Morgunblaðið - 22.09.1968, Page 17

Morgunblaðið - 22.09.1968, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 19©8 17 Falsspá Eltt af þeim fyrirbærum nú- tímans, sem oftast er vitnað tfl, eru hinar svokölluðu skoðana- kannanir, sem við ýmsa eru kenndar en tfðast eru tengdar við Ameríkana nokkurn Gallup að nafni. Þessar atkvæðagreiðsl- ur fjalla um flest milli himins og jarðar, enda telja sumir þser mikilvægan leiðarvísi um afstöðu almennings. Sízt skulu brigður á það bornar, að svo kunni oft a'ð vera, og víst er það, að þeir, sern telja kannanirnar gagna sér í vil, halda þeim gjarnan mjög á lofti, en hinir gera að sama skapi minna úr þeim. Margir hafa bros að að afstöðu Johnsons Banda- ríkjaforseta til þessara atkvæða- greiðslna. A fyrstu stjórnarárum hans gengu þær honum yfirleitt í vil og hélt hann þeirn þá mjög fram. Síðar urðu þær honum í vaxandi mæli óhagstæðar — þó með nokkrum sveiflum, — og hefur forsetinn síðan gert mun minna úr gildi þeirra. Hinn kunni brezki vinstri stjórnmálamaður Bevan var þessum könnunum Séð yfir Reykjavík REYKJAVÍKURBRÉF hinsvegar ætfð mjög andsnúinn, hann taldi þær til þess lagaðar að draga kjark úr forustumönn- um, sem yrðu að fara sínu fram, hvernig sem vindurinn blési. Um þetta eru sem sagt skiptar skoð- anir, en hvað sem þeim líður, þá eru mörg dæmi þess, að úrslit kannananna eru engan veginn eins örugg og oft er látið í veðri vaka. Nýjasta dæmið um það voru sænsku þingkosningarnar sl. sunnudag. Eftir síðustu skoð- anakönnun fyrir kosningar áttu sósíaldemókratar að fá 44,6% af atkvæðum en borgaraflokkarnir þrír, Miðflokkur, Þjóðarflokkur og Hægri menn, samtals 48,3%. Þegar þetta er skrifað, eru endan legar tölur raunar ekki fyrir hendi, en vitað er, að úrslitin urðu á allt annan veg. Sósíal- demókratar unnu frægan sigur, meiri en jafnvel hinir bjartsýn- ustu sjálfra þeirra höfðu látið sér til hugar koma. Aldrei fyrr haft hreinan meiri- hluta í trausti á skoðanakannanir voru flestir ósparir á fullyrðing- ar fyrir kosningarnar. Þannig sagði t.d. hið kunna brezka viku rit Economist, sem talið er eitt hið áreiðanlegasta sinnar tegund ar í heiminum, daginn fyrir kosn ingarnar: „Tage Erlander hefur verið full 22 ár forsætisráðherra án þess að flokkur hans hafi nokk- urn tíma haft hreinan meirihluta í neðri deild sænska þingsins. Það eina, sem nú er alveg víst, er, að hann muni ekki vinna slík an meirihluta hinn 15. sept. Alit annað er óvíst.“ Hinu brezka vikuriti skjátlað- ist jafnt og c?ðrum. Hin eina, sem það sagði, að væri alveg víst, að ekki yrði, bar einmitt að hönd- um. Um ástæðumar til þessara úrslita deila menn að sjálfsögðu, eins og ætíð hlýtur a'ð verða. Það á jafnt við í Svíþjóð og á Is- landi, að í hvorugu landinu þarf kjósandi að gera nokkrum öðr- um grein fyrir því, hvern hann £aus, og ennþá síður hvaða ástæður réðu vali hans. Mörgum kjósendum er og áreiðanlega ekki sjálfum ljóst, hvað úrslitum réði 1 hans eigin huga. Þess vegna fer fjarri, að aðrir geti me'ð nokkurri vissu um það sagt. Vissar stað- reyndir eru þó augljósar, og menn fara nokkuð nærri um aðrar. Eitt aðalandstöðublað Tage Erlanders, Svenska Dag- bladet, höfuðmálgagn Hægri- fflokksins í Svíþjóð, byrjaði for- -Laugardagur 21 sept. ustugrein sína um úrslit kosn- inganna, sem það kallaði „Sigur kosning Erlanders,“ á þessa leið: „Erlander forsætisráðherra er hinn augljósi sigurvegari kosn- inganna." Sagan endur- tekur sig Eins og fyrr segir hefur Erland er verið forsætisráðherra í 22 ár, enda orðinn roskinn maður, fædd ur 1901, og er nú kominn á elli- laun. Sá flokkur, sem stóð sig næst bezt í kosningunum, Mið- flokkurinn, styðst aðallega við fylgi bænda og er undir forustu Hedlunds gamals bónda. Hann er ívið eldri en Erlander, og kemur mönnum saman um að þakka Hedlund persónulega sig- ur flokksins. Athyglisvert þykir, að þegar Tage Trlander háði sína fyrstu kosningabaráttu, þá nýorðinn flokksformaður og forsætisráð- herra á árinu 1948, hafi atburð- irnir fyrri hluta áirs í Prag það ár, þegar kommúnistar hrifsu'ðu þá völdin til sín og Masaryk fannst látinn með grunsamlegum hætti, orðið til að bjarga Sósíal- demókrötum að því sinni. Þá hafi fylgi kommúnista lækkað úr 11,2% í 6,3% og hafi það fylg istap þeirra þá ráðið úrslitum. Með svipuðum hætti hafi fylgis- tap kommúnista nú, þegar fylgi þeirra minnkaði einnig um nær helming niður í rösklega 3%, o'rðið til þess að styrkja a'ðstöðu Social-demokrata mjög, þó að fleira komi einnig til. Óttuðust glundroðann Vegna þess hversu kosninga- úrslitin í Svíþjóð komu mönnum á óvart, velta menn orsökunum hvarvetna fyrir sér, jafnt hér á landi sem annarsstaðar. Hörð- ustu andstæðingar stjórnarinnar í borgaraflokkunum telja að frekari íhugun málsatvika breyti ekki skoðun á höfuðorsökum úr- slitanna, og segja að, öruggt sé, að stórsigur Sósíaldemókrata yfir kommún- istum byggist á atburðunum í Tékkóslóvakíu. Segja megi, að nokkuð föst regla sé aðkjósendur breyti ógjarnan um stjórn á mifcl um óróatímum í utanríkismálum. Þá hafi stjórnin miskunnarlaust notað sér hið mikla afl verka- lýðshreyfingarinnar í kosninga- baráttunni og þau tök, sem Sósíal demókratar hafi aflað sér yfir sænska útvarpinu, bæði hljóð- varpi og sjónvarpi, enda hafi þessa gætt bæði í fréttaflutningi og málsútlistun. Þessar skýring- ar einar hrökkvi þó ekki til. Borgaraflokkarnir verði einnig að líta í eigin barm, því að inn- byrðis sundrung eigi ríkan þátt í að úrslitin hafi orðið önnur en þeir vonuðust til. Vafalaust á þessi sfðasta skýr- ing við rík rök að styðjast, því að Erlander lagði höfuðáherzlu á það í kosningabaráttu sinni, að borgaraflokkarnir væru sammáJa um það eitt að skamma sig og reyna að fella ríkisstjórnina, en þegar kæmi að lausn vandamál- anna væri í þeirra hóp hver hönd in upp á móti annarri. Ef ríkis- stjórnin neyddist því til að segja af sér, blasti alger grundroði við. Langlíklegast er að þessi ótti við glundroða hafi ásamt at- burðunum í Tékkóslóvakíu gert gæfumuninn. Ásakanir um mis- notkun verkalýðshreyfingar og útvarps bera fremur keim af sár indum hinna sigruðu. Hitt er víst, að ef Sósíaldemókratar hefðu ekki tekið á öllum sínum kröftum og gengið ótrauður og í órjúfanlegri heild til baráttunn- ar, þá hefði illa fyrir þeim far- ið. Hér hefur þeirri kenningu ver ið haldið fram, að andúð sú sem sumum þykir hafa gætt hjá sænsku stjórninni í garð utan- ríkisstefnu Bandaríkjanna eigi verulegan þátt í kosningaúrslit- um. Gegn þessu má benda á, að einmitt Tékkóslóvakíumáli'ð gaf sænsku stjórninni færi á að birsta sig gegn Sovétstjórninni, sem hún áður var ásökuð fyrir að vera of leiðitöm. Allt eru þetta óvissar getgátur. En staðreyndin er, að skv. skoðanakönnunum í Svíþjóð hefur orðið meginbreyt- ing á afstöðu almennings til stór veldanna. í september 1967 var spurt um, hvort Rússland eða Bandaríkin gerðu meira til að tryggja reglu og réttlæti í heim- inum. Þá svöruðu 35% Rússland en 65% Bandaríkin. Nú í septem ber svöru'ðu 11% Rússland og 89% Bandaríkin. Fyl^issveiílur Ekki er síður fróðlegt að lesa það, sem nú er rifjað upp um sveiflur í fylgi hinna sænsku flokka á síðustu áratugum. Mjög sjaldgæft er, að einn flokkur fái hreinan meirihluta í kosningum til neðri deildar sænska þings- ins. Að því leyti er sigur Sósíaldemókrata nú nær einstæð ur. Hitt er sagt engan veginn jafn sjaldgæft, að flokkur vinni skjótlega aftur upp tap, sem hann hafi áður beðið, eins og Sósíaldemókratar 1964 og 1966. Þvert á móti megi segja, að slík- ar sveiflur séu reglan í sænskum stjórnmálum á eftirstríðsárun- um. Hægri flokkurinn hafi á ár- inu 1948 be'ðið einn hinn mesta ósigur, er hann nokkru sinni hafi hlotið, en hafi þegar á árinu 1952 aftur unnið á og hafi sá uppgangur haldið áfram þann áratug. Miðflokkurinn hafi tapað á meðan hann var í samvinnu við Sósíaldemókrata á árunum eftir 1950, en aftur tekið að vinna á 1958 og haldið áfram á þeirri braut þangað til hann sé nú orð- ínn stærstur hinna borgaralegu flokka. Þjóðarflokkurinn hafi beðið gífurlegan ósigur 1958, en snúist hafi á betri veg fyrir hann strax á árinu 1960. Orðrétt segir Svenska Dagbladet: „Svipaðan feril má einnig rekja hjá kommúnistum. Eftir að þeir höfðu verið í pólitískri eyði mörk í upphafi sjötta áratugsins fóru þeir að vinna þingsæti á næsta áratug, en sá vinningur hefur nú að nýju þurrkazt út. Að því er varðar Sósíaldemókrata, þá hafa þeir einnig á skömmu bili, hlotið skjótan afturbata eftir mjög mikinn hnekki. Hreinn meirihluti þeirra nú er í áhrifamikilli mótsetningu við ó- sigrana 1964 og 1966. Allt þetta sýnir hversu ákaflega breytileg stjórnmálagæfan er, hversu fljótt glæsilegur kosningasigur getur breytst í erfiðleika. Ýmsir hafa spurt sjálfa sig hvað liggi á bak við þessar miklu breytingar, sem engan veginn er hægt að segja, að séu einkennandi eingöngu fyrir Svíþjóð.“ Styður rússneska þjóðin ritskoðun? í frjálsum þjóðfélögum verða menn í stjórnmálabaráttu jafnt að vera viðbúnir sigrum sem ósigrum, og gæta þess að of- metnast ekki af sigri né æðrast yfir ósigri. I einræðisríkjum eru viðhorfin önnur. Þar er yfirlýst- ur vilji valdahafana að tryggja sjálfum sér áframhaldandi völd á hverju sem gengur og hvað sem óskum þegnanna líður. Á mánu- daginn var fagmaði Moskvublað- ið Pravda mjög samþykktum tékkneska þingsins um harða ritskoðun og eftirlit með öllutn fjölmiðlunartækjum. Blaðið sagði berum orðum: „Vorir tékknesku vinir geta Verið sannfærðir um, að í þess- um efnum muni þeir njóta full- komins stuðnings sovézku þjóð- arinnar.“ Auðvitað er sovézka þjóðin alls ekki spurð. Þa'ð eru vald- hafarnir í Sovét-Rússlandi, sem ákvarðanir taka að þjóðinni for- spurðri. Hitt kann að vera, að á meðan sovézku þjóðinni er hald- ið í villu og vanþekkingu um raunverulega atburðarás, bæði í hennar eigin lamdi og annars- staðar, þá sé hún valdhöfumum samþykk. Um það veit þó eng- inn og sumir glöggir stjórnmála- menn spá því, að sá tími nálgist óðum, a'ð sovézka þjóðin, eða réttara sagt hin rússneska, hristi af sér þá hlekki, sem hún enn lætur leggja sig í. Hvers komar fréttaburður mótar hug hennar, má sjá af því, að fyrir fáum dögum var í rússnesku blaði far- ið um það fjálgum orðum, að Tékkar tækju þátt í söng og dansi með rússneskum hermönn- um á götum tékkneskra borga og fjölmargir Tékkar byðu rúss- neskum hermönnum heim til mið degisverðar. Einum eða tveimur dögum síðar fjargviðraðist hins vegar Pravda yfir því, að „öfga- menn“ hefðu dreift mannfjölda, sem safnazt hefði saman til að hlusta á rússneskan hermanna- konsert. Missagnir og misskilningur Að vonum eru uppi ýmsar get- gátur um gang viðræðna stjórn- málaflokkanna. Sjálfir munu full trúarnir hafa komið sér saman um að birta ekkert frá viðræð- unum nema með sameiginlegri fréttatilkynningu, eins og gert var eftir fyrsta fundinn. Síðan hafa sllkar tilkynningar ekki verið birtar og verður það ekki skilið á annan veg en þann, a'ð ekkert hafi gerzt, sem frásagn arvert sé. Af fyrstu fréttatilkynn ingunni var ljóst, að nokkurn tíma mundi taka að safna nauð- synlegum gögnum. Það er því fráleitt, sem eitt blaðið sagði nú í vikunni, að umræður í nefnd- inni hafi aðallega snúist um myndun þjóðstjórnar. Tal um slíkt á þessu stigi málsins er alveg út í hött. Hinn eini eðli- legi framgangsmáti er sá, að menn reyni fyrst að koma sér saman um málefnalega lausn þess vanda, sem við er að etja. Því aðeins að slík lausn sé eygj- anleg, er tímabært að tala um, hvernig hún verði bezt tryggð, og þá er eðlilegt, að tij athug- unar komi, hvort stjórn allra flokka þ.e. þjóðstjórn sé æskileg. Bæði í Tímanum og Þjóðviljan- um hefur verið talað um það, að stjórnin ætti að segja af sér. Slíkt er bersýnileg fásinna. Stjórnleysi nú væri með öllu óverjandi og mundi magna vand ræðin í stað þess að draga úr þeim. Það gefur viðræðum stjórn málaflokkanna aukið gildi, að í þeim taka þátt ábyrgir stjómar- flokkar, sem hafa rétt og skyldu til að gera nauðsynlegar ráðstaf- anir eftir því, sem þörf krefur. Svigurmæli um, að stjórnin hafi gefizt upp og ætti þess vegna að segja af sér, eru staðlaus. Erfiðleikarnir eru svo miklir, að eðlilegt er að öllum sé gefinn kostur á að sýna ábyrgðartil- finningu sína og bera fram til- lögu áður en málum er ráðið til lykta. Ef þeir skerast úr leik, eiga þeir um það við sjálfan sig samvizku sína og kjósendur, en geta ekki ásakað aðra fyrir að þeim hafi af ásettu ráði verið haldið utan við þegar mest við lá. Framsóknarmenn mættu og minnast þess, að þegar nauðsyn krafði, a'ð þjóðstjórn væri mynd- uð vorið 1939, þá áttu sér stað langvinnir samningar um mál- efni og stjórnarmyndun áður en tækist að koma slíkri stjóm á laggirnar. En engum datt þá í hug það snjallræði til þess að greiða fyrir málum að sitjandi stjóm, sem í áttu sæti Hermann Jónasson, Eysteinn Jónsson og Skúli Guðmundsson segði af sér fyrr en önnur þingræðisstjóm væri mynduð. Eins er það frá- leitt að ásaka ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki lagt hendur í skaut, heldur sjá málum borgið eftir því, sem atvik standa til, sbr. setning bráðabirgðalaganna um innflutningsgjald og ferðalag Jó- hanns Hafsteins iðnaðarmálaráð- herra til samninga við Sviss- lendinga um hröðun byggingar álverksmiðju ..... Af þessum sökum er hins vegar ástæða til að spyrja: Er það í raun og veru svo, að stjórnarandstæðingar e'ða a.m.k. kommúnistar séu enn á móti því, að álverksmiðjan sé reist og telja hana til skaðræðis- verka? Ef svo er, þá er Ijóst, að þeir hafa ekkert lært.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.