Morgunblaðið - 22.09.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1968
21
Kosningasigur Erianders
ÞAÐ reyndust óþörf skrif í
sænsku stjórnarandstöðublöð-
unum fyxir kosninigamar, að
vega og meta hvort Tage
Erlender yrði að fara frá, ef
hann missti 4 eða 5 af þeim
þingsætum, sem hann hafði í
„andra kammaren" fyrir kosn
ingarnar. Stióxnarandstæðing-
ar hu.gsuðu sér þennan mögu-
leika, þó Gallup-könnunin
sýndi stórvaxandi fylgi við
Erlander frá sveitastjórnar-
kosningunum 1966. En að
hann bætti við sig 12 þing-
sætum í stað þess að missa
nokkur, mun engum hafa
dottið í hug, 'hvorki Gallup
né Erlander sjálfum. Enda
skein gleðin út úr andliti
hans, er hann sást í sjónvarp-
iniu, er atkvæðatalningu var
að ljúka. Það var allt annað
andlit ,sem sást, er lokaum-
ræðurnar fyrir kosningar fóru
fram.
Erlander mun hafa talið
sigurinn vísan um það leyti
sem atkvæðagreiðslu var að
ljúka, því að 89% kjósenda
h’öfðu greitt atkvæði en það
sýndi að sósíaldemókratar
voru samhuga en ekki tvístr-
aðir eins og við sveitastjórn-
arkosningarnar 1966, er fylgi
þeirra stórhrakaði. Það var
þetta áfall, sem gaf andstöðu-
flokkunum sigurvonir, sem
þeir höfðu svo ’hátt um fyrir
kosningar.
Þetta er stærsti kosninga-
sigurinn, sem Erlander hefur
unnið á sínum 22 áTa stjóm-
arferli. Og fyrst nú hefur
flokkur hans hreinan meiri-
hluta í „andra kammaren“
(neðri deild) — 125 þingsæti
af 233. — Hingað til hafa
kommúnistar haft „líf hans
í hendi sér“ ef svo mætti
segja, þó að Erlender hafi
ekki viljað vera upp á á
kominn og segði fyrir kosn-
ingarnar, að hann mundi frem
ur segja af sér en að þiggja
stoð kommúnistanna.
— Hvað veldur þessum stór
sigri? spyrja menn. Um ýmsar
höfuðástæður eru allir sam-
mála, t. d. þá, að sósíalistar
hafi aldrei „agiterað“ jafn
ákaft og nú ,enda sjáist það
á hinni óvenjulegu kjörsó'kn.
Þessi mikli kosningaundirbún-
ingur er bein afleiðing af ó-
sgrinum 1966. — Næst er
bent á að vegna innrásar
Nýju Delhi, 19. september
—AP—NTB—
AÐ MINNSTA kosti níu manns,
þar af tvö börn biðu bana og
nokkur þúsund slösuðust í dag í
átökum lögreglu og ríkisstarfs-
manna, sem hafa gert verkfall,
víðsvegar á Indlandi. Að minnsta
kosti 4.000 manns hafa verið
handteknir á ýmsum stöðum fyr
ir að hundsa bann stjórnarinn-
ar við verkfallinu. Tveimur
milljónum ríkisstarfsmanna var
skipað að leggja niður vinnu í
einn sólarhring, til að leggja á-
herzlu á kröfu um Iaunahækk-
un, en verkfallið fór víða út um
þúfur.
að BEZT
er að
auglýsa i
Morgunblaðinu
Rússa í Tékkóslóvakíu hafi
frá'hvarfið úr kommúnista-
flokknum orðið miklu meira
en ella, og stoðaði þar ekkert
þó Hermansson formaður
flokksins lýsti fullri vanþókn-
un á rússneska ofbeldinu.
Sænsku kommúnistarnir hafa
yfirleitt ekki grætt á fram-
ferði goðanna í Kreml gagn-
vart Tékkóslóvökum. Við
Tage Erlander
fyrstu sænsku kosningarnar
eftir að Rússar kúguðu Tékka
undir sig, 1948, féll atkvæða-
tala kommúnista úr 10,4 í
6,3% og í stað 15 þingsæta
fengu þeir 8. Og við kosn-
ingarnar 15. þ.m. fengu þeir
viðlíka kjaftshögg og 20 árum
áður, því að atkvæðamagn
þeirra lækkaði úr 5,2% í 2,9%
og þingsæt'unum fækkaði úr
8 í 3.
En þetta er ekki næg skýr-
ing á sigrinum. „Folkpartiet"
varð fyrir miklu skakkafalli
líka, undir stjóm hins nýja
foringja síns, Sven Wedén. í
þessum flokk eru mjög sund-
urleitar sálir, ekki síður en í
vinstriflokknum norska, og
Wedén hefur auðsjáanlega
ekki sama lag á að halda
hjörðinni saman og Bertil
Ohlin hafði, en undir hans for
ustu vsirð hagur flokksins
beztur, og var hann þá stærst-
ur borgarflokkanna. En nú
missti hann 10 þingsæti og
hefur aðeins 33. Hægri töpuðu
einu og hafa 32. En „Center-
partiet“ bætti við sig fjórum
og hefur 39 og er stærsti
borgaraflokkurinn. En það
'hefur lengi verið talað um,
að þessi flokkur og Folk-
partiet bræddu sig saman.
Utanflokka var aðeins einn
maður kosinn. — Ef borgara-
flokkarnir hefðu sigrað var
helzt talað um, að Gunnar
Hedlund, formaður „Centr-
um“ m'undi mynda stjórn.
Það sem helzt var talið
Erlanderstjórninni til stór-
synda fyrir kosningarnar var
1) vaxandi atvinnuleysi 2) sí-
hækkandi skattar, 3) skortur
á íbúðum. — f stuttu viðtali
að kosningunum loknum full-
vissaði Erlander um að stjórn
hans mundi fljótlega ráða bót
á þessum vandkvæðum. Hvað
húsnæðisleysið snertir bera
kosningarnar ekki vott um að
það sé svo alvarlegt sem af
er látið. Því að þess ber að
gæta, að við kosningarnar
núna voru 600 þúsund nýir
kjósendur (af 5,4 millj. alls)
en það eru einmitt þeir
— unga fólkið sem vill gifta
sig — sem helzt verður fyrir
barðinu á húsnæðisleysinu.
En mikill meirihluti nýju
kjósendanna hlýtur að hafa
kosið stjórnarflokkinn.
Erlander situr áfram með
pálmann í höndunum. En
hvað lengi? Það er fullyrt að
hann rouni segja af sér for-
sætisráðherra'embættinu og
flok'ksstjórninni að loknu árs-
þingi sósíalista næsta ár. Og
að aðrir tveir ráðherrar og
kannski fleirí muni fara líka.
Eru þeir helzt nefndir Stráng
og Torsten Nilsson utanríkis-
ráðherra.
Og hver tekur þá við?
Flestir nefna Oluf Palme,
hinn unga menntamálaráð-
herra, sem mest veður hafa
staðið um udanfarið — allra
ráðherra. Han hefur verið
spurður um hvort hann muni
setjast í sess Erlanders, en tók
því heldur fálega en neitaði
þó ekki. En það er of snemmt
að spá nokkru um nýja for-
sætisráðherrann enn.
Hitt þykir víst að Erlander
fari frá. Og má þá segja að
hann hætti lei'knum, þegar
hæst fram fer, því að aldrei
hefur vegur hans verið meiri
en nú eftir hinn mikla kosn-
ingasigUT.
ESSKÁ.
NÝTT SÓFASETT
3 ja og 4ra sœta sótar
Ullar- og dralonáklœði
Einnig áklceði úr nautshúð
ettir pöntun
íslenzk framleiðsla — Arkitekt Leif Ilansen.
Húsgagnavetzlun Kaj Pind
Grettisgötu 46 — Sími 22584.
Traust fyrirtœki
óskar að ráða karl eða konu sem aðstoðargjaldkera.
TJmsóknir merktar „Framtíð — 6970“ sendist blaðinu.
ANÍTA i Vestmannaeyjum auglýsir:
Verðum með hannyrðavörur frá Handavinnubúðinni
Laugavegi-63, Rvk., mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag n.k.
Mikið úrval af nýjum vörum.
ANÍTA, Vestmainnaeyjum.
Atvinnutilboð óskast
Ungur maður úti á landi sem vinnur við bókhald og
gjaldkerastörf óskar eftir atvinnutilboði. Má vera úti
á landi. Er vanur verzlunarstjórn og innkaupum.
Gæti hafið störf um áramót. Tilboð sendist Mbl. fyrir
30. þ.m. merkt: „7000“.
GARÐAHREPPUR
Börn óskast til að bera út Morgunblaðið
í Garðahreppi strax.
Upplýsingar í síma 51247.
VARAHLUTIR
[fll
NOTIÐ AÐEINS FORD FRAM-
LEIDDA VARAHLUTI TIL END-
URNÝJUNAR í FORD BÍLA—<
® KR HBI5TJÁN5SDN H.F.
11 M B 0 fl Ifl SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00
ÁSKORUN
til bifreiðaeigenda í Reykjavík.
Skorað er á bifreiðaeigendur, sem enn hafa ekki greitt
bifreiðaskatt fyrir árið 1968, að greiða hann þegar í
stað, svo komizt verði hjá stöðvun bifreiðanna og
lögtaksinnheimtu.
Jafnframt er skorað á bifreiðaeigendur, sem rétt
eiga til endurgreiðslu á gjöldum frá árinu 1967, vegna
innilegu bifreiðanúmera á því ári, að framvísa kvittun
frá 1967 og sanna með vottorði bifreiðaeftirlitsins rétt
sinn til endurgreiðslunnar fyrir lok þessa mánaðar, en
þá fellur endurgreiðslurétturinn niður.
Reykjavík, 20. sept. 1968.
TOLLSTJÓRASKRIFSTOFAN
Arnairhvoli.