Morgunblaðið - 22.09.1968, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1968
13
Kugím
spifr:
Þorir oð trúo d fromhaldslíf
m
DOWDING 'lávarður var yfir-
foringi flughers Breta í seinni
heimsstyrjöldinni. Hann varð
ekki gripinn af því grimmdar-
æði, sem margir hershöfðingjar
voru þá haldnir af, að útrýma
andstæðingunum með öllum ráð-
um. Þvert á móti blöskraði hon-
um að horfa upp á manndrápin,
og hann fór þá að velta fyrir sér
þeirri brennandi spurningu
hvort öllu væri lokið með dauð-
anum, eða hvort aBlir hinir
föllnu ættu lengra líf fyrir hönd
um. Og hann leitaði á fund miðla
til þess að fá þeirri spurnmgu
svarað.
Það vakti almenna undrun, er
hann lýsti opinberlega yfir því,
áður en stríðinu lauk, að hann
hefði fengið óyggjandi sannanir
fyrir því, að maðurinn lifir þótt
hann deyi. En hann lét sér það
ekki nægja, heldur ferðaðist
hann víðsvegar um Bretland vet-
urinn 1944 og flutti fyririestra
um lífið eftir dauðann. Þótti það
viðburður, að maður í 'hans stöðu
skyldi verða málsvari spiritis-
mans.
Hann sagði margar sögur frá
reynslu sinni, og í Cardiff sagði
hann þessa sögu, sem mörgum
þótti merkileg. Hann sagði frá
enskri flugvél, sem skotin hafði
verið niður yfir Berlín. í henni
voru tveir menn, og fórust báðir.
Rétt um það leyti var Dowding
lávarður á miðilsfundi og þar
kemur þá fram annar flugmað-
urinn. Þess má geta, að Sávarð-
urinn var þá ekki í einkennisbún
ingi. Hann talaði við hinn látna
flugmann með aðstoð miðilsins.
Kom þá í ljós, að flugmaðurinn
Vissi ekki, að hann hefði dáið
og hélt að hann ætti tal við
Þjóðverja, sem kominn var til
að yfir'heyra sig.
„Þú talar ensku alveg reiprenn
andi“, sagði 'hinn franafliðni, „en
ég gef þér engar upplýsingar".
„En ég er Dowding flugmar-
skálkur“, sagði lávarðurinn þá.
„Og ég er Cunningham, hinn
frægi siglingagarpur", svaraði
hinn framliðni hæðnislega. „Ann
ars þarftu ekki að sikipta þér
neitt af mér, þvi að Rauði kross-
inn kemur hingað bráðlega. Það
er allt í flagi. Það hafa verið
sendir menn til að sækja mig,
og með þeim er yndisleg hjúkr-
unarkona; með henni ætla ég að
fara“.
Síðan kom það upp úr kafinu,
að þessi hjúkrunarkona var fyrri
kona Dowdings lávarðar, en hún
var dálin fyrir 24 árum og flug-
VELJUM ÍSLENZKT
AUGLYSINGAR
SÍMI SS<4<SO
maðurinn hafði aldrei þekkt
hana.
Síðan stríðinu lauk hefir
Dowding 'lávarður verið einn
meðal helztu spíritista þar í
landi. Hann hefir flutt erindi
víða og í fyrra kom út bók eftir
hann, sem heitir „Many Mansi-
ons“ og er talin meðal öndvegis-
rita spiritista. Þar leggur hann
áherzlu á að sanna, að allt sé
lögmáflsbundið 1 alheimi, þar
ráði lifslög og efnislögmál.
„Fyrir hálfri öld gizkuðu vís-
indamenn á, að minnsta frum-
eind í heimi væri atómið, og það
væri hart sem tinna og svo lítið
að það sæist ekki nema í beztu
smásjám. Nú vita þeir með vissu
að atómið er tiL, an þeir fóru
villir vegar um eðli þess. Nú er
kunnugt, að það er sérstakt sól-
kerfi, þar sem jákvæðar og nei-
kvæðar rafeindir þeytast með
ofsahraða eftir ákveðnum braut-
um. En ef þú spyrð svo vísindin
hvað rafmagn sé, þá geta þau
ekki svarað því. Heimsmynd vís-
indanna er nú orðin sú, að efnið
hversu hart sem það sýnist verá,
er ekki annað en rafeindir, sem
eru stöðugt á fljúgandi ferð. —
Þetta sýnir að allt er lögmáls-
bundið og ekkert „yfirnáttur-
legt“ er til. Vér notum það orð,
þegar oss brestur skilning".
Hann birti svo margar sögur
um samband við framliðna sem
hann telur eiga heima í efnis-
heimi. Skilningur á þessu ætti
að verða til þess, að menn hér
á jörð búi sig betur undir það
líf, sem framundan er.
Vinnustofa
Óska eftir að taka á Leigu 7(1—100 ferm. húsnæði fyrir
vinnustofu. Tilboð sendist á afgr. Mbl. fyrir miðviku-
dagskvöld merkt: „Atelier — 2223“.
Hinar vinsœlu
BELLAVITA
líistykkjavörur
komnar.
3 teg. brjóstahaldarar
3 litir.
Buxnabelti
Mjaðmabelti.
©
T^eíldvltá.
Laugavegi 53
Simi 23622.
GENERAL
ELECTRIC
ST0RK0STLEG
VERÐLÆKKUN
á GENERAL @ ELECTRIC
HÁRÞURRKUM
Seljast nú á
kr. 990.-
og
kr. 1060.-
-- ★ --
Kostuðu fyrir
gengisbreytingu
í nóvember 1967
kr: 2.200.—
-- ★ --
Ger/ð kjarakaup meðan birgðir endast
Sölustaðir:
Rafíðjan, Vesturgötu 11. — Rafha v/Óðinstorg. — Raf-
röst, Ingólfsstrætá 8. — Lampinn, Laugavegi 87. —
Dráttarvéiar, Hafnarstræti 23. — Heimiiistæki, Hafnar-
stræti 3. — Raforka, Akureyri. Har Ejríkisson, Vestm. —
Júlíus Björnsson, Austurstræti. — Rafmagn, Vestur-
götu 10. — Rafbúð Domus Mediea. — Vesturftjós, Pat-
reksfirði.
ELECTRIC HF.
Túngötu 6 — Sími 15355.
GENERALÉÉ ELECTRIC
Bœjarins mesta úrval af borðstofuhúsgögnum
BORÐSTOFUSKÁPAR í tölduim stærðum: eftir-
Lengd 1.80 m. Verð 6.680 —
— 1.65 — — 10.895 —
— 1.65 — — 11.680—
— 1.76 — — 15.850—
— 1.87 — — 11.250—
— 2 — — 16.340—
— 2.20 — — 14.200—
— 2.10 — — 15.300—
— 2.10 — — 17.300—
— 2.15 — — 14.500—
SKEIFAN
KJÓRGARÐI SÍMI, 18580-16975