Morgunblaðið - 20.04.1968, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 196«
Meiri veiði á línu, mikil keyrsla með fiskinn og eng-
ir útlendingar á vertíðinni í ár
Verstöðvarnar ■ Keflavík og Sand-
gerði heimsóttar
VER-
THHN
f Keflavík og Sandgerði
virðist vetrar vertíðin ekki
hafa nein sérstök einkenni
það sem af er. Staðarmenn
kvarta undan ógæftum, eink
um framan af, og páskahrot-
an svokölluð rann út í sand-
inn. Þó er heildaraflinn orð-
inn meiri en á sama tíma i
fyrra á báðum stöðum. Og
vinna í frystihúsunum er
nokkuð jöfn, einkum seinni
hluta tímabilsins.
Fréttamenn Mbl. skruppu
til Keflavíkur og Sandgerðis
í góða veðrinu á miðvikudag
og spjölluðu við nokkra menn
er koma við sögu vertíðar-
innar, m.a. viktarmennina,
Árna Ólafsson í Keflavík og
Elías Guðmundsson í Sand-
gerði, og hittu í frystihúsun-
um þá Árna Þorgrímsson í
Jökli, einu af fimm starf-
ræktum frystihúsum í Kefla-
vík, og Jónas Guðmundsson
í Útgerðarstöð Guðmundar
Jónssonar frá Rafnkelsstöð-
um.
f því spjalli kom í ljós að
engar tvær vertíðir eru þrátt
fyrir allt eins. Hver og ein
hefur sín séreinkenni. Til
dæmis einkennist þessi nokk
uð af flutningi fram og aft-
ur með fiskinn. Þegar aflast,
eru stórir bílar á þeytingi
milli verstöðva á Reykjanes-
inu, utan línu sem mætti
draga þvert yfir skagann
milli Þorlákshafnar og
Reykjavíkur. — Þeir keyra
aflann í báðar áttir og
fiskbílarnir mætast á miðri
leið, segir Elías á viktinni í
Sandgerði. — Héðan til
Grindavíkur og þaðan til
Sandgerðis, og svo aka þeir
inn í Reykjavík, Hafnarfjörð
og til Þorlákshafnar, og það-
an hingað. í fyrradag voru
t.d. fimm bílar í ferðum vegna
Árni Ólafsson,
Keflavík.
ekki verið hægt að halda þvi
til streitu.
Nú hefur verstöðin, sem
bátarnir leita til, lítið gagn
af fiski, sem hverfur á brott
um leið og hann kemur í
land. Höfnin fær kannski ein
hverjar tekjur af þessu, út-
skýrir Elías. — Ef það fæst
þá greitt, bætir hann við.
Engir útlendingar.
Annað einkenni á þessari
vertíð er að útlendingarnir,
sem í mörg ár hafa sett svip
sinn á vinnusali frystihús-
anna sjást þar nú ekki. Árni
Þorgrímsson kvaðst aðeins
hafa tvo Færeyinga í vinnu í
Jökli nú. í fyrra var þar
fólk úr öllum heimsálfum, en
enginn núna. Einhverjir
fyrri starfsmenn höfðu skrif-
að í vetur frá London og
spurt um vinnuhorfur og í
svarbréfi tjáði Árni þeim að
þær væru engar. Það er eins
og þetta fréttist, förumennirn
ir hafi samband sín á milli
í London og í ár kvaðst Árni
ekki hafa séð nokkurn út-
lending í atvinnuleit. í Kefla
vík eru engin vandræði með
að fá fólk í frystihúsin —
þar er ekkert kvenmannsleysi
núna. Þar hefur verið nokk
uð stöðug vinna síðan í marz
vlktarmaður í
Árni Þorgrímsson
Sandgerði-
Jökli
eins aðkomubáts, sem lagði
upp hér með heldur lítinn
afla, þrír sóttu fisk til þriggja
aðila, einn kom með beittu
bjóðin og annar fór með þau
lausu. Komið hefur fyrir að
bíll sæki eitt tonn langan
veg.
Þetta kvöld lögðu allir
línubátarnir frá Keflavík
afla sinn á land í Sandgerði,
utan einn. Þeir voru komnlr
inn um 5 leytið. Milli Sand-
gerðis og Keflavíkur eru 7
km. eftir vegi og líklega tek-
ur um hálfan annan tíma að
sigla með aflann fyrir Garð-
skagann. Geysileg ásókn að-
komubáta hefur verið til
Sandgerðis í vetur. Heimabát
ar eru um 30, en daglega
hafa 40—50 bátar losað þar
afla sinn, og er þá oft þröng
á þingi, því bryggjurými er
lítið. Með rýrari afla hefur
samkeppni vinnslustöðvanna
um það sem fæst orðið meiri.
Allt gengur út á að ná í
fiskinn. Bátarnir sigla 'með
hann til næstu hafnar, hver
sem hún er, og frystihúsin
og aðrar vinnslustöðvar vilja
vinna til að sækja hann á
bílum, til að fá hann í
vinnslu. Nú orðið eru nær
allir bátar fyrirfram ráðnir
til að selja ákveðinni ver-
stöð.
Þá hefur það aukið að-
sóknina að höfnum eins og
Sandgerði, að með algeru
aflaleysi norður með vestur-
ströndinni, líklega vegna íss-
ins, hafa Breiðafjarðarbátar
og margir Vestfjarðabátar
leitað suður. Elías sagði að
allir trollbátarnir væru t.d.
komnir suður fyrir og héldu
sig nú þarna við röstina.
En ætli fiskurinn fari nú
ekki illa á því að flytjahann
svona mikið á bílum á milli?
Elías samsinnir því og bætir
við að fyrir nokkru hafi ver-
ið bannað af fiskmati að
flytja fisk á milli staða, en
Örn Erlingsson,
Ingiber Ólafssyni.
skipstjóri á
Úr róðri með einn stóran.
byrjun, yfirleitt um 8 tíma
vinna á dag. En þar sem ver-
tíðin var ekki lífleg framan
af, var fólk ráðið seinna en
áður, það var að smátínast
til starfa. Um 60 manns starfa
í frystihúsinu hjá Jökli og á
bátunum þremur, Ólafi Mag
nússyni, Sævari og Sæhrímni.
En auk eigin báta leggja þar
upp tveir aðrir bátar og 3—4
að hluta. Þetta hefur yfir-
leitt dugað, þó komið eyður.
Sömu sögu var að segja í
Sandgerði. Jónas Guðmunds-
son sagði, að þar hefði verið
nægilegur mannskapur í vet-
ur. — Við höfum tekið Fær-
eyinga síðan 1960, en engan
nú, sagði hann. Við höfum
aðeins nokkra íslenzka að-
komukarlmenn, en konurnar
eru allar héðan. Húsmæðurn-
ar vinna nú meira en áð-
ur. Býst við að þær þurfi
meiri peninga. Árið 1967 var
rýrara en 1966. Jú, víst er
það ódýrara fyrir okkur og
betra. Fyrir aðkomufólk þurf
um við að kosta ferðir,
mötuneyti og skála. Ástand-
ið á vinnumarkaðinum er
ágætt hér. Við lentum
ekki í verkfallinu. Hér
var róið allan tímann og við
gátum birgt okkur upp með
veiðarfæri og annað. Þar
af leiðandi hefur fólkið það
betra hér bæði á bátunum og
í frystihúsunum.
Veiðar með línu fara aftur
vaxandi.
Það vakti athygli okkar, að
svo seint á vertíð skyldu þó
nokkrir bátar enn vera með
línu. Koma þeir þar af leið-
andi með þennan fallega línu
fisk til vinnslu. Voru allir
þeir, sem við töluðum við, sam
mála um að veiðar með línu
væru verulega að aukast aft-
ur. — Frá Sandgerði halda 7
bátar enn áfram með línu.
Útgerðarstöð Guðmundar
Jónssonar er með 3 línubáta
í allan vetur og því fáum
við alltaf gott hráefni í frysti
húsið, sagði Jónas.
Hæstu línubátarnir í Kefla
vík hafa haft ágæta vertíð.
Sá aflahæsti er Skálabergið,
sem um miðjan mánuð hafði
fengið um 385 lestir í 48 róðr-
um. Freyja hafði fengið 373
Bátur kemur úr róðri til Keflavíkur. f höfninni
flugvöll, en nýlega er farið að skipa þeim upp
affermir Brúarfoss vörur fyrir Keflavíkur-
þar í staðReykjavíkur. Ljósm. Óli.K.Mag.