Morgunblaðið - 09.11.1968, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1968
11
— 40% af heildarviðskiptum Islendinga við EFT A-löndin
Framhald af bls. 28
stofnunar Evrópu árið 1948, en
markmið hennar var að stuðla
að eindurreisn Evrópu úr rúst-
um styrjaldarinnar. Bandaríkin
stuðluðu mjög að því endur-
reisnarstarfi með Marshallaðstoð
inni svonefndu. Á árinu 1952
var myndað Kol- og stálbanda-
lag Evrópu, sem hin sex ríki,
sem síðar stóðu að stofnun Efna-
hagsbandalagsins bundust sam-
tökum um. Árið 1955 efndu þessi
ríki til ráðstefnu í Messína á
ítalíu um stofnun víðtækara efna
hagsbandalags og tóku Breta í
fyrstu þátt í þeim viðræðum en
hættu þeirri þátttöku í árslok
1955. í marz 1957 var Rómar-
samningurinn undirritaður um
stofnun Efnahagsbandalags Ev-
rópu og tók bandalagið til starfa
1. jan. 1958. Að undirlagi Breta
hófust víðtækar umræður um við
skiptamál Evrópu innan Efna-
hagssamvinnustofnunarinnar en
þær viðræður urðu árangurslaus
ar. Þá hófust hins vegar við-
ræður milli 7 landa í V-Evrópu,
Austurríkis, Bretlands, Danmerk
ur, Noregs, Portúgals, Sviss og
Svíþjóðar um stofnun viðskiptá-
bandalags sín á mi'lli og lauk
þeim með stofnun Fríverzlunax-
samtaka Evrópu í janúar 1960.
Sáttmáli þessara ríkja fjallar
fyrst og fremst um afnám tolla
og viðskiptatálmana milli aðildar
ríkjanna. Ákvæði hans taka ein
göngu til viðskipta með iðnaðar-
vörur, en hvorki til viðskipta
með landbúnaðarafurðir né ó-
unnar eða lítt unnar sjávarafurð
ir. Unnar sjávarafurðir, svo sem
freðfiskmjöl, lýsi og niðursuðu-
vörur te'ljast hins vegar til iðn
aðarvarnings, þó að nokkrar sér
reglur gildi að vísu um innfluttn
ing freðfisks til Bretlands. Þá
er gert ráð fyrir sérstökum samn
imgi milli einstakra aðildarríkja
um vörur, sem sáttmálinn nær
ekki til, svo sem landbúnaðar-
afurða.
Tilgangurinn með stofnun Frí-
verzlunarsamtaka Evrópu var
tvíþættur, annars vegar vildu
aðildarríkin styrkja aðstöðu sína
í samkeppni við Efnahagsbanda-
lagsríkin með tóllalækkunum er
sexveldin yrðu ekki aðnjótandi,
hins vegar vildu þau styrkja
samningsaðstöðu sína ef til þess
kæmi að reynt yrði að koma
á allsherjarsamkomulagi um við
skiptamál V-Evrópu.
Reynslan af starfsemi viðskipta
bandalaganna tveggja hefur orð
ið mjög jákvæð fyrir aðildar-
ríkin, þar sem viðskipti innan
hvors bandalags hafa stóraukizt
en hins vegar hefur aðstaðan
versnað milli bandalaganna.
Þess vegna hafa aðildarríki Frí-
verálunarsamtakanna leitað eftir
aðild að Efnahagsbandalaginu en
tilraunir Breta til þess að hafa tví
vegis strandað 1963 og 1967 í
bæði skiptin vegna andstöðu
Frakka. í stórum dráttum er
staðan því þannig að V-Evrópa
er klofin í tvær viðskiptaheildar
sem ætla má að starfi sjálf-
stætt nú um skeið a.m.k.
ísland tók þátt ístofnun Efna
hagssamvinnustofnunarinnar og
endurskipulagningu hennar 1960
er henni var breytt í Efnahags-
og framfarastofnunina og Banda
ríkin og Kanada gerðust a'ðil-
ar að henni. Þessi aðild hefur
reynzt okkur gagnleg á marg-
an hátt. Árin 1948—1953 urðu
íslendingar aðnjótandi Marshal'l
aðstoðarinnar og fyrir forgöngu
stofnunarinnar afnámu öll aðild
arríki hennar innflutningshöít á
sjávarafurðum, öðrum en nýjum
fiski. Að tillögu fslendinga hef-
ur stofnunin gert margvíslegar
athuganir á sjávarútvegsmálum
V-Evrópu og einnig var að til-
lögu íslendinga komið á fót sér-
stakri sjávarútvegsnefnd, sem
starfa skal stöðugt að athugun-
um á sjávarútvegsmálum aði'ld-
arríkjanna og stuðla að því að
viðskipti með sjávarafurðir verði
sem frjálsust. Ennfremur veitti
Evrópusjóðurinn íslandi yfirdrátt
arián í sambandi við þá endur-
skoðun etfnahagsmála, sem fram
fór 1960.
Þegar Bretar hófu viðræður
sínar við Efnahagsbandalagið ár
ið 1961 var almennt búist við
því að þessi tvö bandalög rynnu
saman í eina heild. Var því gerð
af íslendinga hálfu könnun á
því, hvemig viðskiptahagsmunir
landsins yrðu tryggðir ef til
slíkrar sameiningar kæmi. Þegar
Kennedyviðræðurnar á vegum
GATT hófust 1964 var augljóst
að niðurstaða þeirra gæti haft
þýðingu fyrir viðskiptahagsmuni
íálands og gerðist ísland það ár
bráðabirgðaraðili að GATT og
hefur nú gerzt fullgildur aðili
að þeim samtökum. f Kennedy-
viðræðunum náðist nokkur ár-
angur fyrir íslendinga, einkum
afnám tolls af freðfiskblokkum
í Bandaríkjunum og lækkun tolls
af síldarlýsi í Bretlandi.
Á síðastliðnu ári taldi ríkis-
stjórnin tímabært að kanna hvort
hagkvæmt yrði að ísland gerð-
ist aðili að Fríverzlunarbanda-
lagi Evrópu, EFTA og var sett
á fót nefnd, sem allir þingflokk
arnir tilnefndu fulltrúa í. Á veg
um þessarar nefndar var gerð
skýrsla um málið og nefndin
ráðgaðist einnig við fulltrúa sam
taka atvinnuveganna. Nefndin tel
ur að með þessum áfanga, sé
hægt að taka ákvörðun um það,
hvort sækja sku'li um aðild að
EFTA og fá þannig úr því skor-
ið með hváða kjörum ísland gæti
gerzt aðili að samtökunum. Full-
trúar stjórnarandstöðuflokkanna
hafa af ýmsum ástæðum talið
æskilest að ákvörðun um um-
sókn vrði frestað. R'kisstiórnin
telur hins vegar æskilegt að á-
kvörðun um umsnkn verði tekin
nú en endanleg afstaða til máls-
ins verður auðvitað ekki tekin
fyrr en niðurstöður af væntanleg
um samningaviðræðum liggja fyr
ir. Jafnframt mun ríkisstjórnin
æskja áfram samstarfs við stjórn
arandstöðuna um málið og láta
hana fýlgjast með því.
Meginrökin fyrir því, að ríkis
stjórnin telur nú rétt að hefj-
ast handa um könnun á því, með
hvaða kjörum Island geti gerzt
aðili að Fríverzlunarsamtökum,
eru þessi: Um það bil 40%
heildarviðskipta íslendinga eru
aðili að Fríverzlunarsaimtökumum
|essum löndum má búast við mjög
aukinni eftirspurn á næstu ár-
um og áratugum eftir ýmsum
helztu útflutningsafurðum íslend
inga. Ef við stöndum utan sam-
takanna, mundu aðrar fiskveiði
þjóðir og þá fyrst og fremst Nor-
egur, Danmörk og Bretland full
nægja þessum auknu þörfum, en
írflendingar enga hlutdelld eiga
þar að eða að verða að sætta
sig við lægra verð fyrir útflutn
ing sinn til þessara landa. Við
myndum þá missa af þeim skil-
yrðum til aukins útflutnings.
Slíkrar þróunar hefur raunar
gætt á áberandi hátt undanfarin
2—3 ár. Enn fremur er á því
eniginn vafi, að í aðildarríkj-
IJ0HN8 - MMVIILE
glerullareinangrunin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrun-
ina með álpappírnum,
enda eitt bezta einangrunar-
efnið og jafnframt það
langódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4”
J-M glerull og 2Va” frauð-
plasteinangrun og fáið auk
þess álpappír með!
Jafnvel flugfragt borgar sig-
Sendum um land allt —
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121. - Sími 10600.
um Fríverzlunarsamtakanna er
nú markaður, er mun vaxa á
komandi árum, fyrir iðnaðarvör
ur, sem nú er unnt eða væri
í framtíðinni unnt að framleiða
á íslandi á samkeppnisfæru verði
bæði vegna skilyrða íslands til
orkuframleiðs'lu og hagnýtingu
fossiaafls og jarðhita og vegina
annarria að-'tæðna. Ef íislending-
ar standa til frambúðar uta<n Frí
verzluniarsamtakanna, gætu þeir
að sjálfsögðu enga aðild átt að
slíkum markaði eða vexti hans.
Það er enn fremur hugsanlegit,
að íslendingar gætu innan Frí-
verzlunarsamtakanna með sér-
stökum samningum við einstök
aðildarríki og þá fyrst og fremst
Framliald á bls. 17
CQ rodioóhugamenn CQ
á öllum aldri. fslenzkir radioamatörar boða til kynn-
ingarfundar í Slysavarnafélagshúsinu við Grandagarð
í dag laugardag 9. nóvember kl. 3 e.h.
Flutt verða erindi um starf I.R.A., prófkröfur fyrir
radioáhugamenn og um radioviðskipti.
Innritun á morsenámskeið.
Félagsstöðin TF3IRA verður starfrækt á fundinum.
Zu Ehren und zum Gedenken der Gefaillenen und
Toten beider Weltkriege wird die Botschaft der
Bundesrepublik Deutschland in Reykjavik an der
deutschen Kriegsgráberstatte auf dem Friedhof in
Reykjavik Fossvogi am Volkstrauertag, Sonntag, dem
17. 11. 1968 um 11 Uhr eine Kranzniederlegung ver-
bunden mit einer Andacht veranstalten.
Die Botschaft wáre fúr eine rege Beteiligung der
deutschen und deutschstámmigen Personen, die zur
Zeit in Reykjavik und Umgebung leben, dankbar.
til kl. 4 í dag
MAYFAIR VINYL VEGGFÓÐUR
SOMVYLVEGGDÚKUR
FEBOLIT GÓLFTEPPI
GÓLFFLÍSAR í FJÖLBREYTTU ÚRVALI
GÓLFLISTAR. GÓLFDÚKAR OG LÍM.
MÁLNINGARVÖRUR O. M. FL.
AÐEINS ÞAÐ BEZTA.
enda eru þau falleg og vönduð.
Breiddin er 365 cm. Engin samskeyti á miðju gólfi er gerir teppin
mun fallegri og endingarbetri.
Teppaleggjum frá eigin lager, með stuttum fyrirvara og veitum
góða greiðsluskilmála.
^ OPIÐ TIL KL. 4.00 í DAG LAUGARDAG.
Grensasvegi 3 Simi 83430