Morgunblaðið - 10.10.1968, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1968
1
Hvað segja fulltrúar á Iðnþingi Islendinga?
Um áttatíu fulltrúar sitja nú
þrítugasta Iðnþing íslendinga,
sem haldið er á Suðurnesjum.
Við hittum sex þeirra að máli
í gær og spurðum þá frétta.
Skúli Jónsson
„Iðnskóli kjördæmisins
verði á Siglufirði"
Skúli Jónasson, bygginga-
meistari, er fulltrúi Iðnaðar-
mannafélags Siglufjarðar.
— Hvað er að frétta af iðn-
aðarmönnum í Siglufirði, Skúli?
— Ja, ástandið er ekki vel
gott hjá iðnaðarmönnum í Siglu
firði og útlitið lakara en oft
áður. Er nú svo komið, að við
teljum að okkur komið í sam-
bandi við úrbætur því nokk-
uð að siglfirzkum iðnaðarmönn
um, einkum trésmiðir verða nú
að stunda vinnu utan byggðar
lagsins, einkum við Búrfell og
hér í Reykjavík.
Iðnaðarmenn á Siglufirði
standa á nokkurs konar tíma-
mótum því nýlokið er við ýms-
ar stórbyggingar og vart er
um neina nýsmíði að ræða. Að
undanförnu hefur sáralítið ver
ið um aðra iðnaðarvinnu, en
viðgerðar- og viðhaldsvinnu.
Sl. vor gerðum við okkur
góðar vonir um nokkrar íbúð-
arbyggingar á vegum bygginga
sjóðs ríkisins. Úr þeim varð þó
ekkert vegna fjárskorts, en
vonir standa til að framkvæmd
ir hefjist næsta vor. Þegar hef
ur verið sótt um yfir 20 íbúð-
ir og mundi þetta því skapa
góða atvinnu, ef af yrði.
— Hvaða mál þessa þings
vekja mesta athygli þína?
— Ég býst við, að atvinnu-
málin verði þar þyngst á met-
unum hjá mér sem fleirum.
— Hvert er brýnasta áhuga-
mál siglfirzkra iðnaðamranna,
ef atvinnumálunum er sleppt?
— Tvímælalaust iðnskólinn.
Samkvæmt lögum, á að vera
einn iðnskóli í hverju kjördæmi
f Siglufirði hefur verið starf-
ræktur iðnskóli í 33 ár og við
getum boðið upp á fyrsta flokks
húsnæði og gott kennaralið.
Menntamálaráðuneytið hefur
ákveðið, að fyrst um sinn skuli
starfræktir tveir iðnskólar í
kjördæminu: á Sauðárkróki og
í Siglufirði. Við teljum það
okkar brýnasta áhugamál, að
þegar lögin um iðnskóla verða
látin ná yfir Norðurlandskjör
dæmi vestra verði iðnskóli kjör
dæmisins staðsettur á Siglu-
firði.
„Takmarkið er fullkomin
skipasmíðastöð“
Eggert Ólafsson er fulltrúi
Iðnaðarmannafélags Vestmanna
eyja en 1 því eru nú um 150
félagsmenn.
„Það má segja að mikill sam
dráttur hafi átt sér stað i véla
®g byggingariðnaði í Vestmanna
eyjum“, segir Eggert. „Nú er að
allega unnið við að ljúka ýms-
um verkefnum, en lítið er um
ný verkefni."
— Þannig að atvinnumálin
koma til með að vekja mesta at
hygli þína á þessu þingi? ^
— Já, ætli það ekki. Ég býst
við , að svo sé um flesta full-
trúana á þessu þingi.
— Hvar hafið þið iðnaðar-
menn í Vestmannaeyjum til mál
anna að leggja?
— Ja, okkur dreymir um
skipasmíðastöð. Nú eru tveir
litlir og gamlir slippar í Vest-
mannaeyjum þar sem hægt er
að taka upp um 150 lesta skip.
En við viljum geta tekið upp
allt að 500 tonna skip. Hvort
sem farið verður út í að byggja
við þessa tvo slippa, sem fyrir
eru, eða nýr slippur verður
byggður, er því mál, sem þarf
að athuga gaumgæfilega sem
fyrst.
Eggert Ólafsson
Við verðum að sætta okkur
við ýms takmörk, sem fylgja
því að byggja eyju. Þess vegna
getum við aldrei orðið sam-
samkeppnisfærir í ýmsum fram
leiðsluiðngreinum, en skipaiðn
aðurinn er okkar framtíð. Á
því er enginn vafi. Þar getum
við flutt hráefnið beint inn og
um flutningskostnað á markað
er ekki að ræða. Stór báta-
floti stundar veiðar umhverfis
Vestmannaeyjar allt árið um
kring og því þyrftum við að
hafa aðstöðu til að veita hon-
um alla þá þjónustu sem við
mögulega getum, að ég tali nú
ekki um nýsmíði.
Þá erum víð líka vel sam-
keppnisfærir á sviði vélaiðnað
ar til útflutnings og get ég
nefnd sem dæmi Sigmund-fisk
verkunarvélarnar, sem fram-
leiddar eru í Vestmannaeyjum
og hafa verið fluttar út, m.a.
til Skotlands.
„Aðstöðumunur málmiðn-
aðarfyrirtækja og
verzlunarfyrirtækja.“
Guðjón Tómasson frá Reykja-
vík er fulltrúi Meistarafélags
járniðnaðarmanna:
— Hvað er helzt tíðinda í
ykkar málefnum?
— Á okkar sviði er helzt um
að ræða könnun á rekstrar-
grundvelli málmiðnaðarfyrir-
tækja. Þar hefur að undan-
förnu verið unnið að saman-
burðarrannsóknum á rekstri
málmiðnaðarfyrirtækja annars
vegar og rekstri innflutnings-
verzlana hins vegar. Þessi at-
hugun hefur að vísu verið mjög
lausleg, en niðurstöður hennar
benda skýrt til þess að um
verulegan aðstöðumun sé að
ræða, sérstaklega hvað varðar
opinber gjöld. Sem dæmi um
þessa athugun get ég nefnt að
við tókum 10 fyrirtækja úrtak
úr hvorri grein og niðurstaða
þeirrar athugunar leiddi í ljós
að af veltu sinni greiðir verzl
unarfyrirtækið um 1.4prs. af
veltunni í opinber gjöld á
meðan málmiðnaðarfyrirtæki
Guðjón Tómasson
greiða 3.7prs. Af þessu sést að
um mikinn aðstöðumun er að
ræða hvað varðar opinber
gjöld. f þessum tilfellum er lagt
á eftir sömu skattalöggjöf og
því verka hinir ýmsu skattar,
svo sem launaskattur, mun
þyngra í iðnaðinum, heldur en
innflutningsverzluninni. Það
virðist þurfa um 6 sinnum meiri
eignir og þar af leiðandi 6 sinn
um meiri eignasköttun til þess
að ná upp sömu veltu og verzl
unarfyrirtækin.
„Tryggja ber réttindi
faglærðra málara“
Við ræddum einnig við Krist
in Guðmundsson málara, sem
er fulltrúi fyrir Málarafélag
Suðurnesja:
— Eigið þið við einhver sér
stök vandamál að glíma?
— Það hefur verið nokkuð
mikið um það að ófaglærðir
menn hafa stundað málarastörf
og við reynum að tryggja rétt
stéttarinnar með því að tak-
marka það á eðlilegan hátt og
einnig koma í veg fyrir að ein
staklingar og fyrirtæki semji
sín á milli, þannig að ófaglærð
ir menn séu látnir vinna mál-
arastörf.
Kristinn Guðmundsson
Má í því dæmi nefna samn-
ing, sem Loftleiðir hafa nýlega
gert við Verkalýðsfélag Kefla
víkur en samkvæmt þeim
samningi eiga félagar í verka
lýðsfélaginu að vinna málara-
störf, sem við teljun að brjóti
í bága við lög um iðju og iðnað.
— Hvað um vinnuhorfur
framundan?
— Við reiknum með því að
það verði mjög lítið um at-
vinnu hjá okkur í vetur og þó
að veturinn sé alltaf fremurlé
legur miðað við aðrar árstíðir,
þá er þetta sérstaklega áber-
andi núna.
„Allt er undir sjávarútveg-
inum komið“
Við ræddum við Þórð G Jóns
son frá ísafirði, en hann erfull
trúi fyrir Iðnaðarmannafélag
ísafjarðar:
— Hvað er frétta af málum
iðnaðarmanna á Vestfjörðum?
— Vinnan hefur nú heldur
verið að dragast saman, svona
í heild, í iðnaðinum og sérstak-
lega hjá trésmiðum. Á ísafirði
eru nú í smíðum 5 hús og eig-
endur húsanna vinna mikið við
sín hús sjálfir.
Annars hefur verið góð at-
vinna í sumar, bæði hjá iðnað-
armönnum og öðrum.
Nú í haust aftur á móti virð-
ist vera um fjárskort að ræða
hjá öllum, sem hafa einhverja
drift. En allt atvinnulíf á Vest-
f jörðum byggist í raun og veru
á sjávarútveginum og þó að
það sé svolítið skuggsýnt í at-
vinnulífinu eins og er þá rætist
ugglaust úr því aftur. Nú er
rækjuveiðin hafin og bátarnir
fiska áfram og rækjubátarnir
hafa veitt virkilega vel, þessa
daga síðan veiði hófst.
Þórður G. Jónsson
— Við hvað vinnur þú?
— Ég vinn við Steiniðjuna
sem er hlutafélag.. Við fram-
leiðum þar veggjasteina og
gangstéttahellur og rör af öll-
um stærðum upp í 24 tommur.
Framleiðsluna seljum við um
alla Vestfirði og við höfum haft
nóg að gera og það liggja fyrir
verkefni fram á næsta sumar.
— Nú eru skipasmíðar stund-
aðar á ísafirði.
— f skipasmíðastöð Marselí-
usar á ísafirði hefur verið unn-
ið að skipasmíði í sumar og er
nú verið að ganga frá brú og
innréttingum. Skipasmíðameist-
•arinn, sem er hjá Marselíusi, og
er danskur sagði fyrir skömmu
að hann hafi ekki unnið á þægi
legri skipasmíðastöð en hjá
Marselíusi, enda er maðurinn
dverghagur.
„Fagskóli til mikilla bóta“
Guðrún Magnúsdóttir hár-
greiðslukona úr Hafnarfirði er
fulltrúi Hárgreiðslumeistarafél
ags fslands:
— Hefur verið mikil aðsókn
í hárgreiðslulæri?
— Já, það hefur verið mjög
mikil aðsókn í hárgreiðslustarf
ið og það hefur ekki verið hægt
að sinna eftirspurn í starfið og
kannski er ekki markaður fyrir
fleiri í hrágreiðslu í bili. Einn-
ig er sú takmörkun á þessu, þar
sem ekki má vera nema viss
lærlingafjöldi bæði á sveina og
meistara.
Guðrún Magnúsdóttir
— Er menntunaraðstaða full-
nægjandi í þessari grein?
— Já, ég myndi segja það.
Fyrir tveim árum var stofnað
ur sérstakur fagskóli fyrir hár-
greiðslunema innan Iðnskólans
og sú ráðstöfun hefur orðið til
mikilla bóta og gefið góða raun
f þessum fagskóla eru kennd
ýmis undirstöðuatriði í hár-
greiðslu.
Skuldabréf
ríkistryggð og fasteigna-
tryggð.
Kaupendur og seljendur,
hafið samband við okkur.
Miðstöð verðbréfaviðskipta.
Fyrirgreiðsluskrifstofan,
Fasteigna- og verðbréfasala,
Austurstræti 14, sími 16223.
Þorleifur Guðmundsson,
heima 12469.
MAY FAIR
plastveggfóðrið eftirsótta kom
ið aftur í miklu nýtízku
mynsturúrvali.
Klæðning hf.
Laugavegi 164.
BORGARSPÍTALINN
Stöður yfirsjúkraþjátfara og sjúkraþjálfara, eru lausar
til umsóknar. Upplýsingar varðandi sitöðurnar veitir
framkvæmdastjóri spítal'ans. Stöðumar eru Lausar og
veitast nú þegar, eða eftir nánari samkomuliagi.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf,
sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Borgarspítalan-
um Fossvogi fyrir 15. okt. n.k.
Reykjavík, 8. 10. 1968.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.