Morgunblaðið - 14.06.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1968
Vatnsleiðslan til
Eyja er tilbúin
VATNSLEIÐSLA Vestmannaey-
inga er nú tilbúin um borð í sér
staklega útbúnu skipi, sem mun
leggja leiðsluna og er skipið nú
í Kaupmannahöfn. Skipið kem-
ur til Vestmannaeyja samkvæmt
áætlun 13. júlí n.k. og leiðslan
verður lögð á milli lands og Eyja
dagana 18.—20. júlí. Leiðslan veg
ur alls um 500 tonn og fyrstu
vikuna eftir lögn verður hún
reynd við mjög háan þrýsting,
en búizt er við að Vestmanna-
eyingar geti teigað vatn úr landi
í ágústbyrjun. Til að byrja með
verður notaður vatnsgeymir sem
er í Eyjum og rúmar um 500
tonn, en í sumar verður byrjað
á 5000 tonna vatnsgeymi.
Eftirfarandi upplýsingar fékk
Mbl. hjá Magnúsi Magnússyni
bæjarstjóra.
Neðansjávarleiðslan er svipuð
að gerð og neðansjávarleiðslur
fyrir rafmagn og síma, nema
hvað innst er vatnspípa úr poly-
ethylenplasti. Öll vörn leiðsl-
unnar (armering) er þó mun öfl-
ugri en tíðkast við raf- og síma-
strengi. (Þessi vörn samanstend-
ur af mörgum stáilþynnum og
stálteinum, ásamt lögum úr
plasti, tjörubornum hampi o. fl.).
Baeði er, að nauðsynlegt er að
fá mikla þyngd, svo að leiðslan
liiggi hreyfingarlaus á hafsbotn-
inum, þrátt fyrir strauma og
sjávargang. Einnig þarf hún að
hafa mikinn átaksstyrk til að
verjast skemmdum af völdum
veiðar- og legufæra skipa. Enn-
fremur þarf leiðslain að þola gíf-
uriegan þrýsing að innanverðu
frá. Þar við bætist, að hún verð-
ur að vera vel varin gegn tær-
ingu.
Innra þvermál leiðslunnar er
102 mm. Ytra þvermál 157 mm.
ísland í 6.-7. sæti
tSLENZKA sveitin á Olympíu-
mótinu í bridge vinnur stöðugt
á. í gær fóru fram þrjár umferð-
ir og sigraði ísland þá Bermunda
með 15:5, og í 20. umferð uninu
íslendingar Israel með 14:6.
í gærkvöldi átti sveitin að
spila við dönsku sveitina.
Að loknum 20 umferðum er
íslenzka sveitin með 262 stig og
sennilega í sjötta eða sjöunda
sæti.
f 18. UMFERÐ á Olympíumótinu
í bridge, sem fram fer í Frakk-
landi, tapaði íslenzka sveitin fvr
ir hollenzku sveitinni 6-14. Is-
lenzka sveitin er þá í 9. sæti,
með 233 stig, en ítalska sveitin er
efst, með 273 stig.
Að 18 umferðum loknum er röð
allra þátttöku sveitanna í opna
flokknum þessi:
1) ítalia 273 stig
2) Kanada 262 —
3) Holland 260 —
4) Sviss 258 —
5) U.S.A. 248 —
6) Frakkland 237 —
7) Svíþjóð 236 —
8) Ástralía 234 —
9) ísland 233 —
10) Venezuela 208 —
11) Chile 206 —
12) Finnland 204 —
13) Belgía 200 —
14) ísrael 192 —
15) Filippseyjar 180 —
16) Þýzkaland 170 —
17) Austurríki 168 —
18) Jamaica 167 —
19) Spánn 167 —
20) Argentina 166 —
21) Kenýa 159 —
22) Danmörk 148 —
23) írland 146 —
24) Líbanon 146 —
25) A-Afríka 136 —
26) Brasilía 134 —
27) Thailand 127 —
28) Portugal 119 —
29) Bermuda 114 —
30) Grikkland 110 —
31) Egyptaland 93 —
32) Holl. Ant.eyjar 49 —
33) Mexico 17 —
f kvennaflokki er 9 umferðum
lokið og þar er efst S-Afríka með
156 stig, Svíþjóð er í 2. sæti með
148 stig og næst koma Banda-
ríkin með 128 stig, Ítalía 126 stig
og Frakkland 124 stig.
Ungir stuðningsmenn
dr. Kristjáns Cldjárns
— boda til samkomu á sunnudag
UNGIB stuðningsmenn dr. Kristj
áns Eldjáms boða til „kosninga-
hátíðar" í Háskólabíói n.k. sunnu
dag kl. 3 síðdegis. Þar verða flutt
ávörp, m.a. af Kristjáni Eldjám,
og skemmtiatriði verða. Gert er
ráð íyrir því, að hátíðin standi
i 1 1/2—2 klst.
Á fundi með blaðamönnum í
gær skýrðu ungir stuðnings-
menn Kristjáns Eldjárns frá dag-
skrá „samkomunnar" í Háskóla-
bíói, sem ungum jafnt og öldnum
er boðið til.
f upphafi fundarins leikur blás
arakvintett, en ávörp flytja
Kristján Bersi Ólafsson, Helgi
Guðmundsson, Georg Ólafsson,
Þórunn Thors, Jónatan Þórmunds
son, Hjörtur Pálsson og dr.
Kristján Eldjárn. Auk þess verða
skemmtiatriði flutt.
Skagaströnd, 13. júní.
MIKILL ís er nú út af Skaga-
strönd og sézt ekki út yfir ís-
inn frá kauptúninu. íshröngl hef
ur verið að undanförnu, en í
nótt fyllti flóann. Bátar komast
ekki á sjó eins og er, en einn
trollbátur, sem gerður er út héð-
an er á sjó og kemst ekki inn
til hafnar, nema að breyting
verði á ísnum. — FréttaritarL
Einn af talsmönnum ungra
stuðningsmanna dr. Kristjáns,
Þorsteinn Ólafsson, skýrði frá því
á blaðamannafundinum, að hver
dagskrárliður tæki 5—10 mínút-
ur og dagskráin í heild 1' 1/2—2
klst. Kvað hann alla velkomna,
unga sem gamla, og sagði, að
sjónvarpað yrði frá hátíðinni í
anddyri bíósins.
Ragnar Jónsson, framkvæmda-
stjóri, sem einnig sat blaða-
mannafundinn, skýrði frá því,
að í næstu viku kæmi út blað
ungra stuðningsmanna dr. Kristj-
áns og hefði það hlotið nafnið
„Ný kynslóð." Kvað Ragnar ný-
komið út 3. tölublað „30. júní“
og væru 3 í undirbúningi.
Hann skýrði einnig frá því, að
á næstunni yrðu opnaðar hverfa-
skrifstofur í Reykjavík. Aðspurð
ur sagði Ragnar Jónsson, að áætl
aður kostnaður við kosningabar-
áttu dr. Kristjáns væri um 2
millj. kr., en væri vinna allra
hinna fjölmörgu sjálfboðaliða
reiknuð á fullu ver’ði þætti sér
líklegt, að kostnaður væri ca. 25
milljónir.
Aðspurður sagði Ragnar einn-
ig, að engir árekstrar hefðu orðið
í kosningabaráttunni milli stuðn
ingsmanna forsetaframbjóðend-
anna, allt væri I sátt og samlyndi.
Sýnishorn af „Bikar Vestmanna-
eyinga“, vatnsleiðslunni. Innst er
plaströr, þá stáiþynnur, plast og
tjöruhampur, stálvirar og yzt
plast og tjöruhampur.
Þyngd hennar er (vatnsfyllt í
lofti) 41,7 kg/m. Átaksstyrkur er
a. m. k. 40 tonn. Vinnuiþrýsting-
ur 70 kg/cm2, en það jafngildir
700 m vatnssúlu. Þetta er mesti
þrýstingur, sem vitað er um að
notaður sé við vatnsveitur. Þessi
mikli þrýstingur margfaldar
flutningsgetu leiðslunnar.
Á næsta ári er áætlað að reisa
dælustöð á Krosssandi, sem
framleitt getur þennan mikla
þrýsing. Ekki er þó ætlunin að
nota allan þennain þrýsting,
nema þegar þörf krefur. Fyrsta
leiðslan getur flutt 500 tonn á
dag án dælingar, en 17—1800
tonn með hámarksþrýsingi.
Sl. ár var dreifikerfið fullgert
í rúmlega J hluta bæjarins og
áætlað er að ljúka dreifikerfinu
á næstu 2 árum.
Á árunum 1968—69 er áætlað
að byggja 5000 tonna miðlunar-
geymi í 55 metra hæð yfir sjó
og 250 tonna geymi enn hærra
fyrir efstu byggðina.
Fyrirhugað er að leggja leiðslu
nr. 2 árið 1970 og má þá segja,
að veitan verði fullbúin.
Vonir standa til, að sú leiðsla
verði 125 mm að innmáli og 80%
(miðað við 102 mm leiðslu). Ef
svo verður, mun flutningsgeta
þessara tveggja neðansjávar.
leiðsla duga fram undir 1990, en
þá þarf að bæta þriðju leiðsl-
unni við.
Morð/ð á Kennedy
Niðurstöður
skoðanakönnunar
Washington 13. júní NTB.
LOUIS Harris-stofnunin í Banda
ríkjunum birti í kvöld niðurstöð
ur skoðanakönnunar um við-
brögð bandarísku þjóðarinnar
við morðinu á Robert Kennedy.
Samkvæmt niðurstöðum stofn-
unarinnar hafði morðið á öld-
ungadeildarþingmanninum enn
meiri áhrif á fólk heldur en morð
ið á Kennedy forseta árið 1963.
Tveir þriðju þeirra sem spurðir
voru segja,að eitthvað meira en
lítið hljóti að vera bogið við
bandariskt þjóðfélag og helming-
urinn fellst á, að lögleysur og
lagabrot hafi náð yfirhöndinni
yfir lögunum.
Skoðanakönnunin sýnir, að
bandarískir borgarar eru þeirrar
skoðunar, að margt og mikið sé
athugavert í þjóðfélaginu og von
brigðin vegna þess eru mun
meiri en í marz, þegar efnt var
tii slíkrar könnunar um Vietnam
styrjöldina.
59% sög*ðu að einhvers staðar
væri brotalöm í þjóðfélaginu,
þegar forsetinn geti ekki af ör-
yggisástæðum látið uppskátt um
ferðir sínar. Allt bendir til, að
morðið á Robert Kennedy hafi
vakið borgara sterklegar til um-
hugsunar en þegar bróðir hans,
forsetinn var drepinn. 57% töldu
að stjórnmálakerfinu væri mjög
svo ábótavant, þar sem forseta-
frambjóðendur gætu ekki háð
stjórnmálabaráttu sína án ótta
um að verða fyrir morðtilræði.
S-Vietnam og Washington
Kennedyhöfða 13. júní AP-NTB
BANDARÍKJAMENN skutu í
dag á loft frá Kennedyhöfða 8
fjarskiptahnöttum, sem eiga að
bæta leynisamband bandarískra
hernaðaryfirvalda í S-Víetnam
við Washington. Hafa Banda-
rikjamenn veitt Bretum leyfi tll
að nota fjarskiptahnettina. Hnött
unum var skotið á loft með Tit-
aneldflaug og heppnaðist skotið
vel.
Mjög fjölmennur fundur Gunnurs
Thoroddsens ú Akrunesi
STUÐNINGSMENN Gunnars
Thoroddsens á Akranesi efndu
til kynningarfundar í Bíóhöllinni
í gærkvöldi. Fundurinn var mjög
vel sóttur og var húsið fullskip-
að, en húsið tekur 377 í sæti.
Bjöm Björnsson skrifstofu-
stjóri stuðningsmanna setti fund
inn og bauð fundarmenn vel-
komna svo og heiðursgestina frú
Völu og Gunnar Thoroddsen.
Björn nefndi til fundarstjóra Njál
Guðmundsson skólastjóra og
fundarritara Adam Þorgeirsson
múrarameistara. Þá fluttu ávörp
Páll Gíslason læknir, Helgi Júl-
íusson úrsmiður, ungfrú Ragn-
heiður Björgvinsdóttir, sem sér-
staklega ávarpaði ungt fólk, sem
nú hlýtur kosningarétt í fyrsta
sinn. Ennfremur fluttu ávarp
Guðmundur Sveinbjörnsson
deildarstjóri og Pétur Ottesen
fyrrum alþingismaður.
Þessu næst tók til máls Gunn-
ar Thoroddsen og flutti ýtarlega
ræðu, sem var vel fagnað af fund
argestum. Fundi lauk með því að
fram voru bornar nokkrar fyrir
9purnir, sem Gunnar Thorodd-
sen svaraði, en í fundarlok voru
þau frú Vala og Gunnar hyllt
með lófataki.
Kyrrt í París í gær
— stúdentar aflýstu mótmœlafundum
París, London 13. júní AP.
NTB.
ALLT var með kyrrum kjörum
í Paris í dag og kom hvergi til
óeirða né mótmælaacgerða. 1
stúdentahverfunum virtist einn-
ig rólegt. Verkamenn og vinnu-
veitendur ræðast enn við og
stjórnmálamenn eru að hefja
kosningahríðina fyrir alvöru.
Eins og skýrt var frá í gær,
bannaði franska stjórnin alla
mótmælafundi og fjöldasam-
kundur á götum úti og átti lög-
reglan að berja allar óeirðir
miskunnarlaust á bak aftur ef
einhverjar blossuðu upp. Parísar-
stúdentar höfðu í gær tilkynnt,
að þeir myndu halda mótmæla-
fund um kvöldið, en þeir tóku
síðan þá ákvörðun að aflýsa
honum. 1 nokkrum frönskum
borgun, þ. á. m. Strassbourg,
Marseilles og Bordeaux efndu
stúdentar til mótmælafunda í
gærkvöidi, en samkvæmt AP-
frétt fóru þeir friðsamlega fram.
Enn er um £ milljón manna í
verkfall í Frakíklandi, en allt
bendir til, að imnan skaimms
muni gamga saman með verka-
mönnum og atvinnurekenöum.
Viðræður standa m. a. yfir milli
verkamanna og eigenda Peugot-
verksmiðjanna í Austur-Frakk-
landi, en þar biðu tveir menn
bana á þriðjudaginn, þegar átök
urðu milli lögreglu og verka-
manna.
f Bordeaux samþykktu sjó-
mannasamtök borgarinnar í dag,
að halda áfram verkfalli, þó að
í flestum hafnarborgum hafi sjó-
menn samþykkt að hefja störf að
nýju. Samkamulag hefur náðzt
milli Air France og flugfreyja
félagsins og mun starfsemin
verða með eðlilegum hætti strax
á morgun.
í kauphöllinni í París hækkaði
verð á gulli í dag og gengi
franska frankans hækkaði aftur
verulega.
í neðri deild brezka þingsins
urðu í dag nokkrar umræður
vegna komu franska stúdentafor-
ingjans Daniels Cohn-Bendit til
Bretlands. James Callaghan inn-
anríkisráðherra sagði, að hann
hefði ekki í hyggju að bregða út
af þeirri venju, að útlendingar
fengju að koma til landsins og
láta í ljósi skoðanix sínar, svo
framarlega sem þær væru innan
ramma laganna. Leiðtogi íhalds-
flokksins, Edward Heah, kvaðst
vilja fá vissu fyrir því, að Cohn-
Bendit yrði tafarlaust vísað úr
landi, ef hann reyndi að æsa til
mótmiælaaðgerða í Bretlandi. —
Callaghan kvaðst ekki telja
minnstu ástæðu til að ætla að
hann hefði það í huga.
Samkv. fréttum NTB í kvöld
hafa svo kallaðir Katangarar, er
áttu samvinnu við róttæka stúd-
Framh. á bls 31
Laganefnd
Norðurlandaráðs
DAGANA 15. og 16. júiú n. k.
mun laganefnd Norðurlandaráðs
halda árlegan fund sinn og að
þessu sinni á Akureyri. Laga-
nefndin kemur arnan til þess að
ræða ýmis mál og verkefni sem
nefndin hefur fengið hjá Norð-
uriandaráði. Jóhann Hafstein,
dómsmálaráðherra mun sitja
hluta af fundi ráðstefnunnar.
1 laganefnd er.u 3 frá hverju
aðildarlandi, nema einn frá ís-
landi. Fjöldi fulltrúa er í hlut-
falli við fjölda fulltrúa í Norð-
urlandaráði, en þar eru 15 þing-
menn frá hverju landi, nema ís-
landi, sem hefur 5 þingmenn.
Auk þess munu fastir ritarar
og starfsmenn nefndarinnar sitja
fundinn.
Meðal mála fundarins eru:
Samræmd norræn fóstureyðing-
arlöggjöf, leiðréttingar á röngum
upplýsingum, sjónvarps- og hljóð
varps, Færeyjar og Norðurlanda-
ráð, verndun farfugla utan Norð
urlanda og bann gegn atvinnu-
boxi. Alls eru dagskrárliðir 12.