Morgunblaðið - 28.11.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1968
21
Er Island að verða grið-
land afbrotanna?
inn tími til að efla útlendinga-
eftirlitið og gefa því þá meira
vald til brottvLsunar óæsikilegra
útlendinga úr landinu. Erlendis
hafa slíkar stofnanir mikið vald
og tel ég víst að í þróuðum ríkj-
um hefðu þessir þrír ofangreind-
ir menn verið taldir PERSONA
NON GRATA.
Sævar Þ. Jóhannesson.
SAMÚÐ með afbrotamönnum
virðist vexa nokkuð ríkjandi
meðal sumra og gengur stundum
svo langt að surnt fólk reynir
jafnvel að verja gerðir afbrota-
mannanna. Því fólki miá þó virða
það til vorkunnar að það talar
í flestum tiilfellum um þessi mál
án þess að hafa hafa nokkur
kynni af þeiim, nema af vörum
náungans eða af fréttum út-
varps, sjónvarps og blaða. Hins-
vegar heyrir maður sjaldnar
minnzt á fórnardýr afbrota-
manna og virðist þá ekki skipta
máli hvort þau hafa beðið lík-
amlegt, andlegt eða fjárhagslegt
tjón af völdum þeirra. En samúð
með afbrotamönnunum finnst
ekki aðeins hjá aiknenniingi, sem
hefur engin tök á að kynna sér
feril þeirra, hún virðist einnig
eiga ítök meðal manna, sem
flestum betur eiga að þeikkja
sögu afbrotamannanna, þeirra
sem ákvarða hvort um fangelsis-
vist eða náðun verður að ræða
fyrir dæmdan afbrotamann.
Fleira en það, sem að framan
greinir, kemur til kasta þessara
manna, svo sem eftirfarandi
dæmi sýna:
Fyrir nokkrum árum kom
hingað til lands erlendur ríkis-
borgari, sem íslenzk yfirvöld
munu hafa vitað lítil deiM á fyrr
en hann varð uppvís að um
einum tug innlbrota, en það kom
að sjálfsögðu til kasta rannsókn-
arlögreglunnar að kanna það
mál. Maðurinn játaði þessi afbrot
og fékk frestun á ákæru, svo
sem venja er. Þeir urðu ekki
margir mánuðirnir, sem liðu,
þar til þessi sami maður var
handtekinn fyrir svipaðan fjölda
innbrota og í fyrra skiptið, sem
hann og viðurkenndi að hafa
framið og enn er „refsingin“
honum til handa frestun. Það
þarf ekki að spyrja að því að
hann notaði tíman-n vel eftir að
hann varð l'aus við „forvitnina"
lögreglumenn og „aðfinnslu-
sama“ dómara. Hann hófst handa
að nýju og nú urðu innbrotin
hátt á annan tug þegar „afsikipta-
samir“ lögreglumenn handtóku
kauða.
Hafi hann haldið að hann
miundi sleppa við alvörurefsingu
í þriðja sinn, þá skjátlaðist hon-
um, hann hlaut nefnilega ca.
18 m-ánaða „fangelsi".
Refsitíminn leið og töldu aillir
sem ekki vissu betur að að hon-
um loknum yrði útlendingurinn
sendur á kostnað ríkisins til síns
föðurlands, og hefði það orðið
öllu heppilegra, því að sá kostn-
aður er aðeins Mtið brot af því
tjóni, sem hann var búinn að
valda og átti eftir að valda, en
óhætt er að fullyrða að sú upp-
hæð (þ.e.a.s. tjónið reiknað í
peningum) muni nema nú sam-
anlagt hátt í 300 þús. kr., en
þeir, sem urðu fyrir þessu tjóni,
hafa margir hverjir aldrei fengið
neinar bætur og er ekki líklegt
að svo verði. Einungis þeir, sem
höfðu þjóftryggt, fengu einhverj
ar bætur.
Ekki hefur enn þótt ástæða til
að vísa þessum mikla athafna-
manni úr landi, en með slíku að-
gerðarileysi ráðandi manna
finnst mér að verið sé að níðast
á borgaranum, þvi enginn veit
hvar næsta högg ríður eða hver
verður fyrir því, einnig finnst
mér lögreglan og dómarar hafa
nóg að gera við það að fást við
innlenda afbrotamenn þó að er-
lendur afbrotalýður bætást ekki
þar við.
Fyrir um það bil 18 árum var
rikisfangslausum manni vísað
héðan úr landi vegna kynferðis-
afbrota, er hann hafði framið á
ungum drengjum. Nokkrum ár-
um síðar birtist þessi maður hér
að nýju, þá bregður svo ein-
kennilega við að hann fær að
vera, og þegar hann er búinn
að vera hér tilsikilinn tíma er
honum veittur íslenzkur ríkis-
borgararéttur, og það þrátt fyriir
fyrri brottvísun. Hann kemst svo
næst í kast við lögin vegna sama
brots fyrir nokkru. Fyrst mann-
inum var ekki vísað úr landi, er
hann kom hér í annað sinn, bar
ráðandi mönnum, þó ekki væri
nema siðferðileg skylda til að
kynna sér fyrri feril mannsinis
og taka tillit til hans, eða þá
að koma manninum undir lækn-
ishendur í þeirri von að hægt
væri að lækna hanin af þessum
afbrigðilegu kynlhvötum, þ.e.a.s.,
ef þeim var svo mikið í mun að
veita honum ríkisborgararéttinn.
Má telja fullvíst að af völdum
þessa manns hafi nú, og áður,
margir unglingar „smitast" og
orðið kynvilltir. Hver skyldi í
rauninni bera ábyrgðina á því
hvernig komið er fyrir þeim?
Það er ekki langt um liðið
síðan Norðurlandabúi einn kom
hingað til lands og hugðist taka
sér hér bólíestu um óákveðinn
tíma, með atvinnu í huga. Til-
töluilega stuttu eftir hingaðkomu
lenti hann í kasti við lögin, sem
varð til þess að þeir, sem um
* a
mál hans fjölluðu, leituðu sér
upplýsinga um fyrri feril manns
þessa í heimalainidi hainis. Uppíýs-
ingar fengust greiðlega og urðu
til þess að lögreglumennirnir
fóru þess á leit við viðkomandi
aðila að manninum yrði vísað úr
landi og því fyrr því betra. Ekki
var orðið við þeirri beiðni, þótt
ástæðurnar fyrir henni voru
fullikomlega ljósar. Hverjar voru
svo þessar upplýsingar? Jú,
Norðurlandabúinn var marg-
dæmdur afbrotamaður í sínu
heimalandi, hafði einnig gerzt
brotlegur í nágrannalandi, en
verið vísað úr því laradi að af-
lokinni fagneisisvist þar. Hann er
nú eftirlýstur af lögreglunni í
heimalandi sínu og má ætla, að
hann verði fangelsaður þar, jafn-
skjótt og til hans næst. Hvemig
skyldi afbrotaferill hans svo Mta
út? Hann hefur verið dæmdur
fyrir innbrot, árásir, rán, nauðg-
un o. m fl.
Þetta eru aðeins þrjú dæmi af
mörgum, sem lögreglan verður
að glíma við ár hvert og manni
verður á að spyrja, er ekki kom-
SIKA
Með aðstoð Sika efna
getið þér haldið áfram
steypuvinnu þó hsetta
sé á frostimi. Verja
steypuna niður í -h 10 C.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
VIKAN
í DAG:
Jólabaksturinn
Uppskriftir af 20 smákökum og 23 öðrum kökum.
Forsyte-sagan
Saga bítlanna
LITAVER
GRENSÁSVEGI22-24
SIMAR: 30280-32262
Gólfdúkur — plast- vinyl og línólíum.
Postulíns-veggflísar — stærðir 714x15, 11x11 og 15x15.
Amerískar gólfflísar — Gold Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar — DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss og baðgólfdúkur.
Málningarvörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slipp-
fél. Reykjavíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nælonteppi.
Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti og inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
Sendisveinn
Sendisveinn óskast nú þegar hálfan eða allan daginn.
Þarf að hafa reiðhjól.
Upplýsingar í síma 17100.
FELAGSFUNDUR '
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur almennan
félagsfund, laugardaginn 30. nóvember n.k. kl. 14.00
í Tjarnarbúð (niðri).
Dagskrá:
1. Uppsögn samninga.
2. Kaup á félagsheimili.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Karlakór Reykjavíkur
Samsöngvar fyrir styrktarfélaga í Háskólabíói í kvöld
fimmtudagog á föstudag kl. 19.15
alla dagana.
Stjórnandi: Páll Pampichler Pálsson.
Undirleik á píanó annast Kristín Ólafsdóttir og Litla
lúðrasveitin.
Einsöngvarar: Friðbjörn G. Jónsson, Gunnlaugur Þór-
hallsson, Jón Hallsson og Vilhelm Guðmundsson.
Þeir styrktarfélagar, sem af einhverjum ástæðum ekki
hafa fengið aðgöngumiða sína, vinsamlegast vitji
þeirra í Verzl. Fáfnir, Klapparstíg 40.
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR.
CHAMPION
l.|. Elill Vilhjdlmsson