Morgunblaðið - 22.09.1968, Blaðsíða 1
32 SIÐUR OG LESBOK
Kúbumenn skila
stolnu flugvélinni
— Farþegarnir eftir í Havana
' SMÍÐI „Queen Elizabeth 11“ I
‘ er Iangl; komið, og siglir skip-1
| ið fyrstu Atlantshafsferð sína/
í í janúar. Á skipinu verðurr
’ 906 manna áhöfn, 300 mönn-1
' um færri en á fyrri drottn-1
| ingarskipum Cunard-skipafé-1
i lagsins, en það getur flutt*
[ jafnmarga farþega, 2.000.
* Skipið er smíðað í Clydeskipa |
1 smíðastöðvunum í Glasgow.
Þrjdtíu fumst í
júrnbruuturslysi
Djakarta, 21. september. NTB.
ÞKJÁTÍU manns biðu bana og
rúmlega 150 slösuðust þegar
tvær járnbrautarlestir rákust á
skammt frá Djakarta í gær-
kvöld, að því er skýrt var frá
í dag. Líðan 50 þeirra sem slös-
uðust er sögð alvarleg. Margir
vagnar fóru út af sporinu við
áreksturinn, og farþegarnir í
fremsta vagninum lokuðust inni.
Margir þeirra sem fórust og særð
ust voru hermenn og stúdentar.
Ekki er vitað um orsök slyssins.
Líðun Suluzurs
ðbreytt í gær
Lissabon, 21. september.
NTB-AP.
Engin breyting hefur orðið á
líðan dr. Antonio Oliveira Sal-
azars forsætisráðherra, en orð-
rómur er á kreiki um að honum
hafi hrakað.
Þessi orðrómur komst á kreik
þegar líflæknir Salazars, Anton-
io Vasconcelas Marques, ók á
ofsahraða til sjúkrahússins í nótt
en þegar hann fór aítur frá
sjúkrahúsinu sagði hann að eng
in breyting hefði orðið á líðan
sjúklingsins.
Miami, 21. september. NTB.
YFIRVÖLD á Kúbu skiluðu í
nótt flugvélinni frá Eastern Air-
lines, er rænt var á leið frá San
Juan á Puerto Rico til Miami,
og kom flugvélin í morgun til
upphaflega ákvörðunarstaðar en
án farþeganna, sem voru 46 tals-
ins. Sjö manna áhöfn flugvélar-
innar var leyft að fljúga til
Miami, en eins og oft áður þegar
flugvélum hefur verið rænt og
flogið til Kúbu, er farþegunum
haldið eftir um óákveðinn tíma.
Venjulega afsaka kúbönsk
Leiötogar Tékkóslóvakíu fara
senn til nýrra viöræöna í Moskvu
— Talið að þeir muni krefjast að byrjað
verði á brottflutningi hernámsliðsins
PRAG, 21. sept. - AP - NTB.
Ludvik Svoboda, forseta Tékkó
slóvakíu og Alexander Dubcek
leiðtoga kommúnistaflokks-
ins ásamt fleirum helztu leiðtog-
um landsins var fagnað ákaft
á götum Brno á föstudag, er þeir
komu þangað á alþjóðavörusýn-
ingu þá, sem nú stendur þar
yfir. Þúsundir manna fögnuðu
þeim þar eins og í Ostrava, en
þangað komu þeir í morgun.
Ostrava er helzta borgin á kola-
og járniðnaðarsvæðinu í þeim
hluta Slésíu, sem Tékkóslóvakía
ræður yfir. Talið er, að tékkó-
slóvakísku leiðtogarnir hafi far-
ið í ferðalag til þessara staða í
þvi skynj að sýna Rússum fram
á þann stuðning og samstöðu,
sem þeir njóti á meðal þjóðar-
innar, áður en til nýrra við-
ræðna, sem á döfinni eru, kemur
í Moskvu.
Þessar viðræður áttu að hefj-
ast nú um helgina, en þeim hefur
verið frestað. Er haft eftir áreið-
anlegum heimildum, að Duhœk
muni fara ásamt nefnd fulltrúa
úr kommúnistaflokknum og rík-
isstjóm til Moskvu annað hvort
á mánudag eða þriðjudag og þá
fara þess á leit, að Sovétríkin
byrji brottflutning á þeim yfir
500.000 hermönnum, sem hex-
námu Tékkóslóvakíu fyrir mán-
uði.
Pravda, málgaign sovézka
kommúnistaflokksins, bar í dag
fram þær ásakanir á hendur
æskulýðshreyfingunni í Slóvak-
íu, að hún eitraði hugi æskufólks
með lygum og rógburði, sem
beint væri gegn Sovétríkjunum.
Samtímis heldur blaðið því
fram, að ritari æskulýðshreyf-
ingar Slóvakíu, B. Borolavtsjak,
loki augunum fyrir hættunni á
gagnbyltingu í Tékkóslóvakíu.
Skrifar fréttaritari blaðsins, að
margir ungir Ték'kóslóvakar, sem
hann hafi hitt, hafi enga raun-
verulega þekkingu á grundvall-
arreglum sósíalismans.
yfirvöld sííka kyrrsetningu með
því, að flugskiilyrði leyfi ekki
að flugvélar fari frá Havana
fullskipaðar farþegum, og venju-
lega hafa flugfélög neyðzt til að
senda aðrar flugvélar tiil þess að
sækja farþegana. Talsmenn
Eastern Airiines telja, að sami
háttur verði hafður á að þessu
sinni og hefur flugvélar til taiks
til þess að fljúga til Havana.
Flugfélagið gerir ekki ráð fyrir .
að erfitt muni reynast að fá far-
þegana framselda, en venjulega
fá þeir góðan aðbúnað á flug-
vellinum meðan þeir bíða þess
að verða sóttir, að því er sagt
er í Haivana.
Liðsauki
til Sabah
Kuala Lumpur, 21. sept. AP.
MALASÍUMENN sendu í dag
liðsauka til Bomeó-héraðsins
Sabah vegna tilkalls þess sem
Filippseyingar hafa gert til hér-
aðsins. Hert hefur verið á
öryggisráðstöfunum í héraðinu á
undanförnum mánuðum þar sem
Fillippseyingar hafa komið upp
búðum fyrir sérþjálfaða her-
Framh. á bls. 31
Búizt við að Zonda 5 myndi
lenda í gærdag
Greinileg merki bárust frá geimfarinu
Jodreli Bank og Mosikvu,
21. september. AP—NTB.
VÍSINDAMENN í Jodrell Bank
athugunrstöðinni í Bretlandi
urðu varir við greinileg merki
frá sovézka tunglfarinu Zond 5
í dag og gaf það til kynna, að
geimfarið væri á leið tl jarðar.
Sagði Sir Bernard Lovell, yfir-
maður athugunarstöðvarinnar,
að sovézkir vísindamenn myndu
reyna að láta geimfarið lenda
mjúkri lendingu í dag. Hraði
þess á leið til jarðar var áætl-
aður um 40.000 km. á klukku-
stund.
Gera má ráð fyrir, a<5 silíkur
hraði kurani að valda talsverðum
hemlunarörðugdeiikum og öðrum
Misklíð Júgóslava og
Rússa magnast enn
Belgrad, 21. september NTB.
Spennan í sambúð Júgóslavíu
og Sovétríkjanaa hélt áfram að
aukast í dag þegar aðalmálgagn
júgóslavneska kommúnistaflokks
ins, Borba, veittist harðlega að
Rússum fyrir herferð þeirra
gegn Titó forseta. Jafnframt í-
trekaði Borba algeran stuðning
Júgóslava við Tékkóslóvakíu og
baráttu þeirra fyrir varðveizlu
þjóðlegs sjálfstæðis.
f forystugrein í Borba segir,
að Rússar, hafi augsýnilega séð
sig tilneydda að gagnrýna allt
það sem Júgóslavar berðust fyr
ir í alþjóðamálum — friðsamlega
sambúð, hlutleysi og alþjóðasam
vinnu — þar sem Tito forseti
hefði ótvírætt lýst yfir stuðn-
ingi sínum við verkalýðsstétt,
kommúnistaflokk og löglega
kosna leiðtoga Tékkóslóvakíu.
„Líkist kennslu í matargerð"
f ræðu sem júgóslavneski
kommúnistaleiðtoginn Veljko VI
hovic, hélt í borginni Nis í Aust
Framhald á bls. 31
erfiðleikum, er geimfarið kemur
inn í lofthjúp jarðar. Lovell
isagði, að hraði geimfarsiins væri
tvisvar sinnum sá hraði, sem
verið hefði á mönnuðum geim-
förum, er þau hefðu lent.
Sovézkir vísindamenin skýrðu
frá því á föstudaig, að geimfarið
hefði farið í innan við 2000 km.
fjarlægð frá tunglinu. Áður
'höfðu þeir neitað því, að það
hetfði átt sér stað, eins og Lovell
héit fram.
Lovell skýrði fréttamönnum
frá því, að tækist að ná geim-
farinu til jarðar aftur, þá myndu
Rús'ser eignast fyrstu kvikmynd
ina, sem tekin er tiltölulega ná-
læg-t yfirborði tung'lsins. Sagði
hann ennfremur, að það myndi
óhjákvæmilega verða meira
virði en sjónvarpsmyndir, sem
sendar hafa verið til jarðar í
fyrri tilraunum. Tækist að ná
geimfarinu aftur, myndi það
verða mikilvægt skref fyrir So-
vétríkin í átt til þess að senda
mann til tunglsins.
í AP-frétt er haft eftir Lovelil,
að hann hafi fengið símhring-
iingu frá sovézku fréttastofunmi
TASS í morgun, þar sem hann
var spurður að því, hvernig so-
vézka geimfarinu gengi? — Ég
sagði þeim, að geimfarið þeirra
Framh. á bls. 31
Sovézkar flug-
vélar njósna
um flotaæfingar IXIATO
London, 21. september AP.
SOVÉZKI herinn hefur aukið
njósnaaðgerðir sínar gegn flota-
æfingum Atlantshafsbandalags-
ins, sem nú fara fram á Norður-
Atlantshafi. Kemur þetta fram í
yfirlýsingu, sem gefin var út af
hálfu NATO í dag.
Flotaæfingum þessum, en þær
bera mafnið Silfurturninn, er
ætlað að reyna viðbraigðsgetu
NATO, ef tilraun er gerð til hern
aðarlegra og stjórnmálalegra að-’
gerða gegn þeim meðlimaríkjum
bandalagsins, sem norðarlega
eru.
í yfirlýsingu frá upplýsinga-
skrifstofu yfinstjórnar flotans í
London segir, að sovézkar njósna
þotur hefðu fylgzt með flotaæf-
inigunum í fyrsta sinn á föstudag.
Áður hafði sovézkur togari fylgt
skipunum eftir í fimm daga á æf-
ingum þeirra.
«