Morgunblaðið - 30.08.1968, Page 14

Morgunblaðið - 30.08.1968, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1008 Garðar Söebeck Jónsson — Minning Fæddur 10. sept. 1912 Dáinn 23. ágúst 1968 Elsku Gæi frændi! Við þrír litlir frændur þínir viljum líka fá að kveðja þig. Mamma og amma segja að þú sért dáinn, og að þú sért farinn frá okkur heim til Guðs. Við fá- um víst þessvegna aldrei að sjá þig framar, og þykir okkur það mjög leitt að hafa ekki kvatt þig, elsku frændi. Sem betur fer hef- ur afi lofað að hjálpa okkur að koma nokkrum línum til þín, og vonum við að bréf okkar komi til skila, svo að þú getir lesið t Margrét Júlíana Sigmundsdóttir frá Skógum, andaðist 29. þ.m. að hjúkr- unarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði. Börn hinnar látnu. t Maðurinn minn, Einar Guðmundsson frá Þórkötlustöðum, Grindavík, andaðist að Hrafnistu 29. þ.m. Málfriður Þorvarðardóttir. t Jón Magnússon frá Hurðarbaki, andaðist 28. ágúst. Systkin og vinir, Ásvallagötu 16. t Faðir minn, Pétur Ó. Lárusson Stigahlíð 8, andaðist í Landspítalanum hinn 28. þ.m. Fyrir hönd vandamanna. Sigurður Reynir Pétursson. t Eiginkona mín og móðir okkar, Guðlaug Guðjónsdóttir frá Brunnastöðum, Vesturgötu 69, Akranesi, verður jarðsett frá Akranes- kirkju laugardaginn 31. ágúst kl. 2. Blóm og kransar afbe'ðn ir. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Akranes- kirkju eða Slysavamafélag Is lands. Elís Guðjónsson og börn. það. Manstu, Gæi frændi, þegar þú varst að leika við okkur, þegar þú varst hesturinn okkar, og við vorum að klifra upp á bak þitt og öxl, og þú hljópst með okkur í hring í stofunni. Aga- lega var það gaman! Og þér fannst það gaman líka, var það ekki? Að minnsta kosti svolítið, því þú hlógst og varst glaður. Eða manst þú þegar þú varst í „boxi“ við okkur? Og svo allar fallegu myndirnir sem þú oft varst að sýna okkur! Jólamynd- irnar voru mjög fínar. Það er nærri því alltaf leiðin- legt þegar fullorðið fólk kemur í heimsókn til mömmu og pabba, það vill helzt ekki tala eða leika við okkur smákrakka. En þú varst allt öðruvísi, elsku frændi, þú vildir víst, skildist okkur, frekar tala og leika við okbur. Fullorðið fólk heldur að við börn t Sonur okkar, Haraldur Þórðarson Asenda 5, verður jarðsimginn frá Safn- aðarheimili Langholtskirkju, laugardaginn 31. ágúst kL 10.30 árdegis. Unnur Haraldsdóttir, Þórður Kristjánsson. t Fáðir og fósturfaðir okkar, Guðjón Þórðarson frá Jaðri, Langanesi, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju laugardaginn 31. ágúst kl. 10.30 f. h. Fyrir hönd vandamanna. Óskar Guðjónsson. t Útför eiginkonu minnar, Ingiríðar Eyjólfsdóttur Yzta-Bæli, A-Eyjafjöllum, verður gerð laugardaginn 31. ágúst kl. 2 e. h. frá Eyvindar- hólakirkju. Vegna mín barna okkar og ættingja hinnar látnu. Ingimundur Brandsson. t Alúðarþakkir færum við öll- um þeim er sýnt hafa okkur samúð og hluttekningu vegna andláts föður okkar, Jóns Ólafssonar frá Austvaðsholti. Börn hins látna. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, Guðrúnar Guðmundsdóttur frá Brautarholti, Akranesi. Fyrir hönd systkina og annarra aðstandenda. Guðrún Ólafsdóttir. skilum svo lítið, en við vitum samt, að menn sem eru svona góðir við börn, eins og þú varst, þeir eru agalega góðir menn. Við höfum saknað þín mikið og þykir það mjög leiðinlegt, að þú hefur ekki getað komið heim til okkar núna lengi. En mamma hefur sagt okkur að þú um tíma hafir fundið mjög mikið til í höfðinu og hafir þess vegna ekki getað heimsótt okkur. En nú seg- ir hún að Guð hafi boðið þér að koma til sín, og hafi hann hjálp- að þér, svo nú finnir þú ekkert til lengur, og þykir ok’kur mjög vænt um að heyra það. Við gleymdum víst oftast að þakka fyrir hvað þú varst góður við okkur, en við vonum að þú takir eftir örlitlu blómi, sem við sendum með þér á kistunni, á leiðinni heim til Guðs. Bless elsku frændi! Óli, Amór og Thierry. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við and- lát og jarðarför eiginkonu minnar, mó’ður, dóttur og systur. Stefaníu Sig'urðardóttur Asi, Vopnafirði. Sérstaklega viljum við þakka hjúkrunar- og starfsfólki á deild 8, Landspítalanum fyrir frábæra umönnun í veikind- um hennar. Aðalsteinn Sigurðsson og böm, Guðmundína Jónsdóttir, Sigurður Halldórsson, Þórdís Sigurðardóttir. - SKÁK Framhald at bls. 13 5. Bandaríkin 16 vinninga 6. Danmörk 15% vinning 7. ísland 15% vinning 8. Júgóslavía 15% vinning 9. Rúmienía 15 vinninga 10. Austur-Þýzikaliand 15 vinminga Það verður að teljast ágæt frammistaða að lenda í sjöunda sæti í keppni 25 þjóða. Það er til dæmis glæsilegt að vera einu sæti ofar en jafnsterk skákþjóð og Júgóslavía, sen er önnur eða þriðja sterkasta skákþjóð í heimi. Minnist ég þess ekki, að við höfum orðið fyrir ofan Júgó slava í alþjóðlegri skákkeppni fyrr. Á skákmótum telja menn sig toift misjafnlega „heppna“ eða „óheppna". Segja má, að það sé ekki verulega „heppilegt“ orðalag, því í skáklistinni upp- skera menn jafnan svo sem þeir sá til. Þótt það heyri til undan tekninga, að menn tapi skák af ásettu ráði, þá er sjálfsagt jafn sjaldgætft, að menn tapi skák, án þess að geta kennt um eigin gáleysi svo og betri tafl- mennsku andstæðingsins. Skák- maður, sem notfærir sér afleik andstæðings síns og vinnur skák á því, hefur þar með sýnt betri taflmennsku en andstæðingur- inn og á fyllilega skilið að sigra. Því verður að minnsta kosti að nota hugtökin heppni og ó- heppni með miklum fyrirvara í skák. Það má kannski segja, að það sé viss óheppni að tefla skák illa. En það er ekki sú tegund óheppni, sem ræðst af al- gjörlega blindri tilviljun. Ó- heppnin stendur þar í beinu or- sakasambandi við miður skyn- samileigar aðgerðir. Sé litið á heildina verður því að ætla, að íslenzka sveitin, sem og hver önnur sveit í þessari keppni, hafi hlotið það sæti, sem hún átti skilið. Af einstökum keppendum hlaut Guðmundur Sigurjónsson langbezta útkomu af okkar mönn um, eða átta og hálfan vinning af tólf mögulegum. Tapaði hann aðeins einni skák, fyrir Pfleger frá Vestur-Þýzkalandi. Þegar einnig er tekið tillit til ágætr- ar frammistöðu Guðmundar á Skákþingi íslands í vor og á al- þjóðlega skákmótinu, sem hér var haldið í júní, þá er eðlilegt að draga þá ályktun, að hann sé nú orðinn örugglega þriðji, ef ekki annar bezti skákmaður okk ar. Ef svo heldur fram sem horf- ir, ætti þess að verða skammt að bíða, að hann hreppi stórmeist- aratign. Þeir Bragi Kristjánsson og Haukur Angantýsson hlutu hvor fyrir sig fimm og hálfan vinn- ing af tólf mögulegum. JónHálf dánarson hlaut fimm og hálfan vinning af níu. — Varamenn okk ar voru hins vegar ekki sigur- sælir Björgvin Víglundsson tefldi þrjár skákir, en tapaði þeim öllum. En þá ber þess að gæta, að hann tefldi ekki nema gegn sterkum sveitum, þ.e. Rúss um, Tékkum og Englendingum. Björn Theódórsson hlaut einn og hálfan vinning af fjórum. Því ber að fagna, að íslenzk- ir stúdentar skuli nú aftur orðn- ir árlegir þátttakendur í Heims- meistaramótum stúdenta. Þangað sækja hinir ungu meistarar æf- ingu og keppnisreynzlu og varpa ljóma á nafn lands síns með góðri frammistöðu, þegar vel tekst til, ella með prúðmannlegri og háttvísri framkomu, sem stú- dentar okkar hafa held ég á- vallt sýnt á erlendum mótum. — Þess vegna ber að þakka þeim mörgu aðilum, sem hafa styrkt slíkar utanfarir með beinum fjár framlögum og á ýmsan annan hátt. Að þessu sinni stóðu Skák- samband íslands, Borgarráð, Menntamálaráð og ýmsir aðilar innan Háskólans undir fjárhags- legum kostnaði við þátttöku okk ar sveitar í mótinu. Heildarkostn aður mun hafa numið um 110.000.00 krónum. Naumast hefði þeim peningum orðið betur varið á annan hátt. Svelnn Kristinsson. Ég þakka af alhug öllum mínum gömlu vinum og kunningjum nær og fjær fyrir mér auðsýndan velvilja og hlýhug 23. 8. þ.m. Sérstakar þakkir til forráða- manna Loftleiða og starfsfólki þess á Keflavíkurflug- velli. — Kærar kveðjur. A. ROSENBERG. NÝTT ÚRVAL KVENSKÓR OG KULDASTÍGVÉL REGNKÁPUR OG STÍGVÉL FÍFA auglýsir utsölu Meðal annars mikið úrval af peysum — úlpum — terylene-buxum og molskinnsbuxum. Einnig úrval af ungbarnafatnaði. — Minnst 20% afsláttur. Verzlunin FÍFA Laugavegi 99, (inng. frá Snorrabraut).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.