Morgunblaðið - 14.06.1968, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1968
Litið inn í húsmæðratíma
hjá Judó-deild Ármanns
fslenzkar konur hafa í vetur
stundað Judo-æfingar eins og
margir vita og komið hefur fram
í blöðum og sjónvarpi. Konur
þær, sem æfingarnar hafa stund
að, eru svo áhugasamar og hafa
fengið svo góða reynslu af þeim
í vetur, að ákveðið hefur verið
að halda þeim áfram yfir sum-
armánuðina, og jafnframt verð-
ur bætt við byrjendaflokkum til
sS gefa sem flestum tækifæri til
að vera með.
Okkur lék forvitni á að kynn-
ast þessari starfsemi nánar, og
lögðum því leið okkar í Ármúla
14, og horfðuim á húsmæðratíma
í Júdó. Það var sannarlega bæði
fróðlegt og skemmtilegt að fylgj
ast með æfingunni og sjá, hve
konurnar höfðu náð mikilli
leikni á æfingum, sem að okkar
dómi eru erfiðar og krefjast
mikillar þjálfunar og einbeit-
ingar.
Judodeild Ármanns er til húsa
að Ármúla 14, þar sem starf-
semin hefur til umráða þriðju
hæðina. Þar eru húsakynni hin
vistlegustu, 2 æfingarsalir, ann
ar stór hinn minni, þar sem ja-
panskar Judo-dýnur eru á gólf-
um. Þarna eru 2 gufubaðsklef-
ar, sturtuböð og nuddtæki, einn
ig er þar vistleg setustofa og
eldhús, þar sem hægt er að fá
sér kaffi og aðra hressingu. Inn
réttingar allar eru teiknaðar af
Gunnari Magnússyni, húsgagna-
arkitekt. Öllu er þarna mjög
haganlega fyrirkomið og ber
vott um mikla vinnu og áhuga.
Við höfðum tal af frú Jó-
hönnu Tryggvadóttur, sem er
forystumaður og aðalkennari
kvenna í Júdó-deild Ármanns,
og inntum hana eftir ýmsu varð-
andi þessa starfsemi.
Upphafsmaður Judo-íþróttar-
innar var japanskur maður, Dr.
Kano að nafni. Breytti hann
Yiu-Yitsu í Judo, og hefur þessi
fþrótt náð mikilli útbreiðslu um
allan heim. Hér á landi hefur
Judo verið stundað um árabil,
og þá aðallega af karlmönnum,
en nú leggur töluverður hópur
kvenna einnig stund á Judo.
jAðalkennarar karla eru Reimar
Stefánsson, Ragnar Jónsson og
Bjarni Jónasson ásamt Erling
Bang, en Jóhanna Tryggvadótt-
ir er kennari kvennanna. Nú
eru fyrirhugaðar æfingar í sum-
ar, og þar á meðal sérstakur
tími fyrir húsmæður. Eins og ali
ir vita, er sumarið oft sá tími,
sem húsmæður hafa fleiri frí-
stundir frá heimilum sínum,
börnin kannske farin í sveit og
þær ekki eins bundnar af skóla-
tímum barna sinna. Jóhanna hef
ur verið eini kennari kvenn-
anna, en er nú að þjálfa 6 kon-
ur aðrar, sem munu kenna með
henni í byrjendaflokkunum, en
sjálf mun hún annast kennslu í
framhaldsflokkum. Allt er þetta
sjálfboðaliðsvinna og ber vott
um mikinn dugnað og áhuga.
Þarna voru konur á öllum aldri,
flest húsmæður með mörg börn,
flestar höfðu aldrei stundað
neinar aðrar æfingar, að und-
anskildum tveim eða þrem í-
þróttakonum. Allar höfðu þær
uninn og síðan 10 glös af soðnu
vatni yfir daginn, annað ekki.
Þetta kváðu þær gefa mjög góða
raun í baráttunni við pundin.
konurnar segjast gera æfingar
heima hjá sér, sumar kvölds og
morgna.
Gaman var að fylgjast með æf
ingunni, sem hófst á líkamsrækt
aræfingum, svonefndum Kultur-
fysiskum æfingum, sem er undir-
staðan í Judo-íþróttinni. Þær
eru fólgnar í upphitunaræfing-
um, en það eru æfingar, sem
búa líkamann undir þyngri æf-
ingar, síðan koma sérstakar æf
ingar fyrir öll liðamót líkam-
ans, fyrir bakið, hálsinn, hendur
og handleggi, æfingar, sem krefj
ast einbeitingar huga og líkama.
Sitjandi æfing
æfingarnar miða að því að auka
starfsemi hinna mismunandi líf-
færa.
Frú Jóhanna komst í
við Júdó-íþróttina hér á
kynni
landi,
mjög með þessum æfingum fyr-
ir konur, og stunda nú marg-
ir læknar og hjúkrunarkonur
æfingar þarna. Auk karlatím-
anna og kvennatímanna, sem eru
tvisvar í viku, eru sérstakir
fjölskyldutímar á laugardögum,
þar sem öll fjölskyldan getur
samtímis iðkað Judo, og er orðið
töluvert um, að heilar fjölskyld
ur komi þangað. Nú eru áform-
aðar æfingar í sumar, því að
eins og japanskur læknir, Dr.
Koba Y Ashi, sem kom hingað
í vetur segir, er ekki nóg að
halda sér í formi á veturna,
heldur þyrfti að gera það á
sumrin líka.
Að sumri til hefur hingað til
ekki verið margra kosta völ fyr-
ir þær konur, sem vilja stunda
líkamsæfingar reglulega, og
ætti hér því að vera kærkomið
tækifæri. Víst er um það, að
húsmæður þurfa ekki síður en
aðrir að hugsa um að halda við
andlegu jafnvægi og hraustum
líkama. Ef dæma má eftir kon-
um þeim, sem við hittum á æf-
ingu hjá Judo-deild Ármanns
þennan eftirmiddag, er ekki ann
að að sjá en að þetta sé einmitt
leiðin.
Hér á myndinni eru þjálfarar Judo, frá vinstri, Reimar Stefánsson, Ragnar Jónsson, Bjaml
Jónasson, Jóhanna Tryggvadóttdóttir og Dr. Koba Y Ashi, semsést hér hengja upp mynd af
Dr. Kano, upphafsmanni Judo-íbróttarinnar.
sömu sögu að segja, þær væru
eins og nýjar og betri mann-
eskjur eftir veturinn, og höfðu
grennzt þetta frá 3 og upp í 15
kíló frá áramótum, og öll gigt og
þreyta horfin. Þær, sem vilja
grennast, fá sérstakan matseðil,
sem Jónas Bjarnason, læknir,
hefur sett saman, og margar
hafa það fyrir fasta reglu að
fasta einn dag í viku, drekka
1/2 1. af ávaxtasafa um morg-
Síðan koma fallæfingar — þær
læra að detta og inn á milli af-
slöppunaræfingar, sem gera það
að verkum, að þreytan hverfur.
Það sem okkur fannst mjög at-
hyglisvert var að konurnar
voru alls ekki móðar eftir æf-
ingarnar, heldur afslappaðar,
þegar þær héldu inn í gufubað-
ið. Hver tími endar á höfuð-
stöðu, sem er mjög góð æfing
fyrir blóðrás líkamans. Ymsar
og hefur æft það um árabil.
Sagðist hún hafa byrjað á þessu
til að styrkja og hressa sig, og
að fenginni mjög góðri reynslu
fékk hún áhuga á að stofna sér-
staka kvennadeild, og hefði mað
ur sinn, Jónas Bjarnason, lækn-
ir, stutt sig og hvatt til þess, jg
nú væri svo komið, að öll fjöl-
skyldan æfði Judo. Mælti hann
Ein af mörgum æfingum
Kökukeflið.
Hversvegna hengjum við ekki
kökukeflið innan á skáphurð í
eldhúsinu? Þá er það ekki fyr-
ir í skúffunni og alltaf á sínum
vissa stað.
Stígvélatogari
Hnéháu stígvélin eru hin þægi
legustu, hlý og notaleg á fæti.
Það getur hinsvegar verið dálítið
erfitt að komast úr þeim, ef þau
eru mjög þröng og þá sérstak-
lega ef þau vökna. Einhver hug-
kvæmur maður hefur því búið
til stígvélatogara úr tré og á
öðrum endanum er skora, sem
passar fyrir hælinn á stígvélun-
nm. Með hinum fætinum er stig-
ið ofan á tréð og rennur þá stíg-
vélið auðveldlega af fætinum.
Tréð er aúðvitað málað og fáan-
legt á hrauðum, grænum og
appelsínugulum litum. Vonandí
verður þetta tæki flutt til ís-
lands til hjálpar öllum hinum
stígvéluðu ungu stúlkum.