Morgunblaðið - 18.08.1968, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 18.08.1968, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1968 ú Þingvöllum Þjóðgnrour * — eftir Einar Olaf Sveinsson, prófessor ÞJÓÐGARÐAR tíðkast víða í löndum. Eru þeir ætlaðir til varðveizlu landsvæða sem af einhverjum ástæðum þykja merkari en önnur, svo sem þau sem frábær eru vegna ein- kennilegrar náttúru, fegurðar, landslags, jarðmyndunar, dýra- lífs eða jarðargróðurs. Þau eru friðlýst. Er þá kostað kapps um að koma í veg fyrir breyt- ingar, einkum af manna völd- um, sem spilla einkennum þeirra. Markmiðið er að varð- veita þessa staði í hreinleik sínum, um aldur og ævi, ef um slíkt gæti verið að ræða á þess ari jörð. í annan stað má hugsa sér landspildur friðaðar vegna fornra minja eða vegna þess, að þær hafa orðið þáttur í sög- unni. Hvort slíkar spildur kallast þjóðgarðar, getur farið eftir stærð og öðrum kringum- stæðum. Árið 1928 voru samþykkt á Alþingi lög um friðun Þing- valla. Segir þar, að Þingvellir skuli vera friðlýstur helgistað- ur íslendinga. Var þá stórt landsvæði friðað og lagt und- ir vernd Alþingis. Girðing var sett umhverfis sem varnaði öll- um ágangi búfjár. Þetta var mikið þjóðþrifaverk, og eiga þeir menn sem að þessu unnu, þakkir skilið fyrir að hrinda því í framkvæmd. Hitt er ann- að mál, að tilgangur friðunar innar og aðferðir hefðu mátt verar skýrar tilteknar í lögun- um, og furðar mig ekki á, að nú sé verið að endurskoða þau. Þá er þess að gæta, að með lögunum er í raun réttri loku skotið fyrir þátttöku sérfræð- inga í stjórninni, og er þá und- ir hælinn lagt um samvinnu Þingvallanefndar við sérfræð- inga. Það hefur hefnt sín. í lögum um friðun Þingvalla kemur ekki fyrir orðið þjóð- garður, en brátt var farið að nota það orð um þennan frið- lýsta helgistað. Friðun Þingvalla var fyrst og fremst lögfest af söguleg- um ástæðum. Hlýtur þá í því að felast, að allt það sem til sögunnar heyrir, eigi að varð- veitast, og engar þær breyting- ar séu gerðar sem brjóti móti varðveizlu sögulegra minja. Þetta á þá augljóslega við um rústir allar og fornleifar. En hér má þó líka bæta við, að gróðurfar á athafnasvæði hins forna Alþingis hefur að miklu leyti orðið slíkt sem það var á síðari öldum fyrir tilverknað þingheyjanda fyrr á öldum. Er það þá eitt sögulegra einkenna staðarins. Verður að þessu vik ið síðar (í 1. gr.). En um leið og Þingvellir eru einhver allra merkasti staður á íslandi af sögulegum ástæð- um, eru þeir svo sérkennileg- ttr staður og fagur, að þeir verðskulda, að náttúra þeirra sé vernduð, svo að maðurinn hafi í hófi afskipti af henni, þyrmi einkennum hennar og brjóti í engu í bág við þau. Síðan Þingvellir voru friðað- ir, hefur margt verið gert til að bæta fyrir niðurníðslu stað- arins á síðustu öldum og vernda hann móti enn frekara harðhnjaski. Vönduð hafa ver- ið mannvirki, sem nauðsynlega hefur þurft að gera nú á tím- um o.s.frv. Eigi að síður hafa þar þó einnig verið gerðar ýms- ar breytingar, sem óefað eru viðsjárverðar. Mest ber þar á breytingum á gróðri, og verð- ur helzt um það mál rætt hér á eftir. Og af því að ég mun hér birta aðfinnslur um þetta, tel ég rétt og skylt að geta þess, að óefað hafa þeir, sem hér eiga hlut að máli, gert allt af góðum huga. Svæðið austan frá Hrafna- gjá til vesftra barms Almanna- gjár, sem að mestu eða öllu leyti hefur heyrt til Alþingis hins forna, skiptist vegna nýt- ingar fornmanna á því í tvo al- gerlega ólíka og mjög misstóra hluta: annars vegar er skóg- lendi og hagar, hins vegar sjálf þinghelgin. Um skóglendið mun síðar rætt (í 7. gr.), og skal nú fyrst af öllu minnast á þing- helgina. 1. Hin fornu þingmörk, sem um getur í fornlögunum (Grá- gás I a 44), eru hvergi rakirv svo að nú verður ekki öðru en getgátum við komið um þau. Er þá vanalega talið, að þing- helgin hafi takmarkazt af vestra barmi Almannagjár og eystra barmi Flosagjár, þeim sem nefndur er á síðustu öld- um Nikulásargjá; að norðan af hólum þeim, sem nú eru nefnd- ir Kastalar. Er þetta líklega til getið. Suðurmörkin eru vafa- samari, væntanlega þó Þing- vallavatn. Hvergi veit ég þess getið, að hríslur eða skógur hafi verið í þinghelginni, enda liggur það í hlutarins eðli, að hafi þar ver- ið viði vaxið í öndverðu, hljóta hinir fyrstu þingheyendur að hafa numið allt slíkt fljótlega burt, svo að það væri ekki til trafala við þingstörfin. Um Þingvallatún bætist það við, að tún og skóglendi má ekki sam- an fara. Nú er þessu öðruvísi hátt- að. í suðurhluta hallsins (þ. e. neðra barms Almannagjár) hef ur verið settur strjálingur af skógarhríslum. Ef byrjuð er athugunin rétt norðan við Val- höll, nær þessi plöntun þaðan og að hinni háu, sprungnu hraunbungu, sem er því sem næst andspænis sporðum brú- arinnar fornu yfir Öxará (við Biskupshóla), og þó hefur ein og ein hrísla verið sett enn norðar uppi á gjárbarmi. Misjafnt er eftir jarðvegi, hve margar plöntur hafi verið nið ur settar þar og þar. En ekki er þar með allt upp talið. Eins og allir vita, er mýrlendi norð- an vegarins, þess sem liggur að Valhöll Þetta mýrlendi er óef- að til orðið við landskjálfta: völlurinn hefur hækkað miðað við yfirborð Þinigvallavatns (nefna má landskjálftann 1789, en aðrir landskjálftar fyrr á tímum kunna einnig að hafa valdið landsigi). Mýrin nær nú sumstaðar upp að hallinum, en síðan kemur fram valllendis- ræma milli þeirra, smábreikk- ar hún, unz hún sameinast vall- lendissvæði því, sem nær frá hallinum niður allt til Öxarár. Á þessari valllendisræmu hafa trjáplöntur verið settar niður, og það jafnvel á búðarústum tveimur, búð Nikulásar Mag- nússonar, sýslumanns í Rang- árþingi, og búð Bjarna Hall- dórssonar á Þingeyrum (nr. 34 og 33 á uppdráttum í bókum Matthíasar Þórðarsonar: „Fom leifar á Þingvelli", 1922, og „Þingvöllur", 1945). Á öllu því svæði sem nú var gerð grein fyrir, hefur verið plantað birki, en auk þess barr viði. Við búð Bjarna Halldórs- sonar er lundur einhverrar út- lendrar trjátegundar, en barr- viður við þær báðar. Um út- lendu trjátegundirnar verður síðar rætt nánar. Þá er næst að athuga svæð- ið austan ár, norðan Þingvalla- túns. Ef farin er leiðin austur yfir brúna hjá Drekkingarhyl, líður ekki á löngu, þangað til fyrir verða birkihríslur með- fram veginum. Austan Kastal- anna er birkilundur. í Presta- krók, sunnan vegarins, eru smá hríslur á strjálingi. — Austan vegarins millum og Flosa- gjár, eru einnig birkihríslur hér og þar. Fyrir nokkrum ár- um voru þarna dreifðar barr- viðarhríslur, en nú eru þær horfnar. Hins vegar eru eins konar furulundir, þegar sunn- ar dregur, einkum þegar nálg- ast brodd tungunnar milli veg- arins og Flosagjár. Allra syðst hefur verið plantað birki. Ef farið er norður eftir Spöng- inni, má sjá, að ekki verður vart niðursetningar trjá- plantna fyrr en nyrzt á henni, en þar er mikill birkilundur. Austan Nikulásargjár norð- an vegarins er laut, og hafa þar verið settar niður bæði birkihríslur og barrviðarplönt- ur, en sunnan vegarins í mik- illi laut er barrviður. Norðan vegarins heim að Þingvallabæ, milli hans og ár- innar, svo og upp með ánni þar norður af, enn fremur í fyrrnefndri mýri vestan öxar- ár, eru víðihrísliur hér og þar. Hverjar þeirra kunna að vera af fornum rótum runnar, er mér ókunnugt. Loks er að segja frá Þing- vallatúni. Eftir að vegir skipt- ast, sá sem liggur að Vellan- kötlu og hinn sem liggur til Valhallar, og ef farið er hinn síðarnefnda veg, líður ekki á 'löngu áður en fyrir verða á hægri hönd litlir barrviðar- runnar, rétt austan við enda vogsins sem skerst úr Þing- vallavatni allt upp í túnið. Síð- an taka við í túnröndinni hrísl ur, bæði birki og barrviðir. Þá hafa verið settar niður hrísl ur víða í lautum í túninu. Og í vestasta hluta túnsins, að kalla frá veginum og heim að bæ, er skógarlundur, allmikið af birki, en varla minna af barrviði og ein og ein reyni- hrísla. f Biskupshólum er líka trjágróður. Allt er þetta ný- plöntun. Það er augljóst mál, að skóg urinn í Þingvallatúni brýtur á móti tilgangi túnsins og útlit, þess allt frá því hér var fyrst reistur bær. Þar til kemur, að merkilegur forngripur hefur fundizt 1957 hér í moldinni og töluverð merki um mannavistir. Er auðsætt, að hér eiga engin tré eða hríslur að vera. Sama máli gegnir um þann trjágróð- ur, sem plantað hefur verið í suðurhluta hallsins, einkum og sér í lagi, þegar fer að nálg- ast sjálfan þingstaðinn. Um plöntun í búðunum þarf ekki að tala, það er svo augljóst. Loks gegnir sama máli um trjá gróður í þinghelginni austan ár. 2. Hér á undan voru nefnd dæmi þess, að útlendum trjá- gróðri, einkum barrviði, hafi verið plantað víða innan um birkiplöntur þær, sem niður hafa verið settar í þinghelg- inni. Svo rammt kveður að þessu, að við rústir Nikuláss- búðar og Bjarnabúðar (nr. 34 og 33) hafa verið settar niður barrviðarplöntur sem munu, ef þær fá að vaxa til langframa, færa búðarrústir þessar í kaf. Þá blasa og við á leiðinni aust- an ár flurulundir og aust- an Nikulásargjár greniplöntur. Geta má þess, að barrviður þessi austan ár er víða mikið kalinn og dauðalegur: það er rétt eins og landvættir hafi viljað sýna fáþykkju sína á til- tæki þessu. Ekki þarf að fjölyrða um það, að fjarstæða er að setja útlendar trjáplöntur niður á Þingvöllum, og þarf að fjar- lægja þær hið fyrsta, og er barrviðurinn í túninu vitanlega ekki undanskilinn. 3. Einhverstaðar í hallinum fann ég fyrir mörgum árum einihríslur. Án efa hafa þær lifað þarna frá fornu fari. Hvernig þeim líðux nú, veit ég ekki. En þörf væri að fylgjast með gróðri á Þingvöllum, að ekki líði undir lok plöntuteg- undir, sem þar hafa lifað frá fornu fari. 4. Umhverfis Valhöll er tölu- verður trjágróður, niður settur á síðari tímum, þar á meðal smekklegur runnagróður frá allra síðustu árum. Ekki er lík- legt, að gistihúsið verði til frambúðar á þeim stað sem það er nú, en svo lengi sem það er þar, hlýtur það að hafa sitt at- hafnasvæði, líkt því sem nú er. Sunnan við eru sumarbústaðir, þá Konungshúsið, þá aftur sum arbústaðir suður að vatni og suður með því. Er þetta allt orðinn hlutur. Sumstaðar í hall inum fyrir ofan er mikið um trjágróður, á öðrum stöðum er hraunið ósnortið með sköfum sínum, mosa og grasblettum. Augljóst er, að varast skyldu menn að gera það að skógar- hlíð. Framhald & bls. 28

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.