Morgunblaðið - 28.09.1968, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.09.1968, Qupperneq 18
t 18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. SEPT. 1&68 Júlíus Jónasson Minningarorð Vorið 1911 fluttu hjón úr Fjallasveit til Vopnafjarðar. Þau keyptu Ytra-Núp, eða Gnúp eins og í gömlu máli stendur. Þetta voru hjónin í Fagradal, Jónas Kristjánsson og Sigríður Jóhannesdóttir. Sigríður var seinni kona Jónasar, og enn ung að árum. Jónas var hátt á fimm- tugsaldri og átti uppkomin börn af fyrra hjónabandi. Þeim fylgdu 5 drengir þeirra og sá elsti á 11. ári. Jónas var stór- huga bóndi og taldist frekar efnamaður, og hans fyrsta verk á Núpi var að leggja af gamlan bæ og byggja myndarlegt timb- urhús. En sumarið 1913, 5. júní, bárust þær hörmunga fréttir frá Núpi, að konan hefði orðið bráð kvödd að störfum. Hún var myndarkona, eyfirzk að ætt, syst ir Dómhildar er var kona Magn- úsar, er var alþm. og ráðherra, Kristjánssonar. Drengirnir vöktu allir athygli fyrir gerfileika. Þreklegur vöxtur þeirra, svo til allra eins, vakti athygli manna, og nú voru þeir orðnir móður- lausir í blábemsku. Atburðurinn varð yfirnáttúru legur í sveitinni og góðir hugir manna fylgdu drengjunum fram á lífsbrautina. Jónas brá búi ár ið eftir og drengirnir fóru í fóst ur og þrír þeir elztu upp í Fjalla sveit og mun þó Júlíus, sem var elztur, hafa farið í Möðrudal Eigi leið á löngu er þeir fóru að koma sem fullgildir lesta- menn ofan í Vopnafjörð og sást þá hversu þeim var í skinn kom- ið og þeir létu sér fátt fyrir brjósti brenna. Júlíus varð þegar lesta og fiaÞamaður frá Möðru- dal. þrekið óbilandi, kunni ekki allra manna beztur félagi fyrir að villast í hríðum, kappsamur og afkastamikill til vinnu og lundprýði og ósérh'lífni. Þótti og öllum mikið til hans koma, sem kynntust honum og einhvernveg inn fékk hann það orðspor og álit, að sem maður væri hann bjarg er á mætti byggja, og bil- aði eigi. Hann var fæddur í Fagradal 26. nóv. 1900. Jónas t Ólafía Kristín ólafsdóttir frá Ósi í Bolungavík, andaðist á Elliheimilinu Grund 24. september. Útför- in ákveðin frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 1. októ- ber klukkan 3. Bióm og kransar afþakkað. Aðstandendur. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, Guðríður Þorsteinsdóttir Lindargötu 30, ssm andaðist 23. sept. verður jarðsungin í Fossvogskirkju laugardaginn 28. sept. kl. 10.30. Sonja Valdimarsdóttir, Erlingur Herbertsson, og bamaböm. t Systir okkar, Jakobína Björnsdóttir kennsiukona verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju mánudaginn 30. þ.m. kl. 1,30. Ólöf Björasdóttir, Unnur Björnsdóttir, Indriði Björnsson. faðir hans var sonur Kristjáns ríka á Fjöllunum, Jóhannssonar frá Holtastöðum í Laugadal. Kristján var margfrægur mað- ur, og hefur nú á síðari tímum komið margt fram til skýringar á persónu hans og æviferli, en hér var um hinn merkasta mann og enda merkilegastan að ræða. Verður hér engu við það bætt nema því, sem satt er, að Krist- ján var skörungur, vitur maður, afkastamaður til allra verka, og fyrst og fremst sómakær maður og hélt ætíð, hvar sem hann bjó, fyrirmyndarheimili. Sama mátti segja um Jónas son hans, föður Júlíusar, en eftir lát konu sinn ar hafði hann jafnan eigi mikið umleikis, en var jafnan vel met- inn maður. Júlíus fór frá Möðrudal í Ei- ríksstaði á Jökuldal. Þar var hann enn sem í Möðrudal, fyrir- maður í öllum erfiðustu störfum, eins og lestaferðamenn tfl Vopna fjarðar. Var það eitt sinn að hann fór með yfir 20 hesta í lest yfir Tunguheiði, og er það mesta, sem ég hef heyrt ge«tið um að hestamaður færi með. En Júlíusi var ekkert ófært, sem til þrek- rauna kom. Ein lítil saga frá Eiríksstaðadvöl Júliusar sannar mál mitt. Hann fór úr Fljóts- dal að vetrarlagi með um 100 punda bagga á baki. Hann fór Bessagötur, sem leið liggur og er leiðin þvert yfir heiðina í Klaustursel, sem er um 14 km. utar í dalnum en Eiríksstaðir og lá þangað vanaleið yfir heiðina. Júlíus var stutt kominn er brast á hann fárviðri að norðan. Júl- íus tók þá stefnuna inn og vest- ur heiði á Eiríksstaði og hafði þá veður haminn á móti. Svo var veðrið hart, að hund hans sleit frá honum í náttmyrkrinu fyrir norðan miðheiði. Hundurinn kom að morgni í Staðlafoss, og varð uppi fótur og fit á bæjum þar í kring, því allir þóttust skilja hvaða frétt hundurinn sagði. Sendur var maður í Eiríksstaði til að láta vita hvað komið væri. Sá kom í Grund til Páls Vigfús- sonar og sagði tiðindin, en Páll og Júlíus voru gamlir félagar úr Möðrudal. Páll sagði aðeins „Júlli dauður uppí heiði! Nei, þá frétt þarft þú ekki að segja mér. Júlli er sjálfsagt heima á Eiríksstöðum“. Og Júlli var heima á Eiriksstöðum. Júlíus var einhver ár á Hákon arstöðum, fyrirvinna hjá ekkj- unni Guðnýju Torfadóttur. Júl- íus breytti ráði sinu árið 1934 og fluttist af dalnum út í Tungu hrepp, og árið eftir 5. júli gekk hann að eiga Jónínu, dóttur Ás- mundar bónda á Vífilsstöðum, t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og jarðarför elsku dóttur okkar, systur og frænku, Margrétar Þórarinsdóttur Litlu-Tungu. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkruar- fólki, deild 8, Landspítalan- um, sem stundaði hana í lang- varandi og erfiðum veikind- um hennar. Guð blessi ykkur öll. Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Þórarinn Vilhjálmsson, Karl J. Þórarinsson, Þórdís T. Þórarinsdóttir, Vilhjálmur Þórarinsson, Vigdís Þórarinsdóttir, Þorsteinn G. Þórarinsson, Sigríður Tyrfingsdóttir. Þórarinssonar, mikla atgervi og dugnaðarkonu. Ásmundur lét þau hafa hluta úr Vífilsstaða- landi og þar reistu þau nýbýli og nefndu Vífilsnes. Varð það mikið myndarbýli að byggingum og þau ræktuðu gott tún. Jafn- framt fór Júlíus að stunda vega vinnu og varð verkstjóri við þá vinnu mörg ár. Kom sér þar vel verkhyggni Júlíusar og trú mennska í srtörfum og lagði hann góða vegi og tryggilega vegarstæði, þegar hann mátti þar ráða. Þau Júlíus og Jónína eignuðust 4 börn, er öll eru á lífi og hið gjörvilegasta fólk. Eru það þrjár stúlkur, Sól- veig Ása, Sigríður og Þorbjörg og einn sonur, Jónas Frímann. Gerir hann ráð fyrir að taka við jörðinni, og var á leið austur, er hann frétti lát föður síns, en Júlíus gékk frá bæ sínum í leiti nokkurt stutt frá, þar hneig hann örendur niður, laugardag- inn 21. þ.m. Hafði hann undan- farið kennt veilu við hjarta, og er hann fjórði bóndinn af Núps- drengjunum 5, sem kveðja lífið á sama hátt og móðir þeirra. Árið 1953 breytti Júlíus ráði sínu, leigði jörðina og fluttist til Reykjavíkur. Keypti hann gam- alt hús í Háagerði, og litlu síðar byggði hann á lóðinni myndar hús, kjallara, hæð og ris, sem nú stendur fullbúið og er Háa- gerði 59. Eftir að suður kom stundaði hann vegavinnu á sumr um, en vann í áhaldahúsi vega- gerðarinnar á vetrum, og naut þar þess að vera í besta lagi lagtækur til smíða. Stundaði hann vegagerðina á Austurlandi, og m.a. lagði hann vegarkafla á Möðrudalsfjöllum. Þarna átti Júlíus heima og hann lagði snildarveg í Víðidalnum og í einskonar framhaldi af vegagerð Júlíusar, er nú kominn einn besti vegur landsins yfir Möðru dalsfjöll. Austan við austari fjall garðinn lagði Július líka veg, en þetta er á eina vatnasvæðinu, sem til er á þessari leið, og kem ur Lindará vestan úr fjallgörð- um en Lómakíll sunnan heiði. Þessi vötn renna saman nokkru utar, en farið var yfir þau á veg inum, brúarlaus. Nú átti að breyta veginum og brúa vötnin í einu lagi, þar sem þau voru komin saman. Júlíusi fannst þetta ofmikill krókur og upp á sitt einsdæmi gróf hann Lindará far veg í Lónakfl, stytti með því veg inn og fékk betra brúarstæði. Júlíus langaði til að leggja veg yfir Möðrudalsfjöll, og hann benti á betra vegarstæði yfir fjallgarðana, en þar sem vegur- inn liggur. Því var ekki anzað. í Áhaldahúsinu starfaði hann, en er kom á sumar fram, fóru þau hjónin austur í Vífils- nes, og Júlíus gerði jarðabætur, en ýmist leigði túnið eða heyj- aði það sjá'lfur og seldi hey, en átti þó alltaf fáeinar kindur. Vegna sjúkdóms varð hann að hætta vinnu og vann ekki síðast liðinn vetur og þá var að leggja leiðina í átthagana, og nú ber hann þar beinin. Júlíus hafði ekki ástæður á skólagöngu, en hann var vitur maður að eðlisfari og svo gjör- hugull á lífsins fyrirbæri, að ó- víða var komiS að tómum kof- unum hjá Júlíusi, og var hann einn hinn besti viðræðumaður, talaði aldrei hégóma né um hé- sjálfur á ég að sjá á bak órjúf- andi vini og málsvara í öllu. Hann er jarðsunginn á eyðibýl- inu, Kirkjubæ, í dag. Benedikt Gíslason. frá Hofteigi. góma, minnugur og kunni frá mörgu að segja. Athygli hans hafði ekki verið ónýt á Möðru- dals og Brúaröræfum, en þar var hann allra manna kunnugast ur og var meiningin að rita eft- ir honum athuganir hans. Hann fann bæjarrústir, sunnan í Gnúp staðarnúpnum, stutt þar upp frá, sem Skarðá fellur í Jökulsá á Fjöllum og víða sýndist honum líkur fyrir bæjarrústum á þess- um slóðum. Júlíus var trölltrygg- ur maður, tilfinningaríkur og sveið undan heimsins ranglæti. Gjörði hann ekki á hluta ann- arra manna, og var óhlutdeil- inn um annarra ráð, en boðinn og búinn til liðsemdar góð- um mönnum og málefnum. Mannskapar og ævistarf móð- uriausa drengsins frá Ytri-Núpi er eitt af ævintýrum sögunnar á íslandi. Minning þessa manns er óbrotgjörn, meðan þeir menn lifa er sáu „handtök hans“ og nutu artarsemi hans og mann- kosta og verk hans tala lengi. Konu og börnum Júlíusar flyt ég innilega samúðarkveðju, og Víðir Sveinsson skipstjóri Fæddur 6. ágúst 1930. Dáinn 19. september 1968. Kveðja frá skipshöfninni m/b Jóni Garðari. Óvænt horfinn ertu, vinur, eftir hljóðir stöndum hér. Við, sem með þér sæinn sóttum, samstarf áttum gott méð þér. Ungur stýrðir fríðu fleyi, fram á djúpa Ránarslóð. Gæfan bjarta stóð í stafni, störf þín blessun færðu þjóð. Gulli dýrri í dagsins önnum, drengskap þann, er aldrei brást. Áttir þú að aðalsmerki, í orði og hverju verki sást. Okkur sannur vinur varstu, vakti traust þín prúða lund. Allt hið bezta vildir veita, væri leitað á þinn fund. Drottinn huggun sendi sína, sorgin dýpst þá slær á streng. Ætíð mæta munurn geyma, minningu um góðan dreng. Kynnin ljúfu þér við þökkum, Þína traustu samfylgd hér. Megi ísland eignast marga, óskasyni líka þér. I 0~ 0~ BLAÐBURÐARFOLK OSKAST í eftirtalin hverfi: Lambastaðahverfi — Hjallavegur Talið við afgreiðsluna i sima 10100 Lokað í dag Skrifstofur vorar verða lokaðar í dag vegna jarðarfarar. I. PÁLMASON H.F. Innilegar þakkir færi ég hér með öllum þeim, sem á einn eða annan hátt sýndu mér vinarhug á sjötugsafmæli mínu. Stefán Pjetursson. Innilega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig með gjöfum og heillaóskum á 70 ára afmæli mínu þann 8. september síðastliðinn. Ingvar Jónsson, Þrándarholti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.