Morgunblaðið - 10.10.1968, Side 2

Morgunblaðið - 10.10.1968, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 19«« „Þakklæti er mér efst í huga“ — sagði Kristján R. Sigurðsson eftir að hann hafði fengið bátinn sinn aftur — ÞA8 fyrsta sem kom í huga minn þegar ég fékk fréttina, var þakklæti til þeirra manna sem mest og bezt hafa unnið að þessum málalokum, sagði Kristján Ragnar Sigurðsson, eigandi vb. Ásmundar, sem gerður var upptækur vegna Ásmund arsmyglsins, er blaðamaður Mbl. ræddi við hann á heim- ili bróður hans í Hafnarfirði í gærkvöldi. — Fréttina' um „uppgjöf sakar“ fékk ég um sjö-leytið í kvöld. Hún kom mér vissu- lega á óvænt. Reyndar var ég búinn að heyra á ferð minni til Reykjavíkur í dag, að eitt- hvað stæði til að gera í mál- inu, en hvað það var vissi ég ekki. — Þetta breytir náttúrlega geysimiklu hjá manni og verður til þess að ég fer að líta bjartari augum á tilver- una, en satt að segja var ég orðinn all svartsýnn. — Nei, það er alveg öruggt að ég ætla ekki að eiga þenn- an bát lengur, svo fremi sem nokkur vill kaupa hann, sem ég vona að verði, því að vb. Ásmundur er afbragðs sjó- skip, svo sem kom fram þeg- ar smyglararnir stálu honum í Holllandsferðina. Ég hefði ekkert á móti þvi að vera viff útgerð, en held samt að ég haldi mig í þeirri vinnu, sem ég er í núna hjá Hraðfrysti- húsi Þórkötlustaða. Fjölskyldan var að vonum eitt sólskinsbros yfir málalokun- um. Kristján Ragnar Sigurðsson ásamt konu sinni Ingey Arn- kelsdóttur og einum syni þeirra, Sigurði Herði. Páll ísólfsson. - PHANTOM Framhald af bls. 1 Rusk, utanrikisráðherra, að hefja samninga við stjóm fsra- els um sölu þangað á bandarísk- um orustuþotum af gerðinni Phantom F4. Hafa ísraelsmenn lengi haft hug á að kaupa 50 þotur af þess- ari gerð, en Bandaríkin ekki viljað selja vegna ástandsins fyr ir botni Miðjarðarhafsins. Nú hefur bandaríska þingið nýver- ið heimilað forsetanum flugvéla söluna, og báðir forsetaframbjóð endur stóru flokkanna, þeir Ric- hard Nixon og Hubert Hump- hrey, hafa lýst sig samþykka sölunni. Phantom F4 þoturnar eru álitnar hraðfleygustu þotur sinn ar tegundar í heiminum. Hátíðatðnleikar á af- mæli Páls ísólfssonar TÓNLISTARFÉLAGIÐ gengst fyrir hátíðatónleikum á 75 ára afmæli Páls ísólfssonar nk. laug- ardag 12. þ.m. kl. 3 e.h. í Aust- urbæjarbíói. Á undan tónleikunum flytur Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld ávarp. Efnisskráin sem eingöngu er skipuð verkum eftir Pál, er þannig: Fyrst syngur Þuríður Pálsdóttir með undirleik Jórunn- ar Viðar þessi lög: Sáuð þið hana systur mína, Kossavísur, Heyr það er unnusrti minn, Sum- ar, Tveir vikivakar og Vöggu- vísa. Þar næst leikur Jórunn Viðar einleik á píanó Fimm Athugosemd KRISTJÁN Ragnar Sigurðsson eigandi Ásmundar GK 30 hefur beðið Mbl. að láta það koma fram í sambandi við viðtal við hann í blaðinu í gær, að hann hafi ekki haft samband við leigu taka bátsins um tíma og geti því ekkert fullyrt um vanskil frá hans hendi, enda átti endan- legt uppgjör milli þeirra ekki að fara fram fyrr en 31. októ- ber næstkomandL svipmyndir. Síðan syngur Krist- inn Hallsson þessi lög: Fyrr þín gæðin fýsileg, Jarpur skeiðar fljótur frár, Ég reið um háar heiðar, Söknuður og Heimir. Undirleik annast Árni Kristjáns- son og loks leikur Rögnvaldur Sigurjónsson einleik á píanó, Til- brigði um stef eftir ísólf Pálsson. Að tónleikunum loknum munu vinir og aðdáendur Páls ísólfs- sonar hylla hinn dáða organleik- ára, stjórnanda, kennara og tón- skáld á 75 ára afmæli hans, en Páll verður viðstaddur tónleik- Tónleikarnir verða endurtekn- ir á sunnudag kl. 3. MUNNLEGUR málflutningur í máli ákæruvaldsins gegn Þor- valdi Ara Arasyni hófst í gær- morgun í Hæstarétti og lauk síð degis. Er dóms að vænta í máli þessu alveg næstu daga. Lík Jörundar Sveinssonor hindið SL. SUNNUDAG fannst lík Jörundar Sveinssonar loft- skeytamanns á b.v. Víking, í (Siglufjarðarhöfn. Jörundur féll milli skips og bryggju, er hann var á leið um borð í skip sitt í vonsku veðri, og fannst lík hans ekki fyrr en nú, þrátt fyrir í- trekaða leit. Munchen- samkomulugið ÞANN 29. sept. sl. birti Morgun- blaðið fróðlegt yfirlit um hinn fræga sáttmála, sem gerður var í Munchen þann 30. sept. 1938. Morgunblaðið telur að Sovétrík- in hafi ekki átt neina aðild að sáttmálanum, en viss andi sveif þó yfir vötnunum í Munchen. Þarna hittust fjórir af þekktustu stjórnmálamönnum Evrópu, þeir: Mussolini Hitler Chamberlain Daladier Friður var umræðuefnið. Munehen var fundarstaðurinn. Til þess að finna rauða þráðinn í ráðstefnunni getur maður lesið niður þriðja stafinn í þessum sex orðum. Aron Guðbrandsson. Þjóðslfórn og lausn elnahagsvandans1 99 — til umrœðu hjá Stúdentafélagi Rvíkur Sérfræðingar fást við lærbrot arnarins NÁTTÚRUFRÆÐISITOFNUN- INNI barst um helgina slasaður örn frá Helgafelli í Helgafells- sveit á Snæfellsnesi. Kom í ljós við rannsókn að hann var lær- brotinn. Örninn hefur síðan verið í höndum færustu sérfræðinga íslenzkra laeknavísinda, og er beðið með mikilli eftirvæntingu eftir því hver árangurinn verð- ur, því að algert nýmæli er, ef það tekst að gera að sárum arn arins. Rötgenmyndir voru teknar af fæti arnarins strax í upphafi, og hann hefur síðan verið meðhöndlaður af læknum, eins og um mann væri að ræða. Lærbrotið er ekki mjög slæmt, og væri auðvelt við ureignar á mönnum, en illmögu legt er að eiga við slík sár, þeg- ar um dýr eða fugla er að ræða, vegna þess hversu mikið þau brjótast um. Fótur arnarins ér nú kominn í gips, og er örninn reirður niður til þess að hann brjótist ekki um. Mata verður hann daglega. Íslendingur sögufróði — Bók í tilefni sjötugsafmœlis Hagalíns BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá í Hafnarfirði hefur gefið út bók er nefnist íslendingur sögufróði, — úrval úr ritverkum Guðmund ar Gíslasonar Hagalíns. Er bók- in gefin út í tilefni sjötugsaf- mælis höfundar, sem er í dag. í formála bókarinnar segir út- gcfandinn Oliver Steinn, m.a.: „í þessa bók, sem út er gefin í íilefni sjötugsafmælis Guðmund- í KVÖLD efnir Stúdentafélag Reykjavíkur til almenns um- ræðufundar í Sigtúni við Austur- völl um efnið: „Þjóðstjórn — og lausn efnahagsvandans". Fram- ar Gíslasonar Hagalíns, hafa þrettán vinir hans, skáld, rithöf- undar og unnendur verka hans, valið hver sinn kaflann til birt- ingar og Hagalín sjálfur loka- kaflann. Veljendum voru gefnar frjálsar hendur um hvaða eða hvers kyns kafla þeir veldu. Þegar á val þeirra er síðan lit- ið sem heild, hefur það orðið að skemmtilegri sýnisbók, sem kynnir hinn fjölþætta rithöf- undarferil Hagalíns, allt frá æskuljóðum hans til lokakafla síðustu bókar hans“. Kaflarnir sem valdir eru í bók ina eru eftirfarandi: Tómas Guð- mundsson, skáld, velur ljóð frá æskuárum úr bókinni Blindsker, er kom út 1921; Hannes Péturs- son, skáld, velur kafla úr Þætti af Neshólabræðrum úr bókinni Veður öll válynd, er út kom 1925; Matthías Johannessen, skáld, velur kafla úr Kristrúnu í Hamravík er út kom 1933; Dr. Sigurður Nordal velur kafla úr sögunni Förunautum er út kom 1943; Jónas Árnason, rithöfund- ur, velur kafla úr Virkum dög- um, er kom út 1936; Ólafur Jóns son, bókmenntagagnrýnandi, vel ur kafla úr Sturla í Vogum er út kom 1938; Dr. Björn Sigfús- son velur kafla úr Sögu Eldeyj- ar-Hjalta er út kom 1939; Helgi Sæmundsson, ritstjóri, velur kafla úr bókinni Úr blámóðu ald anna er út kom 1952; Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur, velur kafla úr bókinni Konan í daln- um og dæturnar sjö er út kom 1954; Dr. Steingrímur J. Þor- steinsson, prófessor, velur kafla úr bókunum Hér er kominn Hoffinn og Hrævareldar og himinljómi er út komu 1954 og 1955; Erlendur Jónsson, bók- menntagagnrýnandi, velur einn- ig kafla úr Hrævareldum og himinljómi; Eiríkur Hreinn Finnbogason, borgarbókavörður, velur kafla úr bókinni Fíla- beinshöllin er út kom 1959; Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, v:lur lokakaflann úr Márus á Valshamri og meistari Jón, er út kom 1967 og loks velur höfund- urinn, Guðmundur G. Hagalín, lokakaflann úr Gróðri og sand- foki er út kom 1943. Bókin er 216 blaðsíður, prent- uð í Alþýðuprentsmiðjunni. sögumenn eru tveir úr hópi yngri stjórnmálamanna, þeir Árni Grétar Finnsson, hæsta- réttarlögmaður, og Ólafur Ragn- ar Grímsson, hagfræðingur. Philip prins til Is- lands á föstudag PHILIP prins, eiginmaður Elísabetar Bretadrottningar, kemur til fslands næstkom- andi föstudag. Kemur prinsinn í þotu frá brezka flughernum og lendir hún síðdegis á föstudag á Keflavíkurflugvelli. Prinsinn stanzar hér í tæp- an klukfeutíma, en hann kem- ur hér við á leið sinni til ólympíuleikanna i Mexikó.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.