera úti í snörpu frosti og hríð í 19—20 klukkustundir. Hann liggur nú á sjúkrahúsinu á Hvamms- tanga, og þegar Morgunblað- ið hafði samband við lækninn þar í gær leið honum ágæt- lega. Missti 64 kindur Miðhúsum A-Barðastranda- strandasýslu 19. marz. f VEÐRINU sem skall á á laug- ardaginn missti Ólafur Magnús- son, bóndi í Bæ, sextíu og fjórar kindur. Hann er nú búinn að finna þrjátíu þeirra dauðar. Annar bóndi, Halldór Kristjáns- son, missti átta kindur og hefur ekkert fundist af þeim. Véðrið skall mjög snögglega é, og féð var þá á beit. Var veðurhæð og dimmviðri svo mikið að ekki var viðlit að finna féð til að koma því í hús. Fyrr í vikunni voru miklar rigningar og leysingar og skemmdust þá rafstöðvarnar á Kinnastöðum og Bakka, vegna flóða. Rafstöðin á Bakka sá þrem bæjum fyrir raf- magni. Skemmdirnar eru það miklar að viðgerðum verður ekki lokið fyrr en einhverntíma í vor. — S.G. FC Weiskops og Magnus Posesr í Reykjavíkurhöfn. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.). Tveir skuttogarar leita hafnar TVEIR Austurþýzkir skuttogar- ar leituðu hafnar í Reykjavik í gær, en þeir hrepptu mjög slæmt veður á leið sinni á mið- in við Labrador og brotnuðu margar rúður í öðrum, en stýr- isvél hins bilaði. Sigldi hann á neyðarstýrinu til Reykjavíkur. Stærri togarinn, FC Weiskops, er 2400 tonn að stærð, en hinn Magnuis Poser minni. Báðir eru togaranir frá Rostook. Að sögn þriðja stýrimanns á FC Weiskops stóð síðasta veiði- ferð skipsins ytfir IV2 mánuð, þar aif voru þeir að veiðum við Laibradior í um 40 daga. Afl- inn var 700 tonn. Álhlötfnin á FC Weiskops er 86 manns, þar af 10 stúlkur, en uim borð er verk- smiðja, sem vinnur aflann að ein hverju leyti’. Ekki gat þriðji stýrimaður sagt ákveðið til um, bversu langan tíma viðgerð á skernmd- unum miyndi taka, en bjóst við að t'ogararnir myndú alla vega stanza hér í nokkra daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.