Morgunblaðið - 10.10.1968, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.10.1968, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1968 Þessi mynd er tekin í leik Vals og Benfica og- sýnir er Simoes brýst í gegnum vöm Valsmanna og sækir að marki Vals. Simoes var einn af beztu mönnum Benfica í leikn um þó hann væri ekki skrif- aður fyrir mörkum að ráði. Simoes þótti einn af beztu leikmönnum á vellinum þenn- an dag, síógnandi og ævin- lega byggjandi upp og alltaf hættulegur. _______ • v . K //;' . ■■ '/■:/ l', ' ■■ . 'y/'ys/tyÁff:y//fo. /■///■': wwíw. Gott atvinnumannalið í kðrfuboita hér á morgun — Mœtir íslenzku úrvalsliði Annað kvöld leikur hér at- vinnumannalið í körfuknattleik gegn ísl. úrvalsliði. Liðið sem hingað kemur er úrvalslið Gil- ette-verksmiðjanna en það ertal ið eitt af beztu „verksmiðjulið- um“ Bandaríkjanna. LANDSLIÐSNEFND KKÍ hefir valið úrvalslið það sem keppa á við úrvalslið frá Gíllette-verk- smiðjanna í Bandaríkjunum á föstudagskvöld og verður liðið þannig skipað: Agnar Friðriksson ÍR, Birgir Örn Birgis Á, Birgir Jakobsson ÍR, Gunnar Gunnars- son KR, Hjörtur Hansson KR, Jón Sigurðsson Á, Kolbeinn Pálsson KR. Kristinn Stefánsson KR, Ólafur Thorlacius KFR, Sig- urður Helgason KFR, Sigurður örn Thorstensen KR, í>órir Magnússon KFR. Þjálfari úrvalsliðsins er G>uð- mundur Þorsteinsson. í þessu liði leika fjórir menn sem ekki voru í landsliði íslands á Polar Cup, þeir Hjörtur Hansson, Ól- afur Thorlacius, Sigurður Helga- son, sem mun vera hæstur ís- lenzkra íþróttamanna og Sigurð- ur Örn Thorstensen, mjög efni- legur leikmaður úr KR. Þessir menn koma í stað Þorsteins Hallgrímssonar, sem dvelur er- lendis þessa dagana, Guttorms Ólafssonar, sem er við nám í íþróttakennaraskólanum, Sigurð- ar Ingólfssonar og Einars Bolla- sonar. Allir bandarísku leikmennirnir hafa leikið með vel þekktum há- skólaliðum og er ekkj að efa að þetta er sterkt lið, enda eru hálfatvinnumannalið sem þetta stökkpallur 'fyrir körfuknattleiks menn er hafa í huga að gerast atvinnumenn í íþróttinni. Þjálfari bandaríska liðsins, Jim Mcgregor, er ekki heldur neinn aukvisi og vel þekktur bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Hef- ur hann m.a. þjálfað nokkur landslið í Evrópu á undanförnum árum. Fyrir tveimur árum var hann þjálfari liðs Gulf olíufé- lagsins og fór með það í keppnist ferð til Evrópu. Nokkrir leik- manna þess liðs eru nú atvinnu- menn í körfuknattleik í Banda- ríkjunum. Framhald á bls. 27 Leeds hefur eitt stig yfir Arsenat ÚRSLIT í ensku knattspyrnunni í gærkvöldi urðu þessi. Skyltningar — Ljósm. Arnór Egilsson. Enn er skvlmzt Aðalfundur skylmingafélags Reykjavíkur var haldinn föstu- daginn 4. október. Félagið ernú 20 ára gamalt, en starfsemi þess hefur verið takmörkuð síðustu árin. Aðalhvatamaður að stonfun fé lagsins og fyrsti formaður þess var Egill Halldórsson, sem jafn- framt hefur verið aðalkennari fé lagsins. Ný stjórn var kosin og hana skipa: Arnór Egilsson formaður, Örn Clausen varaformaður, Björgólfur Stefánsson ritari, Guðlaugur Trgygvi Karlsson gjaldkeri, Egill Halldórsson með stjórnandi, Guðmundur Pálsson meðstjórnandi. Félagið kyggst koma á öflugu starfi á næstunni og hefur feng ið húsnæði fyrir starfsemi sína hjá Júdófélagi Reykjavíkur í Júpíter og Marz að Kirkjusandi Félagið hyggst efna til nám- skeiðs fyrir byrjendur í skylm- ingum við fyrsta tækifæri og stuðla með því og á annan hátt að eflingu íþróttarinnar hér á landi. 1. deild: Leicester — Wolves 2:0. Manchester C. — Arsenal 2:0. Sheffield W. — Chelsea 1:1. Stoke — Southampton 1:0. Sunderland — Leeds 0:1. To'ttenham - Manchester U. 2:2. West Bromvich - Coventry 6:1. 2. deild: Bolton Millwall 0:4. Fulham — Sheffield U. 2:2. Hull — Derby 1:0. Norwich — Crystal Palace 0:1. Oxford — Carlisle 0:1. Portsmauth — Preston 1:1. Loksins í Mexíkó Myndin sýnir er Olympíu- eldurinn kom á mexikanska grund. Þarlendur íþróttamað ur ber hann á land eftir að eldurinn hafði farið langa leið frá Grikklandi, - svipaða þeirri sem ætlað er að Kolum bus hafi farið þá er hann sigldi til Ameríku 1492. Það voru nokkrir sund- menn sem báru Olympíueld- inn i land eftir að tundur- spillir hafði flutt hann frá eyjum til lands. Hilmar Björnsson landsliðsþjólfari Hilmar Björnsson handknatt leiksmaður KR og íþróttakenn- ari var í gær ráðinn landsliðs- þjálfari í handknattleik. Tekur hann við starfinu af Birgi Björns 5-0 SVÍAR unnu Norðmenn í lands- leik í knattspymu í Stokkhólmi í gær. Úrslitin urðu 5—0, eftir að staðan var 1—0 í leikhléi. syni í Hafnarfirði, sem baðst undan því að gegna því áfram. Hilmar hefur verið valinn í 'landslið íslands í handknattleik og gerþekkir þá íþróttagrein. Hann er að vísu yngsti landsliðs þjálfari sem ráðinn hefur verið, en vonandi tekst honum að sýna og sanna að ungir menn eiga heima í háum stöðum og geta valdið þeim. Mörg stórverkefni bíða ísl. landsliðsins í vetur og ungur þjálfari fær næg tækifæri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.