Morgunblaðið - 09.11.1968, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.11.1968, Blaðsíða 20
20 MOBGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. NÖVEMBER 1968 I nnanhúss-arkitektur í frítíma yðar með bréfaskriftum. Engrar sérsta-krar undirbúningsmenntunar er krafizt til þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm, skipulagning, nýtízku eldhús, gólflagnir, vegg- klæðningar, vefnaðarvara, þar til’heyrir gólfteppi, hús- gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni og fl. Ég óska án skuldbindmgar að fá sendan bækling yðar um INNANHÚSS-ARKITEKT, NÁMSKEIÐ. Nafn ............................................ Staða ........................................... Heimilisfang .................................... Akademisk Brevskole Badstuestræde 13, Köbenhavn K. M.B. 9./11. ’68. Bezt að auglýsa í IVIorgunblaðinu Valgerður Guðmunds- dóttir — Minningarorð Fædd 26. sept. 1893. Dáin 1. nóv. 1968. FLATEYRI var dæmigert ís- lenzkt sjávarþorp, heimur fyrir sig. Lífið var hart og bauð fá tækifæri til fjár og frama. Menn unnu hörðum höndum og neyttu síns brauðs í sveita síns andlits. Svo sem í hverju öðru samfélagi, þá unnu sig þó alltaf einhverjir tii efna og álits með atorku og forsjálni. Tíðum urðu heimili slíkra framámanna miðstöð þorpsins, vinsæl, veitul og glað- vær. Þannig hugsa ég mér heimili þeirra Ólafs G. Sigurðssonar og Valgerðar Guðmundsdóttur á Flateyri, en í dag verður Valgerð ur húsfreyja borin til grafar í Reykjavík. Börnin, hvert öðru mannvæn- legra, uxu úr grasi. Þegar aldur var til, var eitt af öðru stutt til ýmiss konar náms, en að því loknu bauðst ekkert starfssvið í þorpinu þeirra kæra. Þau hurfu burtu og hösluðu sér vettvang í fjarska. f lok styrjaldarinnar síðari fellur húsbóndinn frá. Valgerður stendur ein með yngstu dóttur- ina enn á bernskuskeiði. Eignir eru drjúgar og umsvif mikil. En hvað stoðar það? Húsfreyjan hafði ráðið innan stokks en óvön veraldarvafstri. Það verð- ur fangaráð Valgerðar að leita suður, þangað sem eldri börnin voru flogin. En nú stoð- uðu lítt hús og lendur á Flat- eyri. Hvorugt varð flutt suður og enginn fannst kaupandi. Mun Valgerður hafa stigið á land í ' & ■ ;• Reykjavík með svo léttan sjóð, að ekki nægði til kaupa á minnstu ibúð. Valgerður lét ekkj hugfallast. Yngstu dóttur- ina studdi hún til náms, svo sem fyrr þau eldri. Skyldi þar í engu áfallast, þótt aðstæður væru breyttar. Það voru ekki einvörðungí ætt menn Valgerðar, sem nutu ást- úðar hennar og umhyggju. Fjöl- skylda mín getur þar trútt um talað. Valgerður var gædd þeim fágæta eiginleika, að geta á efri árum knýtzt órofa tryggðarbönd- um framandi fólki. Valgerður varð aldrei viðskila við samtíð sína. Öll hafa börn hennar orðið nýtir þegnar. Börn hennar, tengdabörn og barna- börn sýndu henni ávallt fyllstu virðingu og ræktu frændsemi með tíðum heimsóknum. Hús- um réð hún til hinztu stundar og að lokum aftur í eigin húsi. Valgerður var fædd 26. sept, 1893 í Bakkaseli í Langadal. For- eldrar voru Guðrún Sigurðar- dóttir og Guðmundur Hafliðason. Árið 1917 giftist hún Ólafi B. Sigurðssyni frá Hríshóli í Reyk- hólasveit. Þau Ólafur bjuggu allan sinn búskap á Flateyri. I aldarfjórðung var Ólafur hrepp- stjóri, unz hann lézt 1948. Börn þeirra Valgerðar og Ólafs eru þessi: Sigurður, skólastjóri, kvæntur Guðrúnu Hansen, Guðrún. ljós- móðir gift Magnúsi Ágústssyni, Guðmundur, skipstjóri, kvæntur Arnfríði Arnórsdóttur, Elín gift Jónj Strandberg, tollverði, Guð- jón, skrifstofumaður, kvæntur Auði Þórðardóttur, Ásdis, gift Ingimundi Guðmundssyni vél- stjóra. Barnabörn átti Valgerður tuttugu og fimm að leiðarlokum. Fjölskylda mín sendir ættingj- um og vinum Valgerðar innileg- ar samúðarkveðjur. Jón Á. Gissurarson. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Veitingastaður Tveir matreiðslumenn með margra ára reynslu í veitinga- og hótelrekstri, óska að taka á leigu veitingastað. Kaup koma til greina. Tilb. sendist afgr. Mbl. strax merkt: „Sam vinna 6721“. T résmíðaverkstæði — húsbyggiendur Höfum opnað spónlagningarverkstæði að Ármúla 10. — Fljót og góð afgreiðsla. ÆT Almur st. SÍMI 81315. m ALLA LAUGARDAGA TIL KLUKKAN 6 KJÖTBÚe SUDURVERS á horni Kringlumýrarbrautar, Hamrahlíðar og Stigahlíðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.