Morgunblaðið - 29.05.1968, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.05.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1968. 5 í gær var unnið við að setja upp bitana, sem eiga að mynda þekju hússins. Bitar þessir, átta talsins, eru hver um sig tæpl ega 30 metrar á lengd og þeir stærstu sinnar tegundar, sem steyptir hafa verið hér á landi. — (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.) Hafnarfjörður: Framkvæmdir hafnar að nýju við íþróftahúsið FRAMKVÆMDIR við íþrótta- og félagsheimilið í Hafnarfirði eru nú hafnar að nýju, en í fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð fyrir fjórum milljónum til þeirra framkvæmda á þessu ári, þar af nemur framiag ríkissjóðs 312.000 krónum. Er meining að gera húsið fokhelt á þessu ári. Allt húsið verður samtals 17.500 rúmmetrar og verða þar tvöfald- ur íþróttasalur með áhorfenda- svæði fyrir 800 manns og sam- byggt félagsheimili. 1960 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar teikningu að nýju íþrótta- og félagsheimili, en núverandi íþróttahús er frá árinu 1926 og með öllu orðið iófudlnæajandi. Framkvæmdir bygginguna hófust 1962, en mest var unnið á árunum 1965— 66. Nú eru komnar í bygging- una 11,5 milljónir, þar af 4,7 frá ríkissjóði, en alls er áætlað að húsið kosti fullbúið tæpar 40 milljónir. Slysarannsóknir vegna umferiarbreytinganna Rúmlega 5000 slys lögreglunnar S.L. ár urðu 5060 umferðaslys á íslandi, en voru 5128 árið áður. Er hér átt við slys, er lögreglan gefur skýrslu um, en talið er að það sé um 50% þeirra slysa er verða. Einar B. Pálsson skýrði frá þessu á blaðamannafundi Framkvæmdanefndar hægri um- ferðar í gær í þvi tilefni, að fram mun fara slysarannsókn vegna umferðarbreytingarinnar. Verður stuðst við tíðni umferðarslysa næstu tveggja ára og tölva Há- skólans notuð til aðstoðar. Könnunin, sem fram hefui farið á umferðarslysum síðustu tveggja ára var gerð á þann veg, að slysum er skipt eftir dreifbýli og þéttbýli. Síðan er þeim skipt eftir eðli slysanna, og eins eftir því, hverjar afleiðingar þeirra eru. Með skýrgreiningu á umferð arslysi er átt við óhapp, sem á sér stað á vegi, þar sem meiðsli á manni eða eignatjóni er um að ræða, og a.m.k. eitt ökutæki á ferð á hlut að. Árið 1966 urðu 4496 umferðar- slys í þéttbýli eða 86%, en í dreif býli urðu slysin 72'2 eða 14%. Árið 1967 voru slysin 4242 í þétt- býli eða 84%, en 816 eða 16% í dreifbýli. 1967 fœrð í bœkur af slysum í dreifbýlinu, 44 slys, en fæst vikuna í apríl, 4 slys. Afleiðingar slysa Afleiðingunum var skipt í þrennt: meiðsli og eignatjón. 1966 urðu 12 dauðaslys í þéttbýli en 5 í dreifbýli, 463 meiðsli urðu í þéttbýli en 101 í dreifbýli, 3931 slys endaði með eignatjóni í þétt býli en 616 í dreifbýli. Árið 1967 urðu 13 dauðaslys í þéttbýli en 7 í dreifbýli, 347 meiðsli í þéttbýli en 86 í dreif- býli og 3®82 slys enduðu með eignatjóni í þéttbýli en 723 í dreif býli. Meiðsli á mönnum Þeim meiddu var skipt í fjóra flokka, ökumenn á vélknúnum tækjum, menn á annarskonar tækjum, farþega og gangandi fólks. Árið 1966 meiddust 102 öku- menn á vélknúnum tækjum í þéttbýli, en 59 í dreifbýli. 47 ökumenn á öðrum tækjum meiddust í þéttbýli, en einn í dreifbýli. 128 farþegar meiddust í þéttbýli, en 88 í dreifbýli og 249 gangandi meiddust í þéttbýli, en 11 í dreifbýli. Árið eftir meidd ust 111 ökumenn vélknúinna tækja í þéttbýli, en 50 í dreif- býli, 32 ökumenn annarra tækja í þéttbýli, en 2 í dreifbýli, 91 farþegi meiddist í þéttbýli, en 96 í dreifbýli, og 168 gangandi meiddust í þéttbýli, en 4 í dreif- býli. Áætluð slys á þessum árstíma. Otto Björnsson hefur reiknað út með hliðsjón af slysaskýrslum síðustu tveggja ára, hver hætta sé á slysum á þessum árstíma. Telst honum svo til, að 90% líkur séu á því, að á vegum í þéttbýli verði slysi milli 58 og 92 en í dreifbýli milli 10 og 32. Má hafa hliðsjón af þessum töl- um, þegar kannað verður, hvort umferðaröryggi hefur breytzt við tilkomu hægri umferðar. UNGT FÚLK Frá og ineð 29. maí 1968 og þar til öðru vísi verður ákveðið gildir eftirfarandi hámarkshraði, þar sem umferðarmerki gefa ekki annað til kynna. I þéttbýli 35 km.jklst. Á þjóðvegum 60 km.jklst. Á Reykjanesbraut 60 km.jklst. Reykjavík, 28. maí 1968. Framkvœmdanefnd hœgri umferðar íslandsmótið 2. deild HAFIMARFJÖRÐtlR: í kvöld kl. 20.30 FH - Haukar Mótanefnd M.P. miðstöðvarofnar Einkaumboð: Sænsku Panel-ofnarnir frá A/B Feliingsbro Verk- stáder, eru ekki aðeins tæknilegt afrek, heldur einnig sönn heimilisprýði. Verð hvergi lœgra. LEITID TILBOÐA Hannes Þorsteinsson lieildverzlun, llallveigarstíg 10, simi: 2-44-55. STUÐNINGSMENN GUNNARS THORODDSENS Á AKRANESI hafa opnað skrifstofu í Félagsheimili Karlakórsins Hæstu og lægstu slysatölur á viku. Árið 1966 urðu slysin í þétt- býli mest í vikunni fyrir jól, eða 168. Minnst urðu þau fyrstu vik- una í ágúst, verzlunarmanna- helgina, eða 50. Þá viku urðu slysin hins vegar mest í dreif- býlinu 1966, eða 37 talsins. Minnst urðu þau fyrstu vikuna 1 maí 2 að tölu. Árið 1967 urðu slysin í þéttbýlinu mest aðra vikuna af marz eða 148, en minnst um verzlunarmannahelgina eða 52. Þá varð eins og árið áður mest SKRIFSTOFA UNGRA STUÐNINGSMANNA GUNNARS THORODDSENS ER AÐ VESTUR- GÖTU 17 II. HÆÐ. SKRIFSTOFAN ER OPIN ALLA VIRKA DAGA KL. 1 — 7. Hafið samband við skrifstofuna SÍMAR 84520 og 84521. SAMTÖK UNGRA STUÐNINGSMANNA GUNNARS THORODDSENS. að Skjólbraut 21. Skrifstofan verður fyrst um sinn opin alla daga kl. 16 — 22, sími 1915. STUÐNINGSFÓLK HAFIÐ SAMRAND VIÐ SKRIFSTOFUNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.