Morgunblaðið - 09.11.1968, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.11.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1968 19 Á slóðum œskunnar I UMSJA Steídns Halldórssonar og Trausta Valssonar MARY HOPKIN Hún er lagleg, ljóshærð átján ára stúlka, lítil — gæti jafnvel verið fjórtán ára — og gagntekin þeim lotningarótta, sem fylgir nafnbótinni: Popstjarna. Heppin hingað til, en ákve'ðin samt. Hún lítur hugrökk fram á við. Það var beinagrindin hún Twiggy, sem uppgötvaði hana og sagði Paul McCartney frá henni. „Stórkostlegur söngvari," sagði hún. Og þegar Paul heyrði fleiri minnast á hana, ákvað hann að hringja í hana — til Wales. „Þeg ar ég hringdi," sagði Paul, „svar aði elskuleg rödd 1 símann — það var hún .— og spurði ég, hvort hún hefði áhuga á að syngja inn á Apple-plötu, þ.e.a.s., ef hún reyndist vel. Mary sagði já við því og kom nokkrum dög- um síðar til Lundúna.“ „Við fórum strax í stúdíóið," hélt Paul áfram, „og fannst mér hún vera alveg eins og Twiggy lýsti henni: Stórkostleg. Þó fannst mér eitt að henni; hún var of lík Joan Baez. Hún sagðist geta sungið öðruvísi — og trúði ég því — eins og kom líka á dag- inn, — því að hún er það heil- steypt.“ Paul sagðist hafa heyrt lagið „Those Were The Days“ fyrir nokkrum árum í Bláa Englinum í London — og ekki gleymt því síðan. Hann kvaðist reynt hafa fengið það spila’ð irm á hljóm- plötu, t.d. með the Moody Blues, en það hafi ekki reynzt nógu vel. Þá hafði hann spilað lagið fyrir Donovan í Indlandi, sem fékk strax ást á því, en einhvern fórst það fyrir, að hann spilaði lagið inn á plötu. Þegar Mary kom svo fram á sjónarsviðið, talaði Paul við Essex Music, útgefendur lags ins, og fékk nauðsynleg leyfi hjá þeim fyrir laginu, en í raun og veru er „Those Were The Days“ gamalt, rússneskt þjððlag. „Síðan sýndi ég Mary, hvernig ég hafði hugsað mér útsending- Lesendur Kæru lesendur. Nú þegar þessi sfða 'hefur verið hér í blaðinu um nokkurt skeið, langar okkur til að fá ykkur til þess að stinga upp á efni, sem hægt væri að birta hér á síðunni. Við höfum reynt að hafa efnið fjölbreytt í þeirri von, að sem flestir hafi haft ánægju af. Það eru vinsamleg tilmæli til ykkar, að þið látið okkur vita, hvaða efni ykkur finnst skemmtilegast og hvaða efni vantar. Ef þfð hafið ein- hverjar óskir eða tillögur fram að færa, þá sendið okkur línu. Utanáskriftin er: Á slóðum æskunnar, Morg- unblaðið, Aðalstræti. Mary Hopkin. una,“ sagði Paul, „og skildi hún undireins, hvað ég var að fara. Það hefði mátt halda, að hún hefði þekkt lagið í fjölda ára. Síðan tókum við lagið upp. Hún var dálítið taugaóstyrk fyrst, enda var þetta hennar fyrsta upp taka, en annars gekk þetta eins og í ævintýrunum." Mary Hopkin er eins og hver önnur brezk skólastúlka; góð í sér og róleg, hlédræg, ro'ðnar öðru hverju og brosir feimnis- lega. Foreldrar hennar eru vel metnir í sinni sveit, sómafólk í alla staði — eins og það heitir. En hvað segir Mary sjálf við öllu þessu? „E.t.v. var ég svona heppin vegna þess, hve ég er eðlileg og venjuleg. Ég held, að fólki líki það vel. Mig langar ekki til þess að vera stjama á borð við Sandie Shaw eða Dusty Springfield; ég myndi ekki njóta mín þannig. Það hefði engin út- sett „Those Were The Days“ bet- ur en Paul gerði. Ég er viss um, að fólk kaupir plötuna vegna lagsins og útsetningarinnar, ekki vegna söngs míns og raddar." Já, Mary Hopkin er vissulega venjuleg, welsk og hlédræg skóla stúlka. En hváð um það, Paul sagði, að bráðum hæfist vinna við upptöku stórrar plötu með henni. Skulum við vona, að það verði sem fyrst. Eric vill ekki koma til íslands Fyrir nokkru átti S.H. þess kost að ræða við hinn heims- þekkta söngvara, Eric Burdon. Viðtalið fór fram í búnings- herbergi söngvarans áð aflokn um hljómleikum, og var hann ekki sem bezt upplagður til þess að spjalla við blaðamann frá íslandi — bæði andlega og líkamlega útkeyrður. Því að Eric leggur sig allan fram um að skemmta áheyrendum, og það getur vissulega verið mjög þreytandi. En hann reyndi þó eftir beztu getu að svara nokkrum spumingum. Blm.: Hafið þér haft nokk- ur kynni af íslandi? Eric: Já, ég þekki ísland af afspum. Nokkrir vinir mínir voru þar, og létu þeir vel yfir dvölinni. En ég man alls ekki, hvað staðurinn hét, sem þeir héldu sig á. Blm. reyndi að telja upp helztu' kaupstaði og síldar- kauptún landsins — en án árangurs. Því næst spurði hann, hvort Eric hefði áhuga á að koma til landsins með hljómsveit sína, the Animals, og skemmta unga fólkinu. Eric: Nei, eiginlega ekki. Það er nefnilega með ísland eins og Ítalíu; þar er ekki hægt að spila á hljómleikum, því að unglingarnir hlusta alls ekki á hljómsveitina og það, sem hún hefur upp á að bjóða, heldur láta þeir öllum illum látum, ráðast á sviðið, rífa og tæta föt átrúnaðargoða sinna og brjóta hljóðfærin og ? magnarana! Vissulega væri 1 gaman áð geta látið Islend- inga njóta þess, sem við flytj um, en það er bara ekki unnt, á meðan unglingarnir haga sér svona. Blm.: Hvar er þá bezt að spila? Eric: í Bandaríkjunum. Þar hlusta áheyrendur á okkur F.ric, Rurdon. og klappa aðeins á eftir lög- unum, en þegja, á meðan hljómsveitin spilar. Háskóla- stúdentar eru beztu áheyrend urnir, og eyðum við mestu af tíma okkar í að spila fyrir þá. Blm.: En hvernig eru brezk- ir áheyrendur? Eric: Þeir eru einnig ágætir, flestir. En þó er alltaf eitt- hvað af stúlkum, sem álíta það heilaga skyldu sína að öskra og ólátast sem mest. Blm.: Hefur frægð hinna gömlu Animals haft eirrhver áhrif á vinsældir hinna nýju Animals? Davn Clark Five. Dave Clark og Raymond Frogatt ÞAÐ var í júní sL, sem Dave Clark heyrði lagið „Callow La Vita“ í fyrsta skipti. Hann var á heimleið í bílnum sínum og heyrði þá hljómsveitina „Ray- mond Frogatt“ flytja þetta lag í útvarpið. Honum leizt vel á lagið, og það virtist ekki fráleitt að álíta að það gæti orðið vinsælt, EF það væri útsett öðruvísi, nafn inu breytt, nýr texti saminn og Jaime Robbie Robeitson, Rick Danko, Richard Manuel, Garth Hudson, Levon Helm Mörgum þótti nóg um, þegar hljómsveitin Dave Dee, Dozy, Beaky, Mick og Tich kom fram á sjónarsviðið, enda var nafnið það lengsta, sem menn þekktu á einni hljómsveit. En tíminn leið, og nú eru allflestir búnir að læra þessa runu og finnst hún ekkert voðaleg lengur. Vestur í Bandaríkjunum er frægur söngvari og lagasmiður, sem heitir Bob Dylan. Hann hef- ur leikið og sungið inn á margar hljómplötur, sem hafa náð mikl- um vinsældum. Á þeirn síðustu hefur hann haft aðstoðarmenn við undirspilið, hljómsveitina The Band (Hljómsveitin). En hann er enginn vinnuþjarkur og hljómsveitin hefur fengið nóg af fleiri breytingar gerðar. Hann fékk leyfi hjá útgefendum lags- ins til að gera þessar breytingar á því, og síðan lék hljómsveit hans, „The Dave Clark Five, lag- ið inn á hljómplötu. En þetta tók allt saman sinn tíma, eina tvo mánuði, og á þeim tíma kom út ný plata með hljómsveitinni „Raymond Frogatt“, sem talin er mjög efnileg. Nokkru seinna kom Eric: Já, því miður. Margir, sem voru ekki hrifnir af hin- um gömlu Animals og litu á þá sem hverja aðra háværa bítlahljómsveit, hafa þetta sama álit á hinum nýju Ani- mals. En þeim skjátlast. Hljómsveitin er gjörbreytt, að eins nafni'ð það sama. Mér leiðist mikið að geta ekki breytt þessu, en það er alls ekki svo auðvelt. Tökum Bandaríkin sem dæmi. Þar var reynt að gera Beatles núm er tvö úr hinum gömlu Ahi- mals. En það tókst til allrar hamingju ekki. Animals voru rythm-and-blues hljómsveit, og ekkert gat breytt þeim í bítlahljómsveit. En það voru margir, sem misstu álit á hljómsveitinni, og það hefur verið erfitt að vinna þá til fylgis við okkur hina nýju. Blm.: Eru þið rythm-and- blues hljómsveit? Eric: Já. Ég hef frá upp- hafi hneygzt að - rythm-and- blues og mun vafalaust halda mig á þeirri línu framvegis. Blm.: Hverjir eru uppáhalds listamenn yðar? Eric: Roland Kirk, jazz-leik ari, er stórkostlegur — og svo auðvita'ð Bítlamir, þeir eru alltaf númer eitt. Annars á ég erfitt með að nefna ein- hverja einstaka sem bezta. Það gerist svo asskoti margt, að maður hefur ekki nógu mikla yfirsýn. Blm.: Og að lokum: Hverjar eru framtíðaráætlanirnar? Eric: Að reyna að skemmta fólki og gera það ánægt. Ef það tekst, þá er ég ánægður. svo nýja platan frá Dave Clark Five út og lagið hét nú „Red Balloon". Allir virtust ánægðir, ekki sízt þegar lagið flaug upp vinsældarlistana. En þó var ekki svo. Einhverjir útvarpsþulir grófu upp gömlu útgáfuna og töluðu mikfð um, að Dave Clark væri viljandi að reyna að spilla fyrir lítt þekktri en efnilegri hljómsveit með því að stæla lag- ið þeirra. Töluvert af fólki trúði þessari sögu og snerist gegn Dave. En þá var það hljómsveit- in Raymond Frogatt, sem sendi þekktu músíkblaði bréf og lýsti þar yfir ánægju sinni með það, að Dave valdi lagið þeirra, en ekki eitthvað annað. Sögðu me'ð- limir hljómsveitarinnar, að það væri mikill heiður og uppörvun, að svo þekkt hljómsveit, sem Dave Clark Five, léki lagið þeirra inn á hljómplötu. Þar með var öllum deilum lokið og nú eru allir ánægðir, ekki sízt Dave sjálfur. fríum. Hluta af frítímanum ver The Band til að leika inn á hljómplötur, sem gefnar eru út í Bandaríkjunum og víðar. Á þeirri nýjustu er lagið The Weight, sem hefur orðið geysi- vinsælt og er nú sem stendur í Top 20 í Bretlandi. En hljóm- sveitarme’ðlimirnir eru sérvitrir í meira lagi, sem sézt bezt á því, að þeir heimtuðu að nöfn þeirra allra væru nefnd á plötumiðan- um og það er engin smóruna: Jaime Robbie Robertson, Rick Danko, Richard Mcinuel, Garth Hudson, Levon Helm. Og nú mega lesendur spreyta sig á því að læra þessa runu. Góða skemmtun. Barry hættir ekki Barry Gibb mun ekki yfir- gefa the Bee Gees. Honum höfðu borizt ýmis tilboð um kvikmyndaleik í Bandaríkjun um, og hafði hann þá ákveðið að hætta í Bee Gees. En hljóm sveitin hélt fund í Briisisel fyrir nokkru og þar sam- þykkti Barry að hætta ekki næstu tvö árin. Hljómsveitin fékk nýlega gullplötu, þá fimmtu í röðinni, að þessu sinni fyrir milljón eintaka sölu á laginu „I Gotta Get A Message To You.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.