Morgunblaðið - 10.10.1968, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1968
bíða bara átekta og ætlast til
að forlögin sjái um framhaldið.
Og forlögin eru oftast sama
sem fyrsta stúlkan, sem tekur
fyrsta skrefið í áttina til þeirra,
án þess að láta ofmikið á því
bera.
— Ég ætti þá að fara niður að
sjó, eða hvað?
— Því ræðurðu auðvitað sjálf,
góða mín. Ég er bara að benda
þér á að Graham er hlédrægur
maður. Kannski ekki alveg
reynslulaus, að vísu, en samt
ekki maður, sem skilur sálarlíf
kvenna. Ef þú sækist eftir
honum í fullri alvöru, verður þú
sjálf að eiga frumkvæðið.
Jill stóð upp og tók saman
víða pilsið. — Þakka þér fyrir,
Oliver. Ég held ég verði að
labba niðureftir og skoða bátana
— Gangi þér vel, Jill. Og ef
ekki fer allt eins og þú óskar,
þá er öxlin á mér sæmilega breið
Jill hljóp léttilega yfir garð-
inn og inn í húsagarðinn. Hún
rataði niður að sjónum. Hún
hvorki heyrði né sá til Olívers,
sem elti hana hljóðlaust á þykku
ilskónum. Þegar hún kom niður
að bryggjunni, stóð hún þar sem
lítið bar á í skugganum, og
horfði og hlustaði.
Kappklæddir menn voru að
ganga til vinnu sinnar við bát-
ana, skrafandi hávært og hlæj-
andi um leið og þeir settu net og
körfur um borð og bjuggust til
að ýta frá landi. Það var auðvelt
að greina tvær vestrænar manns
myndir meðal þeirra, þrátt fyrir
dimmuna . . . Ljóskerið uppi á
stó'lpa við hafnarbakkann sendi
geisla sína á höfuð Grahams, þar
sem hann stóð við hliðina á
Söndru, og hélt hendinni um
mittið á henni, rétt eins og til
þess að vernda hana, þar sem
hún sat á lága veggnum. Hún
hafði dregið síða pilsið upp og
var að dingla fótunum fram og
aftur. Þegar Jill nálgaðist þau,
sneri Sandra anidlitinu að Grah-
am og horfði upp meðan hún
talaði við hann. Það var ekki
nógu bjart til þess, að JiU gæti
greint svipinn á andliti hennar,
en hún þóttist viss um, að hann
væri ginnandi. Og hún varð því
ekkert hissa, þegar Graham laut
niður og kyssti hana beint á
munninn.
En það, sem Jil'l varð hissa á,
voru viðbrögð Söndru.
— Elska . . . elskan . .. heyrði
sún hana kumra. Graham greip
Húseigendur — viðhaldsþjónusta
Húsasmíðameistari getur tekið að sér mánaðarlegt
eftirlit og viðhaid íbúða og fasteigna í einbýlis- og
fjölbýiishúsum gegn föstum mánaðargreiðslum.
Tilboð sendist blaðinu fyrir þriðjudagskvöld merkt:
2106“.
Ehhi er rád
nema I tima
sé tehið
Mamma, tengdamamma
og amma hekla hespu-
lopateppi í jólapakkann.
Þér sparið tíma og pen-
inga með því að hekla
sjólf hin sérstæðu ullar-
teppi úr íslenzkum lopa.
Höfum fyrirliggjandi bækl-
inga með miklu úrvali af
mynsturuppskriftum.
Uppskriftir nr. 201 og 202
UMBOÐ UM ALLT LAND
ALAFOSS
IGHOLTSSTKÆTI 2 . SÍMI 13404 . REYKJAVÍK
hana báðum höndum og þrýsti
henni enn fastar upp að sér,
svo að líkamir þeirra snertust
er hann kyssti hana aftur og
aftur. Þeim virtist alveg standa
á sama þó að fiskimennirnir
horfðu á þau forvitnir. Þau
voru ein í sínum eigin einka-
heimi, og gleymdu öllu nema
hvoru öðru.
Jill greip andann á lofti og
kreppti ósjálfrátt hnefana. Hún
fann að hún þoldi ekki að horfa
á þetta sekúndunni lengur, svo
að hún sneri sér undan og
flýtti sér hurt, yfir hafnarbakk
ann og aftur inn í mjóu göturn-
ar. Það var ekki fyrr en hún
var komin inn í húsagarðinn, að
hún stanzaði loksins og gerði
sér fullkomlega ljóst, það sem
hún hafði séð og svo þýðingu
þess.
Oliver kom nú fram og leit á
hana.
— Mér þykir fyrir þessu, Jill.
Ég vissi ekki, að þetta væri
svona langt komið hjá þeim.
— Þú sást þau þá líka?
— Ég elti þig. Ég gat ekki
hugsað mér að láta þig fara eina
út í borgina á þessum tíma sólar
hrings. Get ég nokkuð gert ti’l
að hjálpa þér?
Jilil svaraði ólundarlega: —
Reyndu bara að gleyma því. Og
talaðu aldrei um það við mig
framar, Oliver, ef þú vilt vera
svo vænn.
6. kafli.
Sex kraftmiklir bílar með
styrktum hjólbörðum og átján
flutningabílar fóru í einni lest,
þegar Fallowman-leiðangurinn
lagði loksins af stað til Khali-
da. Að meðtöldum burðarkörl-
um og þjónum var þetta tuttugu
og níu manna hópur, og hafði
meðferðis allt sem leiðangurinn
þurfti á að halda næstu vikurn-
ar, sem honum var ætlað að
dvélja fjarri alLri siðmenningu.
Rasmid stýrði einum bílnum
og Hammond sat við hliðina á
honum. en Jill var troðið á bak
sætið ásamt heilmiklu af mynda
vélum, pökkum og kössum.
Sandra sat við hliðina á Enid
Cater í öðrum bíl, en prófess-
orinn og frúin í aftursætinu.
Stúlkurnar tvær höfðu ekki sézt
mikið undanfarna daga meðan
unidirbúningurinn stóð sem hæsit.
Sandra var alltaf í skrifstof-
unni að fást við spjöld og skýrsl
ur og undirbúa flát undir sýn-
ishorn, en Jill var önnum kafin
við eldhúsáhöldin. Hún var nú
tekin að venjast éldavélunum og
steikingunum og var farin að
skilja hversvegna fóikið vildi
góðar ketkássur. Með eintómu
niðursoðnu kjöti gat varla ver-
ið um annað að ræða.
Þegar Jill hafði tóm til, æfði
hún sig á þessum undirstöðuatr-
iðum í arabisku, sem Davíð hafði
verið að kenna henni á kvöttd-
in, en stundum las hún í bók-
inni prófessorsins. Sandra virt-
tannduftið
sem gerir
gular
tennur
HVÍTAR
ist hafa háft eitthvað annað sér
til afþreyingar, hún gekk burt
eftir kvöldverð, en hvort hún
fór til að vinna eða skemmta
sér vissi Jill ekki.og forvitnað-
ist heldur ekki um.
Þegar komið var út úr borg-
inni íá vegurinn upp undirhlíð-
arnar, framhjá þyrpingum af litl
um hvítum húsum, og svo var
þarna einstaka moska og nokk-
ur tré og blóm. Þau siluðust upp
brattann og það var einna lik-
ast því að ganga upp krókóttan
stiga, og þá var komið upp í
fjöl'lin þar sem aðeins fáar kind
ur voru á beit í grófgerða gras-
inu. Klukkustund seinna hallaði
niður gegn um Anti-Líbanon
sem var grýtt eyðimörk með ein
kennilega löguðum klettum. Eft
ir klukkustundar ferð enn, sást
íoksins í ána, milli brúnu klett
anna, og hún fór stækkamdi
þangað til komið var í þröngan
dal, grænan og vingjarnlegan.
Þar voru svartklæddar konur
að vinna við vínvið og hlóðu
jarðaráöxtum á litla asna. Gam-
all maður sat við vegarbrúnina
og ar að gera við fötu.
— Þetta er Ghouta, sagði Ras
mid við Jill, yfir öxl sér. Dam-
askusvinin. Hér förum við yfir
landamærin og inn í Sýralnd.
Þarna fór fram svoMtil athöfn.
Einkennisklæddir landamæra-
verðir störðu með forvitni á
stúlkurnar, en töfðu samt ekk-
ert fyrir þeim. Þau óku áfram
dálítinn spöl, en fóru svo út af
veginum og niður á árbakkamn.
— Hér hvílum við okkur fyr-
ir hádegissólinni og etum hádeg
isverð. Sjáðu litla fossinn. Er
hann ekki fallegur? Rasmid var
það áhugamál, að Jill skyfdi ekki
missa af neinu. -— Þetta er Gull
áin, bætti hann við um leið og
hann hjálpaði henni út. — Væri
hún ekki, væri ekkert líf til í
Damaksus — það væri óhugs-
andi.
Þau héldu áfram ferð sinni yf
ir rykuga jörðina og til sveita-
krárinnar, þar sem voru tréborð
undir þéttum, skuggasælum
trjám. Jill varð fegin því, hve
svalt var þarna, því að sólin
skein brennheit á himninum.
Hún fór að hugsa um, að enn
væri ekki nema aprílmánuður.
Hvernig skyldi þetta verða um
hásumarið? Hún var i vinnuföt-
10. OKTÓBER
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl.
Nú er fjörugt. Leggðu málin vel niður fyrir þér, og síðan skaltu
fylgja fast eftir í því, er þér er hugþekkast.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Allt kemst aftur í eðlilegt horf í dag. Byrjaðu snemma og
vertu athafnasamur Reyndu ekki neitt nýtt, ef það má bíða.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Einbeittu þér að framförum, fremur en nýjungum. Haltu vel
áfram, þótt aðrii virðist værukærir.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí
Ef þú getur, skaltu halda þig bak við tjöldin. Þér vinnsit verkið
þá betur. Þú skalt skipuleggja dálítið betur framtíðina.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Notaðu tækifærið til að vinna upp, það sem á vantar. Sambönd
þín við aðra má einnig lagfæra. Farðu að finna v ini þína í kvöld,
og gerðu ráð fyár erfiðum degi á morgun.
Meyjan 23. ágús t— 22. sept.
Frestaðu mikilvægum breytingum. Vertu ekki að gera hlutina
flókmari með nýjum viðbótum. Það er hentugra að gera slíkt á
morgun.
Vogin 23. sept. — 22. okt.
Þetta verður rólegur dagur, og þér gefst tækifæri til að íhuga,
hvernig þú ferð með æfi þína, og hvað þig langar að taka til
bragðs í framtíðinni. Enginn bannar þér að hreyfa þig, heldur
þveröfugt.
Spoðrdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
Þú ættir fremur að skipuleggja en aðihafast mikið I dag. Farðu
vandlega yfir rcikninga þína, svo að þú vitir nákvæmlega, hvar
þú ert á vegi staddur. Finndu þér frið, og reyndu að lesa, það
sem á vantar.
Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des.
Það réttir þér víst enginn hjálparrönd í dag. Taktu þig til og
gerðu eitthvað, af því, sem þig langar SJÁLFAN til að gera.
Síðan skaltu lesa í kvöld.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Notaðu þennan bjartsýnisdag til að koma frá því, sem tafbt
hefur. Gerðu þetta sem fyrst, því að straumhvörf kunna að verða
fyrr en varir.
Vatnsberinn 21. jan. — 18. febr.
Láttu aðra afskiptalausa í annríki sínu. Það mun gefa þér næg-
an tíma og svigrúm til að leggja drög að framkvæmdum sem þú
hefur áhuga á í framtíðinni.
Fiskarnir 19. febr. — 20. marz
Leggðu ekki til atlögu í dag. Ef þú rannsabar málið vel, kanan
svo að fara, að þú sjálr margt nýtt og nýtllegL Notaðu hvert tseki
færi til að ná þvi takmarid.