Morgunblaðið - 08.06.1968, Side 20
I
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1968
Leitur MiiIIer torm.
SkíÖatélagrs Rvk.
Stefán G. Björnsson kjörinn
heiðursformaður
AÐALFUNDUR Skíðafélagsins
var haldinn í skála félagsins í
Hveradölum miðvikudaginn 15.
f.m. I>etta er 54 starfsár félagsins.
Formaður félagsins setti fund-
inn og bað forseta Í.S.Í., Gísla
Halldórsson að taka við fundar-
stjórn.
Formaður las upp ársskýrslu
og reikninga félagsins og kom
fram að veruleg eignaaukning
vegna endurbóta varð á árinu og
eru nú nettoeignir félagsins rúm-
ar þrjár milljónir króna.
Skíðafélagið hefur nú 330 fé-
laga og styrktarmeðlimi, og lýsti
formaður ánægju sinni yfir því
hvað margir af eldri félögum
þess héldu tryggð við það og
greiddu sín gjöld.
unHCUNBLADID
lýsti formaður því yfir að hann
myndi ekki gefa kost á sér sem
formaður áfram, en hann hefur
verið formaður félagsins frá ár-
inu 1947 eða yfir 20 ár, en fyrst
hafði hann verið kosinn í stjórn
félagsins árið 1939.
Formaður var því næst ein-
róma kjörinn Leifur Miiller,
frkv.stj., sonur L. H. Muller heit-
ins, sem jafnframt var formaður
þess í 25 ár. Aðrir í stjórn eru
þessir:
Lárus G. Jónsson, varaformað-
ur, Þórir Jónsson, ritari, Brynjólf
ur Hallgrímsson, féhirðir, Sig-
uður R. Guðjónsson, frú Ellen Sig
hvatsson og Haraldur Pálsson.
Að loknu stjórnarkjöri og að
undangenginni lagabreytingu
kom fram tillaga frá stjórninni
um að Stefán G. Björnsson yrði
gerður að fyrsta heiðursformanni
félagsins og var það einróma sam
þykkt. Að þessu loknu fluttu
kveðjur og árnaðaróskir forseti
Í.S.Í. Gísli Halldórsson; formað-
ur S.K.Í. Stefán Kristjánsson;
form Skíðaráðs Rvíkur, Þórir
Lárusson, svo og fulltrúar skíða-
deildanna í Reykjavík. Báru þeir
allir lof á störf Stefáns G. Björns
sonar fyrir skíðaíþróttina í höfuð
staðnum og þökkuðu honum
langt og heillaríkt starf að skíða
málum Reykvíkinga.
Nokkrar umræður urðu um
smíði skíðalyftu við skálá félags-
ins og var stjórninni falið að
vinna að því máli.
Þýzk teppi, verð frá kr. 255.
Ensk teppi, verð pr. ferm. 360,
breiddir 137 — 228 — 366.
Korkgólfflísar, verð pr. ferm.
GIŒNSÁSVEa 22-24
» 30230 3 2262
214 og 324.
Anierískar gólfflísar, verð pr. ferm.
278. Mjög mikið úrval.
Postulíns-veggflísar enskar og
þýzkar, verð frá 190 kr. ferm.
Fjölbreytt litaúrval.
- TÍU ÁRA STJÓRN
Framh. af bls. 17
mál, oft nánustu bandamönn-
um sínum til mikilar skelfing-
ar. Hann skammaðist út í
Bandaríkin. Hann lokaði dyr-
unum að Efnahagsbandalaginu
fyrir Bretum.
Margir Frakkar, sem nú
bjuggu við blómlegt efnahags-
líf og traustan gjaldmiðil,
voru undir niðri hlakkandi
yfir framkomu forsetans, þótt
þeir nefndu hann sti^idum í
háði „stóra spergilinn". í des-
ember 1965 bauð de Gaulle sig
fram til endurkjörs, sem for-
seti Frakklands. Hann skipu-
lagði enga kosningaleiðangra.
Hann taldi sig ofar öllum
stjórnmálum, og lét stuðnings-
menn sína um allan undirbún-
ing.
Fyrri umferð forsetakosn-
inganna fór fram 5. desember,
og tókst de Gaulle þá ekki að
ná hreinum meirihluta at-
kvæða. Alls voru frambjóðend
ur þá sex, og samkvæmt
stjórnarskránni bar þá að
kjósa um tvo efstu mennina,
de Gaulle og Francois Mitter-
and. Síðari atkvæðagreiðsla
var svo 19. desember, og var
de Gaulle þá endurkjörinn for
seti Frakklands til næstu sjö
ára.
Ósigurinn við fyrri atkvæða
greiðsluna var de Gaulle og
stuðningsmönnum hans mikið
áfall, en þeir sættu sig fljót-
lega við hann. Öflug stjórn var
við völd í Frakklandi, en eins
og stúdent inn benti á fyrir
nokkru, „þetta er í rauninni
ekki landstjórn — þetta er
drottnun".
Valery Giscard d’Estaing,
áður fjármálaráðherra de
Gaulles, en nú aðeins hikandi
stuðningsmazður hans, komst
betur að orði í þingræðu:
„Þetta hefur verið svipað og
blómastúlkan í „Pygmalion“
eftir Bernard Shaw — prófess
orinn, sem hafði kennt henni
og auðgað hana spurði hvers
vegna hún væri alltaf óvin-
veitt sér. — „Það er vegna
þess að mig langar til að þú
sýnir mér örlitla nærgætni",
svaraði hún“.
De Gaulle leitar á ný til
þjóðarinnar síðar í þessum
mánuði, og biður hana að
veita sér traust við þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Eftir það sem
gerzt hefur að undanfömu,
veit enginn hvort þjóðin fellst
á það.
STÓR BINGÓ
verður haldið í Hótel Hveragerði laugardaginn 8. júní kl. 8:30.
Glæsilegir vinningar.
Aðalvinningur flugfar til Kaupmannahafnar.
Hinir vinsælu MÁNAR leika fyrir dansi frá kl. 9:30.
Sjálfstæðiskvenfélagið Árnesi.
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA
AÐALFUNDUR KJ3RDÆMISRÁÐS
Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu (uppi) á Akureyri laugardaginn 8. júní
og hefst kl. 16.00.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kjördæmismál og landsmál.
Framsögumenn: Alþingismenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu.
Formenn Sjálfstæðisfélaganna eru beðnir að boða fulla tölu fulltrúa frá hverju
félagi, skv. kosningum síðustu aðalfunda félaganna.
Stjórn Kjördæmisráðs.
Hárgreiðslustofa
í ful'lum gangi á góðum stað til sölu.
Upplýsingar í síma 20947 milli kl. 5—8 í dag
og næstu daga.
VINNA
Rösk spunakona óskast til starfa í ullarverksmiðju
okkar að Frakkastíg 8.
Nánari upplýsingar hjá verkstjóra í síma 13060.
í næstu viku.
ULLARVERKSMIÐJAN FRAMTÍÐIN.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 22., 24. og 27. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1968 á v/b Þorsteini NK 79 eign Rafns A.
Péturssonar, Flateyri fer fram í annað og síðasta
sinn við bátinn sjálfan á Flateyri eftir ákvörðun
uppboðshaldara og kröfu Guðjóns Styrkárssonar hrl.,
föstudaginn 14. júní n.k. kl. 2 eftir hádegi.
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu, 7. júní 1968.
Jóh. Gunnar Ólafsson.
Reiöhjólaskoðun
í Reykjavík
Lögreglan í Reykjavík og Umferðarnefnd Reykja-
víkur efna til reiðhjólaskoðunar og umferðarfræðslu
fyrir börn á aldrinum 7 — 14 ára.
Mánudagur 10. júní.
Langholtsskólá
Laugalækjarskóli
Miðbæjarskóli
Þriðjudagur 11. júní.
Laugarnesskóli
Melaskóli
V esturbæ j ar skóli
kl. 09.00 — 11.00
kl. 14.00 — 15.30
kl. 16.00 — 18.00
kl. 09.00 — 11.00
kl. 14.00 — 15.30
kl. 16.00 — 18.00
Miðvikudagur 12. júní.
Vogaskóli kl. 09.00 — 11.00
Austurbæjarskóli kl. 14.00 — 15.30
Breiðagerðisskóli kl. 16.00 — 18.00
Fimmtudagur 13. júní.
Hlíðaskóli kl. 09.00 — 11.00
Álftamýrarskóli kl. 14.00 — 15.30
Hvassaleitisskóli kl. 16.00 — 18.00
Föstudagur 14. júní.
Árbæjarskóii kl. 09.00 — 11.00
Skoðun fer fram við félagsheimili Framfarafélags
Árbæjarhverfis.
Börn úr Landakotsskóla, ísaksskóla, Höfðaskóla
og Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraskóla íslands
mæti við þá skóla, sem eru næst heimilium þeirra.
Þau börn, sem hafa reiðhjól sín í lagi, fá viður-
kenningarmerki lögreglunnar og umferðarnefndar
fyrir árið 1968.
UMFERÐARNEFND REVKJAVÍKUR.
LÖGREGLAN í REYKJAVÍK,