Morgunblaðið - 28.09.1968, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. SEPT. 1&68
19
- BREIÐHOLT
Framhald af hls. 11
ar 767 þús. kr. 98 ferm. ibúð
við Eyjabakka kostar 850 þús.
kr., en fullfrágengin 97 ferm.
íbúð F.B. 1097 þús. kr.
Við Jörfabakka 12—.6 eru einn
ig til sölu 2ja, 3ja og 4ra her-
bergja íbúðir. Þær eru einnig
tilbúnar undir tréverk. Múrhúð
un er lokið inni og úti og máln-
ingarvinnu úti Gangstígar eru
Steyptir og búið er að ganga frá
lóðinni og skipta um jarðveg í
bílastæði. 64 férm., 2ja herbergja
íbúð kostar 570 þús. kr. 77 ferm.
3ja herbergja íbúð 690 þús., og
98 ferm., 4ra herbergja íbúð kost
ar 850 þús. kr.
Hvað tréverkið kostar í þess-
ar íbúðir fer að sjá'lfsögðu mest
eítir smekk eigandanna, en aug-
ljósLga væri hægt að fullgera í-
búðirnar fyrir þann verðmismun
sem er á þeim tilbúnum undir
Iréverk og frágengnum íbúðum
F.B. Þannig mætti tréverkið í
2ja herb. íbúðunum kosta 167—
197 þús., og í 4ra herb. íbúð-
unum 247 þús. krónur.
HEILDARKOSTNAÐUR f
ARSLOK 1967 149,2 MILLJ. KR.
Mestan hluta af sínum fram-
kvæmdafé hefur F.B fengið frá
Húsnæðismálastofnun ríkisins
eða sama sjóði og veitir hin alm.
húsnæðislán. Á árinu 1967 veitti
stofnunin lán til F.B., samtals
að upphæð kr. 86,4 milljónir. f
ársskýrslu veðdeildar Landsbank
ans eru upplýsingar um hvað
búið var að veita miklu fé til
Breiðholtsframkvæmdanna í árs-
lok 1967. Þar segir svo: Heild-
arkostnaður allra framkvæmd-
anna voru í árslok 1967 149,2
milljónir króna. Skuld nefndar-
innar við byggingarsjóð ríkis-
ins var í árslok 127,7 milljónir
At vinnuleysistryggingasj. keypti
skuldabréf af byggingaráætlun-
inni fyrir 30 milljónir króna. í
efnahagsreikningi kemur fram,
að kostnaður framkvæmdanna
skiptist þannig í meginatriðum:
Kyndistöð, skálar og fl. 19,6 mill.
kr. Fasteignir, birgðaskáli 4,6
millj. kr., og byggingarkostnað-
ur söluíbúða 125 millj. króna.
Hversu mikið fjármagn hetfur
runnið til framkvæmdanna á
þessu ári mun hinsvegar ekki
koma nákvæmlega fram fyrr en
um áramót, þar sem F.B. gerir
ekki upp reikninga sína nema
einu sinni á ári.
Á hinum þrönga markaði hús-
næðislána munar mjög verulega
um það fjármagn sem veitt hef-
ur verið til Breiðho'ltsframkvæmd
anna og hefur það óhjákvæmilega
komið niður á húsbyggjendum,
sem þurft hafa að bíða miklu
lengur í von og óvon en áður,
Um tíma voru lánamál Húsnæð-
ismálastjórnar komin í mjög við-
unandi horf, þannig að aldrei
dróst lengi að þeir umsækjendur
sem uppf. skilyrðifengju lán sín.
En svo miklu munar um það
fjármagn Sem lagt hefur verið í
Breiðhoitsframkvæmdirnar, að
umsækjendur verða nú að bíða
í marga mánuði áður en þeir fá
lánið. Þannig voru lánsumsókn-
ir Húsnæðismálastjórnar t.d.,1002
talsins um mánaðarmót júní —
júlí.
Af framangreindum tölum er
ljóst, að beint hefur verið til
Breiðholtsframkvæmdanna upp-
hæð sem svarar til rúmlega 1/3
heildarútlána Húsnæðismádastj.
árið 1967. Fyrir það hafa þeir,
sem eru að reyna að bjarga sér
á eigin spýtur, orðið að gjalda.
Það er ekki nema rétt og sjálf-
sögð stefna, að þeir sem verstu
aðstöðuna hafa ti'l að koma sér
upp íbúðarhúsnæði, fái mestu
hjálpina frá því opinbera, en hitt
skapar svo jafnvel meiri félags-
leg vandamál heldur en leys-
ast, að mismuna fólki stórkost-
lega í lánveitingum.
HAGHÐ SKILYRÐI
Framkvæmdanefnd byggingar
áætlana hafði öll skilyrði til þess
að Breiðhóltsframkvæmdirnar
heppnuðust vel og ibúðirnar
yrðu til muna ódýrari en íbúð-
ir, sem einstaklingar eða bygg-
ingameistarar byggja. Aldrei þarf
að standa á fjármagni hjá henni,
og ætti öllum að vera ljóst hvers
mikið hagræði er að sliku. F..B
hafði nægilega stórt verkefni til
þess að ná fram hagstæðustu
innkaupum á innfluttri bygginga
vörur og skiptum sínum við verk
taka.
Þrátt fyrir þessi ákjósanlegu
skilyrði hefur FB. hingað til
ekki tekist að byggja ódýrari
íbúðir en einstaklingum og bygg
ingameisturum. Hún hefur ekki
'lækkað byggingakostnaðinn. Það
hefur oft viljað brenna við, þeg-
ar hið opinbera stendur beint
að framkvæmdum, að kostnaður
inn reynist það mikill, að hann
éti upp hagkvæmnina. Það er til
að mynda mjög athyglisvert, sem
kemur fram í skýrslum Lands-
bankans, að í árslok 1967 nam
byggingarkostnaður söluíbúðana
125 milljónum króna, en kostnað
ur við tækjakaup, birgðaskála,
kyndistöð o. fl., nam 24,2 millj.
króna. Þennan kostnað hefði ver
ið hægt að minnka verulega hefði
verkið verið boðið þannig út, að
byggingameistarar hefðu getað
tekið það að sér, eða íbúðir hefðu
verið keyptar af þeim. En ætlun
in er að F.B. haldi sínu striki
éfram og ljúki byggingu ibúðanna
1250. Nauðsynlegt er, að árang-
ur af nýjungum, tilraunum og
aðstæðum fari að koma í ljós.
Ekki væri úr vegi fyrir F. B.
að færa tilraunastarfsemi sína út
á þann hátt, að byggingameist-
arar byggi þótt ekki væri nema
eitt fjölbýlishúsa nefndarinnar,
og láta þá njóta sömu aðstöðu
og nefndin hefur. Á þann hátt
yrði bezt skorið úr þeim deilu
málum sem uppi hafa verið.
NIÐURSTÖÐUR
Ef niðurstöður eru að lokum
dregnar saman í stutt mál eru
þær þessar:
Framkvæmdanefnd bygginga-
áætlana tókst ekki að ná meiri
byggingarhraða i framkvæmdum
sínum, heldur en álmennt gerist.
Tilraunin með einbýlishúsin
FÉLAGSLÍF
Í.R. körfuknattleiksdeild.
Æfingatafla veturinn 1968-’69.
Mfl. og 1. fl. karla:
Mánud. kl. 18,00—19,40
Hálogaland.
Þriðjud. kl. 19,40—20,30,
Laugardaláhöll.
Miðvikud. kl. 19,50—22,40,
(.R.-hhús.
Föstud. kl. 18,50—19,40,
Hálogaland.
2. fi. drengja:
Sunnud. kl. 18,00—18,50,
Réttarholtskóli.
Mánud. kl. 21,30—22,20,
Í.R.-hús.
Föstud. kl. 19,40—20,30,
Hálogaland.
3. fl. drengja:
Sunnud. kl. 17,10—18,00,
Réttarholtsskóli.
Mánud. kl. 20,40—21,30,
Í.R.-ihús.
Föstud. kl. 17,20—18,10,
Í.R.-hús.
4. fl. drengja:
Þriðj'ud. kl. 19,40—20,30,
Langholtsskóli.
Fimmtud. kl. 19,40—20,30,
Langfaoltsskóli.
5. fl. drengja:
Þriðjud. kl. 18,50—19,40,
Langholtsskóli.
Fimmtud. kl. 18,50—19,40,
LangholtsskólL
Fimmtud. kl. 16,30—17,20,
Í.R.-hús.
2. fl. stúlkna:
Þriðjud. kl. 17,20—18,10,
Í.R.-hús.
Fimmtud. kl. 17,20—18,10,
I.R.-hús.
Æfimgar hefjast mánudag-
inn 1. okt. samkvæmt töflu
þessari. Nýir fólagar vel-
komnir.
Stjómin.
var mjög einhæf og misheppn-
aðist
Nýjungar F.B. í byggingar-
tækni hafa ekki reynzt sem
skyldi, enda er ætlunin að
hverfa frá mörgum þeirra á
síðari byggingarstigum.
Verð íbúðanna fór töluvert
fram úr áætlun og er yfir vísi-
töluverði fjölbýlishúsa.
Byggingameistarar byggja og
selja íbúðir, sem eru sízt dýrari
en íbúðir F.B.
Hyggilegast væri að bygginga
meistarar tækju að sér a.m.k.
hluta framkvæmdanna við sömu
skilyrði' og F.B. svo að sjá megi
hver árangur yrði.
Stjl.
Blóðbað í Kwantungi
— Cengið milli bols og höfuðs
á Rauðum varðliðum
Hong Kong, 24. sept. — AP
NÆR allir Rauðir varðliðar í
Huang Pi i Norður Kwang-
tun voru drepnir í júní af um
500 verkamönnum, bændum
og pólitískmn útsendurum.
Kemur þetta fram í bæklingi
Rauðra varðliða, sem barst til
Hong Kong í dag. Er þessi
bæklingur nefndur: „Hið dýr-
mæta blóð Huang Pi“ og var
hann gefinn út í júlí. Segir
þar, að menn vopnaðir byss-
um og rýtingum hafi drepið
Rauða varðliða „á sérstaklega
grimmdarlegan hátt og hróp-
uðu hefnd um leið.“
Þá segir í blaðinu „Austan-
vindur", að byltingarnefndin
í Kwangtung hafi starfað
með njósnurum kínverskra
þjóðernissinna, komið upp
fangelsis- og pyndingarklef-
um í háskólanum og kynt
undir mikla bardaga þar 3.
júni sl.
Haft er eftir flóttamönnum,
að menn úr kommúnista-
flokknum í Yang Chiang hér-
aði í Kwangtung ofsæki nú
fjölskyldumeðlimi þeirra
fiskimanna, sem flýðu til
Hong Kong fyrir skömmu,
en þessir fiskimenn voru yfir
250. Þannig var fiskimaðW
tekinn af lifi, en hann var
ákær’ður fyrir að hafa hvatt
konu sína og dóttur til þess
að flýja með framangreindum
flóttamannahópi.
Síldarstúlkur óskast
strax til söltunar, flökunar og pökkunar á síld og fl.
Mikil vinna. Unnið í upphituðu húsnæði.
HRÓLFUR H/F., Seyðisfirði.
Uppl. í síma 35709.
Viðskiptafræðingiu
með mikla starfsreynslu óskar eftir góðri atvinnu,
helzt hjá hinu opinbera.
Tilboð merkt: „2039“ sendist á afgr. MbL fyrir
5. október.
Trésmiðir — iðnverkamenn Suðurnesjum
Vantar trésmiði og iðnverkamenn.
TRÉIÐJAN H.F.,
Ytri Njarðvík, sími 1680,
og 1744.
IBÚD ÓSKAST
Alþingismaður óskar eftir 4ra—5 herb. íbúð á leigu
til vors, með eða án húsgagna.
Upplýsingar í síma 24515.
Opnum í dag
Blóma- og
gjafavöruverzlun
að Laugavegi 30
BLÓMACLUGGINN
BLÓMLAUKAR
Pöntunarseðill
Vinsamlegast sendið mér neð-
angreinda blómlauka:
TÚLÍPANAR
Single Early: kr. 6,50
— Oharles — Rauður
Triumf: kr. 6.00
Blandaðir
Triumf: kr. 6.50
— Golden Trophy — Gulur
— Blenda — Bleikur
— Paris — Rauður og gulur
— Elmus — Rauður og hvítur
— Pax — Hvítur
Darwin: kr. 9.00
— Apeldoorn — órans
— Mamassa — Djúpgulur -
Triumph: kr. 9.00
— Olaf — Scarlet
— Rosa Perle — Rauður
Double Early — Lág-
vaxnir: kr. 10.00
— Crimsonia - Criimsonrauður
— Hytuna — Butteroup-gulur
— Carlton — Djúprauður
— Bonanza - Carmine-rauður
Hybrid: kr. 10.00
— Diplomate-Vermilion-
rauður
— Jewel of Spring —■ Gulur
— Oxford — Rauður
Lily — Flowered kr. 10.00
— Red Shine — Djúprauður
— Wh. Triumfator — Hrein-
hvítur
— Mariette — Satin-Rose
— Queen af Sheba — Gló-
andi rauður
Botaniskir: kr. 14.00
— Yellow Dawn — Rauðir —
gulir
— Princeps — Rauðir
— Peacocks — Blandaðir
— Rodluvan — Rauðir
PÁSKALILJUR kr. 20.00
— King Alfred — Golden
Yellow
— Selma Lagerlöf — Hvít-
órans
— Flower Record — Hvít-gul-
órans
— Carlton — Jafngulur
kr. 15.00
Hyacinthur kr. 20.00
— Anna Marie — Bleik
— Jan Bos — Rauð
— Carnegie — Hvít
— Delft Blue — Blá
Jóla-Hyacinthur kr. 32.00
— Pink Pearl — Hrein-bleik
— Anna Marie — Djúp-bleik
— Ar. Arendse — Hvít
— Carnegie — Hvít
— Bismarek — Blá
— Delft Blue — Blá
— Hyacinthu-glös kr. 28.00
CROCUS kr. 5.00
— Gulir
— Bláir
— Röndóttir
— Hvítir
— Blandaðir
— Perlu hýacinthur kr. 5.00
— Vetrargosar kr. 5.00
— Scilla sibirica kr. 7.00
— Eranthis hyemalis kr. 5.00
— Anemónur De Caen 4.00
Væntanlegir eru:
IRIS kr. 5.00
— Imperator — Blár
— Exelsior — Hvítur
— Golden Harvest
— Iris reticulata kr. 4.00
Einnig væntanlegar fleiri teg.
af túlípönum og páskaliljum.
ATHUGIÐ að allir laukarnir
eru af beztu gæðaflokkum og
verðsamanburður því oft
óraunhæfur.
Geymið auglýsinguna.
Greiðsla hjálögð og því burð-
argjaldsfrítt.
Sendist í póstkröfu.
Nafn: .....................
Heimili:
Gróðarstöðin við Miklatorg,
Rvík. Símar 22822 og 19775.