Morgunblaðið - 20.04.1968, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1908
31
Hanoi neitar tilboð-
um um fundarstaði
Friðarvilji Johnsons forseta hrœsni ein
segir talsmaður Hanoi-stjórnarinnar
Borgaralegri stjórn verður
komið á í Sierra Leone
Allt með kyrrum kjörum í landinu nú
Tókíó og Moskvu,
19. apríl (AP-NTB)
t Stjórn Norður-Víetnam
hefur neitað öllum tillög-
um Bandaríkjastjórnar um
hugsanlega fundarstaði fyrir
Viðræður fulltrúa landanna
tveggja um friðarsamninga í
Víetnam.
♦ Bandaríkjastjórn hefur
tiltekið 15 lönd, þar sem við-
ræður gætu farið fram, en
Hanoi-stjórnin heldur fast við
að viðræðurnar fari fram
annað hvort í Varsjá eða
Phnom Penh, höfuðborg
Kambódíu.
♦ Hanoi-stjórnin segir, að
tregða Bandaríkjastjórnar til
að fallast á viðræður í Varsjá
eða Phnom Penh sanni, að
yfirlýstur friðarvilji John-
sons forseta og stjórnar hans
sé hræsni ein.
Neitun stjórnar Norður-Víet-
nam kemur fram í frétt, sem
Tass-fréttastofan sovézka birti í
dag frá Hanoi, og höfð er eftir
talsmanni utanríkisráðuneytisins
þar í borg. Segir talsmaðurinn,
að Bandaríkjamenn, sem í fyrstu
lýstu sig reiðubúna til viðræðna
án nokkurra skilyrða varðandi
fundarsta'ð, hafi undanfarnar
þrjár vikur „haldið upp hlægi-
legum og ósvífnum skilmálum".
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, flutti ávarp í
gær, þar sem hann sagði meðal
annars að Bandaríkjastjórn væri
reiðubúin ti] að halda viðræð-
umar í Ceylon, Japan, Afganist-
an, Nepal, Malaysíu, ítalíu,
Belgíu, Finnlandi eða Austurríki,
auk þeirra fimm ríkja sem áður
hefðu verið boðin fram, þ.e. Ind-
land, Burma, Laos, Indónesía og
Sviss. Segir talsmáður Hanoi-
stjórnarinnar að ekkert þessara
ríkja komi til greina. „Bandarík-
in krefjast þess að valin verði
fundarstaður í borg þar sem
bæði viðkomandi ríki hafi sendi-
ráð“, segir talsmaðurinn. „En í
löndunum tíu, sem Dean Rusk
Happdrætti
Kvenféiags
Haligrímskirkju
DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti Kvenfélags Hallgríms-
kirkju og komu upp eftirtalin
númer: 10499, 5040, 2573, 6378,
1977, 4044, 994, 7969, 2402, 9871,
5361, 1293, 1182, 10520, 4034, 5396,
4728, 7330, 7576, 11283.
Allar nánari upplýsingar eru
gefnar í síma 13666.
Veikindaforföll
hjd Pésa
prakkara
VEGNA veikindaforfalla leik-
ara^ fellur niður sýning á Pésa
prakkara i Ungó laugardaginn
20. apríl og einnig fellur niður
sýning í Tjarnarbæ sunnudag-
inn 21. apríl. Nánar verður aug-
lýst um næstu sýningar í blaðinu
síðar.
aðilinn, þ.e. Bandaríkin, sendi-
ráð. Bandaríkin krefjast þess að
fundirnir verði haldnir í hlut-
lausu ríki, en mörg þeirra ríkja,
sem Dean Rusk nefnir, em alls
ekki hlutlaus. Sum þeirra eru
meira að segja birgðastöðvar fyr-
ir árásarstyrjöld Bandaríkjanna í
Víetnam". Segir talsmaðurinn að
lokum að heimurinn bíði enn eft-
ir svari Bandaríkjastjórnar við
því hvort hún fallist á tillögu
Hanoi-stjórnarinnar um viðræð-
ur í Varsjá.
Bandaríkjastjórn hefur til
þessa ekki viljað fallast á tillög-
ur Norður-Víetnam um fundar-
stað. Phnom Penh kemur ekki
til greina að hennar áliti vegna
þess að ekkert stjórnmálasam-
band er milli Bandaríkjanna og
Kambódíu. Varðandi Varsjá hef-
ur Bandaríkjastjórn bent á að
Pólland sé langt frá því að geta
talizt hlutlaust ríki auk þess sem
sumir af bandamönnum Banda-
ríkjanna í styrjöldinni í Víetnam
hafi ekki stjómmálasamband við
Pólland og geti því ekki sent
þangað fulltrúa til að fylgjast
með viðræðunum.
Málgagn kommúnistastjómar-
innar í Hanoi, blaðið Nhan Dan,
segir í ritstjómargrein, áð þetta
síðasta atriði, þ.e. aðild banda-
manna Bandaríkjanna að viðræð
unum, sé algerlega nýtt viðhorf.
Minnir blaðið á fyrri fyrirheit
bandarísku stjórnarinnar um að
hún sé reiðubúin til að senda
fulltrúa sína „hvert sem er og
hvenær sem er“ til viðræðna við
fulltrúa Norður-Víetnam, og seg-
ir a'ð bæði Varsjá og Phnom
Penh séu heppilegar borgir til
viðræðna, en Bandaríkin hafi
ekki borið fram neinar réttmæt-
ar ástæður fyrir að neita fundar-
höldum þar.
Brezka blaðið „The Financial
Times“ tekur nokkuð í sama
streng í dag og segir það hafa
verið grundvallarskyssu hjá
Johnson forseta þegar hann
bauðst tii þess að hefja viðræður
við Hanoi-stjórnina „hvenær sem
er og hvar sem er“. Segir blaði’6
að stjómin í Hanoi haldi því
fast við tillögur sínar um
Phnom Penh og láti ekki John-
son gleyma fyrri loforðum.
— Heildarathugun
Framhald af bls. 32
reynslu við -gerð slíkra áætlana.
Hins vegar hafa ýmis erlend
fyrirtæki sérhæft sig á þessu
sviði á undanförnum tveim ára-
tugum. Eitt af þekktari fyrir-
tækjum með reynslu í lausn
slíkra verkefna er danska verk-
fræðifyrirtækið Kampsax. Vinn-
ur það meðal annars nú að sam-
göngumálaathugun í Brasilíu.
Ráðgert er, að Efnahagsstofn-
unin semji við þetta fyrirtæki
um að gera heildarathugun á
samgöngumálum hér á landi, og
er áætlað að því verki verði lok-
ið á 6—7 mánuðum. Mun fyrir-
tækið fyrst og fremst gera at-
hugun á núverandi ástandi sam-
göngukerfisins og gera tillögur
um æskilegar úrbætur á einstök-
um greinum þess frá þjóðhags-
legu sjónarmiði. Er hér fyrst og
fremst um hagfræðilega heildar-
athugun frá samgöngutæknilegu
sjónarmfði að ræða, en alls ekki
um könnun á einstökum fram-
kvæmdum.
Að lokum skal það tekið fram,
að í áætlun um kostnað við
undirbúning hraðbrautafram-
kvæmda á þessu ári, hefur verið
við það miðað, a'ð það verk verði
unnið áfram af íslenzkum aðil-
um, eins og verið hefur fram að
þessu“.
Þrjú börn
myrt í Noregi j
Isló, 19. apríl (NTB)
TVEIR bræður, sex og átta
ára, og ellefu ára systir þeirra '
fundust í dag skotinn til I
bana skammt frá heimili sínu (
utan við Osló. Faðir barn-
anna, Harald Gjerbakken,
fannst helsærður hjá þeim.
Var hann skorinn á slagæðina
og blæddi honum út skömmu
síðar.
Harald Gjerbakken var 42
ára og starfaði í Osló. Hann
kom í heimsókn til Valhovd,
þar sem fjölskyldan bjó, á
l mánudag. í dag fór hann með
börnin þrjú í heimsókn til
móður sinnar í Skartli-bygda,
I sem er 3-4 km frá Volhovd.
| Hafði hann þá með sér riffil
■ af Mauser-gerð. Móðir barn-
anna var eftir á heimili
I þeirra. Þegar líkin fundust
| um 150 metra frá heimili fjöl-
I skyldunnar kom í ljós að
börnin höfðu verið drepin
I með Mauser-rifflinum.
Nýr Kosmos
Moskvu, 19. apríl — NTB —
SOVÉTRÍKIN skutu í dag á loft
nýjum gervihnetti á braut um-
hverfis jörðu. Kosmos 215 og er
hlutverk hans að h-alda áfram
rannsóknum í himingeimnum.
Þetta er annar Kosmosígervi-
hnötturinn, sem Sovétríkin hafa
skotið á loft á tveimur dögum.
Öll tæki um borð í gerfihnettin-
um starfa eins og til var ætl-
azt.
— Poul Reumert
Framhald af bls. 1
hlutverk Kristjáns IV. í „Elver-
höj“. Síðast kom hann fram opin
berlega 27. nóvember s.l. er hann
Ias upp á samkomu, sem haldin
var til ágóða fyrir eftirlauna-
sjóð leikara.
Reumert var giftur leikkon-
unni Önnur Borg, en hún fórst í
flugslysi fyrir nokkrum árum.
Poul Reumert fæddist 26.
marz 11883, og varð því 85 ára
fyrir þremur vikum. Foreldrar
hans voru þau Elith og Anna
Reumert, og voru þau bæði leik-
arar. Ungur að aldri hóf hann
leiklistarnám við skóla Konung-
lega leikhússins í Kaupmanna-
höfn, og þótti hann -hlyti þann
vitnisburð þar árið 1901 að hann
væri litlum leikarahæfileikum
búinn, réðist hann til Folke-
teatret ári síðar. Næstu 35 ár lék
hann ýmist hjá Folketeatret eða
Konunglega leikhúsinu, en varð
fastráðinn leikari við það síðar-
nefnda árið 1937. Hann lék ekki
eingöngu í Danmörku, heldur
ferðaðist víða með list sína, aðal
lega um Norðurlönd, og hann var
fenginn til að leika hlutverk
Tartu-ffe í leikriti Molieres hjá
Comedie Francaise í París. Einn-
ig lék Reumert mikið í kvik-
myndum, útvarpsleikritum og
sjónvarpi.
Reumert var mikill íslands-
vinur, og treystust þau bönd
mjög er hann kvæntist leikkon-
unni Önnu Borg. Kom Reumert
oft til íslands, lék með íslenzk-
um leikurum og las upp, og átti
hann marga vini á íslandi.
Gunnar Thoroddsen sendi-
herra í Kaupmannahöfn segir í
viðtali við Kristeligt Dagblad í
tilefni láts Reumerts:
„Þegar ég fyrir 30 árum sá og
heyrði Poul Reumert leika einan
öll hlutverkín í „En Idealist'*
eftir Kaj Munk, sannfærðist ég
um að hann væri mesti leikari,
sem ég hefði upplifað. Þegar ég
síðar kynntist honum persónu-
lega og varð vinur hans, fann ég
að hann var einhver sú mesta
persóna, sem ég hafði komizt í
við. Við andlát hans minnist ég
hans í djúpri lotningu sem leik-
ara og persónu, en ekki sízt s^m
einlægs vinar íslands í einu og
öllu“.
Freetown, Sierra Leone,
19. apríl NTB.
UNDIRFORINGJAR þeir í hern
um, sem tóku öll völd í sínar
hendur í ríkinu Sierra Leone í
Vestur-Afríku á fimmtudag,
komu í dag á fót sérstöku ráði,
sem á að sjá um, að landið fái
borgaralega stjórn. Er gert ráð
fyrir því, að það verði eftir
fáeina daga, að því er segir í
London.
Hin nýja stjórn, sem batt en-da
á 13 mánaða langa stjórn Andrew
Juxon-Smitlhs í landinu, gaf í
dag ú-t tilkynningu þess efnis,
að boð hefðu verið gerð eftir
tveimur hátts-ettum herforingj-
um tE þess a-ð taka við yfirsjórn
hersins. Þessir tveir herforingjar
hafa verið í „útlegð“ sem serdi-
starfsmenn erlendis.
Samkv. fréttum frá Monroviu,
höfuðlborg nágrannaríkisms
Liberiu, er búizt við því, að
Siaka Stevens verði æðsti mað-
ur nýju borgaralegu stjórnar-
innar í Sierra Leone. Síevens
var settur úr embætti af hern-
um, nokkrum mínútum eftir að
hann hafði svarið em-bættiseið
sem forsætisráðherra í Sierra
Leone í marz 1967,
Valdatakan í Sierra Leone,
sem almennnt er kölluð „valda-
taka undirforingjanna“, va-r
framkvæm-d að frásígn þeirra,
s-em að henni stóðu, sökum þess
Selfossi 19. apríl.
KARLAKÓR Selfoss heldur söng
skem-mtun í Selfossbíói n.k.
sunnu-dag kl. 17. Á söngskrá eru
íslenzk og erlend lög, þ. á m.
verða frumflutt tvö ný lög eftir
Pá-lmar Þ. Eyjólfsson á Stokks-
eyri. Söngstjóri er Einar Sigurðs
son, en un-dirleikari Heimir Guð
mundsson. Einsöngvari verður
Fó-strufélagið Sól mun í dag
etfna til fyrstu barnaskemmtunar
sinnar í Austu-rbæjarbíói.
Skemmtanirnar verða alls þrjár.
Hinar tvær verða haldna-r á
morgun sunnudag kl. 1.30, og á
Sumardaginn fyrsta kl. 15.00.
Skemmtanir þessar verða ekki
óáþekkar því, sem tíðkast hefur
un-danfarin ár, þ. e. börn úr leik
skólum og dagbeimilum bæjarins
munu skemmta ásamt nemum úr
Póstruskólanum. , ,
Verða mörg atriði á skemmti-
skránni, s. s. Nýju fÖtin hans
Péturs, flutt af börnum úr Grænu
borg, þulur og kvæði, flutt af
börnum úr Staðarborg, dansar,
sem börn úr Hamraborg taka
þátt í. Þá mun Gyða Ragnars
Bells viski
kynnt hérlendis
FYRIR nokkru var staddur hér
á landi Tom Gisle, útflutnings-
stjóri Arthur Bell & Sons Ltd. í
Skotlandi, en það fyrirtæki fram
leiðir Bell’s Whisky. Kom út-
flutningsstjórinn hingað í tilefni
þess, að fyrirtækið hefur nú
fengið um-boðsmann á íslandi,
en þessi viskítegund hefur ekki
verið á boðstólunum hér til
þessa.
Bauð Tom Gisle fréttamönnum
og veitingahúsaeigendum á sirvn
fund og kynnti þeim fyrirtækið
og framleiðslu þess, en Arthur
Bell & Sons Ltd. var stofnað
árfð 1825.
að herstjórnin, sem fór með völd
í landinu, hafði ekki efnt loforð
sitt um að koma á borgaralegri
stjórn í landinu.
Herforingjarnir tveir, sem
beðnir hafa verið um að snúa
heim, eru John Bangura, ofursti,
en honum hefur verið boðjn
staða yfirmanns hersins og Am-
bros-e Genda, ofursti, sera á að
verða næstæðsti maður hersins.
Bangura, ofursti, sem nú er
sagður dveljast í Guineu, var í
fyrra sendur í „útlegð" í stöðu
sen-distarfsmanns í Ba-ndaríkjun-
um og Genda ofursti hefur verið
sendiherra í Liberiu.
Juxon-Smibh hershöfðingi og
fyrrverandi forseti og n-æst æðsti
valdamaður ríkisins áður, Willi-
am Leight major og fleiri hátt-
settir herforingjar og stjórn-
málamenn hafa verið handteknir
og settir í fangelsi.
Strax eftir valdatökuna á
fimmtudag var gefin út tilkynn-
ing um útgöngubann og lögreglu
menn og hermenn fóru í eftirlits
ferðir um götur borgarinnar. í
dag báru fréttir með sér, að allt
væri með kyrrum kjörum í Free-
town. Samfoandi við útlönd hefur
verið komið á að nýju og lífið
gengur sinn vanagang í borginm.
Lítur svo út sem undirforingj arn
ir hafi fullkomlega stjórn á öllu
í landinu.
Hjalti Þórðarson.
Karlakór Selfoss hefur nú
starfað í fjögur ár og haldið
söngskemmtanir á hverju ári, en
auk þess hefur kórinn sungið við
ýmis tækifæri. Einar Sturluson
óperusöngvari hefur annazt radd
þjálfun kórsins sl. tvo vetur.
T. J.
lesa sögu, síðan syngja og leika
böm úr Holtaborg Negrastráka.
Þá mu-nu börn úr Austurborg sjá
um söng og dansa.
Nemar úr Fóstruskólanum
munu síðan leika Krum-mahjón.
Og að lokum munu börn úr
Laugafoorg syngja og leika Stínu
og. brúðuna hennar. Skemmtan-
irnar munu standa yfir í nálægt
tvo tíma.
- SJÁLFVIRK
Framhald af bls. 32
Kl. 15 í dag bauð póst og síma-
málastjórnin starfsfólk land-
símans, þeim sem unnið höfðu
að uppsetningu stöðvarinnar,
hreppsnefnd Hvammstanga-
hrepps, fréttamönnum og nokkr-
um öðrum til kaffidrykkju í
félagsheimilinu hér. Þorvarður
Jónss-on verkfræðingur bauð
gesti velkomna og lýsti þeim
breytingum, sem ættu sér stað
í símamálum okkar í dag. Auk
þess tóku til máls Brynjólfur
Sveinbergsson og Ingólifur
Guðnason. Að lokinni kaffi-
drykkju sýndi Þorvarður Jóns-
son gestum sjálfvirkni símans,
en stöðin er sænsk, frá L. Erik-
son.
Þann 12. setember sl. voru rétt
50 ár liðin frá því að landsíma-
stöð tók til starfa hér. Fyrsti
stöðvarstjóri var Þórður Sæm-
undsson og var ekkja hans, frú
Guðrún K. Sveinsdótir, við-
stödd opnun sjálfvirku símstöðv-
arinnar í da-g. Núverandi stöðvar
stjóri er frú Debóra Þórðar-
dóttir.
S. T.
Korlokór Selfoss heldur söng-
skemmtun d sunnudag
Barnaskemmtun fóstrufélagsins
Sólar í Austurbæjarbíói