Morgunblaðið - 20.09.1968, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.09.1968, Blaðsíða 17
MORGUN’BLAfMÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1908 17 „Þnð má bregða betur við” Síðdegi í Grindavík Við brugðum okkur til Grindavíkur í fyrradag og fórum auðvitað niður á bryggju, því að þar er alltaf eitthvað um að vera. Bátarnir voru að koma og fara, og þeir voru ýmist á fiski eða humar trolli. Mesta athafnasvæðið og byggðin er í Járngerðar staðahverfinu og þar er einn- ig höfnin. Áður fyrr var útræði í Þór- kötlustaðahverfinu, en nú eru hátar hættir að landa þar og fiskinum í Frystihús Þór- kötlustaða er ekið þessa stuttu leið, sem er á milli Járngerð- arstaða og Þórkötlustaða, en er nógu löng til þess að Þór- kötlustaðahverfið er eigin- lega heimur út af fyrir sig með mjög fögru útsýni. Þriðja hverfið í Grindavík er Staða hverfið. Við vorum svona að kanna hversdagsleikann og þá lá bein Guðmundur Sigurgeirsson ast við í sjávarplássi að rabba við þá er við fiskinn fást. Ólafía GK. var að leggjast að bryggju þegar við komum og við hittum Guðmund Sig- Guðmundur Kristjánsson. urgeirsson skipstjóra í brúnni. — Þú ert með fiskitroll, Guðmundur? — Já, við höfum verið með fiskitroll síðan við hættum á netum 8. maí s.l. — Hvernig hefur gengið? — Það hefur gengið frek- ar illa, við erum búnir að fá um 200 tonn í sumar. — Hafið þið verið djúpt? — Við höfum verið mest út af Eldeynni á 70-90 föðmum. Þetta hefur verið mest þorsk ur, karfi og ufsi, nú og svo smávegis af smáýsu. — Hvað hafa margir bátar róið héðan í sumar? — Það hafa 10 bátar róið héðan á fiskitrolli, en í allt hafa um 20 bátar róið héðan í sumar, að ég held. Ég held að það hafi aldrei verið jafn margir á fiskitrolli og í sumar. — Hvenær var bezti aflinn í sumar? — Það var bezt í júní og og ágúst, en reyndar misst- um við þrjár vikur úr þar sem við vorum í slipp. Upp á síð kastlð hefur v.rið austan bræla og með austan áttinni er svo mikill straumur að það hefur verið fjandi erfitt að eiga við þetta undanfarið. — Hvað verður svo í haust? — Það stendur til að vera á trollinu fram undir eða yfir áramót. Svo má búast við að netin verði tekin um borð um mitSjan febrúar. I Hraðfrystihúsi Þórkötlu- staða hittum við að máli verk stjórann Guðmund Kristjáns son, en hann hefur unnið í frystihúsinu s.l. 13 ár. — Hvernig hefur gengið hjá ykkur í áu'? —f vetur var alveg sæmi- leg vinnsla. Við tókum fyrst fisk af 5 bátum, sem voru með línu, net og troll. Síðan um miðjan maí höf- um við haft 4 báta á humar- trolli, en það hefur verið mun tregara hjá þeim í sumar, en undanfarin sumur. Þeir eru komnir með liðlega 30 tonn samanlegt, en sá hæsti er með um 10 tonn. — Er búið að verka þenn an humar að fullu? — Það er búið að verka hann að mestu leyti. Við er- um að skelbrjóta núna hum- ar, sem hefur verið brotinn og ekki nógu góður til þess að pakkast í skelinni. —Nú eru humarbátarnir að hætta og hvaða vinnsla tekur þá við? —Ég held að það sé í bí- gerð, þegar humarbátarnir hætta um mánaðamótin að 3 þeirra fari á fiskitroll og einn Sildarnótin tekin um borð í Þórkötlu II. Séð yfir hluta af höfninni í Grindavík. á línu. Undanfarið hefur afli í trollið verið mjög tregur, en væntanlega verður fisknara, þegar líður á haustið. Skipverjar á Þórkötlu II. voru að taka síldarnótina um borð og ætluðu að lialda á miðin fyrir austan í gærkvöldi. Þórkatla II. var m.a. á Græn landsveiðum í sumar og sigldi síðan út með aflann. Við röbb uðum við skipstjórann, Erling Kristjánsson. — Hvernig hefur þetta ár verið hjá ykkur? — Við vorum fyrst á þessu ári á línu og vorum þá í úti- legum. Síðan tóku netin við og við vorum með þau fram yfir miðjan.maí, en þá fórum við á línuveiðar við Græn- land. Við fórum í fyrri túr- inn 10. júní á Austur- Græn- land og það gekk vel í þeim túr. Við vorum 8 daga á veið- um í þeim túr, en 12 daga í þeim seinni, en hann var lé- legur og erfitt að stunda veið ar vegna mikils íss. Við söltuðum þorskinn um borð en við vorum einnig með ís um borð og ísuðum og heil- frystum sumt af lúðunni, sem við fengum. f þessum tveim túrum fengum við um 20 tonn af lúðu og 30 tonn af keilu og stórkarfa. f seinni túrnum fóru heilir dagar í að sigla fyrir ísspangir, en reyndar höfðum við nokkurt gagn af Fiskinum Iandað í netastroffu, sem hann er lagður í við lestun. Fljótvirkari löndun. Ljósm. Mbl. Árni Johnsen. ísnum, því að þegar við vor- um orðnir íslausir hífðum við ísjaka um borð og brutum þá niður til þess að ísa lúðuna og verja hana skemmdum. — Hélduð þið áfram línu- veiðum á heimamiðum? — Já, við fórum tvo túra á línu suðaustur fyrir land, en það var lítið fiskirí. Saltfiskurinn var alltaf um borð og í ágúst sigldum við með saltfiskinn til Esbjerg í sölu. Þar fengum við gegnum sneitt um 20 ísl. kr. fyrir kg. af þessum 70 tonnum, sem við vorum með. — Hvað voruð þið margir á? — Við voru 15 á, en t.d. Færeyingar eru venjulcga 24 á línuveiðum á sams konar skipum. Þetta var þræla- vinna og við höfðum ekki nema liðlega tryggingu út úr þessu að jafnaði. — Hvað beittu margir um borð? — Það beittu 5 menn um borð og að jafnaði beittum við 40 bjóð á sólarhring, en þau komust þó upp í 60. Við gát- um lagt meira á grunnsæv- Framhald á bls 18 A / r , ■' m / S/ti/M Erling Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.