Morgunblaðið - 22.09.1968, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.09.1968, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1968 af nærfærna og lifandi mynd af plágunni Gilmore og Oliver veltist um af hlátri. En það var eins og þetta orkaði ekki neitt á Graham. — Og finnst yður líka þessi kona vera svona afskapleg? spurði hann Jill, þegar Sandra sneri sér að sælgætisfatinu, sem dökki þjónninn var að bjóða henni. — Nei, ekkert sérstaklega. Hún er vitanlega að gegna skyldu sinni. Það er hennar starf að líta eftir okkur. — Haldið þér þá, að þér ílend ist hérna? Kunnið þér vel við vinnuna? Jill fannst rétt eins og hann hefði enn einhverja von um að ráða hana fyrir eldabusku. Hun svaraði lágt: — Ennþá líkar mér allt vel. Mér finnst Beirut töfr- andi staður, með öll þessi blóm og kaktusa og fiðrildi. Svei mér ef ég sá ekki tíu Rauð Aðmírála á akasíutré fyrir utan skrif- stofugluggann í morgun. Tíu! Og sman! Ég taldi þá til þess að vera aldeg viss! Graham leit fast á hana. —Ef þér eruð svona góð að þekkja fiðrildi, eruð þér ekki borgar- barn, dettur mér í hug, sagði hann. — Það er ég heldur ekki, sagði Jill. Ég ólst upp á bónda- bæ í Lincolnshire. Og ég var vön að fást við garðyrkjuna, af því að mamma var ekki vel hraust. Hún þagnaði snögglega, Það var eins gott að fara ekk- ert að tala um gamla daga. En þá tók hún eftir því, að Graham Duncan var farinn að brosa að henni. — Ég er sjálf- ur sveitadrengur, sagði hann. Ég á heima í Fife. Það er mesti fjárbúskapur en líka dálítil ak uryrkja. En þér verðið að fara varlega. Sjávargolan hér getur stundum verið skaðleg. Þann- ig talaði hann áfram og nú var honum orðið liðugt um mál. Jill fannst hann orðinn allt öðru- vísi og brátt fékk hún svarið við spurningunni, sem hún hafði ver ið að velta fyrir sér. — Ég veit, að ég er býsna ófróð um þessa hluti, sagði hún, — og mér þætti vænt um ef þér gætuð frætt mig betur um þá. Hvað er eiginlega þessi Fallowman-leið angur? — Það var gott, að þér skyld- uð spyrja að því, svaraði Grah- am. — Mér hefur fundizt þér væruð í einhverri óvissu um það. Henni Söndru þarna finnst líklegast, að þetta sé einhver skemmtiferð út í eyðimörkina. Hann leit yfir til hinna, en Sandra virtist niðursokkin í sam tal við Oliver, og ekki hafa heyrt þegar nafn hennar var nefnt. Graham hélt áfram: — En ef hún hefði einhverntíma komið þangað, þá mundi hún vita, að eyðimörkin er ekki beinlínis neinn leikvangur, og verður ekki tekin nema alvarlega. Hann sagði henni þvínæst frá þessu fyrirtæki, sem var kostað af auðugu verksmiðjufélagi, með aðstoð hins opinbera. Fallowman sjálfur var félagi í konunglega vísindafélaginu og heimsþekktur vísindamaður. Fyrsti og fremsti tilgangurinn með leiðangrinum var að rannsaka námuauðgi fjar lægs svæðis, sem kallað var Khal ida, með tilliti til málmnáms eað olíu. — Þetta er einkennilegur stað ur Jill. Mest sandur. Þarna eru smábyggðir en engin akuryrkja möguleg, svo að fólk hefur sjaldn ast ofan í sig, utan borganna. Þær eru þarna nokkrar, en við mundum nú varla kalla þær borg ir. Ef við skyldum finna olíu eða silfur, fá höfðingjarnir á hin um ýmsu stöðum sinn hluta þess greiddan í peningum og öll lífs- skilyrði fólksins gætu stórbatnað Jill reyndi að hugsa sér lands lag, sem væri ekkert nema sand ur. — Er það flatt? spurði hún. — Svona rétt eins og fjörusand ur? Graham hristi höuðið. Það eru bæði hæðir og dalir í sandauðn inni. Sumstaðar sandsteinn — stórir klettar með hellum í. Og þar verðum við að grafa. Tveir af mönnum okkar. Hammond Barker og Davíð Game, eru jarðfræðingar með mikla reynslu af svona stöðum. En ungfrú Cat- er fæst eingöngu við fornleifa- rannsóknir. Því að þarna eru einhverjar leifar af gamalli mannabyggð. Sýnilega hefir land ið verið byggt einhverntíma aft- GETIÐ ÞÉR GERT BETRI INNKAUP? Aðeins kr. 14,50 í smásölu KAUPMENN - KAUPFÉLÖG - RAFVIRKJAR Við bjóðum yður norsku neOex ljósaperurnar, sem endast 2 sinnperur (2.500 klst.) (2.500 klst.). Norsku NELEX ljósaperuverksmiðjumar hafa framleitt ljósa- perur síðan 1916 og hafa nú hafið útflutning til íslands. Hafið þið ekki orðið varir við að fólk kvartar undan því að ljósaperurnar endist stutt? — NELEX perurnar endast yfir 2500 klukku- stundir við eðlilegar aðstæður. Athugið: Noregur er eina landið í Evrópu þar sem landslög mæla svo fyrir að ljósaperur verði að endast að meðaltali meir en 2500 klukkustundir. Bjóðið viðskiptavinum yðar einnig það bezta — bjóðið þeim NELEX — 2500 klukkustunda lýsing. Heild söl ubir gðir: Einar Farestveit & Co. h.f., Bergstaðastræti 10 A Sími 21565. — Nei, mamma, komdu og sjáðu pabba í sjónvarpinu. ur í grárri forneskju. Jill hlustaSi á þetta allt stór- hrifin. — Hver er þessi ungfrú Cater? sagði hún. — Jú, annars Nú man ég, að þú sagðir mér, að hún væri systir frú Fallowman. — Stendur heima. Enid Cater. Lagleg kona og bráðvel gefin. Og íþróttakona í þokkabót. Þú ættir bara að sjá hana taka þátt í úlfaldakappreið. — Þið ríðið þá úlföldum? sagði Jill. — Það verður maður að gera sumstaðar í eyðimörkinni. Ann- arskonar flutningur kemur ekki til greina. En þetta venst fljótt. í stóru aðalstöðinni höfum við líka hesta. Og svo vörubíla. — Er það þar, sem þið hafið eldhús? spurði Jill. — Já, þar er allur útbúnaður inn okkar. Við tökum með okkur nesti, hver fyrir sig eftir þörf- um. En í stöðinni er allur ný- tízku útbúnaður. Við höfum raf- magn og ferskvatnsbirgðir og færanlega kofa, sem eru mjög þægilegir. Svo að ef þú ert eitt- hvað að hugsa um. . . — Nei, ekki er það nú, er ég hrædd um. Ég er á samningi hjá olíufélaginu, eins og ég hef sagt þér. — Það er nú verst fyrir okk- ur, því að annars var ég að vona, að ég gæti talið þig á að koma með okkur ef þú værir laus. En skilst mér það rétt, að þú sért dálítið hrifin af svona starfi, eins og við erum að vinna að? Það, sem ég hef verið að segja þér af því, virðist vekja einhvern áhuga hjá þér. — Já, mér finnst það töfrandi Öll gamla Arabía eins og þú sagðir. Ég ætla að ná mér í bæk ur um sögu Sýrlands og Jordan Glæsileg 4ra herb. endoíbúð á 6. hæð við Ljósheima. 5 herb. íbúð við Bergstaðastræti. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Báðar íbúðirnar lausar nú þegar. Upplýsingar gefur Gunnlaugur Þórðarson í síma 16410. 2? SEPTEMBER Hrúturinn, 21 marz — 19 apríl. Farðu þér hægt. Þú hittir mislita sauði. Gerðu ráð fyrir ýmsu cvæntu. Nautið, 20. apríl — 20. maí. Þú hefur minna þrek en fyrr. ýmsar gátur verða lagðar fyrir þig. Seinna mun þér verða ljóst, að þú hefur breytt um stefnu í lífsstarfi. Tvíburartiii, 21. maí — 20. júní. Straumhvörf verða í líif yngra fólks. Gerðu þitt til að það verði fyrir beztu. Smá fjárfesting verður seinna afar arðsöm. Krabbinn, 21. júní — 21. júlí. Miklar breytingar heima fyrir. ýmislegt óvænt kemur fyrir, reyndu að vera á undan. Hugsaðu ráð þitt vandlega. Ljónið, 23. júlí — 22.ágúst. Þú færð óvæntar fréttir frá ættingjum og vinum og verður margs vísari Meyjan 23. ágúst — 22. sept. Þú ert eitthvað þvingaður. Hugsaðu þig vel um og breyttu um stefnu, ef með þarf Vogin, 23. sept. — 22 okt Fylgzt er með flestu, sem þú gerir Vertu mjög háttbundinn, og þá hefur þú frjálsari hendur. Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv. Tími er kominn til að kanna jarðveginn meðal vina og ættingja Einhverjir hverfa, að þvi er virðist úr tilveru þinni. Vertu kurteis. Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des Vertu við ýmsu búinn Láttu ekki taugarnar spilla fyrir þér. Farðu varlega i uinferð. Steingeitin, 22. des. — 19. jan. Þér er ráðlagt að fara i kirkju. Fólk virðist óvenju hlédrægt. Sláðu ferðalögum á frest Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr. Fjármál kunna að Skapa erfiðleika. Farðu varlega með raf- knúin tæki Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz. Heimurinn virðist gjörbreyttur Furðulegar kringumstæður valda þér áhyggjum. Slys geta alls staðar skeð, hvort sem þau stafa af strákskap eða mannvonzku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.