Morgunblaðið - 22.09.1968, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.09.1968, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1968 I gær og í dag — Ljóðabók eftir Þórhildi Sveinsdóttur NÝLEGA er komin út ljóða- bók er heitir „í gær og í dag.“ Höfundur hennar er Þórhildur Sveinsdóttir húnvezk að ætt og uppruna Mér fannst strax, er ég leit bókina að hún bera með sér einhvern listrænan þokka bæði hvað nafn og útlit snerti, og það álit mitt styrktist við að kynnast innihaldi hennar, það er eitthvað notalega hlýtt og fágað við flest kvæðin. Bókin lætur að vísu ekki mik fð yfir sér, en við lestur kvæð- anna færist einkennileg vellíð- an yfir mann, sem einungis gjör ir vart við sig, við lestur góðra bóka. Ljóðin eru 97, og fjalla um allt milli himins og jarðar. Þarna er t.d. að finna mörg ætt jarðarljóð og virðist mér skáld- konan bera mjög gott skyn á feg urð íslenzkra sveita. Mér hlýnaði um hjartarætuxn ar er ég las: ,,Óður til Skaga- fjarðar", enda er ég gamall Skagfirðingur Mér fannst kvæð ið koma syngjandi til mín eins og gamall kunningi. Á einum stað í kvæðinu fer hún þess- um orðum. „Á tjörnum fannhvítir svan- ir sungu en sólin logaði um óttu bil, og margir fóru þá seint að sofa þeir sáu ei daga og næturskil". Þá hefur kvæðið Dásamlega Dalabyggð, hlotið verðugt lof, því það mun nú strax vera orð- inn kjörsöngur Dalamanna. Hug- þekkt finnst mér kvæðið um „Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna." Þar segir skáld- konan meðal annars. .JKambanna hljóð ég mam, kátlegan snælduþyt, háværa hesputréð, höföld er þræddu glit. Róandi rokkhljóð raulaði kvöldin löng, Þórhildur Sveinsdóttir. meðan náfrétt napra norðanátt sömg“. Kvæðið er allt ágæt þjóðlifs- lýsing sem endar með því, að „stórhyrna garnla" stekkur yfir tungarðinn, því henni þykir töðuilmurinn góður.“ Það er ekki ætlan mín að fara hér mörgum orðum um hvert kvæði fyrir sig, eða leggja dóm á þau, það læt ég væntanlegum lesendum eftir, en þó get ég ekki stillt mig um að benda hér á nokkur sem mér virðast bera af og vera með bestu ljóðum bókarinnar, eins og kvæðið: „Út laginn“ „Krækilöpp", ,,Vogrek“ og „Hin litlu spor“ Oll þessi ljóð eiga það sameiginlegt, að í þeim finnum við glöggt samúð- ina, sem skáldkonan hefur með öllu og öllum sem misgengizt hafa og útundan orðið á leik- sviði lífsins. Hún endar kvæðið „Krækilöpp" á þennan fallega hátt: „Því meinvættið stærsta er myrkrið í sál er mennirnir hlúa að, Þeir eiga sér drauga um and- vökunótt og angistin vitnar um það. Ó bjóð þú ljósinu í bæinn þimn og búðu því sama stað.“ Smá prentvillur munu hafa læðzt inn í bókina, en hvergi áberandi. Ég óska höfundi til hamingju með þessa fyrstu bók sína, og það er álit mitt, að hún hafi farið vel á stað. ‘Sigríður Björnsdóttir. Þýzkunámsbók dr. Jóns Gíslasonar f endurskoðaðri og myndskreyttri útgáfu Útför mannsins míns og föður Jóns Guðmundssonar er lézt 1 Landspítalanum 16. þ.m. fer fram frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 24. sept. kl. 1,30 e.h. Þeir sem vildu minnast hins látna láti líkn- arstofnanir njóta þess. Matthildur Kristófersdóttlr Matthea Jónsdóttir. Útför eiginkonu minnar, móður og ömmu Asthildar Vilhelmínu Guðmundsdóttur Háteig 3, Akranesi, fer fram 23. þ.m. kl. 2 e.h. frá heimili hennar. Blóm og kransar afbeðnir. Þeir sem vildu minnast henn- ar er bent á Sjúkrahús Akra- ness. Bjarni Kristmannsson börn og barnaböm. ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA gef -ur að vanda út ýmsar nýjar kennslubækur í haust. Ein þess- ara bóka er Þýzkunámsbók dr. Jóns Gíslasonar, sem væntanleg er á markaðinn undir mánaða- mótin næstu I endurskoðaðri og myndskreyttri útgáfu. Mestar breytingar hafa verið gerðar á lesköflunum, sagði dr. Jón, er blaðið átti tal við hann. Hafa ýmsir kaflar eldri útgáf- unnar verið felldir niður, en mikið af nýju lestrarefni verið tekið inn í staðinn. Nýju kaflam ir flytja á léttu og lipru nútíma- máli ýmsan gagnlegan fróðleik um land og þjóð á líðandi stund. Má óhikað fu'llyrða, að þeir, sem tileinka sér orðaforða og annað efni þessarar bókar, muni eiga tiltölulega auðvelt með að afla sér frekari þekkingar á þýzkri tungu. Þá skal getið einnar höfuð- prýði þessarar útgáfu bókarinn- ar, myndanna, sagði dr. Jón. Er það kunnara en frá þurfi að segja, að á síðari tímum hefur í tungumálanámi, einkum byrj- enda, verið reynt að tengja sam- an í eina samverkandi heild hið prentaða orð og myndir. Halldór Pétursson, listmálari, hefur lagt til myndirnar í þessa bók og leyst það verkefni snilldarlega af hendi. Með fremstu köflunum eru ein faldar myndir af hlutum, sem um getur í textanum, þannig að nem andinn sér samtímis hluitinn og Innilegar þakkir til barna og tengdabama okkar og allra þeirra, sem glöddu okkur á ýmsan hátt á gullbrúðkaups- degi okkar 15. sept. síðastl. og gerðu okkur daginn 6- gleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Margrét Sigmundsdóttir og Finnbogi Sigurðsson, Boiungarvík. ^3>SKÁLINN Bilar of öllum gerðum til sýnis og sölu ( glæsilegum sýningarskólo okkar oð Suðurlandsbraut 2 (við Hallormúlo). Gerið góð bílakaup — Hagstæð greiðslukjör —• Bílaskipti. Tökum vel með forna bíla ( um- boðssölu. Innanhúss eða utan. MEST ÚRVAL—MESTIR MÖGULEIKAR Þökkum meðlimum Fíla- delfíusafnaðarins, vinum og vandamönnum hlýhug og vináttu við andlát og jarðar- för Margrétar Gísladóttur. Jón Jóhannsson og aðstandendur. m> KOHI5TJANS50N H.F. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Pil jP hið þýzka nafn á honum. Síðar koma bráðskemmtilegar myndir af ýmsum atvikum, sem fyrir koma í sögum og skrítlum bók- arinnar. En þessum myndum er ætlað annað og meira hlutverk en að- eins að prýða bókina og skemmta nemendum — þótt það sé líka mikilvægt. Þær eru jafnframt á- kjósanlegt efni til að koma af stað samtölum milli nemenda og kennara — auðvitað á þýzku — um söguna eða skrííluna, sejn verið er að lesa. Einnig eru í bók inni allmargar ágætar ljósmyndir af ýmsum þekktum stöðum og landslagi í Þýzkalandi. Stefán Már Ingólfsson, þýzku- kennari við Verzlunarskólann hefur aðstoðað dr. Jón Gíslason við endurskoðun bókarinnar Og prófarkalestur. ÉG er ósköp venjulegur maður og hef engar sérstakar gáfur. Hvað getur Kristur gert fyrir mig? ÞJÓNUSTA Krists á jörðunni beindist að mestu leyti að venjulegu fólki. Bíblían segir: „Alþýða manna hlýddi fúslega á hann“ (Mark. 12,37, ensk þýð.)Hann hlýtur að hafa sagt við það uppörvandi orð, annars hefði það ekki hlustað fúslega á hann. Hvaða orði beindi hann til þeirra? Hann bauð þeim fyrirgefningu. Okkur segir öllum svo hugur, að við séum sek, því að „allir hafa syndgað". Ekkert sviptir manninn eins lífsgleði og sek samvizka. Enginn getur orðið reglulega hamingjusamur, fyrr en þessi byrði syndarinnar er burt numin. Kristur býður mönnum fyrigefningu syndanna. Því næst bauð hann frið í hjarta. Hann lætur okkur ekki eftir tómleika í hjarta. Hann sagði: „Minn frið gef ég yður“. Hann getur gert okkur friðflytjendur og sátt við okkur sjálf. Hann leysir þann vanda, sem veldur átökum í huga okkar og hjarta. Þá gefur hann lífi okkar tilgang. Hann leggur merk- ingu og þunga í lífið. Hann tekur lífsleiða í burtu og löngun til þess, sem veitir aðeins sýndargleði. Þess í stað veitir hann okkur gleði og ró. Loks hefur hann okkur upp yfir okkur sjálf, eigin- gimi okkar, og hjálpar okkur til að hjálpa öðrum. Hann getur gert allt þetta fyrir venjulegan mann eins og yður, því að hann hefur gert það fyrir mig. 10 ARA ABYRGÐ TVÖFALT EINANGRUNAR nsla hérlendis SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON «CO HF f 10 ÁRA ÁBYRCÐ Skólapennar Rainbow lindarpennar kr. 75.00 .■iiomimiNiinmi aNHHMtÚ............ aiHMMIIUll JHIIMIIIIIIII) flHHHHIIIIim IHMHHIHIIIII] HIIHIHIIIIIIHl IM111111111111111 MHHHHHHH IIIIIHHM. IIIIIHHIHH. IIHIHIIUHH, HHIIIHHHHH lllHllHIIHHIH IIIHIHIHHHIH •HMMHMHMH IIHIIHHMIIIII .........| ^_IHHHMHHH* ‘MHtHiUntð'SHHuHHHHHHHlHlllllltl^g ^HhHUHIIHH* ‘MM4HUHWIINVNIS<lHIIMiliMHiiiiHIHIliaAiiailllHHHH* ....'HMMHHHHMHIHHMIHMMMHmiHIIIIIIHHMH II M H (1 fl I fl SUÐURLANDSBRAUT 2, VIÐ HALLARMULA U líl D U 9 I II S(MAR 3S300 (35301 _ 35302). AUGLYSINGAR 5ÍMI SS*4«8Q

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.