Morgunblaðið - 09.11.1968, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1968
>
i
>
»H,elnta«
Bréfaservíettur, bómull
og Módess.
Póstsendum.
HELMA
Hafnarstræti, sími 11877.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstætt leigugjald.
Símí 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748.
Sigurður Jónsson.
BILALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
350,- kr. daggjald.
3,50 kr. hver kílómetri.
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
SENDUM
NÝIR BÍLAR ÁRG. ’69
SÍMI 8-23-47
SAMKOMUR
K.F.U.M. á moorgun:
Kl. 10,30 f. h. Sunnudaga-
skólinn við Amtmannsstíg.
Drengjadeildirnar í Langa-
gerði og Félagsheimilinu við
Hlaðbæ í Árbæjarhverfi. —
Barnasamkoma í Digranes-
skóla við Álfhólsv.eg í Kópa-
vogi.
Kl. 10,45 f. h. Drengjadeild-
in Kirkjuteigi 33.
Kl. 1,30 e. h. Drengjadeild-
irnar við Amtmannsstíg og
drengjadeildin við Holtaveg.
Kl. 8,30 e. h. Almenn sam-
koma í húsi félagsins við Amt
mannsstíg. Séra Lárus Hall-
dórsson talar. Sex kórfélagar
syngja. Alþjóðabænavika K.
F.U.M. og K.F.U.K. hefst. —
Allir velkomnir á samkom-
una.
0 Saknar Ieynilögreglu-
mynda
Sjomarpið þarf ekki að kvarta
undan sinnis’.eysi almennings.
Hér er enn eitt bréf um það:
„Velvakandi:
Ég sá að Sjónvarpið er enn
komið á dagskrá í dálkum þín-
um og eftir lestur þriggja bréfa
um frammistöðu sjónvarps-
manna að undanförnu ákvað ég
að stinga niður penna og leggja
fáein orð í fcelg. Ég verð að
feegja. að vetrardagskrá Sjón-
varpsins hefur ekki uppfyllt þær
vonir, sem ég var búin að gera
mér um efni þess eftir góð fyrir-
heit forráðam-nna þess, og veit
ég að sambýbsfólk mitt. og kunn
ingjar eru vel flestiv á sama
máli. Að vís i hafa ýmsir góðir
þættir bætzt við dagskrána, en
aðrir jafnágæt’r eða betri verið
látnir hverfa af einhverjum ann
PwðmtWa&iíi
arlegum ástæðum, sem mér eru
ekki ljósar.
Ég man það, að formaður Sjón
varpsráðs sagði í viðtali fyrir
nokkru að þæ’tir eins og Dýrling
urinn, Harðjaxii-m og Haukuryrðu
ekki gjörsamlega útilokaðir, held
ur sýndir armað veifið í dag-
skránni í vetu . En nú er okk-
ur farið að .engja eftir þessu
efni og þó að Melissa sé ágæt,
þá standa þtir þremenningar
henni fyllileg'j á sporði. Það hlýt
ur að vera blutverk dagskrár-
stjórans í Sjonvarpinu að kynna
sér þessi viðnorf áhorfenda, og
ég trúi ekki öðru en að vart
hafi orðið við þessar óskir fyrr.
Menn óska mjög almennt eftir
slíkum leynilögreglumyndum í
sjónvarpinu, og þó að þeir séu
ekki efnislega stórmerkilegir, þá
veita þeir stundargaman og
spennu, sem sjónvarpsmenn er-
lendis, með miklu ríkari reynslu
að baki í þessum efnum en okk-
ar annars ágætu nýliðar í fag-
inu, telja sjálfsagt að veita á-
horfendum sínam.“
0 Frágang þátta má bæta
„Annars má margt gott um sjón
varpið segja. Ég gerði mér ekki
ýkja háar hugmyndir um það,
frekar en flestir aðrir í upphafi,
Heildsölu- og umboðsverzlun
með mjög góðum umboðum til sölu, selst í einu lagi
eða að hluta. Lítill góður vörulager.
Tilboð merkt: „Sala — 6585“ sendist blaðinu fyrir
14. 11. 1968.
Hef opnuð tunnlækningustoiu
að TÚNGÖTU 7, sími 17011.
BJÖRGVIN JÓNSSON, tannlæknir.
Aðuliundur STEFNIS
F.U.S. í Hufnuríirði
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn
10. nóv. kl. 15.
Venjuleg aðlfundarstörf.
STJÓRNIN.
INNFLUTNINGS- OG UMBOÐSVERZLUN
öskur eftir meðeigundu
Framlag þyrfti að vera um 1 milljón. Mjög góð sam-
bönd erlendis og innanlands.
Tilboð merkt: „Meðeigandi — 6762“ sendist blaðinu
fyrir 13. þessa mánaðar.
Próf í bifvélovirkjun
verða haldin laugardaginn 23. nóvember.
Umsóknir sendist formanni prófnefndar fyrir
20. nóvember.
en starfsmenn sjónvarpsins hafa
oft komið okkur þægilega á óvart
þó að mörgu sé líka áfátt. Frá-
gangur ýmissa þátta er langt frá
þvi að vera nógu góður. Oft ber
á ónákvæmni ’ ið gerð íslenzkra
texta, stundum er lesandinn með
myndinni látinn tala um of fyrir
munn þeirra sem sjást tjá sig,
og þar finnst mér textann oft
vanta Ég álít ennfremur að
lengra mætti líða á milli sýn-
inga á þátturo úr sömu syrpum
eins og t.d. Maupassant. Þessar
myndir voru hm bezta skemmtun
til að byrja in.'ð, en nú er mað-
ur heldur farian að þreytast á
þeim.
Börn hafa o-ð á því, að barna-
tíminn sé lélegri en áður, of mik-
ill sögulestur og of mikið endur-
tekið efni. Og börnin spyrja af
hverju jafn vinsæll gestur og
Krun.mi sé hættur að koma í
heimsókn. Hún Rannveig, sem
stendur sig annars ágætlega sem
stjórnandi, ætti nú að endurnýja
kynni við Krumma á næstunni."
0 Fréttamenn og þættir
þeirra
„Flestir eru sammála um ágæti
sjónvarpsfréttanna. Þær eru fjöl-
breytuegar og fram bornar með
öðrum og skemmtilegri hætti
en við höfum vanizt hjá útvarpi
og blöðum. Frettamenn sjónvarps
ins virðast valið lið og færir í
flestan sjó. Efni þeirra í dag-
skrá utan fréttanna er líka með
þvi athyglisvtrðasta, sem Sjón-
varpið flytur. Á ég þar við þætti
eins og um Vestmannaeyjar, Fær
eyja: að ógleymdum föstum lið-
um eins og erlendum málefnum.
Sá þáttur er búinn að vera frá
upphafi sjónvarpsins en hefur þó
tekið útlitsbreytingum, sem ég
held að séu nauðsynlegar fyrir
fastaþætti. Og í tilefni af þessu
vildi ég aðeins mælast til þess
að jafn ágætur þulur og frétta-
maður sem Markús öm Antons
son er, komi oftar fram í viðtöl-
um við innlenda aðila og þá
helzt stjórnmálamenn, sem hann
virðirt kunna að ræða við mátu-
lega léttilega. Vona ég að Mark-
ús sé ekki of önnum kafinn við að
fylgjast með erlendum málefnum
og heimsvandamálum, að hann
megi ekki vera að þvl aS
bregða sér á skerminn aðeins oft
ar. Og þar sem þetta em nú allt
góðkunningjar á flestum heimil-
um þá langar mig til að spyrja
hvort þú getir upplýst mig um
hvar Eiður Guðnason, sá ágæti
sjónvarpsmaður, elur manninn
um þessar mundir. Við söknum
hans úr hópi þeirra fjórmenning-
anna.
Og áður en ég lýk þessu spjalli
minu um sjónvarpið vildi ég að-
eins biðja hinn nýja dagskrár-
stjóra sjónvarpsins, Jón Þórarins
son, að sjá til þess að í jafn
stuttri dagskrá og hann getur boð
ið okkur, verði leitast við að
hafa efnið sem fjölbreytilegast
og komi í veg fyrir stöðnun hjá
jafn ungri stofnun, sem stundum
hefur bólað a með vali langra
syrpu-þátta, sem sýndir hafa ver-
ið oí oft og orðið leiðinlegir
áður en varði. Það er nauðsyn-
legt að vera vel á verði hjá sjón-
varpinu, þá ekki sist í þessum efn
um.
Vertu svo blessaður Velvak-
andi góður.
Kröfuharður
sjónvarpsáhorfandi."
Velvakanda er ljóst af þeim
„sjónvarpsbréfum", sem honum
hafa borizt, að leynilögregluþætt-
irnir eru vinsælir — en hann get-
ur þó ekki tekið undir þá „kröfu
hörku“, að þeir verði „dóminer-
andi“ í sjónvarpinu. Hins vegar
er hann á sama máli og bréfrit-
ari um að lengra mætti líða á
milli „syrpu-þáttanna“, það er að
segja séu þeir sjálfstæðir hverog
einn.
Fréttir sjónvarpsins hljóta eðli
málsins samkvæmt að vera „mat-
reiddir" á annan hátt en fréttir
útvarps og blaða. Sjónvarpsmenn
hafa þar mikla möguleika — en
líka gryfjur, sem þeir geta fallið
i, þar sem ætíð er hætta á, að
fréttirnir miðist um of við þær
fréttamyndir, sem þeim berast i
hendar. Gildi sumra þeirra er
skiljanlega takmarkað fyrir okk-
ur.
Eftir því sem Velvakandi veit
bezt dvelst Eiður Guðnason í Sví
þjóð (Stokkhólmi) um þessar
mundir — og kemur væntanlega
tvíefldur heim aftur.
Umsóknir um styrk
úr styrktarsjóði ekkna og munaðarlausra bama-ís-
lenzkra lækna sendist undirrituðum fyrir 6. desem-
ber n.k.
Rétt til styrks úr sjóðnum hafa ekkjur íslienzkra lækna
og munaðarlaus böm þeirra.
ÓLAFUR EINARSSON, læknir
Ölduslóð 46, Hafnarfirði.
Beztu bókukuup úrsins
Við eigum ennþá nokkur sett af Nordisk Konversa-
tions Lexikon á sama verði og fyrir gengislækkunina
í nóvember 1967. Öll 9 bindin og ljóshnöttur á kr.
7.550.00, með okkar hagstæðu afborgunarkjömm.
Afborganir eru í ísl. krónum. Gegn staðgreiðslu kr.
6.795.00.
Hér er um sömu útgáfu að ræða og seld er í Dan-
mörku á d. kr. 1.138.00. Ennfremur eigum við nokkur
eintök af Martins Verdens Atlas á 967.00. Sú bók
kostar í Danmörku d. kr. 148.00.
Framangreind verð eru aðeins bundin við hið mjög
takmarkaða upplag sem við eigum af þessum verkum
í dag.
BÓKABÚÐ NORÐRA
Hafnarstræti 4 — Sími 14281.
>