Morgunblaðið - 30.08.1968, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1966
Umferðarslys í sl. viku
ekki óeðlilega há —
84 slys urðu í þéttbýli - 8 slys í dreifbýli
FRAMKVÆMDANEFND hægri
nmferðar hefur fengið tilkynn-
ingar úr lögsagnarumdæmum
landsins um umferðarslys, sem
lögreglumenn hafa gert skýrslur
um í þrettándu viku hægri um-
ferðar. 1 þeirri viku urðu 84 slík
umferðarslys á vegum i þéttbýli
en 8 á vegum í dreifbýli eða
alls 92 umferðarslys á landinu
ðllu. Þar af urðu 50 í Reykja-
vík.
Samkvæmt reynslu frá 1966
og 1967 eru 90% líkur á því,
að slysatala í þéttbýli sé milli
58 og 92, en í dreifbýli milli 10
og 32, ef ástand umferðarmála
helzt óbreytt Slík mörk eru köll
uð vikmörk, eða nánar tiltekið
90% vikmörk, ef mörkin eru
mfðuð við 90% líkur.
Slysatölur voru því milli vik-
marka í þéttbýli en lægri en
neðri vikmörk í dreifbýli.
Af fyrrgreindum umferðar-
slysum urðu 33 á vegamótum í
þéttbýli við það, að ökutæki
rákust á. Vikmörk fyrir þess
háttar slys eru 13 og 32. Tala
slíkra slysa er því fyrir ofan
efri vikmörk.
Á vegum í dreifbýli urðu 3
umferðarslys við það, að bifreið
ar ætluðu að mætast. Vikmörk
fyrir þá tegund slysa eru 2 og
21.
Alls urðu í vikunni 9 um-
ferðarslys, þar sem menn udðu
fyrir meiðslum. Vikmörk fyrir
tölu slíkra slysa eru 3 og 14.
Af þeim sem meiddust voru 4
ökumenn, 8 farþegar og 4 gang-
andi menn. eða alls 16 menn.
Norrænir arkitektar
þinga í Reykjavík
STJORNARFUNDUR Norræna
arkitektafélagsins stendur yfir í
Reykjavík þessa dagana og
hann sitja þrettán arkitektar
frá hinum Norðurlöndunum.
Guðmundur Þór Pálsson sagði
í stuttu viðtali við Morgunblað-
ið, að norrænir arkitektar
reyndu að hittast tvisvar á ári
og fjalla um ýms sameiginleg
áhugamál og vandamál. Frétta-
maður Morgunblaðsins hitti að
Stolið úr
kartöflugörðumj
MAÐUR kom að máli við .
Morgunblaðið og sagði sínar'
farir ekki sléttar. Hann er I
garðeigandi í Smárahvamms-1
landi í Kópavogi og þar hef-(
nr hann ræktað kartöflur. En
er kona hans hugðist taka
upp kartöflur í gær, kom í|
Ijós, að einhver jir óboðnir |
gestir höfðu farið í garðinn,
»g tekið upp nær helming-
mn af uppskerunni. Mun |
þetta hafa gerzt milli kl. 10 j
Dg 11 í fyrrakvöld, en þá sást,
til bílferða á þessum slóðum.'
Fleiri eiga þarna kartöflu-
'arða og munu þeir einnig |
hafa orðið varir við að farið t
hefur verið í þeirra garða.
Lóð safna-
hússins
ÞAÐ sbal tekið fram í sambandi
við fréttina um 150 ára afmæli
Landsbókasafneins, að borgaryfir
völdin höfðu úthlnitað væntan-
legu safnhúsi hinni nýju lóð vest
ur við Birkimel en ekkd ríkið.
Hafði bygginguami upphaflega
verið úthlutað lóð í hinum nýja
miðbæ Reykjavíkur, en fyrir
beiðni landsbókavarðar var á það
fallizt að úthhrta byggingunm
lóð úr landi borgarinnar vestur
við Birkimel. Voru ýmsir sem
töldu að ríkið hefði haft ein-
hvern ráðstöfunarré'tt á Birki-
mels-lóðininii og að menntaimála-
ráðherra hefði ákveðið þessa lóð-
arúthlutuin.
máli tvo erlendu gestanna.
Annar þeirra vaT Mats Erik
Molander, formaður sænska
arkitektafélagsins, sem sagði, að
samstaða og samvinna norrænna
arkitekta væri ekki síður hag-
kvæm en norræn samvinna á
öðrum sviðum. Á alþjóðaþing-
um arkitekta kæmu þeir t.d.
fram sem ein heild.
Hinn var Ole Dahl frá Dan-
mörku. Hann sagði m.a., að
margir íslenzkir námsmenn
sæktu um að komast í danska
arkitektaskóla, og þar væru
alltaf nokkrir á hverju ári. Hins
vegar háði það þeim nokkuð að
gerðar væru mjög strangar
kröfur, m.a. er inntökupróf sem
tekur einn mánuð. Þetta fyrir-
komulag er óheppilegt fyrir ís-
lendinga, sagði Dalhl. Ekki svo
að skilja að þeir gefi öðr/m
námsmönnum eftir, aðstaða
þeirra er bara mun erfiðari i
byrjun. Þetta verður þó líklega
hægt að laga með því að gera
inntökuprófið aðgengilegra fyr-
ir þá, en svo verða að sjálfsögðu
gerðar sömu kröfur til þeirra og
hinna þegar framí sækir.
Hafsteinn Austmann (Ljósm. Mbl. Sveinn Þormóðss.)
Listmáíarar eru ekkert
spennandi
— segir Hafsteinn Austmann, sem
sýnir 36 ný verk i Unuhúsi
HAFSTEINN Austmann, list-
málari, heldur sýningu á þrjá-
tíu og sex myndum í Unuhúsi
við Veghúsastíg, fram til 8. þessa
mánaðar. Myndirnar eru málað-
ar með olíulitum og cryla-plast
og eru allar til sölu. Þær hafa
allar verið málaðar á síðustu
þrem árum nema þr jár, sem voru
á sýningu erlendis og eru ný-
komnar til landsins.
— Þetta er ekkert spennandi
sýning, sagði listamaðurinn þeg
ar við litum inn til hans í. gær.
— Það þýðir ósköp lítið fyrir
al-varlega þerakjandi listmálara
að halda sýningar hér á fslandi.
Með alvarlega þenkjandi á ég
við mann sem tekur starf sitt
alvarlega og vinnur að því öll-
um stundum að bæta sig. Ef
menn eiga að geta selt myndir
héma þurfa þeir helzt að vera
þltgerlega ó(þekkltir „orginalar“
ofan af fjöllum sem aldrei hafa
drepið pensli á léreft áður. Svo
einn góðan veðurdag koma þeir
þrammandi ofan af fjöiWunum
og þá verður allt vitlaust og
raæstum barizt um myradir þeirra'
Það er einnig vinsælt að vera
rithötfundur eða skáld sem er
orðinn leiður á þeim starfa oig
sezt niður til að gkapa meistara
verk gem seljast á nokkrum tím
um.
— Ég man eftir því að fyrst
þegar ég hélt málverkasýniragu
geldust myndir mínar mjög vel,
fólk hélt víst að ég væri Papúi.
Srvo hélt ég aðra sýniragu og þá
uppgötvaði fólk að ég var ekki
Papúi og þá var þetta ekki eins
spennandi. Það var víst Kiljan
gem sagði eitthvað á þeasa leið.
en það er líklega hægt að flá
lárauð orð hjá verri mönnurn en
honum.
— Þetta er kannske gkýringin
á því hv;rsvegna þú tollir svona
illa heima?
— Ég vil nú ekki gegja að ég
tolli illa hér á íslandi, þú mátt
ekki taka þessu svo að ég vildi
búa í nokkru öðru iandi. Hins-
vegar finnst mér nauðsynlegt að
ferðast um, fræðasrt og læra og
fá nýjar hugmyndir. Þessvegna
er ég nú t.d. á förum, fyrst til
Danmerkur og síðan ætla ég að
reyna_ að færa mig suður á bóg-
inn. Ég fer með korau, börn og
búslóð með mér og við verðum
líkllega um ár í burtu.
— Þú hefur haldið ósiböpin
öll af sýningum um dagana?
— Ojæja, það er nú svoaem
ekkert til að hrópa húrra yfir.
Ég hef haldið raokkrar einíka-
sýningar jú, og tekið þátt í sam
sýningum á Norðurlöndunum í
Frakklandi og víðar. Svo vonast
ég til að geta eitthvað bætt við
li'Stann meðan ég er úti núna.
Kirkjudagur Lang-
holtssafnaðar
Aðalfélögin í Langholtssöfn-
uði eru fjögur: Kvenfélag,
Brægrafélag, Kirkjukór og
Æskulýðsfélag.
Árlega undirbýr samstarfs-
nefndin, sem er nokkurs konar
framkvæmdanefnd þess er þau
vinna saman, kirkjudag safnað-
arins. En það er dagur hátíða-
halda og fjáröflunar, sem hald-
inn er árlega fyrsta sunnudag í
septembermánuði til minningar
Símstöövarbygging í
dlafsvík á eftir áætlun
Ólafavík, 29. ágúst.
Eins og áður hefur verið getið
í fréttum er hér í smíði nýtt
póst og símahús. Verkið var boð
ið út á sínum tíma og var
lægsta tilboð frá Kristjáni Alf
onssyni, trésmíðameistara á Hell
issandi, og var það upp á rúmar
3.8 millj. krónur, en hæsta til-
boð mun hafa verið um 4.4 millj.
krónur.
Verkinu átti að vera búið að
akila 1. ágúst í ár, en vegna tíð
arfarsiras í vetur og annarra
ófyrirsj áanlegra tafa verðurhús
ið tilbúið í byrjun október í
haust. Hús þetta er tvær hæðir
og kjallari. f kjaliaranum verð
ur vélasalur, m.a. fyrir sjálf-
virka símstöð, sem verður senni
lega tekin í notkun um áramót-
in n.k. Á fyrstu hæð er af-
greiðsla fyrir póst og gíma og
á annari hæð íbúð fyrir sim-
stjóra. Kristján mun skila hús-
inu múrhúðuðu og rraáluðu að
utan og innan, og íbúð sím-
stjóra fullgerðri með öllum inn
réttingum. Síminn mun sjálfur
annast innréttingar á póst- og
símaafgreiðslu.
Þess má geta að lokum, að
p»óst- og símahús á Hellissandi
fyrirhugað er að byggja nýtt
og verður byrjað á hluta af því
í haust, þ.e. á vélasal. Var leitað
tilboða í þetta verk, og var
lægsta tilboð frá Kristjáni Alf-
onssyni og er það upp á 610
þúsund, en hæsta tilboð var 940
þúsund krónur. Er um 60 fer-
metra Kús í þessum áfanga að
ræða. Má segja að iðnaðarmenn
virði vinnu sína mishátt, eins
og sést á byggingu þessa litla
húss. — Hinrik.
um stofnun safnaðarins. En hann
var stofnaður síðla sumars 1952.
Nú er lokasóknin að hefjast í
byggingamálum safnáðarins.
Kirkjan sjálf þarf nú að rísa
sem allra fyrst. En hún er sá
hluti, sem enn er óbyggður í
byggingasamstæðu þeirri við Sól
heima sem safnaðarstarfið hefur
til umráða.
Áætlað er að kirkjan verði
risin af grunni á 20 ára afmæli
safnaðarins 1972 og fullgjörð
1974, þj óðhátíðarárið, sem nú er
framundan. Til þess verðum v?ð
öll að vera marksælin og sam-
taka. Söfnuðurinn hefur verið
það, og á nú þegar fyrsta og eitt
myndarlegasta safnaðarheimili
landsins. En ekki má slaka á,
fyrri en sigur er unninn í bygg-
ingamálunum.
Kirkjudagurinn er einn virk-
asti þáttur þessarar viðleitni,
bæði til þess að efla áhuga og
afla fjár.
Verum því samtaka tun að fjöl
menna á samkomur þessara há-
tíðahalda. Hvert heimili safn-
Tvö skip
með síld
í SÍLDARFKÉTTUM LÍÚ um
síldveiðina í gær, segir:
Óhagstætt veður var á síldar-
miðunum sl. sólarhring, ANA
5—6 vindstig og talsverður sjór.
Tvö skip tilkynratu um afla,
samtals 110 lestir: Súlan EA 50
lestir og Loftur Baldvinsson EA
60 lestir.
aðarins þarf að eiga þar fulltrúa
og helzt sem flesta. Fjölmenni
við kirkjuna eða í safnaðarheim-
ilinu er helzta fagnáðarefni dags
ins, og ekki má gleyrna að þakka
fólkinu í félögunum og samstarfs
nefndinni, sem leggur fram
vinnu, tíma og fjármuni til að
undirbúa hátíðina.
Þeim verður bezt þakkað með
því að koma og kaupa merki
dagsins og veitingar og njóta
þess, sem á borð er borið, bæði
efnislega og andlega.
Og nú verður eins og venju-
lega vandað til d^gskrárinnar,
sem hefst kl. 2 á sunnudaginn
með hátíðamessu þar sem báðir
safnaðarprestar munu þjóna og
listamennimir Gu'ðmundur Guð-
jónsson, Jón Sigurðsson og Lárus
Sveinbjörnsson aðstoða með söng
og trompetleik.
Þá verður sérstök samkoma
fyrir böm kl. 4 með ávarpi og
söng, gamanmálum, sem Ómar
Ragnarsson, hinn landskimni
gamanleikari annast, en hann dá
börnin mjög mikið. Þá verður
og kvikmyndasýning, upplestur
og helgistvmd fyrir uragstu kyn-
slóðina.
Um kvöldið kl. 8.45 verður
svo aðalsamkoma kirkjudagsins,
með ávarpi Hannesar Hafstein
safnaðarfulltrúa, einleik Jóns
Stefánssonar organleikara, ræðu,
sem dr. Bjöm Bjömsson flytur,
en hann er nú fulltrúi í barna-
verndarmálum borgarinnar, þá
syngur hin vinsæla söngkona,
Ingveldur Hjaltested og Gerður
Hjörleifsdóttir leikkona flytur
ljóð, sýndar verða kvikmyndir
frá æskulýðsferð til Norður-
landa og að síðustu er helgistund.
Kaffisala verður frá kl. 3 síð-
degis, merki dagsins allan dag-
inn og happdrætti til boða, með
eigulegiun vinniragum.
Söfnuðurinn verður því að
fjölmenna á kirkjudaginn og
gera þannig góð skil ti!l líirkj-
unnar af sínum hluta. Komið
sem allra flest.
Arelíus Nielsson.