Morgunblaðið - 14.06.1968, Page 19

Morgunblaðið - 14.06.1968, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1968 19 Engilbert Jóhannsson irv. skipstjóri 75 óra KVEÐJA FRÁ SNJÓLAUGU Á 75 ÁRA AFMÆLINU í dag sé ég þig standa, stóri bróðir við stýrisvöl á knerri þinnar ævi með augu skyggn og seglið hvítt við hún. Úr öllum áttum flögra fuglar góðir sem fylgdu þér á hinum víða sævi og lögðu þér við hjarta dýran dún, svo hlýtt og mjúkt þar yrði jafnan inni og athvarf búið henni systur þinni. í>ví átti nokkur systir betri bróður? Ég brosi við — og svara þarf ég eigi né leita að orðum til að þakka þér. En þess ég óska, að eins og þú varst góður, eins allt þér verði gott á þess- um degi og sérhvern dag þíns lífs sem eftir er. — Og síðast verði segl þitt ljóma vafið, er sálarknörrinn ber þig yfir hafið. Chevrolet Til sölu 2 Chevrolet fólksbifreiðir í mjög góðu atandi. Verða til sýnis á bifreiðaverkstæði okkar Sólvallagötu 79 næstu daga. Upplýsngar í síma 11588. Bifreiðastöð Steindórs. Íf MÍkil dráttarhcfni við alla snúnlngshraSa +• margir gírar = tryggjá rétta samhæf- Ingu é afli og hraða við alla vimfcu. if FORD vokvakerfið með mótordrifna dælu tryggir nékvæma sfillingu tækja. Íf Elnföld stjórntækl gera akstur nýju FOftD traktoranna auðveldari en nokkru sinnl fyrr if Með Select-O-Speed gírkassanum (aukaút- búnað), er hægt að sklpta um gir é ferð og én þess að kúplé. Gangið ekki fré frakforakaup- unum fyrr en þér hafið kynnzt nýju, glæsilegu FORD traktorunum ... Hvarvetna I heiminum, þar sem nýju traktorarnir hafa verið sýnd- Ir, hefur hrifning og éhugi verið mikill ... Einnig þér munuð hrifast af traystleika þeirra, dráttarafli og spar* neytni, ésamt ótal tækninýj- ungum, sem einkenna nýju traktorana fré FORD. Hafið samband við os« eða umboðs- menn vora sem fyrst — og vér höfum ánægju af að sýna yður framtíðartraktorinn yð GRILL-KOL FYRIR ÚTIGRILL. 10 O G 20 PUNDA POKAR. I.k. laugardag verður leikrit Kambans, Vér morðingjar, sýnt í 10. sinn í Þjóðleikhúsinu. Aðsókn að leiknum hefur verið mjög góð og hafa bæði leikarar og leikstjóri hlotið mjög lofsamlega dóma fyrir listræna túlkun á þessu öndvegisverki Kambans. Leikrit- ið verður sýnt tvisvar í Þjóðleikkhúsinu ennþá, en þeim sýn- ingum loknum verður farið með leikinn út á land á veg- um Þjóðleikhússins. Meðfylgjandi mynd er af leikurunum Gunn- ari Eyjólfssyni og Kristbjörgu Kjeld ‘í hlutverkum sínum. Áskorun ÞAÐ VAR skemmtileg hug- mynd hjá ritstjórn Morgun- blaðsins að birta hafískvæði skáldanna Matthíasar Jochums- sonar, Hannesar Hafstein og Ein ars Benediktssonar. Þessi stór- brotnu kvæði lýsa óbifanlegri trú á sigur kjarkmikillar og hug vitssamrar þjóðar yfir harð- neskju náttúrunnar og verða oss þannig sífelld hvatning til að herða hugann, þótt á móti blási. Og slík hvatning er tíimabær nú. Mörgum mun því hafa hlýnað um hjartarætur, þegar þeir lásu fyrirsögn blaðsins (9. þ.m.): Hafísinn — yrkisefni þjóðskáld- anna. Og þannig fór mér. En þegar ég las kvæðin í þess ari nýjustu útgáfu, féll nokkur skuggi á gleði mína. Prentvillurn ar vaða uppi og valda sums stað ar hreinum afbökunum. Það er skiljanlegt, að dagblað geti ekki vandað fullkomlega frágang á daglegu fréttaefni, þar sem oft- ast þarf að vinna bæði hand- rit og setningu með miklum hraða. En kvæði látinna skálda kalla ekki svo að í tíma, að ekki megi ganga sæmilega frá próf- arkalestri, áður en prentun hefst. En kvæði eru viðkvæm og þola brenglin verr en flest efni annað. Og látnu ljóðskáldi ber að sýna nærgætni. Það eru villur í öllum kvæð- unum. Orðum er breytt, orðum er sleppt, hrynjandi máls er rask að. í báðum fyrstu erindunum í kvæði Einars eru afbakandi vill ur, 3. erindinu er skipt í tvö, í 5. erindi er atkvæði sleppt. Líkt, ef ekki verr, er farið með kvæði Hannesar, t.d. verður aíð ari hluti 2. erindis hrein della. Síðar stendur „fjörgjafinn" fyrir „fjörgjöfin", en það raskar meg inefni. Hannes verður að sætta sig við fleiri ljótar villur. Þetta er engin tæmandi skrá. Fyrir minnstu hnjaski hafa kvæði Matthíasar orðið, en hvorugt þeirra er þó villulaust. Ég skora hérmeð á ritstjóra Morgunblaðsins að láta prenta kvæði Einars og Hannesar að nýju og skila þeim óbjöguðum til lesenda. 10. júní 1968. Matthías Jónasson. ATHS.: Morgunblaðið harmar þau mis tök sem urðu í prentun ljóðanna, en stuðzt var við gamlar útgáfur. Tilgangurinn var að vékja at- hygli á svo góðum skáldskap, nú þegar hafísinn hefur átt erindi við okkur. Þeim, sem áhuga hafa á að kynna sér Ijóðin óbrengl- uð, skal bent á að leita þeirra í beztu útgáfum ljóðabóka skáld anna, en því miður leyfir rúm blaðsins ekki endurprentun. Stúdentafagnaður V. í. Stúdentafagnaður stúdentasambands Verzlunar- skóla íslands verður haldinn að Hótel Borg sunnu- daginn 16. júní og hefst með borðhaldi kl. 7. Aðgöngumiðar verða seldir í Verzlunarskólanum í dag kl. 4—6. Stúdentar eldri og yngri hvattir til að mæta. NYJAR SENDINGAR: SUMARKJOLAR SAMKVÆMISKJOLAR TÁNINGAKJÓLAR MARKAÐURINN LAUGAVEGI 89. BLSÁHÚLD KJÖRGARÐI. ÞOR HF REYKJAVÍK SKOLAVÖROUSTÍG 25 TRAKTORAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.