Morgunblaðið - 07.11.1968, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 19««
Þingmannafundur Nato
— r Brussel II.-15. nœsta mánaðar
ÁRSFUNDUR Þingmannasam-
bands Norður-Atlantshafsrikj-
anna verður haldinn í Brussel
11-15. þ.m.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa munu í upphafi fundar-
ins flytja ræður, auk forseta
sambandsins, sem hefur verið yf-
irstandandi ár Matthías Á. Mat-
hiesen alþm., þeir Manlio Brosio
framkvæmdastjóri NATO, Hal-
vard Lange, fyrrv. utanríkisráð
herra Noregs, og Lyman L. Lem
nitzer yfirmaður herafla
NATO Einnig mun Pierre Har-
mel, utanríkisráðherra Belgíu
flytja ávarp í upphafi fundarins.
Af íslands hálfu sækja fund-
inn alþingismennirnir:
Matthías Á. Mathiesen,
Benedikt Gröndal,
Einar Ágústsson,
Friðjón Þórðarson.
Af þeim nefndarskýrslum, sem
þegar hafa verið lagðar fram,
má m.a. sjá, að Tékkóslóvakíu-
■málið verður mjög á dagskrá
auk framtíðarstarfsemi NATO.
Veturgamall risahrútur
KRISTINN bóndi Jónsson' á
Seljanesi og Magnús bóndi Jak-
obsson í Ingólfsfirði fóru hinn
30. október norður í Reykja-
fjörð til að huga að kindum, sem
reyndist ekki unnt að handsama
í fyrra, en síðastliðinn vetur var
einn hinn versti, sem verið hefur
þar norður frá um langt árabil.
Fundu þeir félagar tvær kindur,
tvævetlu og veturgamlan hrút
Hefur ærin haldið sig bæði í
Reykjafirði og Skjaldarvík.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
jóns Guðroundssonar, hrepp
stjóra á Eyri í Ingólfsfirði, er
hrúturinn hvorki meira né
minna en 100 kg — sú stærsta
veturgamla kind, sem þeir bænd
ur hafa séð. Við Drangaskörð
lentu þeir félagar í sjálfheldu og
urðu að skilja kindurnar eftir.
Ætla þeir að ná þeim við tæki-
færi, en erfitt er að komast um
Ivar Eskeland
Drangaskörðin. Guðjón lét þess
getið að fróðlegt væri, ef sauð-
fjárræktarráðunautar lifcu á kind
urnar, sem svo vel eru á sig
komnar eftir erfiðan vetur.
Olympíuskákmótið í Lugano:
íslendingar sigruðu Mongólíu í 12. umferð
—Hlutu 2Vi vinning og eru í 7.-8. sœti í B
—Sovétríkin hafa þegar unnið
keppnina í 9. sinn í röð
ÍSLENZKA skáksveitin sigraði
Mongóliu í næstsíðustu umferð
á Olympíuskákmótinu í Lugano,
Sviss. íslendingarnir hlutu 2*4
vinning gegn 114. Úrslit ein-
stakra skáka urðu þau að Ingi R.
Jóhannsson vann Uitjumen, Guð
mundur Sigurjónsson tapaði fyr-
ir Miagmarsuren, Bragi Kristjáns
son vann Zorigt og Jón Kristins-
son gerði jafntefli við Purevjav.
Önnur úrslit í B-úrslitum í 12.
umferð: Holland - Finnland 3% :
%, England - Belgía 3 :1, Aust-
urríki - Brasilía 3:1, Svíþjóð -
Skotland 2 : 2, Kúba - Spánn 2 : 2
og Ísrael - Sviss 2 : 2.
Aðeins ein umferð er nú eftir
í mótinu og er staðan þessí í
B-úrslitum:
England ........... 31% : 16%
Holland ........... 31 :17
Islands minnzt í
Noregi 1. desember
NORSKA ríkisútvarpið hefur
farið þess á leit við framkvæmda
stjóra norræna hússins, Ivar
Eskeland, að hann tæki að sér
að gera fimmtíu mínútna út-
varpsdagskrá um lýðveldið fs-
land, sem flutt yrði í norska
útvarpið fyrsta desember. Hefur
hann þegar þekkzt boðið, og
vinnur nú að þessu.
Eskeland er nýikominn frá
Stokkhólmi, þar sem hann ræddi
um sambúð norrænna stúdenta,
tungumálin og fleira og má með
- SUKARNO
Framhald af bls. 1
heppnað valdarán kommúnista
1965.
Það hefur ekki verið staðfest
opinberlega að hann sé veikur,
en hann er undir ströngum her-
verði í einni af fyrrverandi höll-
um sínum í úthverfi Jakarta.
Sukarno var sjálfur yfirheyrður
í tvær vikur í síðasta mánuði.
Orðrómur er á kreiki um, að
hann sé ennþá í stofufangelsi, en
það hefur ekki fengizt staðfest.
Eftir því sem vinir hans segja
var hinn 68 ára gamli stjórn-
málamaður hress og kátur fyr-
ir yfirbeyrslurnar. Talsmenn
hersins segja, að yfirheyrslurnar
hafi farið „hófsamlega" fram,
Sukarno hafi verið sýnd full
virðing og þriðju gráðu yfir-
heyrslur alls ekki viðhafðar.
sanni segja að hann hafi í ærið
mörg horn að líta.
LEIÐRÉTTING
RANGHERMT var í frétt Morg-
unblaðsins í gaer af árekstri, sem
varð á mótum Kleppsvegar og
Dalbrautar, að ökumaður fólks-
bílsins hefði beygt þvert í veg
fyrir sendiferðabílinn. Það rétta
er, að ökumaður sendiferðabíls-
ins ætlaði að beygja til vinstri
inn á Dalbraut og ók þá beint
á fólksbílinn, sem stórskemmdist.
Eru viðkomandi beðnir afsökun-
ar á þessum mistökum.
Margrét Indriða-
dóttir íréttastjóri
útvarps
Eskeland þýðir
bók eftir Laxness
IV AR ESKELAND, fram-
kvæmdastjóri Norræna húss-
ins, vinnur um þessar mundir
að þýðingu sinni á nýjustu
bók Laxness, Kristnihald und-
ir jökli.
Blaðið sneri sér til hans
með nokkrar spurningar í
þessu tilefni, sem önnum kaf-
inn framkvæmdastjórinn taldi
ekki eftir sér að svara.
— Hvað verðið þér lengi
með þessa þýðingu?
— Ég verð tilbúinn í febrú-
ar eða marzmánuði með hana.
— En hvenær kerour hún
út?
— Hún á að koma út haust-
ið 1969.
— Hjá hvaða forlagi?
Norsk Forlag. Það er nefni-
lega líka til sænskt forlag,
sem einnig ber þetta nafn, og
ekki má rugla þeim tveimur
saman.
— Hvað verður upplagið
stórt?
— Fyrsta útgáfa verður lík-
lega svona fjögur til fimm
þúsund eintök. Það er venja
með bækur Kiljans.
— En hvað hafið þér sjálf-
Ur að segja um bókina?
— Mér er það ávallt sönn
ánægja að þýða Kiljan. Ég
hef áður þýtt sex af bókum
hans. Hann er svo mikill stíl-
isti, að hver einasta setning
veitir mér mikla gleði og
ánægju.
I FRÉTT frá Menntamálará'ðu-
neytinu í gær segir, að frú Mar-
grét Indriðadóttir, varafrétta-
stjóri, hafi verið skipaður frétta-
stjóri hljóðvarpsdeildar Ríkis-
útvarpsins frá deginum í gær að
telja.
Margrét hefur fengizt við
blaðamennsku í rúm 28 ár. Hún
er fædd á Akureyri 1923 og lauk
þaðan stúdentsprófi árið 1943.
— Hún stundaði síðan nám
við Minnesota-háskólann í
Bandaríkj unum en á næstu árum
var hún við bla’ðamennsku hér
heima, bæði hjá Morgunblaðinu
og Tímanum. Árið 1949 hóf hún
starf hjá fréttastofu útvarpsins
og hefur starfað þar síðan.
Margrét er gift Thor Vil-
hjálmssyni rithöfundi.
Austurriki 29 : 19
ísrael 28% : 19%
Spánn 26% : 21%
Sviss 24% : 28%
Island 24 : 24
Kúba 24 : 24
Finnland .... 23% : 24%
Svíþjóð 20% : 27%
Belgía ... 19 : 29
Skotland 18% : 29%
Brasilía 18 : 30
Mongólía .... 16% : 31%
Eddo hefur
vetrarstarf
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda
í Kóuavogi hefur byrjað vetrar-
starfið. Sauma- og föndurkvöld-
in eru alla þriðjudaga kl. 20.30
en 17. nóv. verður hinn árlegi
basar félagsins og er þar margt
góðra muna til jólagjafa.
Snemma í desember verður
sýnikennsla í jólaundirbúningi.
Fyrirhuguð er handavinnu-
kennsla, kennt verður listsaum-
ur, hvítsaumur, klaustursaumur,
hedebo, augnsaumur, blómstur-
saumur, orkering, mála á silki
og tauprent.
Þær félagskonur, sem -óska að
sækja þessi námskeið, tilkynni
þátttöku í síma 41286 eða 40159.
140 létu skrú sig
atvinnulausa
VIÐ atvinnuleysisskráningu á
þriðjudag létu 111 karlmenn og
29 konur skrá sig atvinnulaus
í Reykjavík.
Karlmennirnir eru úr 9 starfs-
greinum — 81 verkamaður, 9
verzlunarmenn, 5 sjómenn, 5
iðnverkamenn, 3 matreiðslu-
menn, 4 málarar, 2 rafvirkjar, 1
stýrimaður og 1 trésmiður.
Brúðkaupsljóð
sent í
konungsgarð
SIGFÚS Elíasson orti ljóðabálk,
„Brúðkaupsljóð", í tilefni af
brúðkaupi Haralds ríkisarfa Nor-
egs og Sonju Haraldsen 29.
ágúst sl.
Sendi hann ljóðið skrautritað
í konungsgarð og bar,st að nokkr-
um dögum liðnum þakkarbréf
frá ólafi konungi V, þar sem
brúðhjónin voru þá farin í brúð-
kaupsferð sína.
íslenzka skáksveitin téflir
gegn Svíum í síðustu umferð.
Sovézka gkáksveitin hefur þeg-
ar sigrað í úrslitakeppni Olymp-
íumótsins, sem er hið 14. í röð-
inni. Sovézku stórmeistararnir
hafa þegar hlotið 37% vinning
af 48 mögiulegum vinningum og
kemur vist fæstum á óvart, því
þeir hafa mönnum á að
skipa eins og heimsmeistaranum
Petrosyan á 1. borði, Spassky á
2., Kortsnoi, Tal, Polugayevsky
og Geller í sveit sinni. í öðru
sæti eru Júgóslavar með 28%
vinning og Bandarikin eru þriðj.u
með 28.
Ástralia er efst í úrslitaflokki
C með 34% vinning, Noregur er
í öðru sæti með 32, Ítalía í þriðja
með 28 og Tyrkland fjórða með
28.
f úrslitaflokki D er Singapore
enn efst með 29% vinning og
Frakkland í öðru sæti með 28%.
Sjálfstœðis-
skemmtun
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélaganna
á Hellisandi, Ólafsvík og Grund-
arfirði, verður í Röst laugardag-
inn 9. nóvember og hefst kl.
20.30. Fjölbreytt dagskrá verður,
og á eftir verða stignir gömlu og
nýju dansarnir. Aðgöngumiðar
fást hjá formönnum félaganna.
Sýningu Engil-
berts lýkur
í kvöld
MÁLVEIRKASÝNINGU Jóns
Engilberts, sem staðið hefur yf-
ir í Hliðskjálf nú undanfarið,
lýkur í kvöld kl. 10. Sýningin
hefur verið fjölsótt. Þetta er
sölusýning og hafa nokkrar
myndir selzt.
Guðlaugur Guðmundsson
Bók um Reynis-
staðarbræður
— eftir Cuðlaug Cuðmundsson
ÚT er komin bókin Reynistaðar
bræður eftir Guðlaug Guðmunds
son. Fjallar hún um afdrif
Reynistaðarbræðra, sem urðu
úti ásamt mönnum sínum og
skepnum við Hraunhól í miðju
Kjalhrauni.
í formála segir höfundurinn
Guðlaugur Guðmundsson m.a.:
„Sterk löngun greip mig til þess
áð kanna sögu þessa atburðar,
og ég ákvað að kynna mér allar
fáanlegar sagnir um hann. Þetta
hef ég gert, og varð mér þá ljóst,
að hinir ýrnsu sagnaþættir voru
ósamhljóða í þýðingarmiklum
atriðum.
Upp úr þessari könnun minni
fór ég æ oftar að velta því fyrir
mér, hvort ég gæti ekki skrifað
bók um þennan atburð. Loks
ákvað ég að reyna þetta og
styðjast þá við þær heimildir er
ég taldi beztar, og hef ég því
stuðzt mest viS Söguþætti Gísla
Konráðssonar. Þá hef ég talað
við gamlan fróðan mann úr
Hreppum, sem hafði heyrt ýms-
ar sögur af veru þeirra Reyni-
staðarmanna þar í sveit, sem
ekki eru til á prenti. Þegar heim-
ildir þraut og þá sérstaklega
þegar komið var upp í óbyggðir
hefi ég ekki við annað að styðj-
ast en mínar eigin hugleiðingar
um atburðarásina og endalok
mannanna."