Morgunblaðið - 29.06.1968, Page 1
28 SIÐUR
Stjórnarnefnd EBE gagn-
rýnir ráóstafanir Frakka
alvarlegasta deila Efnahagsbanda-
lagsins sprottin upp
Pierre Elliot Trudeau, forsætisráðherra Kanada á fundi með blaða
mönnum, eftir að Ijóst var að flokkur Jians, Frjálslyndi flokku
rinn, hafði unnið mikinn kosningasigur á þriðjudag.
Briissel, 28. júní. AP. NTB.
STJÓRNARNEFND Efnahags-
bandalags Evrópu tók í dag af-
dráttarlausa afstöðu gegn efna-
hagsráðstöfunum þeim, sem
franska stjórnin hefur ákveðið að
grípa til. Nefndin lýsti því yfir,
að franska stjórnin hefði ekki
heimild til þess að gera þessar
Ný innflytjendalög taka gildi í USA
Lundúnum 28. júní AP-NTB.
NK. MÁNUDAG taka gildi í
Bandaríkjunum ný innflytjenda-
lög, sem munu næstu tvö árin
stcmma mjög stigu fyrir flutn-
ing lækna og vísindamanna frá
Bretlandi og öðrum v-evrópsk-
umlöndum til Bandaríkjanna.
Bretar hafa U'ndanfarin ár
kvartað mijög yifir hve margir
læknar, vísindamenn og aðrir
tækniþjálfaðir menn flyttust bú-
N-Vietnamar um Khe Sanh:
Sýnir ófarir
Bandaríkjanna
París, 28. júiní — AP —
BLAÐAFULLTRÚI samninga-
nefndar N-Vietnam á Parísair-
fundunum, Nguyen Thanh Le,
sagði á fundi með fréttamönn-
um í París í dag, að ákvörðun
Bandaríkjamanna um að jafna
herstöðina við Khe Sanh við
jörðu, bæri vott um alvarlegan
hernaðarlegan ósigur.
Schoeman
brottrækur
úr Bretlandi
London 28. júní. NTB-AP.
FYRRVERANDI einkaritara
heimspekingsins Bertrand
Russels, Ralph Sehoeman, var |
í dag vísað úr landi í Bret-
Iandi og hann settur upp í1
flugvél til Parísar, en sú vél I
átti síðan að halda áfram til |
New York.
Sehoeman var handtekinn |
í gær og fluttur á lögreglu-
®töð í London, þar sem hann ’
var um nóttina. Síðan var
honum birt sú ákvörðun inn-
anríkisráðherrans James Call |
aghan, að hann væri brott-
rækur gerr úr landinu.1
Schoeman var sviptur banda-
riskum rikisborgararétti á sin
um tíma, vegna óleyfilegra
ferða hans til N-Vietnam, og
úr Bretlandi var honum vísað I
vegna þess áð persónu- og
ferðaskilríki hans væru ófull-
nægjandi.
Ákvörðun innanríkisráð-
herrans olli talsverðri óánæg i
ju meðal vinstri sinnaðra ,
þingmanna, einkum í röðum
Verkamannaflokksins.
Fulltrúinn sagðist hafa boðað
til fundarins vegna þess að 3.000.
bandaríska flugvélin hefði ver-
ig skotin niður yfir N-Vietnam
þann 25. júní, um 50 km norður
af hlutlausa beltinu. Vélin hefði
verið af gerðinmi Phaintom F4d,
báðir flugmennirnir hefðu beðið
bana.
Hins vegar dvaldist blaðafull-
trúanum mun meira við frá-
sagnir af hrakförum Banaaríkja-
manna í Vietnam og sagði, að
skýring baindarískra sérfræðinga
í þá átt, að herstöðin hefði ekki
lengur neitt hernaðarlegt gildi,
væri fáránleg og minnti helzt
á söguna um refinn og berin.
Þegar refnum hefði ekki tekizt
Framh. á bls. 17
ferlum til Bandarikjanna vegna
betri launa Og starfsskilyrða sem
þeim buðust þar.
Umrædd lög afnema kvótakerf
ið, sem igilt hefur um fjölda inn-
flytjenda frá hverju landi, og
hér eftir munu Bandaríkin veita
200 þús. innflytjendum landsvist-
arleyfi á ári, 170 þús. frá vest-
rænum löndum og 120 þús. frá
Austurlöndum. Verða leyfin af-
greidd eftir röð, en ekki eftir
'hverju landi fyrir sig og mun
jafnt ganga yfir alla.
Bandaríska ræðismannsskrif-
stofan í Lundúnum hefur undan-
farna 2 mánuði verið opin nær
allan sólarhringinn og afgreiddar
allt að 260 umsóknir á dag. Hafa
stundum verið langar biðraðir
fyrir utan sendiráðið.
í löndum sem haft hafa lágan
kvóta er nú gif'urlegur fjöldi á
biðlista og munu þeir ganga fyr-
ir skv. hin.um nýju lögum, því
að umsóknirnar verða afgreiddar
skv. dagsetningunni sem þær eru
skráðar. Vegna þessa mun verða
mikil breyting á þjóðerni inn-
flytjenda næsta ár. Sl. ár voru
flestir innflytijendur frá Bretlandi
eða 29.056, V-Þýzkaland 22.899,
Pólland 6488 og Ítalía 5.666. —
Næsta ár er áætlað að flestir
innflytjendur verið frá Ítalíu,
eða 20.000, Grikklandi, einnig
20.000“ Portugal 19.600, Formósu
19.000 og Fillippseyjum 13.000
Akveður toppfundur
örlög Tshombes?
Algeirsborg, 28. júní — NTB —
ÁREIÐANLEGAR heimildir í A1
geirsborg herma, að Alsírstjórn
hafi í hyggju að leggja örlög Mo-
ise Tshombes, fyrrv. forsætisráð
herra Kongó, undir toppfund
Afríkuríkja. Fundur þessi verð-
ur haldinn um miðjan septem-
ber n.k., en þá koma einingar-
samtök Afrikuríkja saman til
fundar.
Nú er eitt ár liðið frá því að
Tshombe var rænt, þar sem
hann var um borð í einkaflug-
vél og hann fluttur til Algeirs-
borgar. Hæstiréttur Alsír hefur
mælt með að Tshombe verði fram
seldur yfirvöldum í Kongó, en
þar hvílir yfir honum dauðadóm
ur fyrir landráð. Forseti Alsír
Hourari Boumedienne, hefur þó
enn ekki gefið samþykki sitt
fyrir framsalinu.
Enn er ekki vitað hvort Alsír
muni leggja mál Tshombes fyr-
ir sem eitt af opinberum málum
toppfundarins, eða hvort mál
hans verður afgreitt með einka-
viðræðum hinna ýmsu fulltrúa.
Ákveði fundurinn að Tshombe
verði látinn laus er talið víst að
Kongóstjórn muni krefjast skrif
legrar yfirlýsingar um, að hann
komi aldrei aftur til Kongó, né
standi fyrir andspjrrnuaðgerðum
gegn núverandi stjórn og stjórn-
arfari Kongó. Fregnir frá Alsír
herma að Tshombe sæti góðri
meðferð, þar sem hann situr í
fangelsi einhvers staðar í Alsír.
ráðstafanir upp á eigin eindæmi
og án þess að ráðgast við hin
bandalagslöndin. Nefndin leggur
til, að ráðherrafundur verði
kvaddur saman í skyndi og er
gert ráð fyrir að það verði í næstu
viku, og því ekki fyrr en eftir að
ráðstafanir frönsku stjórnarinnar
ganga í gildi, þann 1. júlí n.k.
Stjórnarnefndin hélt fund í
gærkvöldi um málið og í morgun
var ályktunin birt opinberlega.
Segir þar, að mjög sé dregið í
efa réttmæti þess að franska
stjórnin megi grípa til þessara
ráða og hljóti þau að brjóta í bága
við 108. grein Rómarsamningsins.
Nefndin fagnar því að Frakkar
muni leitast við að virða fyrri
samþykktir um tollalækkanirnar
og hún kveðst vera sannfærð um,
að Frakkar reyni að takmarka
efnahagsaðgerðirnar eftir föng-
um, eins og það er orðað í til-
kynningunni.
Allir meðlimir stjórnarnefndar
innar sátu fundinn, utan þess
hollenzka. Ekki er kunnugt um,
hvort einhver fulltrúa greiddi at-
kvæði gegn samþykkt nefndar-
innar.
Frakkar höfðu áður lýst sig
þeirrar skoðunar, að þeir hefðu
fulla heimild til að grípa til þess-
ara efnahagsaðgerða vegna þess,
að fjárhagsöngþveiti hefði ella
blasað við. Nefndin vísaði þessu á
bug og benti á að gull- og gjald-
eyrisforði Frakka sé um sex
milljarðar dollara.
Gengi franska frankans var
mjög lágt á erlendum mörkuðum
í dag og þrálátur orðrómur á
kreiki um, að það yrði fellt. Tals-
maður frönsku stjórnarinnar og
embættismenn utanríkisráðu-
neytisins báru þær sögur ein-
dregið til baka.
Prag:
Ekki hroðoð
Iýðræðiseflinp
Prag 28. júní. NTB.
FORSÆTISNEFND tékkneska
kommúnistaflokksins hafnaði í
Framh. á bls. 17
Sigfús Jónsson lætur
af framkvæmdastjóra-
starfi við IMorgunblaðið
Sigfús Jónsson fram-
kvæmdastjóri Morgunblaðs-
ins á í dag sjötugsafmæli.
Mun hann nú um mánaða-
mótin láta af framkvæmda-
stjórastörfum við blaðið sök-
um heilsubrests.
Sigfús Jónsson hefur verið
gjaldkeri frá árinu 1923, fram
kvæmdastjóri Morgunblaðs-
ins síðan árið 1942, samtals
í 45 ár. Hefur hann unnið frá
bært starf í þágu blaðsins.
Árnar Morgunblaðið hon-
um allra heilla og blessunar
á sjötugsafmælinu. Sigfús
Jónsson verður að heiman í
dag.
I forustugrein blaðsins er
nánar minnzt starfa hans.