Morgunblaðið - 09.11.1968, Síða 10

Morgunblaðið - 09.11.1968, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1968 í vesturvíking Rœtt við skipstjórann og /. stýrimann á Erni RE, sem í dag heldur til síld- veiða við austurströnd Bandaríkjanna SILFUR hafsins lokkar ís- lenzka sjómenn á æ fjarlæg- ari mið. Sú var tíðin, að sild- in veiddist upp í landstein- um að heita mátti, en síðdegis í dag heldur síldveiðiskipið Örn RE vestur um haf til síld veiða við austurströnd Banda- ríkjanna. Við þessa ferð eru bundnar miklar og góðar von ir og því þótti okkur ekki úr vegi að spjalla ofurlítið við skipstjórann, sem þarna ríður á vaðið, Sævar Brynjólfsson, og fyrsta stýrimann hans, Ing ólf Falsson. Það rigndi í Keflavík, þeg- ar við kvöddum dyra að heim ili Sævars. sem þegar tók okkur í stofu. Þegar við höfð um komið okkur vel fyrir og þegið stórsígar hjá skipstjór- anum, hófum við máls á því, 'hvernig honum litist á þessa ferð. flutningaskip utan við 12 mílna fiskveiðilögsögu Banda ríkjanna, en flutningaskipið flytur síldina til bræðslu í Glouchester í Massachusetts- fylki. Afköst verksmiðjunnar þar eru um 500 tonn á sólar- hring. — Hvaða þjóðir sækja nú mest á þessi mið? — Þarna eru skip frá mörg um þjóðum, en ég held, að Rússarnir eigi einna stærsta flotann. Tveir bátar frá Kan ada eru þarna og veiða í bræðsluna í Gloucester og þar til fyrir skömmu veiddu á þessum miðum þrír banda- rískir bátar, sem einnig lögðu upp hjá þessari sömu verk- smiðju. — Hvernig leizt svo áhöfn- inni á þessa fyrirhuguðu ferð? — Yfirleitt vel, þeim sem — Þú ert að læra á miðin, segjuim við. — Já, ég er svona að reyna að átta mig á þessu, segir Sævar og brosir. — Hvað er löng sigling héðan á þessi mið? — Ætli við verðum ekki um tíu sólarhringa á leiðinni, ef við fáum sæmilegt veður. — Og hvenær fáið þið svo frí? — Við fljúgum heim um jólin og skiljum bátinn eftir vestra. — En hvað verðið þið lengi þarna í allt? — Það get ég ekki sagt um. Ætli það fari ekki eftir ár- angrinum. — Þú ert aflakóngurinn á síldveiðunum í ár. — Ja, ég veit ekki, hvort við erum í efsta sæti ennþá. En okkur gekk illa, eins og reyndar öllum öðrum. Við byrjuðum í kring um mánaða- mótin júní—júlí og báturinn kom til Keflavíkur á sunnu- dag. í millitíðinni lögðum við bátnum í 3 vikur. Om RE a siglingu við Vestmannaeyjar. — Ég hef trú á þessu yfir sumarmánuðina, en er ekki vel ánægður með tímann núna, sagði Sævar. Mér er sagt, að þarna séu desember og janú- ar verstu mánuðirnir, hvað veður snertir, en í endaðan febrúar byrji sumarið. — Hvar ætlið þið að stunda síldveiðarnar? — Miðin sem við ætlum að reyna, eru sunnan og norðan ^GLOUCESTER B0ST0M við Cape Cod, stutt undan ströndinnL Þetta eru auðug síldarmið, eftir því sem mér er sagt, og síldin svipuð að stærð að sjá og Ffxaflóasíld- in, en eitthvað hnraðri. Mér skilst að þetta séu tiltöluléga ný mið. — Og þið ætlið að setja aflann í flutningaskip? — Já. Við verðum að losa í heimangengt áttu. Við verð- um 13 á þar af tveir nýir menn, sem ekki voru í sumar. í þessari ferð verðum við fjór ir fjölskyldumennirnir um borð. — Notið þið sömu nótina vestra og á miðunuha hér? — Nei. Við förum með nýja nót, sem er allmiklu grynnri, eða 50 faðmar. og 250 faðma löng. f sumar vorum við með nót, sem er 118 faðma löng. Við verðum svo miklu grynnra þarna vestur frá. — Hvernig verður með olíu og kost? — Ég reikna með, að við verðum að sækja hvoru tveggja sjálfir og þá til Glou- cester. Við getum tekið uim mánaðarbirgðir hverju sinni. Nú kemur frúin með kaffi og meðlæti og við notum tækifærið til að spyrja hana, hvernig henni lítizt á þetta ferðalag bóndans. — Ja, hvemig lízt sjómanns konum yfirleitt á útivistir manna sinna? Ég held, að ég verði að sætta mig við þetta og kannske er ekkert verra að vita af honum þarna en lengst norður í hafi. Ég bíð og sé hvað setur. Að svo mæltu heldur frúin aftur fram í eldhús, þegar hún hefur hellt í bollana og fullvissað sig um, að við ætl- um að gera meðlætinu ein- hver skil. Á borðinu í stofunni liggja mörg og mikil sjókort. Sævar Brynjólfsson með konu sinni; Ingibjörgu Hafliða- dóttur, og börnunum Hafliða, 3 ára, og Bryndísi, 7 ára. Ljósm. Heimir Stígsson. — Og tókuð ykkur sumar- frí? — Það má kannske kalla það svo. — Hvað fenguð þið svo mikið þennan tíma? — Það munu vera rétt rúm 3000 tonn. — Söltuðuð þið um borð? — Nei, við höfðum engan útbúnað til þess. — Hvað hefur þú stundað sjóinn lengi, Sævar? — Ég fór fyrst 14 ára á sjó og 15 ára var ég, þegar ég fór fyrst á síld. Skipstjóri hef ég verið frá tvítugsaldri, eða í 18 ár. — Þú hefur þá fylgzt með því, hvernig síldin hefur breytt sér hér við land. — Já. Og það eru miklar breytingar. Auk þess að fjar- lægjast landið æ meir í byrjun sumars er síldin núna miklu styggari og síðustu ár- in hefur hún lítið sézt vaða. — Hvernig er það? Eygir þú möguleika fyrir íslenzkan síldveiðiflota á miðunum við Cape Cod? — Vissulega er þessi mögu- leiki fyrir hendi. Þegar lengst var af miðunum í sumar tók siglingin hingað á sjötta sól- arhring. Haldj síldin áfram að fjarlægjast landið í upp- hafi sumarvertxðar, getur vel farið svo, að ekki verði verra að láta flutningaskipin sigla vestan um haf en norðan úr hafsauga, segir Sævar skip- stjóri að lokum. Frá Sævari héldum við svo heim til Ingólfs Falssonar, fyrsta stýrimanns á Erni, en Ingólfur býr einnig í Kefla- vík. Við tókum eftir því, að hann hafði hert rigninguna. — Mér lízt allvel á þessa tilraun, segir Ingólfur, þegar við spyrjum, hvert álit hann hafi á vesturförinni. Þó litist mér enn betur á hana á öðr- um tíma. Við verðum að gera okkur grein fyrir því, að við förum eiginlega á versta tímanum og mér er sagt að í desember og janúar geti gert þarna vond veður, einkum þó fjær ströndinni, en að því er mér skilst verðum við jafnvel innT an við 50 mílur undan landi eða 4—5 tima stím. Ég held, að við megum ekki gera okk- ur of miklar vonir um árang- ur fyrr en fer að líða á vorið. — Hvað með sjávarkuld- ann? — Sjávarkuldi er þarna miklu minni en út af Ný- fundnalandi, þar sem togar- axnir voru, enda eru þessi mið um 5—600 mílum sunnar eða suðvestur en togaramiðin voru. Og nú kemur frúin með kaffi. Eftir nokkrar fortölur Framhald á bls. 17 Ingólfur Falsson með konu sinni; Elinborgu Einarsdóttur, og sonum Einari Fal, 2 Margeiri, 7 ára. — Ljósm. Heiimir Stígsson. ara,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.