Morgunblaðið - 20.09.1968, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1968
23
Elztu heimildir um íslenzkt mál
Rcett við dr. Hrein
á ísl. drótfkvœðum
MEÐAL styrkþega Vísinda-
sjóðs á þessu ári er dr. Hreinn
Benediktsson prófessor, og
hlaut hann styrk til tveggja
verkefna. Annars vegar til að
greiða undirbúningsvinnu vegna
rannsókna á íslenzkum drótt-
kvæðum sem heimild um ís-
lenzkt mál og þróun þess, en
hins vegar til að greiða kostnað
við undirbúningsvinnu vegna út
gáfu á Fyrstu málfræðiritgerð
Snorra-Eddu, svo og til rann-
sókna á fræðilegum rótum henn
atr í miðaldamálfrfæði og gildi
hcnnar fyrir norræn málvísindi
Morgunblaðið hitti dr. Hrein að
máli og bað hann að segja les-
endum þess frá þessum verkefn-
um.
— Svo við tökum þá rannsókn
irnar á dróttkvæðunum fyrst,
sagði dr. Hreinn, er þess að geta
að dróttkvæðin eru meðal elztu
beinna heimilda um íslenzka
tungu, sem varðveiitzt hafa, og
eru hin elzfcu þeirra talin vera
frá 10. öld, en nokkuð einnig frá
9. öld, þó næstum eingöngu
norskur kveðskapur. Það er svo
ekki fyrr en frá 12. og einkum
13. öld og síðar, sem við höfum
Benediktssort, prótessor, um rannsóknir
og Fyrstu málfrœðirifgerð Snorra-Eddu
legri uppbyggingu þeirra.
Aðalundirbúningsverkefnið er
því að koma efni dróttkvæðanna
í það form, að hægt sé að flokka
það og vinna úr því að öðru
leyti. Ungur og efnilegur ís-
lenzkunámsmaður. Höskuldur
Þráinsson, vinnur nú að því að
koma öllu þessu efni á seðla.
Hvert vísuorð er ritað á sérstak
an seðil og einnig aðrar upplýs-
ingar, sem máli skipta, svo sem
nafn kvæðis og skálds og texta-
athugasemdir. Þá verður táknuð
á seðilinn bragfræðileg greining
vísuorðsins: lj óðstaf setning,
hendingar og hrynjandL Taln-
ing bendir til að þetta verði alls
um 15-20.000 seðlar. Styrkurinn
sem ég fékk til þessa verkefnis
í ár, fer að mestu í að greiða
þessa undirbúningsvinnu.
— Hvað tekur svo við, þegar
þessari efnissöfnun er lokið?
— Fyrsta verkefnið verður að
kanna bragfræðilega hrynjandi
í dróttkvæðum hætti með athug
un á hljóðlengd, atkvæðaupp-
byggingu og atkvæðafjölda í visu
orði, og skýra þannig bragfræði
legt hlutverk þessara málein-
inga á grundvélli mállegs hlut-
að þú hyggst fást við þessar
bragfræðilegu rannsóknir?
— Ástæðan fyrir því er sú,
að fyrir rúmum tveimur árum
vann ég að ritgerð um lengd
sérhljóða í norrænum málum og
þróun hennar frá forsögulegum
tíma fram á okkar daga. Svo
sem ég gat um, er fomkveðskap
ur helzta heimildin um nærfellt
þriggja alda tímabil í þessari þró
unarsögu. Við þessa athugun
kom fljótlega í Ijós, að ýmsar
hefðbundnar bragfræðikenning-
ar koma hvergi nærri nógu vel
heim og saman við aðra vitn-
eskju um hljóðlengd í þessum mál
um á ýmsum tímum. Ýmis helztu
vandamálin í sambandi við þró-
un hljóðlengdar í norrænum mál
um skýrðust að verulegu marki
við þessa athugun, og birtist
grein um hana í Danmörku á
næstunni. En til þess að þessu
efni verði gerð fullnaðarskil,
verður að taka til endurskoðun
ar ýmsa þætti hinna bragfræði-
legu kenninga og reyna að sam-
ræma þær þeim upplýsingum um
hljóðlengd í norrænum málum,
sem aðrar heimildir veita. Byrj
unarathuganir mínar á því efni
strönduðu hins vegar á því, að
efniviðurinn sjálfur lá ekki fyr-
•ir í aðgengilegri mynd, og því
er ég nú að láta vinna þessa
seðlaskrá, sem við áður töluðum
um.
— Hvað svo með útgáfúna á
Fyrstu málfræðiritgerð Snorra-
Eddu?
Verkefnið er að gefa út
Dr. Hreinn Benediktsson.
texta þessarar ritgerðar og gera
ýmsar rannsóknir á henni.
Franuhald á bls. 24
ritaðar heimildir, og er fom ís-
lenzkur kveðskapur þannig að
heita má eina beina heimildin
um íslenzkt mál og sögu þess í
nærfellt þrjár aldir.
Forn íslenzkur kveðskapur
skiptist í tvo höfuðflokka, eins
og kunnugt er: Eddukvæði og
dróttkvæði. Á undanfömum ára-
tugum hafa verið gei'ðar víðtæk
ar rannsóknir á bragfræði Eddu
kvæða, og má í því sambandi
nefna þýzka fræðimanninn And
reas Heusler, sem fékkst mikið
við rannsóknir á fornum germ-
önskum kveðskap og þá um leið
bragfræði Eddukvæða. Hins veg
ar hafa ekki um langt skeið ver-
ið gerðar neinar yfirgripsmiklar
rannsóknir á bragfræði dxótt-
kvæða. Eina heildarrannsóknin
sem segja má, að gerð hafi verið,
var verk þýzka fræðimannsins
Sievers seint á 19. öld. En á þeim
tíma lá ekki fyrir nein heildar-
útgáfa á dróttkvæðum, og varð
Sievers því að styðjast eingöngu
við dæmi, sem þá voru honum til
tæk úr útgáfum einstakra verka,
sem kvæðin eru varðveitt í. Það
er svo ekki fyrr en í byrjun
þessarar aldar, að Finniur Jóns-
son gefur út heildarútgáfu sína
á dróttkvæðum: Den norsk- is-
landske skjaldedigtning (1912-
15). En síðan verður tæpast sagt,
að nokkur heildarrannsókn hafi
verið gerð á þessu efni, þó að
ýmsar merkar athuganir hafi
verið gerðar á einstökum þátt-
um þess.
Af tveimur framangreindum
höfuðflokkum forns íslenzks
kveðskapar eru dróttkvæðin að
ýmsu leyti merkasti hlutinn sem
málheimild, einkum að því er
varðar hljóðkerfi íslenzkrar
tungu og þróun þess. Yfirgnæf-
andi meirihluti þeirra var ortur
undir dróttkvæðum hætti, sem
var, eins og kunnugt er, tiltölu-
lega reglubundinn og strangur
bragarháttur, miklum mun strang
ari t.d. en bragarhættir Eddu-
kvæða, og því er af honum hægt
að draga nánari ályktanir um
notkun íslenzks máls á þessum
tíma en af frjálsari bragarhátt-
um, eins t.d. Eddukvæðin voru
ort undir. Af þessu leiðir, að
forsenda þess, að hægt sé að
nota dróttkvæðin sem heimild
um íslenzkt mál, er sú, að á und
an málfræðirannsóknum á kvæð-
unum eða samfara þeim, fari
fram ítarleg könnun á bragfræði
verks þeirra.
önnur verkefni, sem mér
finnst eðlilegt, að yrðu unnin í
framhaldi af þessu, eru: Athiug-
un á uppbyggingu hendinga,
bæði aðal- og skothendinga,
ásamt skrám yfir orð, sem ríma
saman í hendingum. Slíkar at-
huganir komast næst því að veita
sams konar mállegar upplýsing-
ar og athugun á stafsetningu
handrita gerir, og myndu skrár
af þessu tagi því nánast svara
til heildarorðasafna yfir ein-
stök handrit. í öðru lagi: athug-
un á ljóðstafasetningu og þró-
un hennar, t.d. á því, hvað ligg-
ur að baki þeirrar reglu Snorra,
að bezt fari á, að Ijóðstafasér-
hljóð séu ólík, en ljóðstafasam-
hljóð söm, svo dæmi sé tekið.
Loks má segja,, að þessar at-
huganir séu forsenda þess, að
unnt verði að gera rækilega
könnun á máifræði dróttkvæð-
anna.
— Hver eru tildrögin að því,
Mest seldu
fólksbíladekkin
Þessa heimsþekktu gæðavöru
fáið þér hjá okkur.
Sendum gegn póstkröfu um
land allt.
Viðgerðarverkstæði vort er opið
alla daga kl. 7.30 til 22.00.
Önnumst alls konar hjólbarða-
viðgerðir — Sjóðum í hjólbarða
— Skerum munstur í hjólbarða
— Höfum sérstaka vél til að
skrúfa hjól undan langferða og
vörubílum.
Gúmmívinnustofan h.f.
Skipholti 35. — Reykjavík — Sími 31055.
HAFIMFIRÐINGAR
Opnum í dag nýja tóbaksbúð að Strandgötu 1
Eitt mesta úrval af tóbaksvörum og öðrum vörum
fyrir reykiugamenn sem hægt er að fá á sama stað.
Glæsilegt úrval af herrasnyrtivörum.
SÆLGÆTI — GOSDRYKKIR — ÖL
Tóbaksbúðin TINNA
STRANDGÖTU 1 HAFNARFIRÐI.
OPIÐ FRÁ KL. 8 F.H. TIL 11,30 E.H.
I