Morgunblaðið - 20.09.1968, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.09.1968, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1968 Ég skal koma þér inn í þetta, væna mín, svo að þú skalt engu kvíða sagði Katie glaðhlakkan- lega. Síðan settust þær allar við matarborðið. Tvær rosknar kon- ur báru á borð girnilegan fisk og grænmeti, en settu síðan föt með appelsínum og litlum kök- um á borðið og gengu svo út. Sandra var næstum alveg þögul enda þótt þarna væri mikið skraf að við borðið. Eftir mat tilkynnti INNI- HURÐIR SIGURÐUR BTJASSON% AUÐBREKKA 52-54 KÓPAVOGI SÍMI 41380 OG 41381 hún, að hún væri þreytt og ætl- aði upp í herbergi sitt, og lét eins og hún sæi ekki setustof- una með sjónvarpinu og tímarit- unum á litlu borðunum, sem hin ar stúlkurnar sóttu í. Jill sagði við Katie, að réttara væri, að hún fylgdi vinstúlku sinni. — Sofðu þá vel, sagði Katie. — Á morgun er sunnudagur og þá förum við allar að synda. Vagninn fer klukkan tíu, svo að ef þú villt koma með okkur . . þú færð kaffi og brauð í rúmið klukkan átta. Hérna er ekki borðaður neinn reglulegur morg unverður . . . ef þú villt láta greiða þér eða fara í búðir, þá er skrá yfir staði, sem mælt er með, á auglýsingatöflunni í forsalnum. — Það er þó væntanlega alls- staðar lokað á sunnudögum, sagði Jill, en Katie hristi höfuðið. — Nei, hvergi lokað. Það er aldrei lokað í Beirut. Verzlað alla daga vikunnar. Það er hægt að fara í búðir, dag og nótt ef vill. En það verður bara að komast fram hjá dyrunum hennar ungfrú G. þegar þú kemur inn. Annars fer allt í háaloft. Sandra spurði: — Er hún ekki bölvaður illhryssingur? Það mætt segja mér. — Jæja, hún gætir okkar að minnsta kosti fyrir félagið. En það er nú hennar starf hér. Golíatfélagið er afskaplega strangt að halda uppi virðingu sinni og allt það. Maður verður að fara afskaplega varlega, ekki sízt í sambandi við karlmenn. Og það er reyndar ekki að öllu leyti svo slæmt, því að hér er mikið af óþokkum samankomið. Þeir geta varla varrd verið ann- arsstaðar. Meðan stúlkurnar bjuggust til sængur, dró Sandra enga dul á, að hún væri vonsvikin og nið- urdregin. — Ég vildi að við hefðum aldrei komið hingað, Jill, sagði hún. Ég er viss um, að mér finnst staðurinn hreinasta andstyggð. Hann er leðinlegur, hrottalegur og bölvaður í alla stað. Aldrei þessu vant vildi Jill ekki vera á sama máli. — Þér líður betur þegar þú ert búin að fara út að borða með honum Oliver Whitmore, sagði hún. — Og ef vð förum í sjó á morg- un, geturðu vígt nýju Bikini- sundfötin þín. Ertu til? Þá ætla ég að slökkva. Góða nótt og sofðu rótt. Jill svaf vel og vaknaði al- hress til að byrja nýjan dag. Sandra settst upp geispaði og kvaðst vona, að dagurinn yrði ekki sem bölvaðastur. Ein stúlk an kom inn með bakka með kaffi og nýbökuðum snúðum og svo smjöri og hunang. — Það er naumast þetta er allt upp á frönsku, sagði Sandra. Þær fóru síðan í bómullarkjóla, tóku sund fötin sín og slógust svo í hóp- inn, sem ætlaði niður á bað- ströndina. Stór bíll var kominn í götuna, merktur olíufélaginu á báðar hlðar og allur hópurinn steig upp í hann. Jill sat hjá Katie Mayer og fór að virða Beirut fyrr sér. Hún komst að þeirri furðulegu niðurstöðu, að hún kynni vel við borgina. Hún var töfrandi á ein hvern hátt, sem hún hefði aldrei getað hugsað sér, og það sem hún sá og heyrði, var svo gjörólíkt öllu, sem hún hafði hingað til séð eða heyrt. Vagninn klifraði upp snar- brattan hallann upp á hæðrinar þar sem hvít háhýsi með nýtízku legum íbúðum gnæfðu við bláan GETIÐ ÞÉR GERT BETRI INNKAUP? NET WT 3 v«02 £ ..... s KingOscar KIPPER SNACKS FILLETS OF HERRING • LI6HTLY SMOKEO Woeuor O» wttAN0 mckio rem ch». ijuund 4 co. a« ctavanmr, nomwav J AÖeins kr. 14,50 í smásölu fHeimdallur FUS KLUBBFUNDUR Gesíur fundarins: prófessor Ólafur Jó- hannesson, formaður Framsóknar- flokksins, ræðir um VIÐHORF FRAMSÓKNARFLOKKSINS til þjóð- mála í dag. N.k. laugardag 21. sept. verður klúbbfundur í Tjarnarbúð, niðri, og hefst hann kl. 12,30. Gestur fundarins verður prófessor Ólafur Jó- hannesson, form. Framsóknarflokksins, og mun hann ræða um við- horf Framsóknarflokksins til þjóðmála 1 dag. STJÓRNIN. — Fyrir alla muni skelltu ekki hurðinni. himininn, og teygðu sig þvínæst alla leið niður að ströndinni, en til beggja handa voru veitinga- hús, skemmtiklúbbar og röð smá- hýsa. Þau fóru gegn um hlið, þar sem enginn hafði aðgang nema starfsfólk olíufélagsins, og stönz uðu þar sem helzt virtist vera eitthvert sumarbústaðahverfi, þar sem voru langar raðir af smáhýsum, innan um græna gras bletti og svo löng fjara, umgirt stólpagirðingu, Þar beið þeirra þ;gar annar vagn frá félaginu, og við hann stóð hópur ungra manna. Það glaðnaði strax yfir Söndru er hún kom auga á þá. — Þeir eru líka frá félaginu, sagði Katie. — Góðir strákar, svona yfirleitt. Flestir þeirra syndir eins og selir og dansa auk þess vel. Þetta verður allt í lagi hjá ykkur. Eftir stutta stund var allur hópurinn kominn í eina háværa þvögu. Jill og Sandra voru kynntar bæði Joe og Harry og A1 og Dan og mörgum fleirum, sem þær gétu ekki greint nöfn á. Karlmennirnir voru alltir amer- ískir, og Jill fannst þeir eins og allir steyptir í sama mótið. Þeir voru allir með stuttklipt hár, frísklegan hörundslit, og svipur inn dugnaðarlegur og sjálfsör- uggur. — Þetta er skárra, taut- aði Sandra við Jill, er þær gengu inn í einn skúrinn til þess að hafa fataskipti. — En ég er bara hrædd um, að mér takist aldrei að þekkja þá í sundur. Jill fór í sundbolinn sinn, en Sandra gat státað af nýjum bik- inisundfötum, isem voru það fyr- irferðarlítil, að ungfrú Gilmore hleypti brúnum, er þær stöll- ur komu niður í fjöruna. — Þetta er ekki siðlegt, ungfrú James, sagði hún. — Þessi sundföt eru öll oflítil, á alla kanta. Sandra reiddist og roðnaði. — Þau eru fullkomlega siðleg, svar aði hún. — Margar stúlkur eru í ennþá minnu en þetta er. Þér þurfið ekki annað en líta á þessa . . . og þessa . . . og þessa! Hún benti niður í fjöruborðið, en ung frú Gilmore lét ekki svo lítið að líta í þá átt. — Þessar stúlkur eru olíufé- laginu óviðkomandi, svarað hún — Þær eru allt öðruvísi. Við verðum að standa á virðingu okk ar ungfrú James. Það munuð þér skilja, þegar þér hafið verið hjá okkur um tíma. Mér kæmi ekki á óvart þó að vara-stjómarfor- maðurinn okkar, hr. Van Loren- son kæmi hingað með konunni sinni og yrði hérna í svo sem klukkutíma. Og hvað mundu þau hugsa að sjá stúlku frá fé- laginu svona ósiðlega klædda? — Það veit ég ekki, enda er 20. SEPTEMBER. HRÚTURINN, 21 marz — 19 apríl Það er ekkert verra að fara sér hægt. Gættu að tækifærum seinna i dag. Nautið, 20. apríl — 20 maí. Forðaz'.u erjur heima fyrir, því að töluð orð eru ekki aftur tekin. Komdu heim með eitthvað fallegt. Tvíburai nir, 21. maí — 2. júní. Gefðu gott fordæmi. Gerðu eitthvað til skemmtunar heimilis- fólki þínu. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Þér sækist róðuirnn seint í dag, þótt allt virðist á ferð og flugi í kringu n þig. Þér getur reynst þetta arðsamt, ef þú kemst á sporið. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Stolt pitt leiðir þig í ógöngur. Samgangur við aðra virðist áfátt í einhverju. Bíddu átekta. Meyjan, 23. ágúst — 22. sept. Hafðu bugfast, að aðrir eru ekki eins nákvæmir og þú. Ættingj um ber ekki saman við þig, markmið virðast önnur. Reyndu að finna tækifæri til samvinnu. Vogin, 23. sept. — 22. okt. Hver er sjálfum sér næstur í dag. Ef þú lætur ekki ánetjast, muntu vafalaust bera sigur úr býtum. Sporðdrckinn, 23. okt. — 21. nóv. Þig langar að reyna eitthvað nýtt. Gættu heislu þinnar og öryggis. BOGMAðURINN, 22. nóv. — 21. des. Góðar nýjar hugmyndir eru sterkar í dag. Þér gengur vel, ef þú ert 4 réttri braut Gættu þín i umferðinni. Steingeitin, 22. des. — 19. jan. Hrakfarir dagsins eru aðeins stundarfyrirbrigði. Ef þú ert réttu megin, munu málin snúast þér í vil fyrr en varir. Bíddu rólegur átekta. Vatnsbeiinn, 21. jan. — 18. febr. Ef þú getur haldið þig í fjarlægð frá samstarfsmönnum þínum, mun það verða þér til góðs. Togstreita getur orðið, þar, sem fólk vinnur of náið saman. Fiskarnir 19. febr. — 20. marz. Ef þér er hælt um of, kann það að valda þér örðugleikum. Eitt- hvert hlé verður á samstarfi seinna í dag, sem aðeins verður um tíma, ef þú tekur málið réttum tökum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.