Morgunblaðið - 22.09.1968, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 196«
15
■Míræður á morgun:
Halldór Jónasson
frá Hrauntúni
Níræður verður á morgun,
mánudaginn 23. september Hall-
fiór Jónasson frá Hraiuntúni í
Þingvállasveit, en þar er hann
borinn og barnfæddur og er nú
einn eftirlifandi hinna gömlu
Þingvellinga. Hann hefur nú um
alllangt skeið verið vistmaður í
Hrafnistu og haft þar með hönd-
úm vörzlu bókasafns heimilisins.
Hefur hann rækt það starf
með stakri samviskusemi og alúð
Var Halldór ekki með öllu ó-
vanur slíkri bókaumsjón er
hann kom að Hrafnistu, því um
áratugaskeið rak hann litla forn
bókaverzlun í Bókaskemmunni á
Klapparstígnuim rétt ofan við
gatnamót Laugavegar. Hvarf
hann að bókasölunni er hann
varð að bregða búi eftir föður
sinn í Hrauntúni, er Þingvellir
voru gerðir að þjóðgarði og sauð
fjárbúskapur bænda þar, sem
búsafkoman byggðist á, var með
öllu bannaður.
f Bókaskemmunni eignaðist
Halldór marga þeirra vina er
enn fylla vinahóp hans. Ekki
komu nær allir í Bókaskemmuna
til hans í viðskiptaerindum, held
ur til þess að ræða við hann
um dægurmálin og leita hjá hon-
um álits. Bar þá mjög á góma
stjórnmál sem ásamt almennum
þjóðmálum 'hafa alltaf verið á-
hugamál Halldórs. Þó hann sé
orðinn háaldraður maður er
andlegt þrek hans með ólíkind-
um af svo öldruðum manni að
vera. Má heita að sama hvar
borið sé niður í umræðum um
stjómmálaatburði, allt frá fyrstu
árum heimastjórnarinnar og
fram á vora daga, að um þau
mál er Halldór afarfróður. Hef-
ur hann oft rekið sér yngri
menn á gat í slíkum viðræðum.
Hann var í hópj þeirra manna
er fastast skipuðu sér um
Hannes Hafsitein og kann Hall-
dór frá mörgu að segja frá
stjórnmálaátökum á þeim árum
Hann kynntist persónulega
mörgum hinna dugmestu stjóm-
málamanna, allt frá dögum
Hannesar Hafsteins fram á síð-
ustu áratugina og getur sagt
skemmtilega frá þessum mönnu
og stórpólitískum fundum sem
haldnir voru hér í Reykjavík í
gamla daga. Enn hefur Halldór
sínar ákveðnu skoðanir og tekur
óhikað, sem fyrr afstöðu til
manna og málefna og hefur mér
altaf þótt skína þar í gegn sterk
áhrif frá kynnum hans af Hann-
esi Hafstein og Jóni Þorlákssyni.
Þótt Halldór væri bóndi á af-
skektum bæ og um margt erfið-
um til búrekstrar á mestu mann-
dómsárum sínum, gaf hann sér
ætíð tíma til að lesa góðar bækur
og allmikið ferðaðist hann,
en Ferðafélag íklands markmið
þess og starf hefur Halldór ætíð
metið mikils. Lofgerðarrolla verð
ur þetta engin um hinn aldna
heiðursmann, hann myndi telja
slíkt kátbroslegan hégóma einn.
Yfirlætisleysi hans væri al-
gjörlega misboðið ef hér á eftir
færi röð sterkra lýsingarorða
um ágæti hans. Nokkru eftir að
Hálldór lokaði Bókaskemmunni
á Klapparstíg, og hætti daglegu
amstri fluttist hann austur í
Hveragerði og var þar um skeið
vistmaður elliheimilisins, en
fluttist svo aftur til borgarinnar
og varð vistmaður í Hrafnistu
sem fyrr segir. Á þessum heimil-
um hefur hann eignazt vini og
kunningja meðal vistmanna og
starfsfólks.
Þótt Halldór sé enn afar and-
lega hress, er heyrn hans tekin
að bi'la og ekki verður því neitað
að hann er nú ekki eins léttur á
fæti og er hann varð 85 ára.
Ekki eru það þó nerna nokkrar
vikur síðan hann skrapp með
vini sínum austur á Þingvöll og
var viðstaddur guðsþjónustu í
Þingvallakirkju og hitti að
messu lokinni ýmsa gamla kunn-
ingja. Er ég hitti hann nokkr-
um dögum síðar, sagði hann
mér frá förinni austur, ljóm-
andi af ánægju: Þetta var
góður dagur á Þingvöllum. Eng-
an mann tel ég mig þekkja
sem betur kann að meta góðan
dag á Þingvöllum en einmitt
Halldór frá Hrauntúni.
Við vinir hans og kunningjar
óskum honum ti'l hamingju með
níræðis afmælið, og vonum að á
björtu ævikvöldi fái hann ennað
njóta ánægjulega sumardaga í
Þingvallasveit.
Sv. Þ.
RITSTJORN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍMI 10.10Q
somvyl
SOMMER
NÝ TEGUND AF „PVG“ VEGGDÚK Á BÖÐ OG
ELDHÚS AUÐVELT AÐ LÍMA Á VEGGI OG HALDA
HREINUH. ER 2.5 MM. ÞYKKUR, HYLUR ÞVÍ VEL
SPRUNGNA OG HRJÚFA VEGGI, ÁN ÞESS AÐ
FYRIR MÓTI Á YFIRBORÐINU.
HLJÓÐ- OG HITAEINANGRAR, FALLEGUR OG
STERKUR.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
BEZT að auglýsa í MORGUNBLAÐINU
Sterkir og
endingargóðir
snjóhjólbarðar
Gerðir fyrir
snjónagla
MICHELIN
snjóhjólbarðarnir
komnir
Stærðir:
165—15 XN (590—15 ) kr. 2.022.—
155—15 XN (560—15 ) kr. 1.749,—
145—13 XN (525/560—13) kr. 1.391,—
145—12 XN (550—12 ) kr. 1.408.—
145—14 XN kr. 1.491.—
EGILL VILHJÁLMSSON H.F.
Laugavegi 118, sími 2-22-40.
^)/s0if-s»LLabuxur
og nælon-sokkar
viðurkennd gæðavara framleidd úr bezta
nælongarni ,,TENDRELLE“ nælon.
Fara vel á fæti.
Falleg áferð — Tízkulitir.
WOLSEY-sokkabuxur framleiddar
í 20 og 30 denier.
WOLSEY-sokkar í 15—20 og 30 denier.
WOLSEY hefir áratuga reynslu
í sokka-framleiðslu.
WOLSEY eru seldir í Reykjavík:
Parísarbúðin. Austurstræti 8. London dömu-
deild, Austurstræti. Verzl. Tíbrá, Laugavegi 19.
llolts Apóteki, Langholtsvegi 84.
í HAFNARFIRÐI:
Geir Jóelssyni skóverzlun og Hafnar-
fjarðar Apóteki.
'ÍÁJofáey LicecU er ue tUM
NÝJAR ÍBÚeiR TIL SÖLU
á einum fegursta stað í Hraunbæ. fbúðir þessar eru 2ja og 3ja herb. og seljast alveg fullfrágengnar. í eldhúsi eru vandaðar eldhúsinnrétt-
ingar, og eldavélar, með aðskildum bakaraofni, fyrir ofan eldavélina er eldhúsvifta með lykteyðandi kolafilt. Vé’ar þessar eru frá hinu
þekkta firma SIEMENS. Baðherb. eru með vönduðum hreinlætistækjum og vandlega flísalögð. Mikið er af skápum í íbúðinni og allar inni-
hurðir úr harðvið. í þvottahúsi eru allar nýtízku þvottavélar. Gufubaðstofa í kjallara. Sérinngangur í hverja íbúð og sérgeymsla í kjallara.
Ibúðir þessar geta verið til afhendingar innan 3ja vikna. Komið og skoðið, teikningar liggj a fyrir á skrifstofunni.
FASTEIGNASALAN, Óðinsgötu 4.