Morgunblaðið - 08.06.1968, Qupperneq 1
32
SIÐUR
117. tbl. 55. árg.
LAUGARDAGUR 8. JUNÍ 1968
Prentsniiðja Morgnnblaðsins
Tugir þúsunda votta Kennedy virðingu
IVIargir grétu er þeir gengu fram
hjá kistu Roberts Kennedys
New York, 7. júní. NTB-AP
TUGIR þúsunda gengu fram
hjá kistu Robert Kennedys
öldungadcildarþingmanns þar
sem hún lá á viðhafnarbörum
í kirkju heilags Patreks í
New York í allan dag. Fyrstu
sex klukkustundirnar eftir að
kirkjudyrnar voru opnaðar
og mannf jöldanum hleypt
inn vottuðu rösklega 25.000
manns hinum látna leiðtoga
hinztu virðingu sína. Margir
grétu þegar þeir gengu fram
hjá viðhafnarbörunum.
Fólk úr öllum stéttum þjóð
félagsins, hvítir menn jafnt
sem þeldökkir, ungir og
gamlir, ríkir og fátækir,
Bandaríkjamenn jafnt sem
útlendingar, gengu fram hjá
kistunni. Biðröðin náði mörg
hundruð metra og jókst stöð-
ugt. Hundruð manna biðu í
alla nótt eftir því að kirkjan
yrði opnuð og jafnvel þeir
sem komu árla morguns til
kirkjunnar urðu að bíða í allt
að tvær klukkustundir til að
komast inn.
Ættingjar og nánir vinir Ro-
bert Kennedys skiptust á um að
standa heiðursvörð við líkkist-
una, þar sem komið var fyrir
sex kertum. Tveir elztu syniir
Roberts Kennedys, Joseph, 15
ára, og Robert yngri, 14 ára,
stóðu heiðursvörð við kistuna í
hálfa klukkustund. Þeir lutu
höfði og studdu sig við kistuna.
Edward (Teddy) Kennedy, sá
eini hinna fjögurra Kennedy-
bræðra sem enn er á lífi, vakti
við hlið hins látna bróður síns
í mestalla nótt. Þegar Kennedy-
fjölskyldan fór frá dómkirkj-
unni í kvöld, varð Teddy eftir í
kirkjunni, og stóð milli altaris-
ins og kistunnar og hélt á blóm
sveig og bænabók.
„GUÐ BLESSI ÞIG“
Borgarstjóri New York, John
Lindsay, kom til kirkjunnar um.
hádegi, lagði arminn utan um
frú Ethel Kennedy og sagði lág-
um rómi: „Guð blessi þig“.
Kona nokkur var við að fá tauga
áfall, en nærstaddir lögreglu-
menn róuðu hana. Fimmtán^ ^
manns féllu í öngvit í biðröð-
inni fyrir utan kirkjuna, enda
var steikjandi hiti. Móðir Kenn
edys, ekkja hans og ekkja John
Kennedys forseta, Jacqueline
Kennedy, voru meðal þeirra sem
krupu á bæn við kistu Kennedys.
Búizt er við að ekkert lát
verði á hinum gífurlegu fólks-
straumi til kirkjunnar allar þær
Framh. á bls. 18
Mikill mannfjöldi gekk framhjá kistu Kennedys, sem stójð á viðhafnarbörum i St. Patreks-
kirkjunni í New York. Áður en kirkjan var opnuð í gærmorgun hafði hópur manna safnazt
saman fyrir utan og allan daginn var látlaus straumur fólks, sem kom að kistunni til að votta
hinum látna virðingu.
Áhrif morðsins á Kennedy:
Skorað á frambjóðendur
að forðast fjöldafundi
— Kviðdómur fjallar um mál Sirhan Sirhans
Robert Kennedy yngri við kistu föður
Patreks í New York í gær.
kirkju heilags
Washington og Los Angeles,
| Alríkislögreglan og leyni
þjónustan í Bandaríkjunum
hafa skorað á alla sem keppa
að útnefningu sem forseta-
eða varaforsetaefni að forðast
fjöldafundi vegna morðsins
á Robert Kennedy, og getur
svo farið að kosningabarátt-
an í Bandaríkjunum verði að
miklu leyti háð í sjónvarpi.
í*ó er talið vafasamt að allir
verði við þessum tilmælum,
en ljóst er að gripið verður
til mjög strangra öryggisráð-
stafana í Bandaríkjunum í
sambandi við forsetakosning-
arnar.
H I Los Angeles kom kvið-
dómur skipaður 14 konum og
9 körlum saman fyrir lukt-
um dyrum til að undirbúa
réttarrannsókn vegna morðs-
ins á Robert Kennedy og á
hann að ákveða hvort fyrir
liggi nógu sterkar sannanir
til þess að ákæra megi Jórd-
aníumanninn Sirhan Bishara
Sirhan, sem lögreglan hefur
handtekið fyrir morðið.
| í nótt var gripið til
mjög strangra öryggisráð-
stafana á landamærum Banda
ríkjanna og Kanada vegna
fregna um, að átta „byltinga-
menn frá Quebec“ hefðu hót-
að að myrða Johnson forseta,
Nelson Rockefeller ríkisstjóra
í New York og Hubert Hump
hrey varaforseta til að hefna
morðsins á Robert Kennedy.
Þótt hótunin væri talin fjar-
stæðukennd var landamæra-
vörðum skipað að vera við
öllu búnir.
Dregnr Ted Kennedy sig í hlé?
Hótunin er hins vegar talin
gott dæmi um þá hættu sem
framámönnum í Bandaríkjunum
sé búin, en einn þeir-ra sem hót-
að var, Rockefeller ríkisstjóri,
sagði í dag að opinberir emb-
ættismenn og frambjóðendur í
kosningum ættu ekki að láta
hræða sig vegna morðsins á
Kennedy. Hann sagði, að ef
frambjóðendur hættu að ganga
um stræti og torg, heilsa kjós-
endum og rabba við þá mundu
Bandaríkjamenn glata einu af
því sem mesta þýðingu hefði í
Framh. á bls. 18
GAF SIG FRAM
Unga stúlkan sem lýst var eftir
segist ekki þekkja Sirhan
Los Angeles, 7. júní.
AP-NTB
UNGA konan, sem lýst var
eftir í sambandi við morð-
ið á Robert Kennedy, hef-
ur gefið sig fram við lög-
regluna í Los Angeles, að
því er tilkynnt var seint í
kvöld.
Konan kvaðst heita Cathy
Fulman og vera 19 ára göm-
ul. Hún sagðist hafa fengfð
móðursýkiskast eftir morðið
og hlaupið öskrandi frá morð
staðnum. Hún neitar því harð
lega að hafa nokkurt samband
haft við Sirhan Sirhan, sem
handtekinn hefur verið vegna
morðsins.
Fyrr í dag sagði talsmaður
lögreglunnar í Los Angeles
að konunnar væri einungis
leitað vegna þess áð talið væri
að hún gæti veitt mikilsverð-
ar upplýsingar, en ekki til
þess að taka hana fasta.
Ung kona sem stóð fyrir
Framh. á bls. 31
w