Morgunblaðið - 22.09.1968, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.09.1968, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1968 Vaktmaður Vaktmaður óskast til að gæta iðnaðarhverfis hér í borg. Maður sem ætti varðhund gengi fyrir starfinu. Umsóknir sendist til Morgunblaðsins merktar: „Næturvakt — 2308“. FÍFA auglýsir Mjög ódýrar úlpur, peysur, raolskinnsbuxur, terylenebuxur, einnig eru komnar hinar eftirspurðu ódýru japönsku stretchbuxur, einnig regnkápur og regnúlpur. Munið okkar lága verð. Verzlunin FÍFA, Laugavegi 99. ÓLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM: KVIKMYNDIR AU STURBÆ J ARBÍÓ DAISY CLOVER (Inside Daisy Clover) Kæra Öskubuska. Nú er orðið nokkuð langt lið- ið síðan ég sá þig á ferð í kvik- myndahúsi, og man ég ekki í fljótu bragði í hvaða gerfi þú varst þá. Ég hef svolitlar áhyggjur af þinni framtíð, eftir að hafa séð Verksmiðjuatvinna Stúlkur vanar verksmiðjuvinnu óskast í eftirfarandi störf: LÍFSTYKKJAVÖRUSAUM BUXNASAUM FATAPRESSUN Upplýsingar hjá verkstjórum (ekki í síma). VERKSMIÐJAN DÚKUR H.F. Skeifan 13 (Iðngörðum). 1 | l ; i * þessa mynd, sem bendir greini- lega til að þú hafir lent í vond um félagsskap. Leiðin frá tötr- um til auðs, eftir framaleiðum Hollywood, hefur venjulega ekki verið þér nákominn, en hér er ekki um að villast. Þetta er sagan þín í einni útgáfunni enn. En hvílík útgáfa. Að Öskubuska eigi illskeytta systur, er ekki nema sj álfsagt og nauðsynlegt, en að hún eigi geð- bilaða móður er ekki venjulegt. Og nú er svo komið að Ösku- buska er farin að reykja fimm- tán ára gömul. Á meðan þú ert ennþá í tötr- unum og nýtur lífsins, fyrstu 40 mínútur myndarinnar, er allt í gengi. En þá kemur fyrsta gus- an af tilfinningasemi, með kæf- andi andrúmsloft. Og ekki bætir úr, að síðan koma satirukaflar og hreinir „slapstick“ kaflar. Og öllu svo blandað inn í furðu- lega einfeldningslegan melo- drama. Var nú nauðsynlegt að nota Christopher Plummer í svona hlutverk. Hann er svo góð- ur leikari, að mann grunar stundum að hann meini þessar furðulegu setningar, sem hann er látinn segja. Það er líka erf- itt að sætta sig við að hann leiki kvikmyndaframleiðanda, þegar Robert Redford á að leika kvikmyndaleikara. Plummer leik ur alla í hel, hvenær sem hann sézt á tjaldinu. Var ekki líka hægt að komast hjá að hafa manngerð eins og eiginkonu framleiðandans (Kath arine Bard) og ef hún þurfti endilega að vera þarna, gat hún þá ekki heitið eitthvað annað en Melora. Önnur eins vinnukonu- melodrama-gervipersóna hefur ekki, sézt í kvikmyndum, síðan Ross Hunter valdi síðast her- bergisþernu til að halda við son Lana Turner, eða eitthvað því líkt. En þú mátt ekki missa alveg hugrekkið, Öskubuska mín. Þó að þú hafir lent í því að giftast kynvillingi, sem stakk af á brúð- kaupsnóttina, hlýtur þú að geta fundið hamingjuna, ef ekki í faðmi miðaldra kvikmyndafram- leiðandans, eins og þú reynir, þá með einhverjum öðrum. Það er heldur ekki allt for- kastanlegt um þessa mynd. Andre Previn sannar enn einu sinni ágæti sitt með tónlistinni. Klæðnaður, senur, bílar o.s.frv. er glæsilegt af bestu Holly- wood rausn. Natalie Wood er tæplega nógu ung til að vera 15 ára. En þó er hún skemmtileg, sem hömlu laus stelpukrakki, en miklu síðri sem kvikmyndastjarna. Kæra Öskubuska. Það hefði bætt þessa mynd til mikilla muna, ef höfundur, leikstjóri og framleiðandi, hefðu komizt að niðurstöðu um hvað þeir voru að gera, áður en þeir byrjuðu. Myndin sem heild er verri en einingarnar í henni, vegna þess að engin heildarstefna er á ferð- inni. Umferðnrljós við slökkvistöðinn EFTIR helgina verða nýju um- ferðarljósin við slökkvistöðina á Reykjanesbraut tekin í notk- un. Verður það gert í samræmi við þar að lútandi greinargerð, sem birt verður í Lögbirtingar- blaðinu í næstu viku. Br þessum ljósum komið upp til að bílar slökkviliðsins verði ekki fyrir neinni hindrun, er þeir þurfa að f-ara í útkall. RITSTJÓRN • PREIMTSMIÐJA AFGREIÐSLA’SKRIFSTOFA SÍMI 10«100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.