Morgunblaðið - 20.09.1968, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.09.1968, Blaðsíða 2
2 MÖRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1968 Samþykkt borgarstjórnar: Skipuð verði sjö manna nefnd — til að fylgjast með atvinnumálum borgarinnar og gera tillögur til að torða atvinnuleysi Nokkrar umræður urðu í borg arstjóm í gær um atvinnuástand ið og útlitið á komandi vetri. Vom allir sammála um að brýna nauðsyn bæri til að vera vel á verði og borgarstjóm bæri að leggja sitt af mörkum til að forða atvinnuleysi. Var eftirfar- andi tillaga samþykkt með öllum atkvæðum borgarfulltrúa: „Borgarstjóm ákveður að skipuð verði 7 manna atvinnu- málanefnd, er hafi það verk- efni að fylgjast með útliti I at- vinnumálum borgarinnar og gera tillögur, ef þurfa þykir, um nauð synlegar ráðstafanir til að fyrir byggja atvinnuleysi á komandi vetri og greiða fyrir atvinnu fyr ir skólafólk á næsta sumri og hafi nefndin samvinnu við at- vinnumálanefnd ríkisins og að- ila vinnumarkaðarins. Nefndin sé þannig skipuð, að hver stjórnmálaflokkur er full- trúa á í borgarstjórn, tilnefni mann í nefndina, einn fulltrúi sé skipaður samkvæmt tilnefn- ingu fulltrúaráðs verkalýðsfé- laganna í Reykjavík, einn sam- kvæmt tilnefningu Vinnuveit endasambands íslands, loks skipi borgarráð sjöunda manninn og skal hann vera formaður nefnd arinnar . Borgarstjóm æskir þess, að nefndin taki sem allra fyrst til starfa". var flutt af Alþýðubandalaginu, en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gerðu nokkrar breytingartillögur og voru þær allar samþykktar. Jón Sn. Þorleifsson (K). fylgdi tillögunni úr hlaði. Sagði hann, að s.l. vetur hefði verið stórfellt atvinnuleysi í Reykja- vík og útlit væri fyrir atvinnu- leysi í vetur. Atvinna hefði dreg izt mjög saman, yfirvinna stór- minnkað, svo og yfirgreiðslur. Þetta hefði allt í för með sér minnkandi tekjur manna og verri lífskjör. Það væri ekki neitt atriði í þessu sambandi hver ætti sökina, eða af hverju at- vinnuleysið væri yfirvofandi. Menn væru allir sammála um, að atvinnuleysið væri eitt versta böl, er yfir gæti komið og þess vegna væri þessi tillaga borin fram. Borgarstjórn hefði og vissra hagsmuna að gæta, því að minnk andi tekjur borgarbúa hefðu í för með sér minnkandi tekjur borg- arinnar og hlyti borgin að reyna að koma í veg fyrir það. Gunnar Helgason (S) tóknæst ur til máls og sagði, að Sjálf- stæðisflokkurinn væri fylgjandi tillögunni með nokkrum breyting um og gerði tillögur þar um. Hann sagði, að atvinnuástand væri verra nú en undanfarin ár, og réttmætur væri uggur margra út af komandi vetri. Samdrátt- Tillaga um nefndarskipunina ur væri víða í atvinnulífi og Ekkert kvæðanna verðiauna vert rakti Gunnar þær óviðráðanlegu orsakir, sem mest áhrif hafa haft á atvinnulíf. Gunnar sagði, að borgin ætti auðvitað að gera sitt til að bæta atvinnuástandið, þótt hún réði litlu um atvinnumál almennt á landinu. Borgin hefði líka reynt sitt, t.d. væru nú 930 verkamenn í vinnu hjá borginni, en hefðu verið 736 í fyrra. Þá störfuðu um 400 hjá bæjarútgerð, og Vinnuskóli Reykjavíkur hefði tek ið við mun fleirum í sumar en í fyrra. Gunnar lagði á það ríka á- herzlu, að borgin yrði að gera sitt til að fyrirbyggja atvinnu- leysi, en sagði að tæplega gæti þó komið til greina að hefja starfsemi, sem hefði í för með sér aukna niðurjöfnun útsvara. Guðjón Jónsson (K) og Krist- inn Benediktsson (F) ræddu báð ir atvinnuástandið og gagn- rýndu núv. ríkisstjórn fyrir slæma stjórn. Taldi Guðjón að borgin ætti að beita sér fyrir eflingu iðnaðar í borginni og nefndu þar til sem dæmi stækk- un dráttarbrautar. Framhalð á bls. 31 Leikarar í Fyrirheitinu: Þórunn Magnúsdóttir (Lydia) Há- kon Waage (Marat) og Arnar Jónsson (Leonidik). EKKERT kvæðanna í bókinni „Hátíðarljóð 1968“ hlaut nógu mörg atkvæði lesenda til að færa höfundi sínum 10.000 króna verðlaun þau, sem útgefandi bók arinnar, Sverrir Kristinsson, ætl aði að veita. Lét Sverrir þá upphæðina renna í nýstofnaðan sjóð til styrktar heyrnardaufum börnum. Alls seldust 600 eintök af bók inni og bárust 120 atkvæðaseðl ar, sem var safnað í pósthólf, en fulltrúi borgarfógeta tók seðl ana þar og hafði umsjón með at- kvæðatalningunni. Áttatíu og þrír kjósendur töldu eitthvert kvæðanna verð- launa vert og skiptust atkvæði þessi á 17 höfunda. 32 kjósend- ur töldu ekkert kvæðanna verð- launa vert, en 5 atkvæðaseðlar voru auðir og ógildir. Skilyrði til verðlaunaveitingar voru, að 50 prs. kaupenda bókarinnar teldu eitthvert kvæðanna eiga verðlaunin skilið. Þjóöleikhúsiö frum- sýnir Fyrirheitið — ettir Rússann Aleksei Arbuzov Laugardaginn 21. sept. verður fyrsta frumsýning haustsins hjá Þjóðleikhúsinu. Þá verður sýnt rússneska leikritið Fyrirheitið eftir AI- exei Arbuzov. Leikstjóri er Eyvindur Erlendsson, en leik arar eru aðeins þrír, þau Arn ar Jónsson, Hákon Waage og Þórunn Magnúsdóttir. Leikritið Fyrirheitið gerist á árunum frá 30. marz 1942 til 31. desember 1959 og fjall ar það um þann tíma og gef- ur innsýn í líf þeirra persóna sem það fjallar um: Leonidik, sem er ljóðskáld, Marat brú- arsmiður og Lydia sem er læknir. Leikritið hefur farið sigurför á mörgum leikhúsum nágrannalandanna að undan- förnu. Eyvindur Erlendsson, leik- stjóri hefur hlotið leikmennt- un sína í Rússlandi og nær vel fram Rússneskum áhrif- um leiksins. Leiksviðið gerði Una Collins og er það all ný stárlegt, m.a. er notað kvik- myndatjald og þar brugðið upp mismunandi myndum. Þýð andi leikritsins er Steinunn Briem. Chryslerbálar lækka um allt að 45 þús. kr. — Við vorum rétt að ganga frá samningum um verðlækkun við fulltrúa Chryslerverksmíðj- anna, sagði Jóhann Scheiter, framkvæmdastjóri Vökuls h.f. — Verðið kemur jafnvel til með að vera heldur lægra á sumum tegundum en fyrir 20 pr. álagið IVIerkjasala Menningar- og minningarsjóðs kvenna MERKJASALA Menningar og minningarsjóðs kvenna verður á morgun, laugardaginn 21. sept- ember. Sjóðurinn er stofnaður með dánargjöf Bríetar Bjarnhéð insdóttur að upphæð 2.000.00 kr. Tilgangur hans er að styrkja efnalitlar konur til náms, vís- inda og ritstarfa. Styrkveiting úr sjóðnum fór fyrsta sinn fram árið 1946, en alls hafa nú rúm- lega 200 konur hlotið þessa styrki. Sjóðurinn veitir viðtöku dán- ar og minningargjöfum og eru aðalæviágrip þeirra, sem minnst er skráð í Æviminningabókina, sem sjóðurinn gefur út. Nú eru kominn út af henni þrjú bindi. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðs ins skal mikill hluti af tekjum hans leggjast við höfuðstól, og kemur því eigi til árlegra styrk veitinga. Það er því að sjálf- sögðu mikilsvert að merkjasal- an gangi sem bezt, því að hverju sinni berast margar umsóknir frá ungum og efnilegum námskonum sem vissulega eru styrks mak- legar. Merkin verða á morgun af- greidd í öllum bamaskólum borg arinnar frá kl. 1 og eru einnig seld víða út um land. á gjaldeyrinn. Mbl. bað Jó- hann að segja nokkuð frá að- draganda málsins. — Strax og gjaldeyririnn hækk aði í verði tilkynntum við Chryslerverksmiðjunni það, og skýr'ðum jafnframt frá ástand- inu hér almennt. Vegna fyrirsjá- anlegrar hækkunar og erfiðleika fórum við fram á verðlækkun. — Þeir tóku strax vel í það, og fulltrúi frá Chrysler kom síðan hingað til lands og samdi um málið. Hækkunin hefði orð- ið 6—8 pr. en okkur tókst að semja um 10 pr. verðlækkun. Þetta hefur í för með sér að bíl- amir verða allt að 2 pr. lægri í verði en fyrir gjaldeyrishaakkun. — Hver er lækkunin í krónu- tölu? Vélskóladeildin ú Akureyri setl Akureyri, 19. september. AKUREYRARDEILD Vélskóla íslands var sett í dag af for- stöðumanni deildarinnar, Birni Kristinssyni. Hann gat þess í ræðu sinni, að nú færi fram kennsla til annars stigs skólans (eða í 1. bekk) í fyrsta sinn ut- an Reykjavíkur, auk þess sem kennt verður til fyrsta stigs (undirbúningsdeild) eins og und anfarin tvö ár. Kennslan fer fram á þremur stöðum í bænum, bókleg kennsla verður í Gránufélags- götu 9, smíðakennsla í Glerár- götu 2b og verkleg kennsla í véla sal skólans við Laufásgötu. Aðal- kennarar verða auk forstöðu- manns, Friðfinnur Ámason, Bárður Halldórsson, Steinherg Ingólfsson, Björn Þorkelsson, Jakob Ó. Pétursson og Gunn- laugur Björnsson. Til fyrsta stigs eru skráðir 15 nemendur, en 20 til annars stigs. Kennslutími 1. stigs er fimm mánuðir, en 2. stigs 8% mánuður. — Sv. P. — Hún er mismunandi eftir gerðum, allt frá 40-—45 þúsund krónum á bíl. Mest auðvitað á stærri gexðunum af Plymouth og Dodge. — Nær lækkunin einnig til árgerðar ’69? — Nei, hún nær aðeins til þeirra bíla sem við eigum hér fyrirliggjandi. Þeir eru milli 30— 40 talsins, að viðbættum 3—4 sem eru á leiðinni til landsins. Ekki búumst við h*ldur við, að eftirspurnin verði meiri en þessu nemur, eins og ástandið *r í dag. Um ’69 árgerðina getum vi’ð ekkert fullyrt um verð á að svo komnu máli. Þó er viðbúið að 3 %pr. verðhækkun eigi sér stað á amerískum bílum m.a. vegna aukins öryggisútbúnaðar. Klamsturhóla- rétt 25. sept. MISTÖK urðu varðandi upplýs- ingar til Mbl. um réttardag í Klausturhólum. Klausturhólarétt er miðvikudaginn 25. september en ekki 24., eins og stó’ð í blað- inu í gær. Eldur í heyflutningabíl UM 600 kg af heyi eyðilögffust og mikið heymagn stórskemmd- ist, þegar eldur kom upp í yfirbyggffum heyflutningabíl skammt frá Hreffavatnsskála í fyrrinótt. Bílstjórinn hafffi lagt bílnum utan vegar og sofnað, en menn, sem áttu leiff fram hjá, urffu eldsins varir og vöktu bíl- stjórann. „Ég var vakinn um fjögur- leytið í nótt og mér tilkynnt, að eldur væri kominn upp í hey- flutningabíll, sem stæði undir Grábrók", sagði Leopold Jó- hannesson í viðtali við Morgun- blaðið í gær. „Ég tók með mér öll slökkvi- tæki, sem ég átti og þegar ég kom að bílnum voru bílstjórinn og aðstoðarmenn hans búnir að fleygja niður öllu heyinu, sem var ofan á yfirbyggingunni, en mikill eldur var í þaki hennar. Við þorðum ekki að opna bíl- inn, en tæmdum slökkvitækin ofan í þakið, án þess þó að eld- urinn slökknaði. Einnig komst eldur í vagn, sem var tengdur aftan í bílinn, en við gátum los- að vagninn frá og slökkt í hon- um. Síðan fór ég niður að Bifröst og fékk þar litla og harf&hæga slökkvidælu, sem við gátum slökkt í heyinu og yfirbygging- unni með. Tók slökkvistarfið allt um tvo tíma. Miklar skemmdir urðu á yfir- byggingunni, en engar á grind bílsins né bílstjórahúsi. Allt h'eyið, sem var ofan á yfirbygg- ingunni eyðilagðist og miklar skemmdir urðu á heykögglum og vélbundnu heyi, sem innan í henni var. Bíll þessi er frá Kópaskeri og hélt bílstjórinn áfram ferðinni þangað í morgun".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.