Morgunblaðið - 10.10.1968, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.10.1968, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1968 Persdnur sögunnar eiga aliar hlut í sjálfum mér Rœtt v/ð nýjan skáldsagnahöfund, Arthur Knut Farestveit — Grundvallarhugsunin í sög unni er sú, að mér finnst þess gæta óeðlilega á meðal okkar, að þeir sem einhverra hluta vegna hafa ekki haft kjárk og þor til að verða leiðandi í starfi, eyði tíma sínum og orku í að halda mönnum sér fremri niðri í stað þess að styrkja þá og hvetja til dáða. Þeir sem vilja komast áfram og hafa margt til að bera, þurfa á styrk að halda. — Maðurinn getur ekki staðið einn. Þetta segir nýr ungur höfund ur, Arthur Knut Faresveit, sem kvatt hefur sér hljóðs með skáld sögunni Fólkið á ströndinni, sem kom út hjá Almenna bókafélag- <« inu fyrir nokkru. Eftir Arthur hafa birzt nokkrar smásögur í blöðum og tímaritum undanfarin ár. — Hvernig vannstu að sög- unni? — Hugmyndina fékk ég upp- haflega fyrir allmörgum árum, en þá vann ég á veghefli skammt frá Stokkseyri og sá sjógarð- inn þar. En þegar ég leit þetta mikla mannvirki fannst mér ein- hvernveginn eins og sagan lægi opin fyrir mér. Síðar lagði ég grunnkaflana niður fyrir mér. Sögunni er skipt í 2 megin- kafla, sá fyrri heitir að morgni og hinn síðari að kveldi. Þetta að skipta sögunni þannig í tvo höfuð kafla tel ég vera mikils- vert atriði. Með því vil ég leggja áherzlu á að þó sagan spanni yfir um 50 ára tímabil þá séu 50 ár á ströndinni, sem dagur ei meir. Allt hefur einhvernveg- inn staðið í stað þrátt fyrir fram vindu tímans. — Þú virðist hafa gott vald og þekkingu á tungutaki per- sónanna. Varla hefurðu numið í Reykjavík? — Ég er alinn upp að miklu leyti á Hvammstanga, og lagði mig snemma í líma við að hlusta á og ræða við gamalt fólk. En auðvitað ætti að vera þarflaust að taka það fram að ég styðst hvergi við ákveðnar fyrirmynd- ir hvorki að norðan né héðan að sunnan. Hinsvegar játa ég fúslega að persónur sögunnar eiga allar vissan hlut í mér sjálf um. — Hvað vakir fyrir þér með nauðgunarsenunni í lokin? Býr einhver sérstakur boðskapur þar að baki? — Eiginlega túlkar nauðgunin ósigur stúlkunnar, sem heldur uppi þeim eina kjark, sem enn eimir eftir af í þorpinu. Stúlk- an í sögunni er ímynd þeirrar framtíðar, sem hægt hefði verið að færa þorpinu, en er misþyrmt og fótum troðin. — Varstu lengi að vinna að sögunni? — Ég skrifaði að minnsta kosti fimm uppköst að henni. Vetur- inn 1965—66 var ég við nám í leikhúsfræðum við háskólann í Osló og vann ég mikiS þá að henni. Eg hafði þá allgóðan tíma auk þess þótti mér gott að vera í fjarlægð frá sögusviðinu. Síð- an lagði ég handritið fyrir Al- menna bókafélagið. Tómas Guð- mundsson las það yfir, tók í hnakkadrambið á mér og sagði að fólk væri steinhætt að nenna að lesa langar skáldsögur. Ég settist því niður og skar söguna niður um allt að því helming. Ég er þeirrar skoðunar að hún hafi grætt mikið á þvL — Ertu með fleiri verk í smíð- um? — Ég er að leggja síðustu hönd á ská'ldsögu, sem enn hefur ekki hlotið endanlegt nafn. f handritunum hef ég þó kallað hana Lífssekt. Þetta er frekar stutt saga og alger andstæða við Fólkið á sbröndinni. Arthur Faretveit f vetur eða vor hef ég svo hugsað mér að dvelja um hríð í Kaupmannahöfn ásamt konu minni og halda þar áfram að vinna að bók, sem lengi hefur leitað á huga minn. Sú saga fjall ar að nokkru um afdrif íslend- inga á Græníandi. Ég mun því verja tíma mínum í að sækja söfn í Kaupmannahöfn og kynna mér efnið eftir því sem tök eru á. Síðar býst ég við að ég verði að dvelja eitthvað á GrænJandi til þess að komast í snertingu við mér öllu óþekkta náttúru. Eins og er virðist mér þetta ætla að verða mikið verk, þar sem sagan verður að spanna yfir að minnsta kostilOO ára tíma- bil eigi hún að geta gefið nokkra hugmynd um afdrif fslending- anna og þá baráttu sem þier háðu. Ég hef samit ekki í huga að skrifa skáldsögu, sem flokk- azt gæti undir orðið sagnaskáld saga, heldur gefur þetta við- fangsefni mér tækifæri til að seil ast inn í vandamál einstaklings- ins, fólksins og þjóðanna í dag, það er, kærleikann til náungans hvort sem hann er svartur, gul- ur eða hvítur. Ég hef um nokk- urt skeið verið að viða að mér persónum og efni í söguna, en vantar að sjálfsögðu heildar- bygginguna. Ég hef einnig reynt að viða að mér bókum um Eski- móamenningu og reynt að kynna mér allt tiltækt efni um þá. Þá gæti einnig verið að sitthvað kæmi upp úr dúrnum, sem við höfum ekki enn lagt nógu mikið upp úr hvað snertir Eskimóana. En hafa ber í huga að þeir réðu yfir margs konar tækni, sem norðurlandabúar þekktu ekki til og þeir áttu rætur sínar í nátt- úrunni sjálfri. — Hefurðu lengi fengizt við að skrifa? — Ég hef skrifað síðan ég var í menntaskóla og nokkrum árum betur. Þegar ég var í þriðja bekk var ég hinsvegar svo hepp inn að fá 1. verðlaun í smásagna samkeppni, sem efnt var til á veg um Framtíðarinnar. Það var ta'ls verða uppörvun. Síðan hef ég haldið áfram og birt nokkrar smásögur í blöðum tímaritum og útvarpi. — Þú sagðist hafa verið við nám í leikhúsfræðum, hefurðu kannski sérstakan áhuga á leik- ritagerð? — Já, ég hef vissulega áhuga, en ekki veit ég hvort hyggilegt er að fara út í þá sálma að sinni. Ég var aðeins einn vetur við nám í leikhúsfræðum, en það var mér mjög gagnlegur tími. Norski skólinn er nýr en skip- aður afbragðs mönnum. Viðfangs efnin voru tekin til meðferðar og krufin til mergjar og komið var inn á flestar greinar leikhúsvís- inda, sálarfræði leikara hvað þá meira. — Finnst þér þú vera kröfu- harður við sjálfan þig? — Ég get ekki dæmt um það. Hinsvegar byrja ég ekki áneinu fyrr en ég er búiran að ganga það lengi með hugmyndirnar, að ég tel mig ráða viðunandi við þær. Og þegar ég byrja á annað borð að skrifa hef ég varla und- an að festa það á pappírinn sem ég vildi sagt hafa. Síðan kemur úrvinnslan. Nú og ef mig brest- ur ekki hörku, tíma og hæfileika til að virana úr þeim hugmyndum, sem sækja á mig, vonast ég tfl. að geta haldið áfram að skrifa. — Og hafa skal orð Ibsens gamla í huga: at dikte — det er að holde dommedag over seg selv. — Kvíðirðu gagnrýni? Nei, ég hlakka frekar til að sjá hvað gagnrýnendurnir hafa um bókina að segja. Þó vona ég að þeir láti ekki standa sig að því að vinna flausturslega að verkefni sínu og misskilji þá kannski stórlega ýmis atriði. Það er vandaamt að vera gagnrýn- andi og starf þeirra er mikilvægt Ég er viðbúinn að taka við holl- um leiðbeiningum en sparðatín- ing hirði ég ekki um. Steinn Jónsson hdL Lögfræðiskrifstofa. Fasteignasala. Til sölu m.a. 2ja herb. jarðhæð við Brekku- stíg í góðu standi, útb. 350 þús. 3ja herb. jarðhæð á Seltjarn- arnesi. 4ra herb. hæð við Víðihvamm, útb. aðeins kr. 300 þús. 5 herb. hæð í blokk í Vestur- borginni, endaíbúð. Suð- vestursvalir. 5 herb. hæð við Álfheima, sér- lega vönduð íbúð. 7 herb. hæð í nýju húsi ásamt bílskúr. Teppalagt, sérlega vandað eldhús. Eignaskipti möguieg. Einbýlishús við Lyngás í Garðahreppi. Einbýlishús við Hrauntungu í Kópavogi. Einbýlishús við Sogaveg, útb. aðeins 200 þús. Höfum kaupanda að einstakl- ingsíbúð í skiptum fyr- ir 3ja herb. íbúð í Holtun- um. Hafið samband við okkur, ef þér þurfið að kaupa eða selja íbúð. Steinn Jónsson hdl. Kirkjúhvoli. Símar 19090 - 14951. Kvöldsími 36768 ÍBÚÐIR — ÍBÚÐIR í BYGCINGARSAMVINNUFÉLAGI Til ráðstöfunar eru nú aðeins tvær 3ja herb. íbúðir (90 ferm.) í stigahúsum sem verið er að byggja við Maríubakka í Breiðholti. Þvotta- og vinnuherb. er sér inn af eldhúsi, (4x1,7 m.) Baðherbergi er með glugga. í kjallara eru geymslur og sameign. 6 íbúðir eru í hverju stigahúsi. Búið er að sækja um húsnæðismálastjórnarlán. Verðið á þessum íbúðum verður mjög hagstætt. Byggingarkostnað má greiða á árunum 1968, ’69 og ’70. Teikningar og allar upplýsingar er að fá hjá Sigurði Pálssyni, byggingarmeistara, Kambsvegi 32, símar: 34472, 38414. Leiguíbúd íbúð óskast til leigu í Kópavogi eða ÁrbæjarhverfL Upplýsingar í síma 40054. Bifvélavirki Innflutningsfyrirtæki óskar að ráða ungan bifvéla- virkja með meistararéttindum. Tilboð er greini aldur og fyrri störf leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 25. okt. n.k. merkt: „Bifvéla- virkjameistari — 2149“. f Vesturbœnum Til sölu er nýleg, mjög stór (tæpir 80 ferm.) 2ja her- bergja íbúð á jarðhæð í sambýlishúsi við Meistara- velli. Stórir suðurgluggar. Sérhiti. Sérþvottahús. Harðviðar- og plastinnréttingar af beztu gerð. Teppi á gólfum. Teikning hér á skrifstofunni. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur. Fasteignasala. Suðurgötu 4. Sími 14314. Kvöldsími 34231.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.