Morgunblaðið - 09.11.1968, Blaðsíða 16
16
MORGrTJNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1968
- BORGARSTJÓRI
Framhald af bls. 13
ari Pálssyni verkfræðingi um
endurskoðun á Öllu leiðakerfinu.
Þær tillögur eru nú eða verða
á næstunni til meðferðar hjá
stjórn strætisvagnanna og hjá
borgarstjórn, um leið og þær
verða gerðar opinberar til þess
að almenningi gefist kostur á
að kynna sér þær og koma með
ábendingar, ef þurfa þykir. f
þessu sambandi vil ég geta þess
að strætisvagnar Reykjavíkur
eiga við mikinn vanda að stríða
það. er eina borgarfyrirtækið, er
hefur misst viðskiptavini. Farþeg
um strætisvagnanna hefur fækk
að á nokkrum árum úr 18 millj.
farþega á ári í 14 millj. á ári.
Um leið hefur bærinn vaxið að
víðáttu og þjónustutími strætis-
vagnanna hefvn lengst. Afkomu
skilyrði þessa fyrirtækis eru þess
vegna ekki sem bezt og sú við-
miðun, sem gilt hefur að borgar
sjóður greiddi um það bil 10%
af rekstrarútgjöldum þeirra á-
samt öllum fjarfestingarútgjöld-
um þeirra til vs-kstæðisbygginga
og vagna á nýjum leiðum mun
ekki nægja í L-amtíðinni. Meira
mun burfa að koma úr borgar-
sjóði til þess að strætisvagnarn
ir geti sinnt hlutverki sínu, að
halda góðum samgöngum við inn
an borgarinnar. Enda er það e.t.
v. ekki óeðlilegt að borgar-
sjóður greiði eitthvað til þess að
auðvelda þeim er strætisvagna
nota ferð um borgina á sama
veg og töluverðir fjármunir fara
til einkabílaeigenda með gerð
bílastæða og aðaiumferðaleiða. En
’biðskýlamálin eru auðvitað ná-
tengd endurskoðun leiðakerfis
og vonandi ve-oa þau bætt og
staðsetning þeirra í samræmi við
nýtt og betra leiðakefi.
Bjarni Benediktsson: Ég tek
Undir þakkir til borgarstjóra fyr
ir þennan fund og þau greiðu
svör, sem hann hefur veitt. Það
eru mjög óveruleg atriði, sem ég
ætlaði að minnast á, og raunar
áður átt tal um það við borg-
arstjóra, en ekki fengið undir-
tektir. En vegna þessara um-
mæla vil ég þó rifja það upp.
Borgarstjóri gat þess, að það
væri vandi við byggingu bæjar
ins að tengja saman gamalt og
nýtt. Þetta er rétt en þetta á
sér ekki einungis stað um hús,
heldur einnig um örnefni. Nú
nefndi borgarstjóri í inngangs-
ræðu sinni, að minnsta kosti tvis
var, Miklatún, sem er hér opið
svæði, sem við öll könnumst við
en er algjört nýnefni. Og borgar
stjóri hefur gefið þessu svæði
það nafn. Og það er út af fyrir
sig fallegt og ekkert við því að
segja. En við, sem erum kunn-
ugir á þessum slóðum vitum, að
meginhluti þessa svæðis til-
heyrði býli, sem hér var a.m.k.
hálfa öld og hét Sunnuhvoll. Pét
ur heitinn Hjaltested kaupmað-
ur og iðnaðarmaður, einn laf
mestu framfaramönnum bæjar-
ins á sinni tíð ræktaði þarna
upp óræktarmóa og varð einn
fremsti forgöngumaður í ræktun
bæjarlandsins, kallaði sitt býli
Sunmuhvol. Og ég hygg, að það
sé enginn vafi á því, að mestur
hluti eða að minnsta kosti
stærsti hluti þessa opna svæðis,
sem nú er kallað Miklatún, til
heyrði býiinu Sunnuhvoll eða
tilheyrði því stærra svæði held
ur en nokkur önnur. Það eru
mörg smátún þarna sameinuð.
Mér hefur fundizt að það væri
verðugt til minningar um þenn-
an framfaramann, sem þar að
auki á fjölda afkomendur hér í
bænum að kalla þetta svæði, það
sem það var kallað í gamladaga,
þá var þetta kallað Sunnuhvols-
tún. Það er hægt að stytta það
og kalla það Sunnuhvol. Svo vi'll
vel til, að bærinn hefur látið
reisa þama hvol á túninu til
þess að gera mögulegt fyrir ung
limga að leika sér að vetri til,
svo að nú er þetta sannarlegt
sannnefni. Ég veit að borgar-
stjóri hefur valið hitt nafnið en
þar sem hann hefur þetta sjálf-
ur í hendi sér, þá vil ég
nú skora á hann að breyta til
og velja það gamla nafn,
minnsta kosti þegar þarna verð
ur vígt listasafnið sem bráðum
verður og það fer miklu betur
að tengja saman gamalt og nýtt.
Slíkt er óneitanlega fegurra og
rifjar upp afreksverk sem þarna
var unnið.
Borgarstjóri: Ég heyri á öllu,
að vö'ld borgarstjóra hafi minnk
að frá því að Bjarni Benedikts-
son var borgarstjóri. Því að ég
mun nú ekki hafa vald til þess
að breyta þessu í einu vetfangi
nafninu á þessum stað. Ég minn
ist þess að á sínum tíma, þegar
stytta Einars Benediktssonar
var afhjúpuð og nafnið Mikla-
tún var fyrst notað þá var tölu
verð rannsókn á því gerð hvaða
nafngift ætti að fylgja þessu úti
vistarsvæði. Og þá var nú svo
komið, að þótt Sunnuhvolsíbúð-
arhúsið hafi rétt nýlega verið
rifið að því er mig minnir, þá
gekk þetta svæði undir nafninu
Klambratún og ýms örnefni
þarna um slóðir komu til álita í
nafnanefnd og meðal norrænu-
fræðinga, sem borgin hefur sér
til ráðuneytis, áður en götum og
Sveinn Benediktsson ber fram
opnum svæðum er gefið nafn, og
niðurstaðan varð að kenna túnið
við þá braut, sem fram hjá því
fer. Hitt er svo alltaf rétt, að
kanna hvort ástæða sé til breyt
inga og ég skal gjarnan láta
þessa tillögu forsætisráðherra
fara rétta boðleið um hendur
norrænufræðinga, nafnanefnda,
byggingarnefndar og borgaryfir
valda, en fyrirspumin gefur mér
tilefni til þess að nefna það, að
Reykjavíkurborg hefur í lík
ingu við það að rannsaka varð-
■veizlugildi gamalla húsa, einn-
ig gert ráðstafanir til þess að
safna örnefnum, áður en svæði
er tekið til bygginga og ýmis
náttúruummerki, sem gætu verið
til stuðnings að rekja upphaf
örnafna sem eru afmáð. Þanmig
eni gerðar skipulegar safnanir á
örnefnum hér á stóru svæði í
kring um Reykjavík og það er
víst og rétt það sem bent er á,
að tengsl okkar við forfeðuma
og sögu staðarins mundu verða
langtum sterkari og reyndar
götunöfn og nafngiftir í bænum
skemmtilegri, ef við tengjum
þetta gömlum ömefnum úr
Reykjavik.
Jón H. Björnsson: Herra borg-
arstjóri, vilduð þér gjöra svo
vel og fjalia örlítið um, hvað er
að gerast í skipulagi Vatnsmýr-
arsvæðisins, sunnan Landsspital-
ans um gatnagerð og fleira?
Borgarstjóri:' Ég býst við því,
að þarna sé um að ræða svæðið
fyrir neðan Landspítalann og fyr
ir austan Umferðamiðstöðina.
Ég hef að vísu hér kort aðal-
skipulagsins en ég held að það
sjáist ekki út í sal, en ég skal
reyna að skýra frá í höfuð atrið
um hvemig gatnakerfi þessa
svæðis mundi verða háttað í
framtíðinni. Ætlast er til að Frí
kirkjuvegur og Sóleyjargata
framlengist yfir Hringbrautina,
og sú gata fari framhjá Loft-
leiðahótelinu og Flugturninum,
suður fyrir öskjuhlíð og liggi
síðan eftir Fossvogsdalnum og
tengist þar Reykjanesbraut,
þeirri braut, sem nú er leiðin
upp í Breiðholt. Þá hefur verið
byggður í sumar vegur, sem ligg
ur fyrir neðan nýju Slökkvistöð
ina og til Loftleiðahótels.
Þetta svæði, sem, takmarkast af
þessum flugvallarvegi, framhaldi
Sóleyjargötu og Himgbrauitinn-
ar mun verða býst ég við þann-
ig, að Umferðarmiðstöðin mun
fá athafnarými, nokkrar lóðir
verða við Hafnarfjarðarveginn,
þar sem Sölufélag Garðyrkju-
manna er og upp að Slökkvi-
stöðinni en að öðru leyti verður
svæðið væntanlega til umráða
fyrir stækkun Landspítalans og
læknadei'ld Háskólans. í þeim
efnum hefur komið til greina að
flytja Hringbrautina úr stað,
sveigja hana meira til suðurs
frá Hljómskálagarðinum og að
Miklatorgi, með það fyrir augum
hvort tveggja í senn að nýta
betur þetta svæði fyrir spítala-
byggingarnar, sem fyrir eru og
eiga eftir að koma og sömuleið-
is til að auðvelda umferðina og
gerð umferðarmannvirkja við
Miklatorg. Ég vonast til að ég
hafi skilið spurninguna rétt.
Þorkell Sigurðsson: Vegna
þess, að hið áðurnefnda Klambra
tún kom ti'l umræðu hér, og
Sunnuhvoll, þá langaði mig til
þess að minnast ofurlítið á styttu
Einars Benediktssonar í því sam
fyrirspurn til borgarstjóra.
bandL Ég get ekki neitað því,
að það hefur alltaf komið ein-
hvern veginn óþægilega við mig
þegar ég hef átt leið um Miklu-
brautina að þessi mesti braga-
snillingur í sögu íslenzku þjóð-
arinnar, sennilega allra frá
fyrstu tímum, að hann skuli
snúa bakinu í sólina. Mér hefði
fundizt hæfa betur í sambandi
við hans minnismerki, að hann
'horfði til sólar, því að hann
hugsaði hátt. Þess vegna hef ég
viljað bera fram þá ósk og jafn
framt fyrirspurn um það, hvort
ekki væru tök á því að færa
þetta til betri vegar annað
hvort að flytja hann algjörlega
úr stað eða þá að snúa henni
við, þannig að þessum tilgangi
væri náð.
Borgarstjóri: Það hafa margir
haft orð á því, að rétt væri að
stytta Einars Benediktssonar
snéri að Miklubrautinni, en stað
setningin eins og hún er gerð, er
með gerð framtíðarskipulags
Miklatúns fyrir augum og menn
átta sig ekki á því e.t.v. á þessu
stigi málsins, hvernig umhverf-
ið verður, þegar búið er að
ganga frá gróðri og öðrum mann
virkjum þar í kring til full-
nustu. Ég hefi heyrt líka þá
gagnrýni að styttan standi of
lágt og sjá'lfsagt er að kanna
allar slíkar ábendingar. Ég held
nú alla vega, að ef snúa eigi
styttunni að Miklubrautinni, þá
verði að flytja hana úr stað,
vegna þess að fljótlega kæmi
fram gagnrýni að styttan snéri
baki í meginhluta skrúðgarðsins
þar sem hún á í raun og veru
að standa
Björn Vigfússon: Ég vildi
minnast á eitt, sem ég hef tal-
að um við marga og margir eru
óánægðir með, að einhver mis-
’heppnun hefur átt sér stað við
stillingu umferðarljósanna við
Miklubraut og Lönguhlíð. Þar var
ir svo stutt græna Ijósið. Þar
eru tvær akreinar, en þeir sem
ganga hratt og geta gengið hratt
eða hlaupið þeir koanast yfir en
aðrir ekki.
Mér findist ógköp viðkunn-
anlegt ef Sunnuhvolsnafnið
fengi að halda sér. Svo er ann-
að býli þarna fyrir ofan, Há-
teigur, það á meira í þessu túni
heldur en Klambrar einnig, bæði
Sunnuhvol og Háteigur.
Borgarstjóri: Ég þakka Birni
Vigfússyni fyrir upplýsingar
hans. Hann spurði og beniti á
ljósastillingu við Miklubra-ut.
Það er alveg rétt, að stilling um
ferða’ljósanna hefur engan veg-
inn verið í lagi, sérstaklega ekki
við gatnamót Miklubrautar og
ýmissa þeirra gatna er skera
hana. Það er svo, að umferða-
kannanir um umferðaþunga og
akstursstefnur gátu ekki farið
fram fyrr en eftir H-daginn og
gögn sem af þeim könniunum
leiddu voru síðan send seljend
um ljósanna til úrvinnslu á vís-
indalegan hátt, svo að allt mæbti
vera stillt í samræmi við um-
ferðaþungann og ekki er vænt-
anlegt að endanleg stilling verði
komin á ljósin fyrr en eftir 4-5
vikur. Hins vegar er reynt að
gera bráðabirgðalagfæringar nú.
Þá nefndi Björn ráðhúsið eins
og ýmsir aðrir. Ég skal ekki
fjölyrða frekar um ráðhúsið eða
staðsetningu þess, en ég vildi
aðeins geta þess, að ég hygg, að
í ræðum þeirra þriggja manna,
sem á ráðhúsið hafa minnzt komi
einmitt fram athyglisverð stað-
reynd. Það er rétt, að þeir eru
ekki allir á einu máli um stað-
setningu ráðhúss við norður-
enda Tjamarinnar. Þeir þremenn
ingar eru sammála um, að það
sé ekki góð staðsetning. En hver
þeirra um sig hefur sína tillögu
að gera um staðsetningu ráð-
húss. Þeir hafa sitt hverja til-
löguna, Björn Vigfússon vildi
Eskihlíðina, Guðmundur Alfreðs
son nýja miðbæinn og Sveinn
Benediktsson Höfða eða .svæðið
þar í kring. Og sanrileikurinn
er sá, að þetta verður ávallt
vandamálið í sambandi við stað
setningu ráðhúss, að það kann
vel að vera, að það sé ekki hægt
að sameina alla borgarbúa um
eina sérstaka staðsetningu, það
koma ávallt háværar mótmæla-
raddir, en ef mótmælendur eru
spurðir, hvað viljið þið, þá koma
jafnvel jafn margar skoðanir
eins og mótmælendurnir eru
margir. Þannig að skoðanakönn
un í borginni um einin tiltekinn
stað mundi ekki gefa rétta hug-
mynd um hug borgarbúa. Varð
aridi staðsetningu ráðhúss í
gamla miðbænum þá hafa ein
rökin fyrir henni verið sú, að
eðlilegt væri einmitt vegna sögu
borgarinnar og landnáms Ing-
ólfs og fyrsta bæjarstæðis í
Reykjavík að ráðhúsið væri í
kvosinni milli Tjarnarinnar og
hafnarinnar. Það er svo gert ráð
fyrir því í hugleiðingum aðal-
skipulags, að höfuðaðsetur rík-
is og borgar sé þarna í gamla
miðbænum, þótt sömuleiðis sé
gert ráð fyrir einstaka borgar-
stofnun í nýjum miðbæ eða ann
ars staðar í borginni. En sem
sagt ráðhúsbygging fer nú ekki
af stað á næstunni og við skul-
um halda áfram að ræða um stað
setningu sáðhúss, byggingu ráð-
húss í þeirri von að þegar til
framkvæmda dregur, getum við
gengið heils hugar og ánægð að
því verki.
Björn Stefánsson: Nokkuð
stórt opið svæði er á milli
Hamrahlíðar og Grænuhlíðar. Er
ekki hægt að laga þetta svæði
og gefa unglingum og börnum
kost þar á fótbolta og öðrum
leikjum. Jafnframt vil ég taka
undir orð Thor Brand um að
banna iðnað og fleira í bílskúr-
um, seui er víða í Hlíðunum.
Borgarstjóri: Á þessu svæði,
sem fyrirspyrjandi nefnir, hygg
ég að þegar sé komið dagheim-
ili, Hamraborg og nokkurt leik-
svæði, en það er rétt að auk
þessa er óræktað svæði, sem ved
mætti nýta í þeim tilgangi, sem
fyrirspyrjandi nefndi, og því
miður er þetta svæði eitt af
mörgum dæmi þess hve ólökið er
miklu í frágangi opinna svæða,
sem nauðsynlegt er að vinda
bráðan bug að því að ganga frá.
Jón Sigurðsson: Við sem búum
við Snarrabrautina, óskum eftir
því, að þannig verði gengið frá
eyjum á milli akbrautanna að
þær séu ekki heilsuspi’llandi,
Vegna þess, að þegar vindur er
á norðaustan er mikið ryk, sem
berzt inn í hús og inn um glugga.
Óskum að fá þetta lagifært. x
Borgarstjóri: Ástæðan fyrir
eyjunni í Snorrabrautinni er sú,
að til hefur staðið að endur-
byggja Snorrabrautina, því mið
ur þarf sennilega að taka eyj-
una alveg í burtu nema sem smá-
ræmu og nýta hana ýmist sem
framtíðarbifreiðastæði eða
braut, hún er að mestu leyti nýtt
sem bifreiðastæði nú, en hún er
ómalbikuð og ástæðan sem sagt
til þess að hún er ekki frágeng-
in er þessi fyrirhugaða endur-
bygging Snorrabrautar á þessu
svæði og ég vona að það verði
fljótlega unnt að ráðast í þá úr
bót svo að Snorrabrautarbúar
losni við rykið.
íslendingur—isafold
— Nýtt vikublað hetur göngu sína
NÝTT vikublað kom út í gær,
íslendingur-ísafold, tvö elztu
vikublöð landsins sameinuð í
eitt. Útgefandi er Útgáfufélagið
Vörður h.f. og er aðsetur þess á
Akureyri. Ritstjóri blaðsins er
Herbert Guðmundsson og fram-
kvæmdastjóri Oddur C. Thorar-
ensen.
Fyrsta tölublaðið er 16 síður.
':W'
■
,wn.rt..«,i
- ~ -1 ~ í tjjgs
:
4s»*;r4*.
lillítr i.Kur .1 rmt.rl.m tij.i.Istj.ir.wir
Sfidm 70 mii’ij hó
■■■■.■
itó áwnsóiöBiiá
Það er prentað í Prentsmiðju
Morgunblaðsins, en setning, um
brot og önnur vinna við það fer
fram á Akureyri.
íslendingur-ísafold mun koma
út tvisvar í viku megin hluta
ársins, en annars einu sinni í
viku. Tölublöðin verða 90 á ári
og verður blaðið að jafnaði 8
síður, en 12 sxður stöku sinnum.
í ávarpi til lesenda, sem birt
er á forsiðu, segir m.a.:
„Sjálfstæðismenn í strjálbýlinu
hafa sameinast um útgáfu öfl-
ugs blaðs til þjónustu við þá, sem
þar búa, og aðra þá, sem skilja
og styðja máls+að þeirra og hlut
verk í þjóðfélaginu.
„íslendingur-ísafold“ er helg-
að viðburðum og málefnum í
fjórum núverandi strjálbýliskjör
dæmum Vestfjarða, Norðurlands
og Austurlands. Frásögnum og
stjórnmálaskoðunum er haldið að
skildum, en blaðið styður grund
vallarstefnu Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnmálaskrif þess eru á á-
byrgð ritstjórnar einnar, nema
annars sé geúð“.
Teknir
VARÐSKIP stóð togbátinn Gull-
faxa NK 6 að meintum ólögleg-
'um veiðuim í Þistilfirði í fyrri-
'nótt. Var báturinn um 14 mílur
’fyrir innan landhelgina, en þetta
'er í annað sinn ó skömmuim
’tima, sem þessi bátur er staðinn
að meintuim ólöglegum veiðum
’í Þistilfirði. Mál skipstjóran>s
'verður tdkið fyrir í Neskiaupstað.
Þá stóð varðskip togbátana
Ólaf Tryggvason SF 60 og Ak/ur-
■ey SF 52 að meintum ólöglegum
'veiðum undan Ingólfshöfða 1
fyrrinótt. Mál skipstjóranna
verða tékin fyrir í Hornafixði.