Morgunblaðið - 10.10.1968, Side 16

Morgunblaðið - 10.10.1968, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1968 - BÖKMENNTIR Framhald af bls. 13 skáldsöguimi Töfrar draumsins, þar sem karlmaðurinn gufar upp og verður að reyk — draumi í huga konu sinnar. En hún stendur állan tímann í forgrunni sög- unnar, holdi klædd, svo ekki sé fastar að orði kveðið. VI Hverfum frá manngerð og einstaklingi til samfélags. Sér- hver höfundur mótast af sam- félagi sínu. Samfélagið leggur honum svo aftur verkefni i hend ur, sem hann vinnur úr sam- kvæmt viðhorfi sínu og reynslu. Ritferill Hagalíns sem ungs höfundar er samfelldur um- brotatími í þjóðfélaginu. Sundr- ung geysar, stéttastríð eru háð, rithöfundar fylkja sér í and- stæðar pólitískar raðir. Nýjar stjórnmálastefnur róta upp í þjóðfélaginu, sem er að umbreyt ast úr bændaþjóðfélagi í borg- araþjóðfélag. Fyrsta skáldsaga Hagalíns, Vestan úr Fjörðum, fjallar um félagsleg vandamál. Brennumenn koma út sama ár- ið og Vefari Laxness og er í tölu fyrstu skáldverka ís- lenzkra, sem fjalla um verklýðs- baráttu, beinlínis. Brennumenn er engan veginn hagalínsk saga, stíllinn er fremur ópersónulegur miðað við aðrar bækur höfund- arins, efnið ferskt og lítt gerj- að til skáldskapar. Engu að síð- ur verður að hafa hliðsjón af þeirri sögu, þegar reynt er að gera sér hugmynd um samheng- ið í verkum Hagalíns og sam- kvæmni hans í skoðunum fyrr og síðar. Hagalín er frá fyrstu tíð höfundur „vinnandi stétta“ í þjóðfélaginu, ekki þarf að- fengna pólitík til að beina hon- um inn á þá brautina. En hann gerist aldrei maður kreddu og kennisetningar. Á milíistríðsárunum, þegar stéttabaráttan stendur sem hæst, er krafizt af rithöfundum, að þeir taki hreina „afstöðu" með eða móti þeim kennisetningum, sem á loft er haldið. Hagalín verður dauflega við slíkum kröf um. Hann tekur manngildið fram yfir kennisetninguna án þess þó að hafna kenningunni skilyrðislaust. Hún er réttlæt- anleg, þegar hún greiðir fyrir samskiptum einstaklinganna í samfélaginu, en skaðleg vita- skutd.þegar hún spillir þeim. Márus á Valshamri, síðasta og ef til vill einnig’ bezta skáld- saga Hagalíns, telst ekki til verklýðsbókmennta, enda sam- in löngu síðar tímabiti þeirra. Þar fjallar Hagalín þó um sam- félagið af meiri festu, yfirsýn og alvöru en nokkru sinni fyrr og skírskotar jöfnum höndum til fortíðar og líðandi stundar. Sé Kristrún í Hamravík skemmtilegasta dæmið um öfg- arnar í skáldskap Hagalíns, má Márus á Valshamri á sama hátt vera samnefnari fyrir allt, sem hann hefur skrifað sannast og hófsamast. VII Um stít Hagalíns hefur vitan- lega verið skrifað margt og mik- ið fyrr og síðar. Þegar Hagalín byrjar að skrifa skáldsögur, er sveitasag- an næstum eina fyrirmyndin í íslenzkum sagnaskáldskap. Að segja frá sjómönnum í verbúð- um og verkamönnum í litlum þorpum er því nýjung, sem krefst endurnýjumar á formi, þar á meðál stíl. Efni þau, sem Hagalín tekur öðru fremur til meðferðar, eru ekki „þjóðleg* í líking við efni sveitalífssagn- anna. Þeim byrjar því annars konar mátfar. Jóni Thoroddsen tjóaði ekki að skrifa fornsagnastíl, þegar hann sagði frá lífinu í Reykja- vík í Pilti og stúlku, þó hann gæti á hinn bóginn leyft sér að líkja eftir stíl íslendingasagna í Manni og konu, sem er hrein sveitasaga. Málvöndunarstefnan er enn lögmál, sem sumir höfundar höfðu raunar fylgt sér til tjóns, þegar Hagalín gerist rithöf- undur. Hagalín telur sig ekki geta fylgt þeirri stefnu, treystir sér blátt áfram ekki til þess, brýt- ur hana ekki af sér þegar í stað, að vísu, og varla gagngert fyrr en með Kristrúnu í Hamravík, en fylgir eftir það þeirri stíl- fyrirmynd, sem hann hefur sjálf ur fundið upp með þeirri sögu. Stefán Einarsson segir um stíl inn á Kristrúnu í Hamravík: Þessi stíll er fullur af litotes og undirmati . . . En auk þess er hér fullt af alþýðuoröum og útlendum or&um, sem ekki hafa komizt á bœkur fyrir áhrif frá málhreinsunarmönnum. Og loks eru áhrif 17. aldar höfundanna og guðs-orðabókanna. Þaðan stafar eflaust sumt af dönsku- slettunum, og sennilega það dansk þýzka stílbragð að setja eignarfall á undan orðinu sem það stýrir. fslenzkan hefur það öfugt að öllum jafnaöi, en þessi forstaða Ijœr ákvœðisorðinu áherzlu. Ekki hafa gagnrýnendur ver- ið á einu máli, hvort talmál það, sem Hagalín leggur í munn Kristrúnu í Hamravík og mörg- um fleiri söguhetjum sínum, sé „vestfirzka" það er að segja málfar sérkennilegs kjiarna- fólks, sem höfundur hafi numið í uppvexti, eða þá „hagalínska11 — mál, sem höfundur hafi búið til að mestu leyti sjálfur. Hagahn hefur leitazt við að skera úr þessu — hann segir: Ýmsir hafa talið, að ég hafi búið til margt af þeim orðum, sem ég nota * Kristrúnu í Hamravík. En sannleikurinn er sá, að mikinn meginhluta orð- anna hafði ég heyrt vestra, en ekki af munni eins manns, karls eða konu. Að sjálfsögðu mótast stíll Hagalíns af öðrum vinnubrögð- um hans. Hann hefur numið margt af munnlegri frásögn ann arra og er sjálfur snillingur að segja frá Hann er afkastamikill rithöfundur, þar af leiðandiorð- margur. Ógjarnan lætur hann stuttorðum og neyðarlegum skeytum í knöppum málsgrein- um þyrma yfir lesandann, en lumar þeim mun oftar á lúmsku tvíræði undir hálfgerðu sýnd- arorðagjálfri. Tilfærum lítið dæmi — Bessi skytta, sá dóma- dags kotungur og kjaftaskur, heilsar Márusi bónda á Vals- hamri með þessum orðum: „Sigursœll, höfuðkempa og höfðingi okkar útverja í þess- um noröurhreppum. . . og marg launuð veri þín rausn og vernd. . . mér og mínum til handa — svo vel ferfættum sem tvífættum, — ekki að gleyma tóbaksblöðunum í kjöft urnar á mér. . . og feginn vildi ég geta slysað ennþá eina og eina refkeilu. . . sem annars _ kynni að gera einhvern af þín- um kyngóðu sauðum snopp- unni styttri." Minnumst þess, að hér er kot- ungur að heilsa efnabónda. En óðaisbóndinn má vara sig á þess um karli, sem blandar svo kæn- lega saman lítiílæti og laun- drýldni, að óðalsbóndinn veit eiginlega hreint ekki, hvar hann hefur karlinn. Það er þessi undirtónn, sem gerir stíil Hagalíns kostulegan, þegar bezt lætur. Og það er með- al annars vegna stílsins, að verk hans eru girnileg til lestrar og eftirminnileg, þó hinu megi að sjálfsögðu ekki gleyma — og enn vitna ég í blaðaskrif Haga- líns frá Seyðisfjarðarárunum, að „allar bækur, sem listamanns- mörkin eru á, kenna listina að lifa, ef sá, sem les, kann að hagnýta sér vit það og snilld þá, er þar kemur fram. VIII Rithöfundur, sem staðið hef- ur hálfa öld í sviðsljósinu, hef- ur óhjákvæmilega undirgengist margháttað og breytilegt mat á verkum sínum. En Hagalin hefur alltaf verið sjálfum sér samkvæmur bæði sem rithöfund- ur og áhrifamaður í menning- armálum þjóðarinnar. Stemmingin hefur sveiflazt tií og frá og þar með hvort tveggja: gengi verka hans með- a'l þjóðarinnar og áhrifamáttur þeirra sjálfra, en það tvennt fylgist gjarnan að. En svo mikil eru verk hans nú orðin að vöxtum og fjöl- breytni, að í greinarkorni sem þessu er í rauninni ókleift að virða þau fyrir sér nema frá einni hlið eða svo. Vitanlega má skoða þau frá mörgum öðrum sjónarhornum og finna þeim margt til gildis, sem ekki hefur verið vikið að hér. Ég hef ekki einu sinni nefnt á nafn sumar beztu bækur Haga- líns eins og Blítt lætur veröíd- in, né héldur hina margfrægu Sturlu í Vogum. Fáir íslenzkir höfundair hafa átt að baki svo risavaxið og fjpl þætt ævistarf sem Hagalín á nú, siötugur. Þó liðin ævi sé sá lagaboð- inn, sem aldrei verður endur- tekinn, hlýtur að vera nokkuð ffamain að hafa lifað svo langan dag, að hafa s krifað fimmtíu bækur og vera þó nýíega búinn að senda frá sér eitt af sínum hugþekkustu verkum. Erlendur Jónsson. Nauðungarupphoð annað og síðasta á hluta í Barmahlíð 28, hér í borg, þingl. eign Gunnars Þórarinssonar, fer fram á eign- inni sjálfri, laugardaginn 12. okt. 1968, kl. 11 árdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var 4., 6. og 8. tbl. Lögbirtingablaðsins 1968 á hluta í Faxaskjóli 24, þingl. eign Þorsteins Þór- arinssonar fer fram eftir kröfu Landsbanka íslands og Útvegsbanka íslands, á eigninni sjálfri, laugardaginn 12. okt. 1968, kl. 10,30 árdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Hauks Jónssonar hrl., fer fram nauðungar- uppboð í vörugjymslu vélsm. Héðins, Seljavegi 2, hér í borg, mánudaginn 14. október 1968, kl. 2 e.h. og verður þar seldur rennibekkur TOS-SU 32, talinn eign Stál- vinnslunnar h.f. Greiðsla við hamarshögg. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á 'nluta í Kjartansgötu 8, hér í borg, þingl. eign Steinþóru Ólafíu Jónsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri, laugardaginn 12. okt. 1968, kl. 11,30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. ELECTOR ryksugurnar margeftirspurðu komnar aftur, verð aðeins kr. 2.167.— með söluskatti. Pantanir óskast sóttar sem fyrst. Einnig strokjám með hitastilli og Ijósi, kr. 405.— Ársábyrgð. Varahlutaþjónusta. . Verzlið þar sem verðið er lægst. — Póstsendum. Ingþór Haraldsson hf Grensásvegi 5, sími 84845. Kjólamarkaðurinn á Laugavegi 2 (Laufið). Nýtt fjölbreytt úrval af kjólum. Mjög ódýrir morgunkjólar á kr. 130.— Kvöldkjólar ciffon á 400.— kr. Prjónakjólar á 300.— kr. Ullar og ullarjerseykjólar á 700.— kr. Alullarkjólar tvískiptir. Stærðir frá 38 til 44 kr. 1500,— Crimplenekjólar tvískiptir á kr. 700.— Slá á kr. 800.— LAUFIÐ Laugavegi 2. íbúð óskast Ung reglusöm hjón utan af landi með 1 barn óska eftir 1 herb. og eldhúsi á leigu í vetur. Húshjálp kemur til greina. — Upplýsingar í síma 40572. Röskiu sendisveinn ósknst hálfan daginn, he’zt með skellinöðru. — Uppl. hjá AGLI GUTTORMSSYNI Vonarstræti 4 — Sími 14189. VIKING SNJÓHJÓLBARÐ- ARNHl eru komnir. Látið ekki dragast að setja bílinn á snjó- hjólbarða þar til hálkan er komin. Allar stærðir, með eða án snjónagla. Gúmm'ivinnustofan hf. Skipholti 35 — Sími 31055 — Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.