Morgunblaðið - 07.11.1968, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.11.1968, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1968 Sextugur: Ágúst Leós kaupmaður Hinn 5. þ.m. átti einn af góð- borgurum ísafjarðar, Ágúst Le- ós., kaupmaður, sextugsafmæli. Hann er fæddur á ísafirði 5. móvember 1908, og hefir alið all- an sinn aldur þar. Hann er af traustum vestfirzkum bændaætt- um kominn í báðar ættir. For- eldrar hans voru hjónin Kristín Halldórsdóttir, Jónssonar, bónda á Rauðamýri, Halldórssonar, bónda að Laugabóli, og Leó Eyj- ólfsson, söðlasmiður og kaupmað ur á ísafirði, bónda að Kleifum í Gilsfirði, Bjarnasonar, prests í Garpsdal, Eggertssonar, prests að Stóruvöllum og í Stafholti, Bjarnasonar, landlæknis, Páls sonar. Ágúst Leós. ólst upp í fjölmenn Hlutafjárloforö nærri 1 milljón króna — — 8 þús. kynningarbrét Aimenna Útgerðarfélagsins til unga fólksins Skipstjóri ráðinn á togarann Cylfa A BLAÐAMANNAFUNDI, sem Almenna útgerðarfélagið boðaði til í gær, kom það fram, að hluta fjárloforð almennings nálgast 1 milljón kr., en sem kunnugt er byggst hlutafélagið kaupa tog- arann Gylfa og gera út til fisk- veiða. Að stofnun þessa félags standa ungir menn og þessa dag- ana eru þeir að senda út um 8 þús. kynningarbréf tii ungs fólks í Reykjavik og víðar og bjóða þar þátttöku í hlutafélag- inu. Hlutabréfin eru 1 þús. kr. og 5 þús. kr. Undirbúningsstjóm hefur ákveðið aðalfund og verður hann haldinn 7. des. n.k. Hluta- fjárapphæð er áætluð alls 5 milljónir kr., en kaupverð skips- ins mun vera um 11 millj. mið- að við að það sé tilbúið til veiða. Theodór Jónsson, skip- stjóri, hefur verið ráðinn skip- stjóri á togarann Gylfa og einn- Ig hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri fyrir félagið fyrst um sinn og er það Guðlaugur Tryggvi Karlsson, hagfræðing- ur. Stöðugt er unnið að viðgerð á togaranum Gylfa og búast félags menn við að togarinn geti hafið veiðar strax eftir áramót. Almenna útgerðarfélagið h.f. var stofnað hinn 10. okt. sl. Fljótlega eftir stofnfund hófst sala hlutabréfa á almennum markaði. Hafa nú á 4. hundrað manns gerzt hluthafar auk stofn enda. Aðalfundur félagsins verð- ur haldinn 7. des. n.k. Kynningarstarf er á byrjunar- stigi, og sá árangur, sem þegar hefur náðst, lofar mjög góðu. Þessa dagana er sent út dreifi- bréf til 8 þús. ungra manna í Reykjavík á aldrinum 20—30 ára og þeim kynnt framtíðaráform félagsins. Sfðan verður félagið kynnt með sama hætti úti á landi. Stjóm félagsins hefur ráðið Guðlaug Tryggva Karlsson, hag- fræðing, framkvæmdastjóra fé- lagsins fyrst um sinn og Theodór Jónsson hefur verið ráðinn skip- stjóri á Gylfa. Það er von stofnenda félags- ins, að allur almenningur sjái nauðsjm þess að styðja grund- vallaratvinnuveg þjóðarinnar og vilji hagnýta það tækifæri, sem nú býðst, til þess að gerast virk- ur þátttakandi við gjaldeyrisöfl- un, og fylgja þessari tilraun á almenningshlutafélagi úr garði með því að taka þátt í hlutafjár- söfnim. I kynningarbréfi félagsins, sem sent hefur verið út til al- mennings, segir m.a. svo: „Stofnendur félagsins er hóp- ur manna — fyrst og fremst ungra manna — úr ýmsum stétt- um, sem vilja leggja meira af mörkum til þjóðfélagsins, en venjulegan vinnudag í viðkom- andi starfi. Liggur þá beinast við að styðja þann atvinnuveg þjóð- arinnar, sem er grundvöllur fyrir tilveru hennar sem menn- ingarþjóðar — þ.e. sjávarútveg- inn.“ um systkinahópi og fór ungur að starfa í verzlun föður síns og eftir lát föður síns hefur hann veitt forstöðu Skóverzlun Leós. h.f., sem þau systkini eiga. Er það nú stærsta skóverzlun á Vestfjörðum. Hann var einn af stofnendum Neista h.f., raftækja verkstæðis og verzlunar, og hef- ir veitt því fyrirtæki forstöðu í 20 ár. ÖU verzlunarstörf Ágúst- ar hafa einkennzt af festu og á- reiðanleik. Loforð hans þurfa ekki að vera skrifleg, til þess að við þau sé staðið. Ágúst Leós. hefir haft mikil afskipti af félagsmálum á fsa- firði frá unga aldri, eins og bræður hans margir. Var hann um fjölda ára virkur knatt- spyrnumaður í Knattspyrnufélag inu Herði, og síðan þjálfari og dómari í knattspyrnu og hand- knattfleik. Hann var einn af stofn endum Skátafélagsins Einherjar árið 1928. Var hann lengi í stjóm og einn af forystumönn- um félagsins fyrsta áratuginn. Var þar eins og annars staðar, að mikið þótti um muna, þar sem hann beitti sér. Árum saman hef- ir hann verið virkur félagi í Rótarýklúbbi fafjarðar og sótt þar fundi manna bezt. Eins og áður segir, er Ágúst innfæddur fsfirðingur, og þótt hann hafi ekki setið í bæjar- stjórn eða verið í stjórnmála- vafstri, hefir hugur hans hneigst að framfaramálum bæjarfélags- ins og hvað verða mætti bæn- um til góðs og prýði. Hefir hann um árabil verið mjög virkur að- ili í Skógræktarfélagi fsfirð- inga og á mörg handtök innan skógræktargirðingarinnar í Stórurð. Á síðari árum hefir áhugi hans mjög beinzt að leit að heitu vatni í nágrenni bæjar- ins, og það, sem gerzt hefir í þeim málum, er beinlínis fyrir hans atbeina. Margir gamlir Harðverjar og Einherjar, sem og fjöldi annara vina og kunningja, munu senda honum beztu árnaðaróskir á sex tugsafmælinu með ósk um, að fsafjörður fái notið starfskrafta hans um langa framtíð. R. S. Fasteignasalan Ilátúin .4 A, Néatúnshúslð Símar Z1870 - 20998 I smíðum 2ja—4ra herb. íbúðir í Breið- holtshverfi seljast fullgerð- ar með sameign allri fullfrá genginnL íbúðirnar verða afhentar á næsta sumrL Efri hæð í tvíbýlishúsi í Kópa vogi, selst fokheld, útb. 200 þús., eftirstöðvar 7’—8 ára. Stór hæð í Kópavogi, fok- beld, góð lán fylgja. Raðhús í Fossvogi á ýmsum byggingarstigum. Raðhús á Seltjarnarnesi, fok- helt. Ódýrar lóðir í Arnarnesi. Til sölu 2ja herb. íbúðir m. a. á 2. hæð við Úthlíð, bílskúr. 2ja herb. risíbúð við Silfur- teig í góðu standL 3ja herb. 1. hæð við öldu- götu, útb. um 200 þús. Laus. 3ja herb. kjallaraábúð við Brá vallagötu. Laus. 4ra herb. íbúðarhæðir við FeUsmúla, Álftamýri, Háa- leitisbraut, Stóragerði, Guð rúnargötu og víðar. 5 herb. íbúð við Freyjugötu, Melabraut, Rauðalæk og Hvassaleiti. 5 herb. 130 ferm. hæð nýleg í góðu standí við Þórsgötu. Stórglæsiieg 7 herb. efri hæð við Stóragerði ásamt bíl- skúr og meiru. 6 herb. raðhús við Sæviðar- sund, nú fokhelt með bíl- skúr, vil taka upp í 3ja og 4ra herb. íbúð. Höfum kaupendur að góðum eignum af öllum stærðum. Ingólfsstræti 4. Sími 16767. Kvöldsími 35993. Jón Bjamason hæstaréttarlögmaðnr Hilmar Valdimarsson fasteignaviðskipti. Akranes Til sölu strax 4ra herb. íbúð í steinhúsi við Vesitur- götu. Sérinngangur, sérkynding, bíLskúr. Hagkvgemir greiðsluskilmálar. — Upplýsingar gefur HERMANN G. JÓNSSON, HDL., Vesiturgötu 113 — Sími 1890. Gólfdúkur — plast- vinyi og línólíum. Fostulíns-veggflísar — stærðir 714x15, 11x11 og 15x15. Amerískar gólfflisar — Gold Year, Marbelló og Kentile. Þýzkar gólfflisar — DLW. Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss og baðgólfdúkur. Málningarvörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slipp- fél. Reykjavíkur. Teppi — ensk, þýzk, belgísk nælonteppi. Fúgavaraarefni — Sólinum, Pinotex. Silicone — úti og inni. Veggdúkur — Somvyi, frönsk nýjung. Vinyl veggfóður — br. 55 cm. Veggfóður — br. 50 cm. ÖLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM: KVIKMYNDIR ; Tónabíó AÐ HRÖKKVA EÐA STÖKKVA (The Fortune Cookeie) Stöku sinnum kemur það fyrir, að saman koma menn, eins og Jack Lemmon og Walter Matt- hau, menn sem vinna saman á svo skemmtilegan hátt, að út- koman verður ógleymanleg. Jack Lemmon er kunnur úr fjölda gamanmynda, en frammi- staða hans hefur orðið lakari, eftir því sem myndirnar hafa orðið íburðarmeiri. Kannski er ekki réttmætt að segja hann lak ari, heldur hlutverkin. En hér fær hann viðfangsefni, sem hent- ar honum, mann, sem er ráðalaus i framrás viðbui'ðanna og lætur stjórnast af öðrum, gegn betri vitund. Walter Matthau er ekki einis kunnur úr kvikmyndum, enda hefur hann leikið meira á sviði. 1 þessari mynd leikur hann ófyrir leitinn lögfræðing, sem svífst einskis til að ná peningum út úr stórfyrirtækjum, í skaðabætur eftir að mágur hans Jack Lemm- on, hafði orðið fyrir smávægi- legu óhappi. Leikur hans er fágað snilldarverk, bæði innblás- inn og fullur kunnáttusemi raun verulegs atvinnumanns. Það er lífsreynsla að sjá hvemig hann fullnýtir andlit, rödd og hreyf- ingar. Leikstjóri, framleiðandi ásamt ö'ðrum manni, sem einnig skrifar með honum handritið, er Billy Wilder. Myndi hann því senni- lega vera nefndur höfundur myndarinnar, ef hann starfaði í Evrópu. Hann er nú einn af beztu leikstjórum, sem starfandi eru í Ameríku, enda ber myndin þess merki. Tónlist gerir Andre Prev- in af venjulegum ágætum. AF HVERJU VELJA FLEIRI OG FLEIRI Hér er á ferðinni mynd, sem er ekki aðeins frábær gamanmynd, heldur mikil kvikmyndalist að auki. Er óhætt að ráðleggja öll- um að sjá hana, því að þeir sem ekki hafa gaman af að líta á hana sem leiklist og kvikmynda- list, geta hlegið af hjarta. VELJUM ÍSLENZKT SOMVYL veggdúk? VEGNA ÞESS AÐ SOMVYL ER SÉRSTAKLEGA HLÝLEGT. SOMVYL ER MJÖG GOTT AÐ HREINSA. SOMVYL ER STERKT OG ENDINGARGOTT. SOMVYL ER UM LEIÐ HLJÓÐEINANGRUN. SOMVYL ER LÍKA HITAEINANGRUN. SOMVYL MÁ LEGGJA Á ÓSLÉTTA Á VEGGI, OG FYRIR ÞÁ SEM ERU AÐ BYGGJA SPARAR SOMVYL FÍNPÚSSNINGU. FJÖLBREYTT LITAÚRVAL. AÐEINS ÞAÐ BEZTA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.