Morgunblaðið - 20.09.1968, Side 10

Morgunblaðið - 20.09.1968, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1968 ríkisins Um laxeldisstöö í Kollafirði Fréttir hafa borizt um það í blöðunum af og til í sumar, hve mkiil laxagengd og laxveiði hafi verið í íslenzku laxveiðiánum og hafa fréttir þessar yfirleitt byggst á fréttatilkynningum frá veiðimálastjóra og Veiðimálastofn uninni. Þessar fregnir hafa yfir- leitt verið á eina leið: óvenju mikil veiði og laxagengd, víðast hvar. Menn hafa í þessu sambandi veitt því athygli, að engar frétta tilkynningar hafa borist frá sömu aðilum um laxagengdina í Laxeldisstöð ríkisnis í Kollafirði á líðandi sumri. Þykir kynlegt að svo skuli vera, því að sann- ast sagna verður varla sagt ann að en að úr þeirri átt hafi hvorki skort fréttir né myndir um fiskgengd í Kollafjaðrarstöð ina á síðastliðnum tveim sumr- um, að minnsta kost. Jafnhliða hafa verið gefnar upplýsingar um nokkra tugi þúsunda af sjó gÖnguseiðum, er sleppt hafi ver ið frá stöðinni í þeim tilgangi að fá þau til baka til stöðvar- innar sem fullvaxna laxa til reksturs hennar og tekju- öflunar, bæði beint til slátrunar og sölu þannig, til hrognaöflun- ar, frjóvgunar og undaneldis í stöðinni og hagnýtignar á þann hátt fyrir stöðina sjálfa, eftir framleiðslu- og móttökugetu hennar í þessum efnum og loks þar að auki til sölu á hrognum. Nú er sumarði liðið og lax gengur varla að nokkru ráði héreftir, hvorki í ámar né held- ur í Laxeldisstöð ríkisins í Kolla firði. Það er því einmitt tíma- bært nú að gera sér glögga grein fyrir því, hvernig málum þessum er háttað í dag. Ráðamenn Laxeldisstöðvarinn ar í Kollafirði munu eflaust hafa gert sér vonir um það, að á líð- andi sumri mundu ekki færri en 1000 laxar ganga í stöðina. Það mun heldur ekki vera fjarri því að stöðin þurfi á að halda þessu lágmarki af göngulaxi yfir sum arið til hinna allra nauðsynleg- ustu þarfa sinna, þegar miðað er við meðalstærð laxanna, er þangað hafa skilað sér á undan förnum sumrum og aflögugetu þeirra af hrognum til starfsemi stöðvarinnar. Menn þeir, sem valist hafa í Btjórn Laxeldisstöðvar ríkisins í Kollafirði — með veiðimála- stjóra — eru kunnir að grand- varleika og ábyrgðartilfinningu Þeir vita sem er, þótt aðrir fái þar fátt eitt um að vita, að búið mun vera að verja rúmum 20. milljónum króna af ríkisfé til uppbyggingar þessa ríkisfyrir- tækis og jafnframt gera þeir sér áreiðanlega glögga grein fyrir því, að það þarf „GÓðAN GANG“ 1 rekstri stöðvarinnar, til að standa undir slíkum „höf- uðstóli", hvað þá til að geta greitt hann til baka. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- ir og hógværar óskir, virðist úti lokað að fá nauðsynlegar upp- lýsingar, ársskýrslur og hvað þá rekstursr eikningá Kollafj ar ðar- stöðvarinnar til athugunar og fróðleiks. Nú er þetta þó fyrir- tæki, sem rekið er af almanna- fé og í það er ausið milljónum króna árlega á fjárlögum, sem margan undrar. En að því hlýt- ur þó að koma að gögn þessi vsrði knúin frarn úr því hyl- dýpis myrkri, sem ástundað hef ur verið að láta umlykja þessi mál, svo að segja allt frá stofn- un fyrirtækisins, sem „átti“ að gegna forystuhlutverki í fiski- ræktarmálum göngu- og vatna- fiska á íslandi. Þá er að snúa sér aftur að líðandi sumri og stórfréttunum frá Veiðimálastofnuninni um hinar gífurlegu laxagöngur í árn ar en hinsvegar engar fréttir um laxagöngur í Kollafjarðarstöð- ina. Og hver kann nú ástæðan að vera fyrir þessari þögn? Þannig spyrja nú margir um þessar mundir. Liggur þá ekki beint við að ætla að engar fréttir hafi verið að segja í þessum efnum frá Kollafjarðarstöðinni, eða með öðrum orðum sagt: Hefur ekki sáralítill lax gengið í stöðina 1 sumar? Að öðrum kosti ætla menn að ekki hefði verið jafn 10 ARA ABYRGÐ TVÖFALT EINANGRUNAR- 20ára reynsla hérlendis SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON &CO HF r 10 ÁRA ÁBYRGÐ TAUSCHER- SOKKAR - SOKKABUXUR BEZTA VARAN - MESTA ÚRVALIÐ Þér getið valið um margar gerðir af TAUSCHER sokkum og sokka- buxum, eftir yðar eigin óskum og þörf- um. OG TAUSCHER- vörugæðin eru al- kunn. Perlonsokkar: MENUETT _ ^ SCHERZO 30 demer* Sokkabuxur: Barna: brugðnar mynstraðar Krepsokkar: Þunnir: 20/ denier Þykkari: 40/1 denier Kven: Helanca 20/1 den. Helanca 30/1 den. HINIR VINSÆLU TAUSCHER -sokkar og sokkabuxur fást í flestum vefnaðar- og snyrtivöruverzlunum um.land allt, í úrvali lita og gerða. UMBOÐSMENN : ÁGLST ÁRMAMIM HF. SÍMI 22100 kyrfilega þagað í þessum efn- um og raun hefur borið vitni. En nú er að víkja að dálítið eftirtektarverðu atriði í þessu sambandi, sem fréttnæmt er. Á nauða ómerkilegum auglýsinga bæklingi — auðum á bakhlið- inni — sem dreift var í tug- þúsundatali yfir gesti á Land- búnaðarsýningunni í Laugardaln um í ágústmánuði síðastliðnum, var sagt að stöðin væri opin öllum og að þangað væri öllum frjálst að koma til að sjá og fræð ast. Margir hafa eflaust hag- nýtt sér þetta „góða boð“ og er ég undirritaður einn þeirra, svo sem ofur skiljanlegt er. Nú er mér tjáð af mörgum gestum, er Landbúnaðarsýninguna sóttu, að þar hafi einn af starfsmönnum Veiðimálastofnunarinnar marg sagt við sýningargesti, að þá þegar væru gengnir í Kollafjarð arstöðina á þessu sumri, sem er að líða, um 300 laxar, og þetta var um miðjan ágúst. Ekki ómerk ar fréttir? Þegar hinsvegar þetta er rit- að, hinn 15. september 1968, er mér sagt, að sennilega séu ekki yfir 225 laxar gengnir í Kolla- fjarðastöðina á líðandi sumri. Þetta er þó ókki vitað með vissu enn, þar sem ekki hefur verið endanlega gengið úr skugga um göngulaxafjöldann, en um veru- leg frávik frá þessari tölu getur tæpast verið að ræða. Vitanlega ætti þó að vera „rafmangnstelj- ari“ við slíkt ríkisfyrirtæki, sem gæfi dalega nákvæmlega og tor- tryggnislaust til kynna upplýs- ingar um laxagengd í stöðina. Hitt er svo öllu verra og reyndar mjög alvarlegt, en það er ásig- komulag þeirra laxa, margra hverra, er í Kollafjarðarstöðina hafa gengið í sumar. Vægast sagt, mun það vera afar illt. Laxarnir koma sumir særðir og kaunum hlaðnir í stöðina og verða síðan alsettir sveppagróðri svo ekki er sjón að sjá, en það mun orsakast fyrst og fremst af frámunalega lélegu og litlu vatni stöðvarinnar, sem margnot að er, sama. vatnið, fyrst í eldishúsinu, síðan í kössum og tjörnunum og svo loks í lóninu, sem laxinn á að ganga í úr hafinu. Ástand þetta er svo al- varlegt að það er ekki hægt að iþegja yfir því til lengdar, enda mun sérstaklega að því vikið síðar og á öðrum vettvangi. Vert er líka að minna á það, að marg- ir aðrir en ég hafa áður bent á þennan höfuðgalla stöðvarinnar. Nú er það staðreynd að eng- inn snemmgenginn lax hlefur gengið í Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði, hvorki í sumar né endranær. Það eru því einvörð- ungu síðgengnir laxar, sem þar hafa verið kreystir og klakið út undan, seiðin síðan alin, seld og dreift í ótalmargar laxveiðiár landsins og svo að sjálfsögðu til hiagnýtingar í stöðinni sjálfri Það er því ekkert undarlegt þótt laxinn gangi seint í stöðina á sumri hverju. Laxastofnanir, sem aldir hafa verið í stöðinni munu aðallega úr þrem ám: Elliðaán- um, Miðfjarðará og Víðidalsá og þó sennilega að % hlutum af Elliðaárstofni. Öllum þessum laxastofnum hefur þó kyrfilega verið blandað saman og lítt eða ekki hirt um að halda stofnuruim hreinum eða aðskildum, hvað þá heldur að gerðar hafi verið nokkrar raunhæfar tilraunir um kynbætur á laxi í stöðinni. Það hefur því að mínu viti verið unnið algerlega neikvætt að fisk ræktarmálum í Kollafjarðarstöð inni og afleiðingin er sú, að árn- ar, sem fengið hafa seiði úr Kollafjarðarstöðinni, hafa bein- línis verið afræktaðar margar hverjar á tvennan hátt: 1. Með seiðum undan smálaxi — að mestu, og 2. Með seiðum undan síðgengn um laxi. Það er fyrst og fremst þetta tvennt, sem kúnið hefur rnig til að kveðja mér hljóðs á ný um málefni þessi, eftir nærri árs þögn í blöðum um fiskræktar- málin, sem ég taldi rétt, meðan endurskoðun og breytingar á laxveiðilöggj öfinni fer fram. Þegar ég hinsvegar sé fram á það, að mikil dá er fyrir dyr- um í Laxeldisstöð ríkisins i Kollafirði, neikvæð stefna ríkj- andi þar í fiskræktarmálum, yf- Framhald á hls. 24 SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM: KVIKMYNDIR Laugarásbíó. Á flótta til Texas („Texas across the river“) Amerísk mynd. Framleiðandi: Harry Kellert. Leikstjóri: Michael Gordon. Meðal leikenda: Dean Martin, Alain Delon, Rosemary For- syth. Faðir Önnu Taylor er ekki lítið upp með sér af væntan- legum Sengdasyni. Þetta er glæsiíegur ungur maður og prýði’egur í viðkynningu, en það sem vegur þó þyngst er það, að hann er af spænskum aðli og loðinn vel um lófana. En það óhapp hendir rétt fyrir giftinguna, að hinum væntan- lega tengdasyni, Don Baldasar, (Álain Delon) er hrynt á fyrr- verandi kærasta Önnu, hrekk- ur sá út um glugga og bíður bana' af. Fellur nú sá grunur á Baldasar, að hann hafi ban- að manninum af ásettu ráði. Til að forðast dauðadóm, sér aðalsmaðurinn því þann gxænast- an að reyna að flýja yfir landa- mærin til Texas (frá Louisiana), en Texas heyrði þá enn ekki til Bandaríkjunum. Síðan fjallar myndin um ævintýralegan flótta Baldasar til Texas. Það kemur sér vel fyrir hann að fá fyrir tilviljun tvo vaska samfylgdarmenn, hvítan mann — leikinn af Dean Martin — og Indíána nokkurn. Anna Taylor heldur og fljót- liega á eftir tilvonandi eigin- manni, enda koma, eins og fyrr segir, lögleg forföll í veg fyrir, að kærastinn fyrrverandi reyni framar að truflia tilfinningar henniar eða áform. Önnur kona kemur síðar við sögu sem ein af aðalpersónun- um. Er hún af Indíánaættum og verður því óbeint valdandi, að Indíánabjóðflokkur einn reynir að ráða niðurlögum flóttafólksins. — Er sú saga öll flóknari og efnismeiri en svo, að ég sjái ástæðu til að endursegja hana hér. Kvikmynd þessi er af kúrekaættkvíslinni, en þó fyrst og fremst hugsuð sem skop- mynd. Efniviður kúrekamynda er raunar af sjá’fu sér oft harla skoplegur, þótt ekki sé honum beinlínis stillt upp og auglýstur sem slíkur, og því er nærliggjandi að velja þess konar efnivið í skopmyndir. — Framan af sýningu sjást þess fá merki, að kvikmynd þessi muni vekja nokkum umtals- verðan áhuga hjá áhorfendum, en hún sígur á. Gerast þá ýmsir atburðir, sem erfitt er annað en brosa að, og orða- skipti em oft allhnyttin. fslenzki textinn er hins veg- ar hnoðnaglalegur á köflum hnyttiyrði eru viðkvæm í þýð- ingu. — Þó er hann tiltölulega góður miðað við það, sem lak- ast hefur sézt hér í kvik- myndahúsum. Leikur er góður í mynd þess- ari, sviðsetning kunnáttusam- leg og fagrar senur. Þarna er eitthvað fyrir flesta, allt frá heiftúðlegum bardögum við Indíána til ástarlota við hinar merkilegustu kringumstæður. — Líklega mætti segja, að þetta væri mynd fyrir alla fjölskyld- una, ef sú einkunn væri ekki löngu útjöskuð orðin af of- notkun. S. K.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.