Morgunblaðið - 21.04.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1968.
5
Sjálfstæðisfélag
Garða- og Bessa-
staðahrepps
SÍÐASTA spilakvöld félagsins
verður nk. mánudag 22. apríl kl.
20,30 í samkomuhúsinu á Garða
holti. Veitt verða góð kvöldverð
laun að vanda, auk hinna glæsi-
legu heildarverðiauna. Nú er til
mikils að vinna. Sjálfstæðisfólk
fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
BEZT a<5 auglýsa
í Morgunblaðinu
tiv-ny mynstur
Axminster — gólfteppinéru nú fáanleg i nýjum mynstrum og litum. Axminster — gólfteppin eru einungis
framleidd úr íslenzkri ull. Gæðið heimilið þeirri hlýju og fegurð er Axminster — gólfteppin veita.
Axminster
OÓIFTEPPAVERKSMIÐJA GRENSASVEG! 8 SlMI 30676
Nýtt og fullkomið Volvo-verkstæði opnað
— Verður til sýnis ásamt vörum Gunnars
Ásgeirssonar hf. milli kl. 2 og 6 í dag
GUNNAR Ásgeirsson h.f.
hefur í dag opna sýningu
á nýju verkstæði, sem gert hef-
ur verið að sænskri fyrirmynd
í húsakynnum fyrirtækisins að
Suðurlandsbraut 16. Sýningin
verður opin milli kl. 2 og 6,
en að auki gefst sýningar-
gestum kostur á að sjá allar
söiuvörur fyrirtækisins, Volvo-
bifreiðir, báta, Husquarna-vör-
ur, Blaupunkt-vörur o. m. fl.
Sýningin hófst í gær.
Gunnar Ásgeirsson forstjóri
fyrirtækisins bauð blaðamönn-
um að skoða fyrirtækið í
fyrradag en það er nú átta
ára, en hann hefur haft
umboð fyrir Volvo á hendi
í alls 20 ár. Um síðastliðin ára-
mót tók hann sjálfur yfir við-
gerðarverkstæði fyrir Volvo, en
áður höfðu Díselvéiar h.f. rekst-
ur verkstæðisins með höndum,
þótt það væri í húsnæði Gunn-
ars.
Nú eru í landinu 1700 bifreið-
ar af Volvo-gerð. Verkstæðið
hefur aðeins haft 275 fermetra
til umráða, en með hinni nýju
viðbót og réttingarverkstæði er
flatarmál þess 750 fermetrar og
getur það því rúmað 12 fólks-
bifreiðar, og 4 vörubifreiðar
samtímis, auk réttingarverkstæð
isins, sem rúmar 2 til 3.
Verkstæðisformaður er Jan
Jensen, en ásamt honum er
sænskur maður, Karl Petters-
son, sem kom til landsins á síð-
astliðnu sumri og er áætlað að
hann verði hér að minnsta kosti
í 2 ár og mun hann ásamt Jan
hafa yfirstjórn og þjálfun bif-
vélvirkja með höndum.
Verkstæðinu er skipt í 3 hluta,
fólksbílaverkstæði, vörubílaverk
stæði og réttingarverkstæði. Hef
ur gerð þess verið sniðin eftir
fyrirmynd Volvo-verksmiðj-
anna, kröfum þeirra og undir
eftirliti.
í varahlutadeild fyrirtækisins
hefur verið komið fyrir rafeinda
vél, svokölluðum Mercator frá
Olivetti og eru allar nótur skrif-
aðar þar út, en jafnframt gatar
vélin strimil, sem sendur er til
Volvo, en á næstunni mun spjaid
skrá fyrirtækisins verða lögð
niður. Verksmiðjan mun hins
vegar fylgjast með birgðum og
sölu um strimlana ög segir til
um hvers og hvenær sé þörf af
varahlutum. Þetta kerfi hafa
margir umboðsmenn Volvo víða
tekið upp, en Gunnar Ásgeirs-
son h.f. mun vera fyrsta fyrir-
tækið utan Skandinavíu, sem
það gerir. Mun þetta skipulag
að sögn Gunnars verða til þess
að varahlutabirgðir verða fjöl-
breyttari og minni hætta á að
varahiuti vanti.
Ásamt forstjóranum, Gunnari
Ásgeirssyni, eru aðalstjórnendur
fyrirtækisins skrifstofustjórinn
Gísli Steinsson og tveir synir
Gunnars, Stefán og Ásgeir.
Gunnar skýrði blaðamönnum
frá því, að launagreiðslur fyrir-
tækisins hefðu verið síðastliðið
ár um 9.6 milljónir. Samanlögð
umsetning öll 8 árin hefur verið
700 milljónir, launagreiðslur 34
milljónir, skattar 30 milljónir,
þar af um 22 milljónir i sölu-
skatt. Um 60 manns vinna við
fyrirtækið.
Er Gunnar hafði gefið áður-
nefndar upplýsingar, varpaði
hann fram spurningunni: Er
unnt er að reka svona fyrirtæki
á fslandi? Og hann svaraði
henni á eftirfarandi hátt:
„Það er erfitt, en með auk-
inni veltu, sem hefur verið síð-
ast liðið ár og takmörkuðum
vinnukrafti hefur þetta gengið,
svo og með góðra manna aðstoð,
en í dag er ekki bjart fram und-
an, hvorki hjá mér né öðrum
sem við verzlun fást. Minnkandi
sala, lækkuð álagning, 20-30%
meiri veitufjárþörfin hlýtur allt
að draga til samdráttar. Venju-
lega hafa unnið hér nokkrir
unglingar á sumrin, en nú í sum
ar verða þeir allmiklu færri.
Frá því um jól og fram í maí
mun ég fæk'ka um 5 manns.
Kostnaður er of mikill í dag
eða réttara sagt það er of lítið
sem má taka fyrir þjónustuna
og ef borið er saman við ná-
grannalöndin, þar sem kostnað-
ur er hliðstæður og hér, þykir
manni frekar einkennilegt, að
skuli vera hægt að selja vörur
með svo mikið lægri álagningu
heldur en þekkist þar og sem
dæmi vil ég nefna: Husqvarna
saumavél af fullkomnustu gerð
er seld hér í útsölu með 20%
tolli á s. kr. 1.100.— en þar eru
engir tollar.
Áiagning á fólksbifreið hér er
5'4%+2.300 krónur íslenzkar, í
Svíþjóð eru 27% álagning en þar
er talið þurfa að minnsta kosti
17% álagningu. Álagning á verk
stæðisvinnu hér er 30 til 40%
en í nágrannalöndunum er
hún 300-400%. lengdar getur ekki gengið að
Vonandi verður fljótlega kom reka fyrirtæki án þess að grund-
in í gang opinber rannsókn á völlur só fyrir rekstri þeirra.
álagningarþörf fyrirtækja því til Öll fyrirtæki þurfa að geta
eignazt það mikið eigið fjármagn
að ekki þurfi að gera róttækar
ráðstafanir með uppsögnum þótt
um tíma eitthvað bjáti á.
Það er ekki auðvelt að sjá á
bak sér þjálfuðu starfsfólki, en
því miður getur þurft að láta
slíkt fólk fara, en heldur ekki
auðvelt að fá það aftur ef að eitt
hvað lagast“.
Feðgamir þrír á meðal bíla og báta á sýningunni í nýja verkstæðinu. Frá vinstri: Stefán, Ás-
geir og Gunnar. (Ljósm. Ól. K. M.)
GLERULLAREINANGRUN
Fiberglas
Amerísk glerull í
rúlluin með ál- og
kraftpappa.
GUSUL0
Dönsk glerull í rúll-
um með ál- og kraft-
pappa, einnig í mott-
um og í lausu.
J. ÞORLAK8SOIN1 & IMORÐMANN HF.